Morgunblaðið - 30.01.1992, Síða 18
Í8
((Afi/'AÍ Wp írl<4ýV<t'-’'i"Wff.íí''! irtM4l.«?5!íí*ÍWttí«
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1992
Forstöðumaður rekstrardeildar Eimskip;
Stefnumótun í um-
hverfismálum orð-
in samkeppnistæki
EIMSKIP hafa undanfarið borist
fyrirspurnir frá erlendum fyrir-
tækjum, sem leitað hafa eftir til-
boðum í vöruflutninga, um
stefnu fyrirtækisins í umhverfis-
málum, og að sögn Thomasar
Möller, forstöðumanns rekstrar-
deildar Eimskip, er það greini-
lega orðið samkeppnistæki að
geta sýnt fram á stefnumótun í
umhverfismálum. Hann sagði að
nokkur fyrirtæki hefðu fullyrt
að stefnumótun í umhverfismál-
um vegp þungt í ákvörðun um
flutningsaðila, og að tillit sé tek-
ið til þess auk verða og gæða
þjónustunnar.
Eimskip gaf í haust út upplýs-
ingabækling fyrir starfsmenn fyrir-
tækisins og almenning um stefnu
fyrirtækisins í umhverfisvemd og
mengunarvömum, og hefur bækl-
ingurinn verið þýddur á ensku og
sendur þeim sem óskað hafa eftir.
Thomas Möller sagði í samtali við
Morgunblaðið að stefna fyrirtækis-
ins hefði verið rækilega kynnt í öll-
um skipum, vöruafgreiðslum og
skrifstofum fyrirtækisins, og kynn-
ingunni síðan verið fylgt eftir með
ýmsu móti. Þá hefði bæklingurinn
verið sendur til allra sem selja Eim-
skip vöm og þjónustu, en ætlast
væri til þess að að þeir aðilar fylgdu
stefnu fyrirtækisins eftir.
„Við fylgjum þessu mjög hart
eftir, og þá sérstaklega í skipum
okkar og vöruafgreiðslum. Við-
brögð hjá starfsfólkinu hafa verið
góð, og almennt hefur þetta fengið
mjög góðar viðtökur. Þetta er ofar-
lega á blaði hjá okkur í samtölum
við starfsmenn, verkstjóra og
stjórnendur hjá fyrirtækinu, og við
minnumst á þetta á fundum. Þessi
fyrirmæli eru nú sett inn í allar
vinnuhandbækur, en við erum núna
að gefa út handbækur fyrir skipa-
rekstur og þar eru þessi fyrirmæli
komin inn. Við erum nú með sér-
staka fræðslu um meðferð á hættu-
legri vöru, sem til dæmis getur
verið með hættulegum spilliefnum,
en nú er sértstakt átak í því að
meðhöndla þá vöru rétt. Þá má
geta þess að við erum að útúa sér-
staka sýruhelda gáma til að flytja
ónýta rafgeyma til útlanda, og
koma upp endurvinnslutækjum fyr-
ir freon,“ sagði hann.
Heildarútgjöld fasteignagjalda,
tekjuskatts og útsvars
Hjón með 2.000.000 kr. í árstekjur
1990 og 2.108.800 kr. 1991, búa í
6.000.000 kr. íbúð 1990 sem kostar
framreiknuð til 1991,6.330.000 kr.
Sveitarfélag
Hækkun 30þús.kr.
milli ára
1991
1992 Hækkun
Reykjavík 275.816 294.526 6,8%
Seltjamames 285.056 304.207 6,7%
Garðabær 293.556 312.902 6,6%
Kópavogur 293.157 315.349 7,6%
Hafnarfjörður 287.556 318.446 10,7%
Hjón með 2.108.800 kr. í árstekjur 1991.
Persónufrádráttur nýtist að fullu.
Gert er ráð fyrir skattaaðstæðum
í byrjun árs 1992.
Sveitarfélag Útsvar Tekjusk. Samtals
Greitt 25.718 kr.
útsvar og
tekjuskattur
15.174 kr.
