Morgunblaðið - 30.01.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANUAR 1992
15
Garður:
Veruleg
hækkun
vatnsgjalds
Garði.
ÞESSA dagana eru að læðast inn
um bréfalúgur landsmanna
álagningarseðlar yfir fasteigna-
gjöld ársins 1992. Hækkun milli
áranna 1991-1992 eru tæp 20%
°g þegar grannt er skoðað er
það svokallað vatnsgjald sem
hækkar langmest eða um 80%.
Að sögn Sigurðar Jónssonar,
sveitarstjóra, er þessi mikla hækk-
un vegná nýrra laga frá Alþingi
þar sem nú er miðað við svokallað-
an álagningarstofn þegar reiknað
er út vatnsgjald en hingað til hefur
verið reiknað út frá fasteignamati.
Fasteignamat milli áranna 1991 og
1992 hækkaði hins vegar um tæp
5%.
Sum byggðarlög í landinu lækk-
uðu álagningarprósentu vatnsgjalds
þannig að þessi hækkun kom ekki
af fullum þunga á íbúana en engar
ákvarðanir hafa verið teknar hér í
Garðinum um breytingu á álagnin-
garprósentu.
Þá má einnig minna á að -veruleg
hækkun varð á fasteignagjöldum
milli áranna 1989 og 1990 vegna
breyttra reglna í samskiptum ríkis
og sveitarfélaga en þá hækkuðu
fasteignagjöld almennt um þriðj-
ung.
- Arnór.
--------------
Sýning á ljóð-
um Hannes-
ar Sigfús-
sonar skálds
OPNUÐ verður sýning á ljóðum
Hannesar Sigfússonar skálds
laugardaginn 1. febrúar og
stendur hún til 16. febrúar. Þetta
er fjórða ljóða sýningin sem Rás
1 og Kjarvalsstaðir gangast fyrir
í vetur, en áður hafa þeir Jón
úr Vör, Þórarinn Eldjárn og ísak
Harðarson valið frumsamin ljóð
og sýnt á svipaðan hátt og Hann-
es Sigfússon gerir nú: ljóðin eru
tekin og stækkuð myndarlega
upp, þannig að gestir Kjarvals-
staða geti notið þeirra á nýstár-
legan og óvæntan hátt.
Allt frá því Hannes Sigfússon (f.
1922) gerðist einn af frumkvöðlum
endurnýjunar í íslenskri ljóðagerð
með bókinni Dymbilvöku árið 1949,
hefur hver bók frá hans hendi þótt
sæta tíðindum. Nýjasta bók hans
og sú sjöunda, Jarðmunir, var til-
nefnd til íslensku bókmenntaverð-
launanna á ár, en auk þess að yrkja
hefur Hannes Sigfússon þýtt nor-
rænar bókmenntaperlur á íslensku.
Ljóðasýning Hannesar Sigfús-
sonar verður opnuð við hátíðlega
athöfn klukkan 17 á laugardag og
verður samkoman send beint út í
Leslampanum á Rás 1.
Fréttatilkynning
--------------
■ UMSÓKNARFRESTUR um
styrki úr Menningarsjóði útvarps-
stöðva til framleiðslu menningar-
legs dagskrárefnis fyrir sjónvarp
og hljóðvarp rann út 20. janúar sl.
Alls bárust umsóknir frá 59 ein-
staklingum, fyrirtækjum og stofn-
unum samtals að fjárhæð um 500
milljónir kr. Til úthlutunar eru um
30 millj. kr. Stjórn sjóðsins mun á
næstu vikum taka ákvörðun um
úthlutun fjársins á grundvelli mats
á menningarlegu og listrænu gildi
þeirra verkefna sem sótt er um
styrk til. I henni sitja Hrafn Gunn-
laugsson kvikmyndaleikstjóri, for-
maður, Guðni Guðmundsson, rekt-
or og Björg Einarsdóttir rithöf-
undur. Ritari nefndarinnar er Davíð
Þór Björgvinsson, lögfræðingur.
.
Með lágu verði, miklu vöruúrvali og
þátttöku fjölda fyrirtækja hefur stór-
útsölumarkarðurinn svö sannarlega
slegið í gegn og stendur undir nafni.
Fjöldi fyrirtækja - gífurlegt vöruúrval
STEINAR
Hljómplötur — kasettur
KARNABÆR
Tískufatnaður herra og dömu
SONJA
Tískufatnaður
PARTY
Tískuvörur
BOMBEY
Barnafatnaður
STRIKIÐ
Skór á alla fjölskylduna
KJALLARINN/KOKO
Alhliða tískufatnaður
STÚDÍÓ
Fatnaður
SAUMALIST
Allskonar efni
ARBLIK
Peysur
BLÓMALIST
Allskonar gjafavörur
KÁPUSALAN
Kvenfatnaður
X OG Z
Barnafatnaður
ÞU OG ÉG
Undirfatnaður
OG MARGIR FLEIRI
FRÍTT KAFFI - MYNDBANDAHORN FYRIR BÖRNIN - 0TRULEGT VERD
Opnunartími: Föstudaga kl. 13-19. Laugardaga kl. 10-16.
Aðra daga kl. 13-18