Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1992
t
Elskulegur eiginmaður, sonur, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir,
AÐALSTEINN HALLGRÍMSSON,
Hraunbæ 42,
Reykjavík,
sem lést þannn 23. janúar sl., verður jarðsunginn frá Árbæjar-
kirkju föstudaginn 31. janúar kl. 15.00.
Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Kristín Aðalsteinsdóttir,
Ragnar S. Aðalsteinsson, Jónína Magnúsdóttir,
Eggert B. Aðalsteinsson, Kristín Aðalsteinsdóttir,
Svanlaug Aðalsteinsdóttir,
barnabörn og systkini.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
HJALTI GUÐMUNDSSON
bóndi,
Vesturhópshólum,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 28. janúar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Margrét Guðmundsson.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SVEINLAUG H. SVEINSDÓTTIR,
Hjallagötu 4,
Sandgerði,
lést í Landspítalanum 29. janúar sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Birna Pétursdóttir,
Sveindís Pétursdóttir,
Sigurður R. Pétursson,
Jóhanna Pétursdóttir,
Anna Marý Pétursdóttir,
Pétur Björnsson,
Björn Kristjánsson,
Ágúst Einarsson,
Guðný Edda Magnúsdóttir,
Níels Karlsson,
Guðmundur Knútsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín,
EYBJÖRG ÁSKELSDÓTTIR,
Flókagötu 63,
lést á heimili sínu að morgni 29. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valdimar Guðmundsson.
Minning:
Freyr Axel Berg-
steinsson húsasmiður
Fæddur 4. desember 1911
Dáinn 20. j'anúar 1992
Mánudaginn 20. janúar sl. and-
aðist á Borgarspítalanum í Reykja-
vík mágur minn, Freyr A. Berg-
steinsson á áttugasta og fyrsta ald-
ursári. Freyr Axel var fæddur 4.
desember 1911 á Bakkarholtsparti
í Ölfusi.
Foreldrar Freys voru Bergsteinn
Sveinsson bóndi þar, síðar trésmíða-
meistari á Eyrarbakka og kona
hans Steinunn Einarsdóttir, dóttir
Einars Eyjólfssonar og Rannveigar
Helgadóttur á Kotströnd í Ölfusi.
Systkini Freys voru fimm og lifa
hann tvær systranna, Þórhildur og
Mínerva, báðar búsettar í Reykja-
vík.
Freyr stundaði nám í trésmíði á
árunum 1930-1934, hjá Þorláki
Ófeigssyni trésmíðameistara í
Reykjavík, og bjó hjá meistara sín-
um á Laugaveginúm, eins og þá
var títt um iðnnema. Að loknu námi
vann hann lengst af við iðn sína
hjá Böðvari Bjarnasyni trésmíða-
meistara. Meistarabréf í húsasmíði
fékk Freyr árið 1945.
Á kreppuárunum var hér lang-
varandi atvinnuleysi og mikil fá-
tækt. Það ástand kom þó ekki í veg
fyrir að lífið hefði sinn venjulega
gang hjá ungu fólki, og á þessum
árum kynntist Freyr systur minni,
Salóme Björg Bárðardóttur, f. 4.
júlí 1917. Þau felldu hugi saman
og stofnuðu heimili árið 1937.
Á fyrstu árum búskapar þeirra
kom ég oft á vistlegt heimili þeirra
Söllu og Freys, þar var jafnan gam-
an að koma, andrúmsloftið létt og
skemmtilegt, þó efnin væru ekki
mikil. Freyr var hár maður vexti,
kraftalega vaxinn, ljós yfirlitum,
glaðlyndur, vingjarnlegur í viðmóti
og hvers manns hugljúfi.
Ég laðaðist að þessum mági mín-
um ekki síst vegna þess hve alúð-
lega hann tók stráklingi eins og
mér og ræddi við hann eins og full-
orðinn mann. Ég minnist skemmti-
legra ferðalaga og margra gleði-
stunda á þessum árum, þar sem
Freyr hélt uppi glaðværð með sínum
elskulega hætti.
En skyndilega dró ský fyrir sólu.
Alls óvænt varð Freyr, þetta hraust-
menni, fyrir því áfalli á 37 ára af-
mæiisdegi sínum árið 1948 að fá
heilablóðfall, sem orsakaði varan-
lega helftarlömun og skert málhæfi.
Það var vitaskuld skelfilegt áfall
fyrir mann á besta aldri að verða
skyndilega örkúmla og geta síðan
hvorki unnið né tekið eðlilegan þátt
í félagslífi utan heimilis. En Freyr
bar þetta mótlæti möglunarlaust
og lét aldrei bugast. Beiskju lét
hann aldrei í Ijósi en sat í kyrrþey
í skjóli samheldinnar fjölskyldu
sinnar og virtist glaður og reifur
til dauðadags. Slík var karlmennska
Freys, og þessa er gott að minn-
ast, nú þegar hann er allur.
Þau Freyr og Salóme eignuðust
tvö börn: Steinar, vörubílstjóra, f.
8. maí 1938, sem kvæntur var Sól-
veigu Ástu Júlíusdóttur, f. 7. des.