Reykjavík 6,7%
Kópavogur 6,7%
Garðabær 7,0%
Seltjarnames 7,0%
Hafnarfjörður 7,5%
32,8% 39,5%
32,8% 39,5%
32,8% 39,8%
32,8% 39,8%
32,8% 40,3%
Umfram 250 þúsund kr.
Siglufjörður:
Ovenjumik-
il veikindi
ÓVENJU margir hafa veikst af
flensu á Siglufirði síðustu 10
daga. Valþór Stefánsson, læknir,
segist aldrei hafa farið í jafn
margar vitjanir og jafn mörgum
dögfum.
Rétt er að geta þess að ekki er
um að ræða þá innflúensu sem stað-
fest hefur verið í Reykjavík heldur
vægari fiensu. Hitinn sem fylgir
henni, í 3-5 daga, er þó óvenju
hár. Þá fylga flensunni beinverkir,
höfuðverkur, kvef og hósti.
Valþór segist aldrei hafa farið í
jafn margar vitjanir á jafn mörgum
dögum og síðustu 10 daga. Þá fór
hann í 15 vitjanir en annar læknir
sinnir einnig vitjunum. Valþór tók
fram að ferðafærir sjúklingar hefði
sjálfir komið á heilsugæslustöðina.
ASÍ gagnrýnir Hafnarfjörð fyrir skattbyrðar:
Ósanngjam samanburður
segir Guðmundur Árni Stefánsson bæjarsljóri
ASÍ hefur sent Guðmundi Árna
Stefánssyni bæjarstjóra í Hafn-
arfirði bréf þar sem fram kemur
að greiðslur meðalfjölskyldu í
fasteignagjöld, telguskatt og út-
svar á árinu 1992 eru hæstar í
Hafnarfirði af bæjarfélögunum
fimm á höfuðborgarsvæðinu.
Guðmundur Árni Stefánsson bæj-
arstjóri segir að um sé að ræða
ósanngjarnan samanburð þar
sem tekjuskatturinn sé tekinn
með en sá skattur sé alfarið háð-
ur ákvörðunum ríkisvaldsins. „Ef
tekjuskattur er ekki tekinn með
í þessum samanburði siglum við
í Hafnarfirði lygnan sjó í þessum
efnum og erum í miðjum hópi
þessara fimm bæjarfélaga hvað
Stefán Baldursson, Þjóðleikhússtjóri og ívar Jónsson, fjármála-
stjóri Þjóðleikhússins afhenda Salvöru Norðdal, framkvæmda-
stjóra Islenska dansflokksins, fjámálagögn flokksins.
Islenski dansflokk-
urinn sjálfstæður
UM áramótin undirritaði Menntamálaráðherra nýja reglugerð
um starfsemi Islenska dansflokksins og Listdansskóla ís-
lands. Reglugerðin kveður á um sjálfstæði þessara stofnana,
en þær hafa verið hluti af starfsemi Þjóðleikhússins allt frá
því að þær voru stofnaðar, Listdansskólinn haustið 1952 og
Islenski dansflokkurinn 1973.
M’álefni íslenska dansflokksins
og Listdansskólans munu hér eftir
heyra undir Menntamálaráðuneyt-
ið og verða skipaðar nýja stjórnir
fyrir þessar stofnanir. í stjóm ís-
lenska dansflokksins er fulltrúi
Listdansskóla íslands, styrktarfé-
lags íslenska dansflokksins, Þjóð-
leikhúsráðs, Félags íslenskra list-
dansara og Menntamálaráðuneyt-
isins, sem jafnframt er formaður.
í skólanefnd Listdansskólans eiga
sæti fulltrúi frá Menntamála-
ráðuneytinu, listdansstjóri ís-
lenska dansflokksins, fulltrúi for-
eldrafélags Listdansskólans og
fulltrúi fastráðinna kennara.
íslenski dansflokkurinn og List-
dansskóli Þjóðleikhússins eru til
húsa á Engjateigi 1. Þar er
kennslu- og æfingaraðstaða list-
dansskólans og dansflokksins.
Sérstakur samstarfs-samningur
hefur verið gerður við Þjóðleikhús-
ið meðal annars um notkun á sviði
hússins og öðrum deildum þess.
skattbyrði varðar,“ segir
Guðmundur.
