Morgunblaðið - 11.02.1992, Page 7
_____________________________ MORGUNBLAÐIÐ ÞRfflJUÐAQUt ll.^FEBRUAR'1'9928 7
Afurðalán
Landsbankans:
Álnigi á að
taka upp
kjörvaxta-
flokkun
Aðstoðarbankaslgóri Lands-
bankans segir að áhugi sé á því
innan bankans að taka upp kjör-
vaxtaflokkun á afurðalánum en
nú eru öll afurðalán í íslenskum
krónuin með sömu vaxtakjör, og
skiptir þá ekki máli hvort þau
eru með ríkisábyrgð eða ekki.
Vextir á afurðalánum bankanna
út á kindakjötsframleiðsluna, og
þá sérstaklega Landsbankans
þar sem teknir hafa verið 16,25%
vextir, hafa verið gagnrýndir af
fulltrúum neytenda viö verð-
lagningu kindakjöts í heildsölu.
Brynjólfur Helgason, aðstoðar-
bankastjóri Landsbankans, segir
að sú tíð sé liðin að afurðalánavext-
ir séu niðurgreiddir. Þeir hafi um
tíma verið mun lægri en almennir
útlánsvextir. Nú væru afurðalána-
vextirnir s-vipaðir eða heidur neðan
við vexti á skuldabréfaútlánum.
Þetta væri að vísu misjafnt á milli
tímabila.
Brynjólfur sagði að enn væri
ekki byrjað að kjörvaxtaflokka af-
urðalán, bjóða viðskiptavinum kjör
á afurðalán eftir fjárhagsstöðu
þeirra og tryggingum, eins og al-
mennt væri í skuldabréfalánum.
Sagði hann að það væri að vísu
flókið að taka þetta fyrirkomuiag
upp en áhugi væri á því innan bank-
ans_ að gera það í framtíðinni.
Utiánsvextir Landsbankans
lækka í dag. Vextir afurðalána
lækka einna mest, eða um 1%, að
sögn Brynjólfs.
nefnd fjall-
ar um bygg-
ingu við
Hæðargarð
UM NÍUTÍU manns mættu á
grenndarkynningu sem lauk um
helgina, þar sem kynntar voru
nýjar hugmyndir um að reist
verði eitt fimm hæða hús fyrir
aldraða á Víkingssvæðinu við
Hæðargarð í stað rúmlega tutt-
ugu keðjuhúsa á einni hæð sem
áður var gert ráð fyrir. Málið
var rætt í skipulagsnefnd í gær
en verður afgreitt síðar.
Um 1.200 íbúar í nágrenninu
mótmæitu á sínum tíma upphafleg-
um tillögum um byggingu rúmlega
tuttugu keðjuhúsa á einni hæð við
Hæðargarð, þar sem slíkt hefði í
för með sér skerðingu á útivistar-
svæði.
í framhaldi af því ákvað Borgar-
skipulag Reykjavíkur að efna til
grenndarkynningar til að kynna
nýjar óskir samtakanna Réttar-
holts, samtaka eldri íbúa í hverf-
inu. Þau hafa óskað eftir að fá að
byggja eitt fimm hæða hús í stað
keðjuhúsanna.
Að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, formanns skipulagsnefndar,
gerir nýja tillagan ráð fyrir að tek-
inn verði þriðjungur þess svæðis
sem áður hafði verið ætlaður undir
keðjuhúsin og útivistarsvæði verði
stækkað sem því nemi.
„Kynningin stóð yfir í tíu daga
og var auglýst í fjölmiðlum og í
verslunum í hverfinu. A hana komu
um 90 manns,“ sagði Vilhjálmur í
samtali við Morgunblaðið.
átt þú skó ?
Láttu okkur halda þeim gangandi.
Sérhæfð þjónusta við alla skóeigendur sem vilja eiga vel
hirta og fallega skó. Þrír afgreiðslustaðir okkar eru
ávallt í leiðinni.
B
Allar skóviðgerdir
Gerum við meðan beðið er !
Póstkröfuþjónusta fyrir landsbyggðina.
Töskuviðgerðir
Tökum að okkur allar almennar
töskuviðgerðir.
Lyklasmíði
Smíðum alla algengustu hús- og
bíllyklana.
Allt til skóviðhalds
Eitt mesta úrval landsins af skóáburði,
reimum, skóburstum og öðru því sem
til þarf við umhirðu á skóm.
A
E3Í Reykjavík
Grettjsgötu 3
S. 91-21785
E3I Kópavogi ÉS I Hafnarfirði
Móttaka, Hamraborg 1 Reykjavíkuivegi 68
S. 91-46512 S. 91-651722