Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992
9
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
[SÍMI: 62 84 50
Seltjarnarnes
Einbýlishús - raðhús
óskast til leigu
Sterkur aðili óskar eftir einbýlishúsi
eða raðhúsi til leigu á Seltjarnarnesi
eða vestast í vesturbænum
til 1-2ja ára.
Gulltryggar greiðslur.
Leiguupphæð samningsatriði.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „F- 13762“
Spátfómar Biblíunnar
Opinberunarbökin
Námskeið um hrífandi spádóma Biblíunnar hefst
þriðjudaginn 14. janúar kl. 20.00 á Hótel Holiday
Inn, Sigtúni 38. Efni Opinberunarbókarinnar
verður sérstaklega tekið til meðferðar.
ÞÁTTTAKA ER ÓKEYPIS.
Fjölbreytt námsgögn EINNIG ÓKEYPIS.
Leiðbeinandi verður dr. Steinþór Þórðarson.
Ótrúlegir atburðir gerast í heiminum á okkar
dögum. Spádómar Biblíunnar hafa mikið að segja
um þá. Þeir boða að stórkostlegir atburðir eigi
enn eftir að gerast, jafnvel á okkar dögum.
Nánari upplýsingar og innritun í símum 679270
á skrifstofutíma og 673551 eða 673626 á kvöldin.
Minni hags-
munir víki fyr-
ir meiri hags-
munum
Alþýðublaðið segir
m.a.:
„Riftun GATT-samn-
mgsins af Islands hálfu
mundi þýða að Islending-
ar afsöluðu sér áuimum
réttindum sem uimizt
hafa i fyrri samningalot-
um GATT: Afnám tolla á
fiskblokk í Bandaríkjun-
um og verulegum tolla-
lækkunum á öðrum sjáv-
arafurðum eins og lag-
metd, humri, hörpudiski,
heilfrystum fiski, þorska-
lýsi og fleira á Banda-
ríkjamarkaði. GATT-
samninguriim þýðir einn-
ig lægri tolla af íslenzk-
um framleiðsluvörum
eins og osti og ullarvör-
um og veitir okkur tolla-
lækkanir á útflutnings-
vörum Islendinga til
Kanada, Japans og fleiri
landa. GATT-samningur-
inn tryggir auk þess ís-
lenzkum neytendum mun
lægra vöruverð og aukna
fjölbreytni á innlendum
vörutegundum. Eru ís-
lendingar reiðubúnir að
fóma öllu þessu og meira
til fyrir óbreyttan bú-
vömsamning?
Hið miðstýrða, fjár-
freka og glórulausa land-
búnaðarkerfi á Islandi
hefur þrifizt áratugum
saman á botnlausum
fjárauslri úr ríkissjóði.
Kerfið hefur ekki tekið
tillit til framleiðsluhæfni
bænda, þarfa neytenda,
markaðslögmála né pen-
ingameðferðar skatt-
greiðenda. Landbúnað-
arkerfið hefur fyrst og
fremst tekið tillit til
framleiðendanna og
hagsmuna þeirra. Það
hefur mátt kosta skatt-
greiðendur hvað sem
var...“
Samkeppni við
erlendar og
niðurgreiddar
búvörur
Tímiim segir m.a.:
ÖV
íminn
MAUVABI FIUAm.YlllHS. miWHHU 00 rtUQlWYflttJU
, islenska
lálivótDun1'0
[ an 1
innflu®1
siioraó !
ogttflV
„■«1 of '
bKd' “I-------------
ÍÖí2S| Gattsamningamir —
riMininirmn
ivara
um milli-
aðilar að
HVERFISGÓTU 8-10 - REYKJAVÍK - SlMI 625566
Samþykkjum GATT-
samkomulagið
Þverpólitískt deilumál
Upp er komið stórt þverpólitískt deilumál
á Alþingi: Fjölþjóðlegur tollasamningur,
„GATT-samkomulag“. Talsmenn land-
búnaðarins hafa snúizt öndverðir gegn
samkomulaginu. Forsvarsmenn sjávarút-
vegs, iðnaðar og neytenda horfa á málið
frá öðrum sjónarhóli. Staksteinar glugga
í leiðara Alþýðublaðsins, Tímans og DV
um málið.
„Við íslendingar höf-
um tekið fullan þátt í
þeirri endurskoðun sem
nú stendur yfir, og um
það er ekki deilt að fijáls-
ari heimsverzlun er leið
til framfara, ekki sízt í
þróunarlöndum. Eigi að
síður snerta þær tillögur,
sem nú er fjallað um i
GATT-viðræðum, við-
kvæm svið í okkar at-
vimiulífi og er þar átt við
áhrif samningaima á
landbúnaðinn í landinu...
