Morgunblaðið - 11.02.1992, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRUAR 1992
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Sjúkrahúsin og við
horf almennings
f f~eilbrigðisj)jónusta á íslandi er í
mikilli deiglu um þessar mund-
ír. Par veldur mestu viðleitni stjórn-
valda til að koma böndum á sífellt
aukna útgjaldaþörf velferðarkerfis-
ins. Athyglin hefur ekki hvað síst
beinst að sjúkrahúsunum, enda taka
þau til sín tæplega 40% af öllum
rekstrarkostnaði ríkisins á móti til
dæmis 25% hlutdeild skólanna í ríkis-
rekstrinum. Það þarf því engan að
undra, þótt þeir sem gæta eiga hags-
muna skattborgaranna og jafnvægis
í ríkisfjármálum beini kröftum sínum
að því að lækka þessa stærstu kostn-
aðarliði ríkisins og tryggja betri skil-
virkni fjármunanna sem til þeirra
renna.
Umræðan í þjóðfélaginu snýst
enda ekki fyrst og fremst um þessi
meginmarkmið heldur er fremur deilt
um aðferðir, áherslur og fram-
kvæmd. Hins vegar er ekki óeðlilegt
við þessar kringumstæður, að menn
spyiji sig grundvallarspurninga um
skipulag og framkvæmd heilbrigðis-
þjónustunnar og sjúkrahúsreksturs í
landinu. Til að mynda þeirra spurn-
inga hvaða hagræðing fáist með
sameiningu einstakra sjúkrastofnana
eins og hugmyndir hafa verið uppi
um, um tekjutengingu heilbrigðis-
þjónustunnar, hvort opinber rekstur
tryggi bestu þjónustuna og skilvirk-
ustu ráðstöfun þeirra fjármuna sem
renna til reksturs sjúkrahúsa og heil-
brigðisþjónustunnar í heild eða hvort
aðrir valkostir, svo sem einkarekstur
einstakra þátta heilbrigðisþjón-
ustunnar, leiði til samkeppni í þess-
ari mikilvægu grein og stuðli þannig
að auknu kostnaðaraðhaldi og bættri
þjónustu.
Skoðanakönnun sú sem íslenskar
markaðsrannsóknir gerðu fyrir ís-
lenska heilsufélagið hf. um viðhorf
íslendinga til sjúkrahúsþjónustu og
sagði frá í Morgunblaðinu nýverið,
er athyglisvert framlag til þessara
mála. íslenska heilsufélagið réðst í
að láta gera þessa könnun vegna
þess, að félagið hefur að undanförnu
kannað möguleika á því að selja út-
lendingum læknisaðgerðaþjónustu
hér á landi. Félagið telur hins vegar
ekki fýsilegan kost að koma slíkri
starfsemi á laggirnar hérlendis sem
einangruðu fyrirbæri heldur þurfi
slík sjúkrastofnun að byggja að ein-
hveiju leyti á markaðinum heima
fyrir og vera í lifandi tengslum við
samfélagið. Þess vegna var þessi
könnun gerð.
Niðurstaða könnunarinnar er um
margt athyglisverð. í stuttu máli eru
tæplega 57% svarenda andvígir því
að aðrir aðilar en hið opinbera taki
yfir rekstur t.d. eins sjúkrahúss en
37,5% fremur hlynntir því. Rétt tæp-
ur helmingur telur ástandið í sjúkra-
húsmálum gott eða mjög gott en 35%
svarenda telja ástandið slæmt og
vekur athygli, að konur eru þar í
miklum meirihluta. Þegar spurt var,
hvort svarendur væru hlynntir því
eða andvígir, að starfrækt væri
sjúkrahús, sem byði sjúklingum að
komast strax að og fá betri þjónustu
gegn 5 þúsund króna legugjaldi á
sólarhring skiptist hópurinn í nokk-
urn veginn tvo jafn stóra hópa - um
49,4% svarenda voru því andvígir en
um 47% hlynntir því. Þeir svarendur,
sem voru þessu meðmæltir eða
hvorki hlynntir né andvígir voru þá
spurðir áfram um það hversu líklegt
eða ólíklegt það væri, að þeir myndu
kaupa sér sérstaka tryggingu vegna
legukostnaðar á slíku sjúkrahúsi, og
kom í ljós, að 40,1% svarenda töldu
það ólíklegt en 36,6% líklegt. Auðvit-
að má spyija hver svörin hefðu orð-
ið, ef nefnd hefði verið hærri upp-
hæð, sem greiðsla á dag, upphæð,
sem væri nær kostnaðarverði.
