Morgunblaðið - 22.12.1991, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.12.1991, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1991 SKÓVERSLUN PARÍS ATHEN PETER KaiSER Mikið úrval af hönskum og töskum. Gjafakortin okkar eru góð, hentug og vinsæl jólagjöf. Póstsendum samdægurs -5% staógreiósluafsláttur. Kringlunni, Kringlunni 8-12, sími 689212 S I M A L I N A N UPPSELT KX-T 2386 BE Verð kr. 12.332 stgr. Sfmi með símsvara — Ljós í takkaborði — Úttarandi skila- 1xk3 upp i 1/2 mln. — Hver móttekin skilatxið geta verið upp i 21/2 mfn. — Lesa má inn eigin minnisatriöi — Gefur til kynna að 15 skilaboö hafa verið lesin inn — Hægt að ákveða hvort símsvarinn svari á 3 eða 5 hringingu — Tónval/púlsval — 15 minni, þar af 3 númer fyrir hraðval — Endurhringing — Hægt að geyma viðmælanda — Stillanleg hringing — Hljóðstillir fyrir hátalara — Veggfesting. KX-T 2365 E Verð kr. 10.849 stgr. Skjáslmi, sem sýnir klukku, simanúmer sem val ið er, tímalengd símtals — Handfrjáls notkun — 28 beinvalsminni — Endurhringir sjálfkrafa 4 sinnum — Hægt að setja slmanúmer í skamm- tlma endurvalsminni — Hægt að geyma við- mælanda — Tónval — Stillanleg hringing — Hægt að setja simanúmer i minni á meóan talað er — Veggfesting. KX-T 2322 E KX-T 2342 E Verð frá kr. 5.680 stgr. KX-T 2342 E handfrjáls notkun — KX-T 2322 E hálf- handfrjáls notkun — 26 númera minni, þar af 6 númer fyrir beinval — Endurhringing — Hægt er að setja slðast valda númer i geymslu til endur- hringingar, einnig er hægt að setja sfmanúmer i skammtlma minni á meðan talað er — Tónval/ púlsval — Hljóðstillir fyrir hátalara — 3 stilling- ar fyrir hringingu — Veggfesting. PANAFAX UF 121 Verð kr. 64.562,-stgr. Telefaxtæki með 10 númera skammvals- minni — Allt frá stuttum orðsendingum til Ijósmynda — Sendir A4 slöu á aðeins 17 sekúndum — í fyrirtækiö — Á heimiliö. FARSÍMI Verð frá kr. 96.775 stgr. Panasonic farsíminn er léttur og meðfærilegur, vegur aðeins 4,9 kg. og er þá rafhlaðan meötalin. Hægt er að flytja tækið með sér, hvenær og hvert sem er, en einnig eru ótal möguleikar á að hafa slmtækiö last i bílnum, bátnum eða sumarbú- staðnum. HEKLA LAUGAVEGI 174 S. 695500/695550 Sveinn Kr. Guðmunds- son, Akranesi Einn þeirra manna, sem fyrstur bauð mig velkominn til starfa á Akranesi, þegar ég flutti þangað fyrir 17 árum, var Sveinn Kr. Guð- mundsson, útibússtjóri við Sam- vinnubankann þar. Frá þeim degi þróaðist kunningsskapur okkar til traustrar og varanlegrar vináttu, sem ekki hefir borið skugga á til þessa dags. Sveinn Kristinn, eins og hann heitir fullu nafni, er Austfirðingur að uppruna, fæddur að Búðum í Fáskrúðsfirði 22. desember árið 1911. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Stefánsson smiður og Guðrún Jónsdóttir. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum. Ungur fór hann að stunda sjóinn og fékkst við hverskonar sjávárstörf í heima- byggð sinni til ársins 1935. Á árun- um 1930-1932 var hann við nám í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Þar reyndist hann hinn nýtasti skólaþegn, bæði ágætur námsmað- ur og meðal hinna fremstu var hann í félagsstörfum. Árið 1935 hóf Sveinn störf hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfírðinga. Það sama ár gerðist hann einn af stofn- endum Verkalýðsfélags Fáskrúðs- fjarðar og var formaður þess til 1941. Þá átti hann sæti í hrepps- nefnd Búðahrepps og var þar vara- oddviti 1937-1941. Þessar staðreyndir sýna, að hann var þá þegar, um og innan við þrí- tugsaldur, meðal forystumanna í félagsmálum sveitar sinnar. Það var því skarð fyrir skildi, þegar hann hvarf á braut og flutti alfarinn suð- ur á Akranes árið 1941. Þar hóf hann störf hjá Kaupfélagi Suður- Borgfirðinga og var ráðinn þangað sem kaupfélagsstjóri árið eftir, 1942. Kaupfélagsstjórastörfum gegndi Sveinn til ársins 1963. Þá var hann ráðinn til starfa sem útibússtjóri í Samvinnubanka íslands hf., sem stofnaður var á Akranesi 3. janúar 1964. Jafnframt hafði hann með höndum umboð fyrir Samvinnu- tryggingar á Akranesi. Störfum sínum, bæði í kaupfélagi og banka, gegndi Sveinn af lipurð og festu, sem öfluðu bæði honum og fyrir- tækjunum vinsælda og trausts. Ein- hvern tíma lét hann þau orð falla, að í bankanum hefði hann aldrei þurft að neita viðskiptavini um fyr- irgreiðslu þó að e.t.v. hefðu ekki allir fengið alltaf eins mikið og um var beðið. En allir voru sáttir við málalokin. Hér er