Mál þetta kom til umræðu á
bæjarstjórnarfundi í Hafnarfírði í
fyrradag er fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins kynnti efni bréfsins frá
ASÍ. í bréfinu kemur m.a. fram að
miðað við hjón með 2ja milljón króna
tekjur sem bjuggu í 6 milljón króna
íbúð árið 1991 munu gjöld þeirra
vegna fasteignagjalda, tekjuskatts
og útsvars hækka um 10,7% á þessu
ári í Hafnarfírði. Samsvarandi
hækkun í Reykjavík er 6,8%, í Kópa-
vogi 7,6%, í Garðabæ 6,6% og á
Seltjamarnesi 6,7%. Ef tekið er mið
Kvikmynda-
stjórar stofna
hagsmunafélag
NOKKRIR kvikmyndagerðar-
menn hafa stofnað Félag kvik-
myndastjóra og eru meðal stofnfé-
laga fjórir kvikmyndaleiksljórar
sem gengu úr Samtökum kvik-
myndaleiksíjóra nýlega.
Formaður Félags kvikmyndastjóra
er Þráinn Bertelsson. Hann sagði við
Morgunblaðið að Samtök kvikmynd-
aleikstjóra væri félag með mjög
þröng inntökuskilyrði, eingöngu ætl-
uð kvikmyndastjómm sem fást við
leikin verk. Hins vegar væri kvik-
myndalistin mun víðtækari en svo
að hún takmarkáðist við leikin verk
og því hefði utan félagsins verið tals-
verður fjöldi manna sem hafí fengist
við gerð heimildar- og stuttmynda.
Félagið var stofnað af 18 kvik-
myndastjórum, og er stjóm þess
skipuð Sigurbirni Aðalsteinssyni,
Guðnýju Halldórsdóttur, og Sigurði
Grímssyni auk Þráins. Þráinn, og
leikstjóramir Ágúst Guðmundsson,
Láms Ýmir Óskarsson og Þorsteinn
Jónsson, sem vom meðal stofnenda
nýja félagsins vom áður í Samtökum
kvikmyndaleikstjóra.
af greiðslum þessara hjóna í ár og
skoðað hvað þau greiða í fyrrgreind
gjöld umfram íbúa Reykjavíkur er
það mest í Hafnarfirði eða tæpar
24.000 krónur. Lægstar em greiðsl-
urnar, umfram Reykjavík, á Sel-
tjarnarnesi eða um 9.600 krónur
(sjá nánar á töflu).
Fjármálasljórn bæjarins
hefur brugðist
Jóhann Bergþórsson oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar segir að þessar tölur sýni
að fjármálastjórn bæjarins hafí
bmgðist í höndum núverandi meiri-
hluta. „Það er ljóst að þessar tölur
hjá ASÍ eru réttar og þama er
bæjarstjórnin að seilast dýpra í vasa
skattgreiðenda en gerist í nágrann-
sveitarfélögunum," segir Jóhann.
„Fjármálastjórnin hefur því brugðist
og nefna má þessu til viðbótar að
áform bæjarstjómar um að grynnka
á 300 milljón króna skuld bæjar-
sjóðs munu ekki ná fram að ganga
heldur allar líkur á að skuldin auk-
ist um 100 milljónir." Umræðum
um málið er ekki lokið í bæjarstjórn
og halda þær áfram á hádegi í dag.
Bein útsending verður í útvarpi
Hafnfirðinga á FM 91,7.
11% lækkun á
fasteignagj öldum
Guðmundur Árni Stefánsson seg-
ir að í kjölfar bréfsins frá ASÍ hafí
menn gert samanburð á skattbyrð-
inni án þess að hafa tekjuskatt með
í myndinni. „Á móti hækkun út-
svarsins hjá okkurkemur 11% lækk-
un á fasteignagjöldum og við fáum
þá útkomu að raunhækkun þessarar
meðalfjölskyldu í Hafnarfírði á
þessu ári, miðað við útsvar og fast-
eignagjöld, er 2.744 krónur eða um
200 krónur á mánuði," segir
Guðmundur Ámi.
