Morgunblaðið - 30.01.1992, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1992
19
Hækkun útsvars sveitarfélaga 1991-92
í hlutfalli við Reykjavík
Gildið í Reykjavík 1991 er sett á 100
Forsendur:
Laun hjóna1992: 2.709.000 kr.
111 111
Hækkun á heildarskattlagningu
sveitarfélaga 1991-92
í hlutfalli við Reykjavík
Forsendur:
Laun hjóna 1992: 2.709.000 kr.
íbúð að virði 1992:6.330.000 kr.
109 109 109
Aróður Alþýðusambands-
ins villandi og smekklaus
- segir í greinargerð frá bæjarstjórn Kópavogs
BÆJARSTJÓRN Kópavogs hef-
ur sent fjölmiðlum fréttatil-
kynningu varðandi bréf ASÍ til
fjölmiðla og fasteignasala. Þar
segir orðrétt:
„Þann 7. janúar sendi forseti
ASI, Asmundur Stefánsson, Sig-
urði Geirdal, bæjarsljóra í Kóp-
vogi, bréf. Það felur í sér gagn-
rýni á hækkun fasteignagjalda
og áskorun um að bæjarstjórn
taki þá ákvörðun til endurskoð-
unar. Þessu bréfi hefur verið
svarað og hækkun fasteigna;
gjalda útskýrð. Var forseta ASI
jafnframt bent á að fasteigna-
gjöld eru aðeins lítill hluti af
skattgreiðslum einstaklinga til
sveitarfélaga.
Um síðustu áramót voru sam-
þykkt ný lög á Alþingi um vatns-
veitur sveitarfélaga. Þau fela í sér
skattalega tilfærslu af atvinnuhús-
næði yfir á heimili og tekjurýrnun
fyrir Kópavogskaupstað. Þar sem
þessi tekjurýrnun bætist við hina
væntanlegu 60 m.kr. skattbyrði
frá ríkinu, var vatnsskatturinn
hækkaður af illri nauðsyn. Er hann
nú orðinn sá sami og í Hafnarfirði
og Mosfellsbæ. Fasteignaskattur
í Kópavogi var lækkaður úr 0,5%
í 0,485%. Hrein hækkun fasteig-
nagjalda er því um 10 m.kr. sem
ætlunin er að mæti hinum 60 m.kr.
auknu álögum frá ríkinu. Aðrir
skattar hafa ekki hækkað. Þess
vegna mun Kópavogsbær hag-
ræða í rekstri og draga úr fram-
kvæmdum til að mæta þeim 50
m.kr. sem upp á vantar.
Útsvarið er stærsti tekjustofn
allra sveitarfélaga og útsvarsá-
lagning er hvergi lægri á landinu
en í Kópavogi, ef undan eru skild-
ir tveir hreppar. Ólíkt mörgu öðr-
um sveitarfélögum, sem hækkuðu
útsvarsálagningu í 7,5% fyrir árið
1992, er álagningin í Kópavogi
6,7% og stendur óbreytt milli ára.
Ef Kópavogskaupstaður hefði val-
ið þá leið að hækka útsvarið upp
í 7,5% hefði það þýtt 110 m.kr.
auknar skattaálögur á íbúana, en
þeirri leið var þafnað.
Forseti ASÍ hafði sérstakan
áhuga á fasteignagjöldum en sýndi
útsvarinu engan áhuga. Er það
skrýtið þar sem mesta skattbyrðin
á flesta íbúa sveitarfélaga er af
völdum útsvars fyrst og fremst en
ekki fasteignagjalda. A meðfylgj-
andi blöðum má sjá samanburð á
heildarskattlagninu á íbúa sveitar-
félaga með útsvari. Er reiknað
með áætluðum meðallaunum
hjóna samkvæmt framtali 1992
kr. 2.709.000 og íbúðareign þeira
að virði kr. 6.330.000. Niðurstöður
leiða í ljós, í fyrsta lagi, að aðeins
eitt sveitarfélag á höfuðborgar-
svæðinu, utan Reykjavíkur, hefur
Iægri álagða skatta en Kópavog-
ur. í öðru lagi er hækkun heildar-
skatta á íbúð í Kópavogi hverfandi
í samanburði við nágranna okkar. _
Þetta dæmi sýnir að áróður ASÍ
er villandi og smekklaus. Hvað
vakir fyrir forseta ASÍ? Er hér um
pólitík að ræða eða hagsmuna-
gæslu fyrir launþega sem eru inn-
an ASI? Áróðursplagg ASÍ var
sent á fasteignasölu á höfuðborg-
arsvæðinu, greinilega í þeim til-
gangi að ófrægja Kópavogsbæ.
Hins vegar hefur forseti ASI gert
litlar athugasemdir við hækkun
útsvars hjá nokkrum sveitarfélög-
um þó um meiri skattheimtu væri
að ræða eins og meðfylgjandi súlu-
rit bera með sér.
