Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
Útflutningur SH í fyrra:
Magnið 10% minna en
verðmætið 4% meira
HEILDARVERÐMÆTI útflutnmgs Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
á sjávarafurðum árið 1991 nam tæplega 19,8 milljörðum króna, miðað
við cif-verðmæti, en samtökin seldu sjávarafurðir fyrir tæplega 19
milljarða króna árið 1990. Það er 4% verðmætaaukning milli ára. SH
flutti út samtals 85 þúsund tonn af sjávarafurðum til þriggja heimsáifa
í fyrra á móti 94 þúsund tonnum árið áður, þannig að útflutningurinn
dróst saman um 10% í magni, sem m.a. endurspeglar aflasamdráttinn.
Um 130 manns sitja nú árlegan verkstjórafund SH á Hótel Loftleiðum
en fundinum lýkur í dag.
Evrópumarkaður er stærsti mark-
aður SH en verðmætishlutdeild hans
á sl. ári nam 52% af heildarsölunni.
Bandaríkin halda aftur á móti sæti
sínu sem stærsta einstaka viðskipta-
land SH.
Útflutningur Sölumiðstöðvarinnar
til Evrópubandalagslandanna var
mjög svipaður í magni og verðmæt-
um á milli áranna 1990 og 1991.
Sala til IFPL, dótturfyrirtækis SH í
Grimsby, var lítillega minni en árið
á undan. Verðmætaaukning var aft-
ur á móti 6% milli ára en Sölumið-
stöðin seldi sjávarafurðir til Bret-
lands fyrir 2,8 milljarða 1991.
Dótturfyrirtæki SH í París, IFPE,
seldi 18 þúsund tonn af fiski í fyrra,
sem er um 3% magnaukning milli
ára en verðmætaaukningin varð mun
meiri, eða 12%, en söluverðmætið er
3,7 milljarðar króna. Samdráttur
varð aftur á móti bæði í magni Qg
söluverðmæti hjá VÍK, dótturfyrir-
tæki SH í Hamborg. VÍK seldi 14
þúsund tonn á sl. ári fyrir tæpa 3
milljarða króna, sem er 4% minnkun
verðmætis, en samdráttur í tonnum
var 15% milli árá.
Bandaríski markaðurinn hélt sama
magnhlutfalli, eða 22%, miðað við
heildarútflutning SH milli áranna
1990 og 1991. I fyrra voru flutt út
rúmlega 18 þúsund tonn af frystum
fiskafurðum til Coldwater Seafoód
Corp. í Bandaríkjunum en 21 þúsund
tonn árið áður. Munurinn í magni
liggur í samdrætti á þorskafurðum
en samdráttur í sölu þeirra til Evr-
ópulanda og Bandaríkjanna var mjög
svipaður 1991.
Mesta verðmætaaukningin varð í
sölu á sjávarafurðum til Asíulanda.
SH rekur sölufyrirtækið IFPC í
Tókýó, sem sinnir sölumálum í'Ásíu,
en Japan er mikilvægasti markaður-
inn í Áusturlöndum. I fyrra seldi SH
um 20 þúsund tonn til Asíu fyrir
tæplega 2,8 milljarða króna, sem er
30% verðmætaaukning frá 1990.
Mestu munar þar um breytingu í
samsetningu fisktegunda. Karfa- og
grálúðusala jókst til Asíu í fyrra en
samdráttur varð í sölu á síld og loðnu,
sem eru verðminni afurðir en þær
fyrrgreindu.
Um 900 tonn af ferskum iaxi voru
flutt út á vegum SH á síðastliðnu
ári en þessi útflutningur nam um
1.200 tonnum árið áður.
SH hóf útflutning á hrossakjöti til
Japans á nýliðnu ári. Um er að ræða
fitusprengt kjöt, sem er að mestu
úrbeinað fyrir flutning, m.a. til að
draga úr flutningskostnaði, en alls
flutti Sölumiðstöðin út 55 tonn fyrir
30 milljónir króna í fyrra.
