Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 47

Morgunblaðið - 10.01.1992, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1992 47 i I I < < ( ( ( í I I I I I KÖRFUKNATTLEIKUR / JAPISDEILDIN Vonir Grindvík- inga minnka enn HAUKARNIR hafa greinilega ekki sagt sitt síðasta orð í Jap- isdeildinni í vetur en vonir Grindvíkinga um að komast í úrslit minnkuðu enn í gær- kveldi þegar þeir töpuðu fyrir Haukum. Æsispennandi og jöfnum leik liðanna lyktaði með 88:83 sigri Hauka. John Rhodes gaf tóninn strax í bytjun þegar hann blakaði knettinum í tvígang í körfu Grind- víkinga eftir mis- SkúliUnnar heppnuð skot félga Sveinsson sinna. Rhodes tók skrifar 16 fráköst í leiknum og var geysilega sterkur, sérstaklega í sóknarfrá- köstum. Fyrri hálfleikur var fjörug- ur og skemmtilegur. Mikill hraði og þokkaleg hittni framan af. Haukar leiddu lengst af og mest með fimm stigum. Grindvíkingar gáfu þeim þó ekkert eftir og kom- ust tvívegis yfir en náðu ekki að halda því. Seinni hálfleikur var ekki síður spennandi. Munurinn löngum 1-2 stig, allt þar til réttilega var dæmd tæknivilla á Grindvíkinginn Rúnar Arnason fyrir að mótmæla heldur kröftuglega þegar dæmd voru á hann skref. Grindvíkingar voru komnir á skrið þegar þetta gerðist, höfðu gert 6 stig í röð og voru búnir að jafna 62:62. Tæknivillan hafði mikil áhrif á leikinn. Haukamir gerðu níu stig í röð og öll orka gestanna fór í vinna þann mun upp. Það tókst þó með geysilegri baráttu og leikurinn enn og aftur í jámum. Heimamenn vom sterkari á endasprettinum. Að öðrum ólöstuðum var ívar Ásgiímsson mikilvægasti maður Haukanna. Leikreynsla hann nýtt- ist til fullnustu undir lokin, en þá lék hann einstaklega vel. Jón Arnar var góður svo og John Rhodes. Hjá Grindvíkingum voru Guð- mundur og Joe Hurst sterkastir en aðrir eiga að geta betur. Bergur Hinriksson stóð sig þó vel undir miklum þfystingi í lok leiksins. Sjálfsagt vilja íjölmargir Grind- víkingar, sem fylgdu liði sínu til Hafnarfjarðar, kenna dómumm leiksins um úrslitin en ég held að þegar grannt er skoðað hafi tækni- villan sem réttilega var dæmd á Rúnar Árnason haft meiri áhrif á leikinn en dómararnir. Dómararnir gerðu vissulega mistök, en þó mun færri en leikmenn. Úrskurður mótanefndar KKÍ: Leikur Þórs og Hauka farí fram sem fyrst Þórsarar áfrýja til dómstóls (þróttabandalags Akureyrar MÓTANEFND Körfuknatt- leikssambands íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu, að leikur Þórs og Hauka, sem ftautaður var á og af á Akur- eyri 20. desember sL, vegna þess að Haukar mættu of seint, skuli fara fram aftur. jm I Irskurður nefndarinnar er svo- hljóðandi: „Á gmndvelli 18. greinar reglu- gerðar um körfuknattleiksmót er mótanefnd gert að meta aðstæður í tilfellum sem þessum. Mótanefnd KKÍ hefur fjallað um greinargerð vegna kæm á leik Þórs og Hauka í Japisdeild- inni 20. 12. 1991 I íþróttahöllinni Akureyri og staðfestingu Flug- leiða á seinkun á flugi FI 066. Jafnframt hefur mótanefnd haft til hliðsjónar greinargerð Kristins Albertssonar, annars dómara leiksins. Niðurstaða mótanefndar er eft- irfarandi: Á gmndvelii gagna frá Flugleiðum uxn seinkun á flugi telur mótanefnd að fullnægjandi skýringar hafí fengist á fjarvem keppnisliðs Hauka. Af þeim ástæðum skai leikurinn fara fram á Akureyri eins fljótt og auðið er eins og um hinn upprunalega væri að ræða.