Utanríkisráðherra
hefur ekki gert fyrirvara
sem varða sérstöðu Is-
lendinga á landbúnaðar-
sviðinu, þrátt fyrir þær
staðreyndir að við höfum
gengið lengra á sumum
sviðum samningsupp-
kastsins, hvað þau varð-
ar, heldur en aðrar þjóð-
ir. Það þýðir ekki að fella
þetta mál í hina hefð-
bundnu þrætubók um
laiidbúnaðarmál, eins og
utamíkisráðherra er að
reyna. Islenzk bænda-
stétt liefur ekki neitað
að vera með í þróun til
fijálsra viðskipta. Hins
vegar á að varast að vera
katólskari en páfinn í
þessum efnum og krefj-
ast þess að fyrirvarar séu
gerðir sem varða sér-
stöðu íslenzks landbún-
aðar. Þeir fyrirvarar
verða að tryggja það að
landbúnaðurhm sé ekki
þegar í upphafi óvarinn
fyrir niðurgreiddum
landbúnaðarvörum er-
lendís frá, og heilbrigðis-
sjónarmiða sé gætt í þeim
innflutningi, sem hugs-
anlega gæti komi til, og
sönnunarbyrðin hvíli
ekki á okkur um húfjár-
sjúkdóma hjá öðrum
þjóðum, jafnvel hinum
megin á hnettinum."
Hagsmunir
neytenda og
skattgreið-
enda
DV segir m.a.:
„GATT-samkomulagið
opnar möguleika á því
að neytendur fái ódýrari
matvöru og markaðslög-
mál ráði kaupum og söl-
um á laudbúnaðarvörum
frá einu landi til annars.
Hér er lítið skref stigið,
svo lítið, að það getur
skipt um 300 milljónir
króna fyrir landbúnað-
inn hér heima. Það er
ekki stór upphæð þegar
haft er í huga að rúmlega
tíu milljörðum króna er
varið í niðurgreiðslur og
landbúnaðarstyrki á
hveiju ári.
GATT-samkomuIagið
felur auðvitað í sér fleira
og landbúnaðarákvæðin
eru aðeins hluti af stærra
samkomulagi. Ef faríð
yrði að kröfu bændasam-
takanna og samningum
hafnað eru Isiendingar
jafnframt að hafna toll-
ívilnunum fyrir sjávaraf-
urðir sínar inn á Banda-
ríkjamarkað og tolla-
lækkunum á útflutningi
til Kanada, Japans og
flciri landa.
íslenzkur landbúnaður
verður að horfast í augu
við þann veruleika að það
er ekki hægt öliu lengur
að vemda hann fyrir allri
utanaðkomandi sam-
keppni. Það er útilokað
að íslenzkir neytendur
sætti sig við verðlag á
matvöm sem er í engu
samræmi við það sem
annars staðar er í boði.
Það er nánast óskamm-
feilni af bændasamtök-
unum að gera þá kröfu
til íslenzkra skattgreið-
enda að þeir haldi áfram
að ausa fé í niðurgreiðsl-
ur á landbúnaðarfram-
lciðslu meðan þjóðin þarf
að herða sultarólina í
efnahagsþrengingum ...
Bændasamtökin ís-
lenzku eiga að Iáta af
þeirri stefnu að bændur
verði ómagar á ríkisjöt-
unni og geti ekki lifað
nema í vemduðu um-
hverfi. Landbúnaðurinn
verður að læra að lifa í
nútimanum. Bændur em
áreiðanlega fullfærir um
það ef þeir fá til þess
frið fyrir málsvömm sín-
um.“
SÓLARKAFFI
ÍSFIRÐINGA-
FÉLAGSINS
ísfirðingafélagið í Reykjavík gengst fyrir sínu
árlega SÓLARKAFFI föstudagskvöldið
17. JANÚAR nk., að HÓTEL ÍSLANDI.
Húsið opnar kl. 20.00, en kl. 20.30 hefst
hefðbundin og vönduð dagskrá með kaffi og
rjómapönnukökum. Hljómsveit hússins leik-
ur fyrir dansi þar til kl. 3 eftir miðnætti.
AÐGANGSEYRIR kr. 1.800.-
Forsala aðgöngumiða fer fram í anddyri
Hótel íslands laugard. 11. janúar kl. 13—16.
Borð verða tekin frá á sama stað og tíma.
Miðapantanir auk þess í síma 91-687111 dag-
ana 11.—17. janúar milli kl. 13—18.
Greiðslukortaþjónusta.
STJÓRNIN
SlMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
fF