í könnuninni kemur einnig í ljós,
að eldra fólk er almennt ánægðara
með sjúkrahúsþjónustuna en það sem
yngra er. Þá eru íbúar höfuðborgar-
svæðisins óánægðari með þessa þjón-
ustu heldur en landsbyggðin. Meiri-
hluti fólksins sem er andvígt því, að
aðrir en opinberir aðilar reki sjúkra-
hús eru einfaldlega á móti einka-
rekstri á þessu sviði, en tæplega 20%
rökstuddu andstöðu sína með þeirri
ástæðu, að verið væri að mismuna
fólki eftir efnahag, liðlega 9% töldu
að ekki ætti að láta gróðasjónarmið
ráða á þessu sviði og rösklega 8%
töldu að þetta fyrirkomulag yrði dýr-
ara en rekstur hins opinbera. Af
þeim 37,4% sem meðmæltir voru
einkarekstri vildu langflestir eða um
33% einfaldlega prófa þetta fyrir-
komulag, um 19% töldu að með þessu
mætti auka hagræðingu í rekstri
sjúkrahúsanna og svipaður fjöldi
taldi holit að fá samkeppni inn í þessa
grein.
í þessari skoðanakönnun eru
þannig tekin af öll tvímæli um það
að meirihluti þjóðarinnar vill opinber-
an rekstur á sjúkrahúsunum. I sjálfu
sér þarf enginn að undrast þessa
niðurstöðu og ekkert óeðlilegt við
það, að almenningur óttist breyting-
ar á fyrirkomulagi sem það þekkir.
Það er gömul og ný saga. Engu að
síður vekur athygli hversu fjölmenn-
ur sá hópur er sem er óánægður
með ástandið í sjúkrahúsmálum, eða
um þriðjungur þeirra sem spurðir
voru, eða áþekkur fjöldi og telur
einkarekstur sjúkrahúsa tilraunar-
innar virði. Eftirtektarverðast er þó
ef til vill að upp undir helmingur
svarenda, hvort heldur þeir eru
hlynntir einkarekstri sjúkrahúsa eða
ekki, telur það álitlegan kost að
starfrækt sé sjúkrahús sem býður
sjúklingum að komast að strax og
betri þjónustu gegn ákveðnu legu-
gjaldi. Því má spyija hvort þar sé
ekki kominn grundvöllur til að vinna
út frá í nýrri stefnumótun fyrir heil-
brigðisþjónustuna í landinu. Mætti
hugsa sér að hið opinbera og einka-
aðiiar tækju höndum saman um
breyttan rekstur einhverrar þeirrar
sjúkrastofnunar sem fyrir er með það
fyrir augum að selja útlendingum
læknisaðgerðaþjónustu samhliða því
að þeir heimamenn sem það kysu,
gætu notfært sér þá þjónustu gegn
ákveðnu legugjaldi á sólarhring?
Framlag hins opinbera gæti til að
mynda fyrst og fremst falist í því
að leggja til húsnæðið ásamt eftirliti
með því að öllum kröfum sé fullnægt
en á móti fengist margvíslegt hag-
ræði, svo sem styttri biðlistar stóru
sjúkrahúsanna jafnframt því sem
loks fengist raunhæfur samanburður
á ýmsum helstu kostnaðarþáttum
sjúkrahúsaþjónustunnar.
Frá fundi Almannaheilla á Austurvelli í gær. Morgunbiaðið/Ami Sæborg
Sljómvöld láti af árás-
um á velferðarkerfið
- segir í ályktun stofnfundar Almannaheilla á Austurvelli
UM EITT þúsund manns sótti, að sögn lögreglu, stofnfund Almanna-
heilla, samtaka sjúkra, fatlaðra, aldraðra og aðstandenda þeirra, á
Austurvelli síðdegis í gær. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem
þess er krafist að stjórnvöld láti af árásum á velferðarkerfið og lífs-
kjör þeirra sem eigi allt sitt undir því. Skorað er á stjórnvöld að draga
til baka allar aðgerðir sem Ieiði til skerts heilbrigðiskerfis, gloppótts
skóla- og menntakerfis, og lakari afkomu þeirra sem standi höllustum
fæti. Ályktunin var afhent Davíð Oddssyni forsætisráðherra að útifund-
inum loknum.
Gísli Helgason hóf fundinn og
sagði að undanfarið hefði fólk orðið
þess áþreifanlega vart að stjórnvöld -
hefðu gripið til mikilla aðhaldsað-
gerða í velferðarkerfinu. „I sparn-
aðarskyni hefur fé til sjúkrahúsa og
í heilbrigðiskerfinu almennt verið
skorið mjög niður, örorkulífeyrir
hefur verið skertur til muna eða
felldur niður ef ákveðnu tekjuhá-
marki er náð, barnaörorka er sett í
óvissu, lyfjakostnaður almennings
hækkar og svona má lengi telja. Til
skamms tima gátum við verið stolt
af velferðarkerfi okkar. Allir stjórn-
málaflokkar lögðust á eitt að gera
hag þeirra sem minnst mega sín sem
viðunanlegastan. Við metum það
sem vel er gert en getum ekki sætt
okkur lengur við þann handahófs-
kennda niðurskurð og þær grund-
vallarbreytingar sem nú eiga sér
stað í velferðarkerfinu," sagði Gísli
í ávarpi sínu.