“ Þennan úrskurð kváðu upp Gísli Georgsson, Ríkharður Hrafnkels- son og Pétur H. Sigurðsson, en Sverrir Hjörleifsson, sem er í mótanefnd, ákvað að taka ekki þátt í afgreiðsiu málsins þar sem hann situr í stjóm Hauka. Birgir Torfason, fonnaður körftiknattleiksdeildar Þórs, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi að jþeir væra mjög öhressir með þessa niðurstöðu. „Við emm ákveðnir i því að áffyja til dóm- stóls Iþróttabandalags Akureyrar. Dómarar leiksins ráðfærðu sig við KKI áður en leikurinn var flautað- ur af. Við voram búnir að hita upp í tvo klukkutíma áður en leik- urinn var flautaður af. Kosnaður okkar vegna dórnara leiksins var um sjötiu þúsund krónur, en þeir komu til Akureyrar með leigu- flugi,“ sagði Birgir. Hægt er að áffyja úrskurði mótanefndar til dómstóls íþrótta- bandalags Akureyrar, eins og Þórsarar hafa ákveðið að gera. Úrskurði hans er svo hægt, ef vill, að skjóta til dómstóls KKÍ en úrskurður hans er endaniegur. KNATTSPYRNA ÓL-lid Norðmanna mætir íslendingum á Möltu-mótinu ÓLYMPÍULIÐ Noregs verður fjórða lið á fjögurra liða mótinu í knattspyrnu, sem íslenska landsliðið tekur þátt í á Möltu í byrjun febrúar. Morgunblaðið fékk þær upplýsingar frá Möltu í gær, en áður var aðeins ákveðið að landslið Möltu og Albaníu kepptu á mótinu. Olympíulið Noregs ætti að verða verðugur andstæðingur því það gerði sér lítið fyrir og burstaði lið Ítalíu í undankeppni Ólympíu- leikanna í júní á síðasta ára, 6:0, í Noregi. ítaiir unnu seinni leikinn svo 2:1 á heimavelli og unnu riðil- inn. Það sem kom í veg fyrir að Norðmenn kæmust á Ólympíuleik- ana í Barcelona var tap, 0:1, heima gegn Sovétmönnum og jafntefli gegn þeim á útivelli. Skv. þeim upplýsingum sem Morgunblaðið fékk í gær hafa Al- banir enn ekki staðfest þátttöku sína á mótinu, en látið það berast að þeir muni láta mótshaldarana, Möltubúa, vita tíu dögum áður en mótið hefst, hvort þeir mæti! Komi Albanir ekki hafa forráðamenn knattspymusambands Möltu ákveðið að búa til lið skipað erlend- um leikmönnum sem leika með lið- um í 1. deildinni á Möltu, og það hlaupi í skarðið. íslenska landsiiðið fer til Möltu 3. febrúar. Leikið verður 6., 8. og 10. febrúar og komið heim þann ellefta. URSLIT Haukar- UMFG 88:83 íþróttahúsið Strandgötu, fslandsmótið í körfuknattleik, Japisdeildin, fimmtudaginn 9. janúar 1991. Gangur leiksins: 4:0, 6:6, 19:14, 21:21, 23:24, 29:24, 32:34, 44:40, 44:44, 62:56, 62:62, 71:62, 75:76, 81:81, 85:83, 88:83. Stig Hauka: Jón Amar Ingvarsson 26, John Rhodes 21, ívar Ásgrímsson 19, Tryggvi Jónsson 8, Jón Öm Guðmundsson 7, Pétur Ingvarsson 5, Bragi Magnússon 2. Stig UMFG: Guðmundur Bragason 24, Joe Hurst 24, Hjálmar Hallgrímsson 8, Pálmar Sigurðsson 8, Rúnar Amason 7, Bergur Hinriksson 5, Marel Guðlaugsson 5, Pétur Guðmundsson 2. Áhorfendur: Um 300. Dómarar: Helgi Bragason og Kristján Möller. Lengstum alveg þokkalegir. Bikarkeppni karla, undankeppni. ÍS-UBK.........................72:78 Haukar-ÍR 36:30 fþróltahúsið Strandgötu, íslandsmótið i körfuknattleik kvenna, fimmtudaginn 9. janúar 1992. Stig Iiauka: Hafdfs Hafberg 12, Hanna Kjartansdóttir 6, Eva Ilavlekova 6, Ásta Óskarsdóttir 6, Sólveig Pálsdóttir 4, Guð- björg Norðfjörð 2. Stig ÍR: Hildigunnur Hilmarsdóttir 7, Linda Stefánsdóttir 7, Hrönn Harðardóttir 6, Vala Úlfljólsdóttir 5, Guðrún Ámadóttir 3, Dag- björt Leifsdóttir 2. -*>*■ Jón Arnar Ingvarsson iék vel með Haukum í gær og varð stigahæstur leikmanna, gerði 26 stig. A-RIÐILL HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS Leikír U J T Mörk u J T Mörk Mörk Stig UMFN 15 7 O O 694:516 5 O 3 729:688 1423:1204 24 KR 14 6 0 1 654:534 5 0 2 639:616 1293:1150 22 UMFT 15 5 0 2 682:630 2 0 6 686:765 1368:1395 14 SNÆFELL 13 2 0 5 573:643 1 0 5 470:592 1043:1235 6 SKALLAGR. 14 2 0 5 597:638 0 0 7 545:750 1142:1388 4 B-RIÐILL HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS Leikir u J T Mörk u J T Mörk Mörk Stig ÍBK 13 6 0 0 669:527 6 0 1 645:560 1314:1087 24 VALUR 14 4 0 4 741:748 4 0 2 551:503 1292:1251 16 UMFG 15 5 0 3 696:620 2 0 5 598:594 1294:1214 14 HAUKAR 14 3 0 4 599:638 3 0 4 646:690 1246:1328 12 ÞÓR 13 2 0 4 547:557 0 0 7 542:694 1089:1251 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.