„Mér finnst það líka spuming í
framhaldi af þessu bréfí hvort það
sé ný stefnumörkun hjá ASÍ að
þrengja skuli svo að skattstofnum
sveitarfélaga á þessum samdráttar-
tímum að þau neyðist í enn frekara
mæli að segja fólki upp og fækka
hjá sér störfum og draga jafnframt
úr félagslegri þjónustu. Við jafnað-
armenn hér lítum ekki svo á málin
heldur viljum við örva atvinnulífið
til að mæta kreppunni."
Þorrahátíð
í Neskirkju
NÆSTKOMANDI laugardag,
hinn 1. febrúar klukkan 4:00
verður þorrahátíð í Neskirkju.
Fram verður borinn hefðbund-
inn þorramatur á hlaðborði,
síldarréttir og heitt saltkjöt.
Vandað verður til dagskrár.
Sýnd verður kvikmynd sem Dam
skipstjóri á „Fyllu“ tók hér á
landi árið 1938 og sýnir gamla
atvinnuhætti. Sólskinskórinn
syngur lög undir stjórn Ingu
Backman við undirleik Reynis
Jónassonar. Þá mun Inga Back-
man einnig syngja einsöng og
Reynir Jónasson koma með
„nikkuna" sína. Hans Jörgensson
fyrrverandi skólastjóri segir frá
þorra og kennaramir Sigrún
Ingimarsdóttir og Bjöm Kristj-
ánsson flytja minni karla og
kvenna. Þá verður mikill almenn-
ur söngur. Þátttöku þarf að til-
kynna kirkjuverði í síma 16783
milli klukkan 4-6 fímmtudag og
föstudag.
Frank M. Ilalldórsson.
Þrír íslenskir tónlistarmenn til Litháen
ÞRÍR íslenskir tónlistarmenn
munu sækja Litháa heim á næst-
unni. Sigrún Hjálmtýsdóttir, óper-
usöngkona, syngur inn á geisla-
disk með litháisku fílharmóní-
hljómsveitinni og tekur þátt í tón-
leikum fyrri hluta febrúar, Selma
Guðmundsdóttir, píanóleikari,
heldur sex tónleika 16.-22. febrúar
og Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleik-
ari, heldur fimm tónleika 10.-17.
maí í vor. Þá stóð til að Pétur
Jónasson, gítarleikari, héldi tón-
leika í Litháen í apríl en úr því
verður ekki.
Sigrún Hjálmtýsdóttir sagði að
aðdragandinn að'för hennar til Lit-
háen væri sá að Litháar hefðu haft
samband við Ólaf Egilsson, sendi-
herra íslendinga í Moskvu, og lýst
yfír áhuga á að koma á menningar-
samstarfi milli þjóðanna. Hefði þá
komið upp hugmynd að gera sameig-
inlegan geisladisk en í framhaldi af
því hefði henni verið boðið að syngja
á diskinum.
Haldið verður til Litháen 4. febr-
úar og upptökur verða 9. til 14. fe-
brúar. Á geisladisknum syngur Sigr-
ún nokkrar vinsælar óperuaríur er
henta hennar raddgerð en Sigrún er
lýrískur sóprankóloratúr. Meðal efnis
á diskinum má nefna aríu Nætur-
drottningarinnar úr Töfraflautu
Mozarts. Skífan gefur diskinn út og
er hann væntanlegur á markað
næsta haust.
Á meðan á heimsókninni stendur
syngur Sigrún einnig á tónleikum í
Viliníus 15. og 16. febrúar í tilefni
af því að þá er ár liðið frá því Lithá-
ar urðu sjálfstæð þjóð. Þar verður
Sigrún eini fulltrúi Islendinga og eini
söngvarinn. Sigrún sagði að sér væri
mikill heiður af því að vinna með lit-
háísku fílharmóníuhljómsveitinni
enda væri hún talin mjög góð. „Ég
vona bara að vemdarenglarnir verði
með mér alla leið því ef upptakan
tekst vel er þá er líklegt að fleiri
fylgi í kjölfarið," sagði hún.