Þyrlukaup:
Niðurstaða
viðræðna
1. febrúar
VIÐRÆÐUR standa nú yfir við
fulltrúa bandarískra stjórnvalda
um hugsanlega samvinnu í björg-
unarmálum, í samræmi við tillög-
ur þyrlukaupanefndar. Þorsteinn
Pálsson dómsmálaráðhcrra segir
að viðræðurnar gangi eðlilega
fyrir sig og ekkert bendi til ann-
ars en að niðurstaða fáist fyrir
1. febrúar.
Þorsteinn sagði að að fenginni
niðurstöðu af viðræðunum við
Bandaríkjamenn væri hægt að leggja
mat á þá kosti sem völ væri á, með-
al annars að velja þyrlugerð. Ráðu-
neytisstjórar dómsmálaráðuneytis og
utanríkisráðuneytis annast viðræð-
urnar fyrir íslensk stjómvöld og
bandaríski sendiherrann fyrir Banda-
ríkjastjórn.
Þorsteinn sagði að í fjárlögum og
frumvarpi til lánsijárlaga væm allar
nauðsynlegar heimildir til kaupa á
björgunarþyrlu og lántöku vegna
þess.
VEÐUR
Heimild: Veöurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
ÍDAGkl. 12.00
VEÐURHORFUR í DAG, 10. JANÚAR
YFIRLIT: Á Grænlandssundi er 973ja mb lægð á hreyfingu norð-
austur en 978 mb lægð um 1.200 km suður af Hvarfi hreyfist norð-
ur og síðar norðaustur. Hæðarhryggur yfir Bretlandseyjum þokast
suðaustur.
SPÁ: Á morgun verður austan og suðaustan kaldi með rigningu
sunnan- og austanlands en norðaustan stinningskalda og éljum á
Vestfjörðum. Annars staðar úrkomulaust að mestu. Hiti 3 til 5 stig
suðaustanlands, en um og undirfrostmarki norðvestan til á landinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Suðlægar áttir. Rigning
eða slydda um sunnan- og vestanvert landið en úrkomulítið norð-
austanlands. Áfram fremur hlýtt í veðri.
Svarsími Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjaö
Skýjað
Aiskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
■j o Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V
Éi
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
Þoka
Þokumóða
# / #
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
# # #
’, ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
K
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyrí 1 úrkoma í grennd
Reykjavík 5 rigning
Bergen 2 léttskýjað
Helsinkl + 2 alskýjað
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Narssarssuaq +6 léttskýjað
Nuuk +10 vantar
Osló 2 léttskýjað
Stokkhólmur 0 alskýjað
Þórshöfn 4 alskýjað
Algarve 13 alskýjað
Amsterdam 5 rignig og súld
Barcelona vantar
Berlín 9 rigning
Chicago 4 rigning
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 10 skýjað
Glasgow 3 léttskýjað
Hamborg 3 súld
London 5 rigning
Los Angeles vantar
Lúxemborg 8 rigning og súld
Madríd 7 léttskýjað
Malaga 15 skýjað
Mallorca 15 skýjað
fMontreal +10 alskýjað
NewYork vantar
Orlando vantar
París 9 skýjað
Madeira 18 skýjað
Róm 13 þokumóða
Vín 0 þoka
Washington 6 rigning
Winnipeg +20 léttskýjað
Formaður Hlífar um deiluna í Straumsvík:
Stjómað með tilskip-
unum ekki samráði
SIGURÐUR T. Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði, segir að það sé fyrst og fremst stjómunarstíll forstjóra
Islenzka álfélagsins, Christians Roths, sem valdi óánægju mcðal starfs-
manna í álverinu í Straumsvík. Sigurður segir Roth stjórna með tilskip-
unum, án samráðs við starfsmenn.
