Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 11

Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1992 11 Að eta útsæðið eftirElsuB. Valsdóttur Það er góð regla búandans að þegar hart er í ári þá sé sparað og dregið úr útgjöldum til að mæta erfiðleikunum. Það þætti hins vegar lélegur bóndi sem æti útsæðið á þorranum í stað þess að þreyja fram á vor og uppskera sem hann sáir. Eins er því farið þegar talað er um að skera niður framlög til Háskóla íslands þegar að kreppir í efnahags- málum. Öflugur háskóli er forsenda framfara og framþróunar á sviði rannsókna í iðnaði, sjávarútvegi og landbúnaði. Til að vera samkeppnis- hæf í þessum greinum miðað við löndin í kringum okkur er lykilat- riði að þjóðin búi yfir vel menntuð- um einstaklingum sem hlotið hafa sína þjálfun bæði hér heima og er- lendis. Það er því forsendan fyrir auk- inni velsæld að hlúð verði að mennt- uninni. Það gerist hins vegar ekki með því að sníða skólakerfinu þrengri stakk en það fær við búið. I Háskóla íslands sjá yfirvöld nú fram á að draga stórlega úr kennslu, ráða ekki fleira starfsfólk, fækka námskeiðum og jafnvel að taka ekki fleiri stúdenta inn í skól- . ann. Með því að neyða Háskólann til slíkra aðgerða tel ég að verið sé „Það þætti hins vegar lélegur bóndi sem æti útsæðið á þorranum í stað þess að þreyja fram á vor og uppskera sem hann sáir. Eins er því farið þegar talað er um að skera niður framlög til Háskóla ís- lands þegar að kreppir í efnahagsmálum.“ Elsa B. Valsdóttir að slátra gæsinni sem verpir gull- eggjunum. Skammtímasjónarmið eru látin ráða til að ná fram tímabundnum sparnaði og draga úr hallanum á ríkissjóði. Hvers virði eru slíkar aðgerðir sem augljóst er að munu skaða efnahaginn þegar til lengri tíma er litið? Það er skiljanlegt að ráðherrum sé mikið í mun að standa við gefin loforð um aðgerðir í efna- hagsmálum en menn mega þó ekki missa sjónar á því sem mestu máli skiptir í niðurskurðargleðinni. Við verðum að geta treyst því að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin grípur til þjóni því markmiði að byggja upp en ekki rífa niður það sem unnist hefur í framfaraátt. Því skora ég á ráðherra og þingmenn alla að skoða hug sinn vandlega áður en þeir samþykkja niðurskurð á framlögum til Háskóla íslands. Höfundur er nemi í HÍ og formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. M .o €nlCW<0ll Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070. JMHBOÐ ÚtRÚUGT VIRÐ ca. 30sm. 399.- ca. 45 sm. 499.- s fTWW' Fíkus 726.- Alparós (minni) 4097- Alparós 827.- iljur (minni) 4F87- Flöskuliljur 4467- Þykkblöðungar 4847- Madagascarpálmi 4847- Húsfriður 5727- Gúmmítré (lítil) 330.- Stofugreni 4487- Stofuaskur 704.- 499.- æ99*p 599.- 199.- 299.- 299.- 299.- 299if 199.- 299.- 559.-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.