mikið sagt. Og áreiðanlega er það ekki heiglum hent að stýra banka til slíkrar niður- stöðú. Þar kom fyrr en varði, að útibúið á Akranesi var orðið það stærsta utan Reykjavíkur og blómstraði ár frá ári. Þó að Sveinn hafí jafnan sinnt sínum störfum á þann veg, að þar varð vart á betra kosið, þá gaf hann sér eigi að síður góðan tíma til að taka þátt í hinum ýmsu félags- málum og leggja góðum málum lið. Hann átti sæti í bæjarstjóm Akra- ness 1946-1950, í yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis um árabil, formaður fræðsluráðs Akraness 1959-1971. Þá hefir hann verið í stjórn Alþýðuflokksins fyrir Vestur- landskjördæmi frá 1977 og starfað í íjölmörgum ráðum og nefndum á vegum flokksins. í stjórn Byggða- safnsins í Görðum átti hann sæti frá 1973-1986, í bankaráði Seðla- banka íslands frá 1980-1988, í Góðtemplarareglunni um áratuga skeið og í Oddfellowreglunni frá 1953, Þar hefir hann gegnt flestum trúnaðarstöðum sem hægt er að kjósa einn mann í. Miklu víðar hef- ir Sveinn komið við sögu á vett- vangi félagsmála, þó að hér verði ekki lengra út á þær brautir haldið. En þess skal getið og á það minnt, að alls staðar var vel að verki stað- ið í þeim málum, sem Sveinn lagði lið. Hans lóð var jafnan þungt á vogarskálinni, þegar því Var að skipta. Kona Sveins er Guðrún Þórey Örnólfsdóttir frá Suðureyri í Súg- andafirði, hin ágætasta kona, sem NÝJAR JÓLASENDINGAR samkvæmisfatnaður. (WA prjónafatnaður. Munið gjafakortin Laugaveg 118. reynst hefir manni sínum traustur og ástríkur lífsförunautur. Þau eiga 4 börn. Elst þeirra var Guðrún Margrét. Hún lést af barnsförum 17. nóvember 1971, glæsileg stúlka og stórvel gefin. Maður hennar var Páll Ingólfsson. Næstur henni er Örnólfur, lögreglumaður í Reykja- vík, kvæntur Guðrúnu Björnsdótt- ur, þá er Kristján, fulltrúi hjá Essó, kvæntur Sigrúnu Karlsdóttur og búa þau á Akranesi, yngstur er Sigurbjörn, hann er launafulltrúi hjá NATO á Keflavíkurflugvelli, kvæntur Dagbjörtu Hansdóttur. Þau búa í Reykjavík. Sveinn lét af störfum við bank- ann um 1980. Næsta árið hafði hann svo með höndum umsjón með byggingu stórhýsis, sem Samvinnu- bankinn lét reisa við Kirkjubraut 28. Síðustu árin hefir Sveinn fengist við ýmislegt, því að enn hefir aldur- inn unnið lítt á honum. Hann hefir enn sem fyrr brennandi áhuga á sínum fyrri hugðarefnum og leggur hiklaust fram styrka hönd þeim til stuðnings þegar þess er þörf. Það er mikils virði að eiga slíka menn sem hann er að félagsbróður og vini. Það var vel að orði komist og mikill sannleikur sagður í fáum orðum, þegar sagt var um Svein Guðmundsson sjötugan: „Það eru mannbætandi forréttindi að fá að starfa með mönnum eins og Sveini Kr. Guðmundssyni." Ég tek heils hugar undir þessi orð. Þau eru ekki síður sönn í dag en þau voru fyrir 10 árum. Eg óska mínum kæra vini og félagsbróður hjartanlega til ham- ingju með áttræðisafmælið og bið honum, hans góðu eiginkonu og ástvinum þeirra Guðs blessunar í bráð og lengd og óska þeim öllum gleðilegra jóla. Björn Jónsson Sveinn Kristinn Guðmundsson fæddist á Búðum í Fáskrúðsfirði og ólst þar upp hjá foreldrum sín- um, Guðmundi Stefánssyni sem var smiður þar og Guðrúnu Jónsdóttur húsfreyju. Það er ekki að sjá þegar maður Iítur Svein á gangi við störf eða þegar hann tekur til máls að þar sé á ferð maður sem er áttræður, öðru nær, fas hans allt er snarpt, hugsun athugul viðhorf glögg og framsetning máls á þann hátt að hver samferðamaður gæti verið stoltur af slíkum færum. Sveinn nýtur þess að setja fram sínar skoðanir þegar við á, um hvert það málefni sem til umræðu er það sinnið, og hefur ærið oft lag á að færa skýr rök fyrir sínum málflutn- ingi. Sveinn stundaði nám í Héraðs- skólanum á Laugarvatni 1930- 1932. Stundaði hann alla algenga vinnu á Búðum til ársins 1935 en hóf þá verslunarstörf hjá Kaupfé- lagi Fáskrúðsfirðinga. Sveinn Kr. Guðmundsson hóf snemma opinber afskipti. Hann var fyrsti formaður og einn af stofnend- um Verkalýðsfélags Fáskrúðsfjarð- ar frá 1935-1941, einnig var hann kjörinn í hreppsnefnd Búðahrepps og var oddviti 1927-1941. Sveinn fluttist til Akraness til að starfa hjá Kaupfélagi Suður-Borgfirðinga og var kaupfélagsstjóri þess 1942- 1963. Sveinn hefur tekið virkan þátt í Alþýðuflokknum, setið 16 ár í stjórn kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Vesturlandi, lengst af sem formað-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.