„Það er uppi mjög alvarlegur
ágreiningur. Það alvarlegasta af hon-
um snýst alls ekki um sætabrauð,"
sagði Sigurður . Deilur hafa orðið í
álverinu vegna þess að starfsfólki
hefur verið boðið upp á sætabrauð
með kaffinu í stað smurbrauðs.
„Þótt við séum alltaf tilbúnir til
samráðs kalla einhliða ákvarðanir
fyrr eða síðar á hörkulegar aðgerðir.
Hann [Roth] er alltaf vitlausu megin
landamæranna við gerð kjarasamn-
inga. Hann er alltaf bijótandi, hvort
sem er í litlu eða miklu, það sam-
komulag sem við höfum gert,“ sagði
Sigurður. „Þegar samráð er nauð-
synlegt eru ýmis smáatriði, sem vilja
klemmast á milli. Það er langtum
verra að ræða um þau þegar búið
er að koma einhveiju á einhliða sem
átti að vera samráð um. Ef einhver
smáatriði eru ekki eins og hinum
aðilanum líkar, þá geta þessi smáu
atriði orðið illvíg. Ég veit ekki hvort
Þjóðveiji af hans gráðu skilur þetta.
Allir sem vita hvað orðið samráð
þýðir, vita að það gildir ekki um
dagskipanir, sem annar aðilinn gef-
ur.“
Sigurður sagði að það væri hér
um bil eingöngu framkoma hins nýja
forstjóra, sem gæti valdið leiðindum
í álverinu. Hann sagði að Christian
Roth ætti að forðast að tala um að
í álverinu væru of mörg verkalýðsfé-
lög til að semja við. „Hann hefur
ekki reynt að semja við einn eða
neinn. Hann er með tilskipanir, sem
eiga ekki við nema annar aðilinn
ætli sér að kúga hinn,“ sagði Sigurð-
ur. „Við biðjum um kjarasamninga
og að kjarasamningar séu haldnir."
Sigurpáll Jónsson
aðalbókari látinn
SIGURPÁLL Jónsson, fyrrum
aðalbókari Sjúkrasamlags
Reykjavíkur, er Iátinn. Hann var
75 ára, fæddur 4. janúar 1917, í
Reykjavík.
Sigurpáll var sonur Jóils ívars-
sonar verkamanns í Reykjavík og
konu hans, Aðalheiðar Ólafsdóttur,
sem ættuð var frá Sogni í Ölfusi.
Sigurpáll varð búfræðingur frá
Hólum 1937, en réðst ungurtil ísa-
foldarprentsmiðju, þar sem hann
starfaði um árabil, frá 1942 til
1964. Hann var stofnandi bókaút-
gáfunnar Frónar og átti sæti í stjórn
Bóksalafélags Islands um skeið. Á
árunum 1964 til 1970 var hann
framkvæmdastjóri Vikunnar, en
síðustu starfsárin var hann aðal-
bókari Sjúkrasamlags Reykjavíkur.
Sigurpáll tók ríkan þátt í félags-
málum, einkum innan íþróttahreyf-
ingarinnar. Hann var leikmaður
með meistaraflokki knattspymufé-
lagsins Vals á stríðsárunum og varð
síðar formaður íþróttafélags
Reykjavíkur, ÍR. Hann var ritstjóri
og útgefandi íþróttablaðsins Þróttar
á árunum 1943 til 1945. Sigurpáll
var einnig um langt skeið einn af
framámönnum Stangveiðifélags
Reykjavíkur..
Sigurpáll Jónsson
Eftirlifandi kona Sigurpáls Jóns-
sonar er Steinunn M. Steindórsdótt-
ir tónlistarkennari. Þau eignuðust
þijú börn, Björn Vigni, ritstjórnar-
fulltrúa við Morgunblaðið, Eybjörgu
Dóru, móttökustjóra á Hótel Holti,
og Jón, myndlistarmann og safn-
vörð á ísafirði.
I
I
[
1
I
I
i
I
I