Skorað er á forystu ASÍ að veija
kjör félaga sinna af meiri fag-
mennsku og ábyrgð, heldur en að
ráðst á Kópavogsbæ, með ósann-
gjörnum og villandi áróðri.“
(Fréttatilkynning frá Kópavosbæ.)
Fasteignagjöld og útsvar árið 1992 á höfuðborg-
arsvæði m.v. 6,3 mkr. íbúð og meðaltekjur hjóna
(2,7 mkr.)
1991 1992
Útsvar Fastgj. Útsvar Fastgj.
Fastgj. + útsvar Fastgj. + útsvar
Reykjavík 33.760 176.659 210.419 35.678 182.044 217.722
Kópavogur 51.100 176.659 227.759 56.501 182.044 238.545
Hafnarfj. 45.500 176.659 222.159 42.728 202.579 245.307
Garðabær 45.500 184.135 229.635 47.728 189.744 237.472
Mosfellsbær 51.500 184.135 235.635 54.058 202.579 256.637
Seltjnes 37.000 184.135 221.135 39.033 189.744 228.777
Gjöld í hlutfalli við Reykjavík
1991 1992
Útsvar Fast.gj. Útsvar Fastgj.
Fastgj. 100 + útsvar Fastgj. 100 + útsvar
Reykjavík 100 100 100 100
Kópavogur 151 100 108 158 100 109
Hafnarfj. 135 100 106 120 111 113
Garðabær 135 104 109 134 104 109
Mosfellsbær 153 104 112 152 111 118
Seltjnes 110 104 105 109 104 105
Jamaiea í brennidepli
eftir Oddnýju Sv.
Björgvins
Mér er bæði ljúft og skylt að svara
Eyþóri Guðjónssyni vegna greinar
hans, „Jamaica — örugg ferð“ (í
Mbl. 29. janúar sl.).
1. Eyþór ásakar mig um að hall-
mæla Jamaica sem ferðamannalandi
í grein minni „Blóðsugur hallelúja
og amen“ (í Mbl. 12. janúar sl.).
Umrædd grein er reynslusaga. Ekki
úttektargrein á ferðamannalandinu
Jamaica. Slík reynsla gæti hent
ferðamenn hvar sem er, þar sem
andstæður mikillar fátæktar og ríki-
dæmis mætast.
2. Það voru ekki mín orð í grein-
inni, að Jamaicabúar væru trúvilling-
ar, enda veit ég að svo er ekki. Hitt
er annað mál, að í Montego Bay eins
og annars staðar þar sem mikil fá-
tækt ríkir, eru íbúar oft móttæki-
legri fyrir hinum ýmsu trúaráhrifum
sem þeir halda að geti hjálpað sér.
3. Ég er sammála Eyþóri, að óvíða
mætir manni vingjarnlegra viðmót.
Mikill meirihluti Jamaicabúa er
lífsglatt, brosandi fólk, eins og víðast
á þessum slóðum við Karabíska haf-
ið. Einmitt þess vegna langaði mig
að komast út úr „verndaðri ferða-
þjónustu" og ná sambandi við íbúana
—á eigin vegum.
4. Eyþór segir: „Gaman hefði ver-
ið að lesa um hina dagana líka.“ Það
getur hann vissulega gert með því
að lesa grein mína „Handan við sól
á Jamaica" (í Mbl. 24. nóvember sl.)
sem greinir frá frábærri ferðaþjón-
ustu á jamaískum hótelum þar sem
allt er innifalið.
Ég var alveg heilluð, eins og fram
kemur, enda urðu margir til að
hringja í mig og spyijast fyrir um
ferðir til Jamaica.
5. í framhaldi af þeim fyrirspurn-
um fóru að renna á mig tvær grím-
ur. Því miður hafa borgir eins og
Kingston og Montego Bay ekki nægi-
lega gott orð á sér og til skamms
tíma felldu nokkrar bandarískar
ferðaskrifstofur niður ferðir til Jama-
ica af öryggisástæðum.
Það er ekki alveg að ástæðulausu
að „vernduð ferðaþjónusta" mótaðist
á Jamaica. — Eiga væntanlegir
ferðamenn til Jamaica ekki rétt á
að heyra um báðar hliðar á „paradís-
areyjunni" — þeirri sem töfrar ferða-
manninn og hinni sem getur verið
býsna hættuleg?
Höíundur er bladamaður á
Morgunblaðinu.
Stoá*É
BOKAMARKAÐURINN
1992 EAXAFEN110
Magnaöasti bókamarkaöur allra tíma
ALLT AÐ
95%
AFSLÁTTUR
ALDREI
BETRI AÐSTAÐA
ALDREI
FLEIRI BÆKUR
Stærsti bókamarkaður sem
haldinn hefur verið.
r
Islenskar bækur, erlendar
bækur, spil og
leikir, geisladiskar og
snældur.
Setjum daglega þúsundir
gamalla bóka á borðin.
Opiö
laugardaga og sunnudaga kl.12-18
og á virkum dögum kl.12-20
VIÐ ERUM HÉR
±97 Eymimdsson
STOFNSETT 1872
Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær!!!
><nooÁvQfeg