1938, d. 26. des. 1990; og Björgu,
skrifstofumann, f. 1. apríl 1948,
____________Brids________________
Umsjón Arnór Ragnarsson
Vetrar-Mitchell BSÍ
Vetrarmitchell BSÍ á sífellt meiri
vinsældum að fagna og föstudaginn
24 var slegið nýtt aðsóknarmet og
mættu 37 pör. Spilamennska á föstu-
dögum hefst kl. 19 og er öllum frjálst
að mæta. Þarna spila saman í eins
kvölds keppni allt frá byijendum til
meistara. En föstudagskvöldið 24. jan-
úar urðu efstir í N/S:
Guðlaugur Sveinsson - Sveinn Sigurgeirsson 517
Jóna Magnúsdóttir — Hrefna Valdimarsdóttir 481
Alfreð Kristjánsson - Guðni Hallgrimsson 481
Páll Þór Bergsson - Þröstur Bergmann 456
Sævar Jónsson - Halldór Gunnarsson 452
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir tengdafaðir og afi,
ÁRNI GUÐMUNDSSON,
Skeiðarvogi 103,
er látinn.
Jarðarförjn auglýst síðar.
Halldóra Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, bróður
og afa,
SVERRIS GUÐMUNDSSONAR,
Lómatjörn.
Sigríður Sverrisdóttir, Heimir Ingólfsson,
Valgerður Sverrisdóttir, Arvid Kro,
Guðný Sverrisdóttir, Jóhann Ingólfsson,
Guðrún Guðmundsdóttir, Sigriður Guðmundsd. Schiöth
og barnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og hlý-
hug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS ÞÓRARINSSONAR
frá Skeggjastöðum,
Ránargötu 29,
Akureyri.
HaHa Jónsdóttir,
Þráinn Jónsson,
Herdís Jónsdóttir,
Þórey Jónsdóttir,
Guðni Jónsson,
Ævar Jónsson,
Sæbjörn Jónsson,
barnabörn
Guðmund Knutsen,
Halia Gunnlaugsdóttir,
Edvard van der Linden,
Bjarni Gíslason,
Helga Jóhannsdóttir,
og barnabarnabörn.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og
minningarathöfn
HJARTAR ÁRMANNSSONAR,
Norðurgötu 1,
Siglufirði.
Sigríður Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns,
FILIPPUSAR TÓMASSONAR
húsasmíðameistara,
Rauðagerði 18.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arnbjörg Lilja Jónsdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR,
Eyrarvegi 7,
Akureyri.
Stefán Þórarinsson,
Þórarinn B. Stefánsson, Livia K. Stefánsson,
Valborg Stefánsdóttir, Valdimar Kristinsson,
Kristinn Valdimarsson, Stefán Ingi Valdimarsson.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför fósturmóður minnar,
INGIBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR
frá Másstöðum.
Anna Bjarnadóttir
og fjölskylda.
gift Grími Antonssyni. Börn Stein-
ars og Ásu eru Ásgeir Einar, f. 19.
apríi 1958 og Jón Freyr, f. 7. maí
1967. Börn Bjargar og Gríms eru
Svava, f. 8. júlí 1966 og íris Dögg,
f. 2. mars 1981.
Ég kveð Frey mág minn með
söknuði og þakklæti fyrir löng og
ánægjuleg kynni og votta systur
minni, fjölskyldu hennar og öðrum
aðstandendum innilega samúð mína
og fjölskyldu minnar.
Þorsteinn Sigurðsson.
í A/V urðu efst:
Þórður Bjömsson - Ingibjörg Grímsdóttir 513
Baldur Bjartmarss. - Guðmundur Þórðars. 502
Friðrik Jónsson - Maria Asmundsdóttir 501
Hanna Friðriksd. - Ragnheiður Tómasd. 495
Jóhannes Bjamason - Hermann Sigurðsson 481
Spilað er í Sigtúni 9. Byijað kl. 19
og skráð um leið og keppendur mæta.
Frá Bridsfélagi
V estur-Húnvetninga
Hvammstanga
Á Hvammstanga var haldið svæða-
mót Norðurlands vestra í tvímenningi
með þátttöku 22 para, keppnisstjóri
var Sveinn Rúnar Eiríksson.
Olafur Jónsson - Steinar Jónsson, Sigluf. 162
Jón Sigurbjömss. - Ásgr. Sigurbjöms., Sigluf. 150
Bogi Sigurbjöms. - Anton Sigurbjörns., Sigluf. 130
Einar Svansson - Jón Öm Bemdsen, Sauðárkr. 91
Kristján Blöndal - Eyjólfur Sigurðss., Sauðárkr. 82
Guðm. H. Sigurðs. - Sigurður Þorvalds., Hv.ta. 65
Björk Jónsdóttir - Valtýr Jónsson, Sigiuf. 53
Sigriður Gestsd. - MálfríðurJóhannsd., Sk.str. 41
Vilhelm Jóns. - Guðmundur Kristins., Skagastr. 18
Reynir Pálsson - Stefán Benediktsson, Fljótum 16
Þetta er í annað skiptið sem þeir
bræður Ólafur og Steinar ávinna sér
rétt að keppa í úrslitum íslandsmóts
í tvímenningi, með því að vinna svæð-
ismót. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
gaf verðiaunin.
Bridsfélag Hornafjarðar
Lokið er sex umferðum í aðalsveita-
keppninni og þessi: er staða efstu sveita
Blómaland 130
Jöklaferðir 128
Nesjamenn 105
SigfinnurG. 99
Ingólfur B. 97
Hótel Höfn 96
Bragi Bjarna 94
Litli netamaðurinn og Hótel Höfn
eiga einn leik inni.
sími 689120
Við erum flutt í
Fákafen 11
Opið 9-22 alla daga