Sigurður Björnsson, fulltrúi fatl-
aðra, spurði hvaða grundvallar-
stefnu mætti lesa úr aðgerðum rík-
isstjórnarinnar og svaraði með þess-
um orðum: „Á samdráttartímum er
rétt að öryrkjar og aldraðir, sem
ekki ná meðallaunum, beri byrðarnar
en ekki hátekjumenn sem ekki eiga
börn. Af hveiju ættum við sem erum
heilbrigð að vera að borga fyrir ykk-
ur sem eruð sjúk eða fötluð. Það
eruð þið sem eruð veik, þið sem
notið hjálpartækin, þið eigið að
borga. Svona hugsa ekki íslending-
ar. Og ég trúi því ekki heldur að
ráðamenn þjóðarinnar hugsi svona.
Þess vegna verða þeir að snúa við
blaðinu. Þess vegna ætlum við að
stofna samtökin Almannaheill. Fyrir
velferðina."
Bergsteinn Sigurðsson, fulltrúi
aldraðra, sagði að niðurskurður
stjórnvalda í heilbrigðiskerfinu bitn-
aði harkalega á sjúkum og öldruðum
og lýsti vanþakklæti til þess aldurs-
hóps sem unnið hefði langan starfs-
dag til að koma á almennu velferðar-
kerfi. „Sparnaður sá sem reiknað
er með við niðurskurð heilbrigðis-
þjónustu er vafasamur því breyting-
ar sjúkrahúsa kalla á kostnað, upp-
sagnir starfsfólks og hluti þess verð-
ur atvinnulaus sem aftur þýðir aukn-
ar atvinnuleysisbætur og launa-
skattur til ríkisins fellur niður.“
Selma Dóra Þorsteinsdóttir, full-
trúi aldraðra, sagði að verið væri
að vinna að hugmyndafræðilegum
breytingum þar sem horfið væri frá
því að allir hefðu sama rétt til heil-
brigðisþjónustu og að menntakerf-
inu. „Það er verið að hörfa til fortíð-
Flugleiðir lækka verð og auka ferðamöguleika í sumar í samkeppn
Semja við danska ferc
stofu um ferðir til sólí
FLUGLEIÐIR hafa boðað aukna samkeppni við ferðaskrifstofur um
viðskipti íslenskra sumarleyfisfarþega með því að lækka verð á fargjöld-
um og auka úrval ferðamöguleika. Auk þess hafa Flugleiðir gert samn-
ing við dönsku ferðaskrifstofuna Fritidsrejser um skipulagðar sólarland-
aferðir. Formaður Félags ferðaskrifstofa segir að ef Flugleiðir ætli að
fara að keppa við leiguflug íslenskra ferðaskrifstofa með aðstoð útlend-
inga verði ferðaskrifstofurnar að skoða hvort þær eigi að beina viðskipt-
um sinum til erlendra flugfélaga.
Flugleiðir kynntu nýjan ferðabækl-
ing á sunnudaginn þar sem þessi
stefna kom fram. „Við stöndum
frammi fyrir því að ef ísland verður
aðili að Evrópsku efnahagssvæði eftir
11 mánuði falla niður sérleyfí á flugi
til og frá landinu. Og þegar sam-
keppni eykst í Evrópu er mjög mikil-
vægt að Flugleiðir nái að veija sinn
heimamarkað. Það ætlum við að gera
með því að bjóða hér upp á besta
úrval ákvörðunarstaða, bestu þjón-
ustuna og besta verðið," sagði Einar
Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða.
Hann sagði að Flugleiðir væru á 3
árum búnar að fjárfesta 20 milljarða
króna í ferðaþjónustu. „Til að geta
haldið úti áætlunarflugi frá þessum
litla markaði verður félagið að veija
þennan markað sinn með oddi og
egg. Við höfum verið að fara inn á
sömu braut og önnur flugfólög í Evr-
ópu, að lækka verð og reyna um leið
að ná upp sætanýtingunni. Og sam-
vinnan við Fritidsrejser er með það í
huga að styrkja áætlunarflug Flug-
leiða til Kaupmannahafnar. Um leið
viljum við bjóða nýja möguleika á
ferðamarkaðnum. Við höfum fundið
fyrir því að fólk hefur áhuga á að
sameina í einni ferð stutta sólarlanda-
ferð og stutta Evrópuferð. Með þessu
móti komum við til móts við þetta
fólk og fólk sem er að huga að óvenju-
legum stöðum. Við lítum ekki á þetta
sem beina samkeppni við ferðaskrif-
stofurnar heldur sem viðbót og gerum
ekki ráð fyrir stórviðskiptum þarna,“
sagði Einar Sigurðsson.
„Ég er alveg hættur að skilja þetta
vegna þess að Flugleiðamenn hafa
ár eftir ár sagt okkur að þeir viti að
erlendir aðilar geti boðið betri kjör í
leiguflugi en hins vegar þurfí þeir á
þessum viðskiptum við okkur að
halda. Þær ferðaskrifstofur sem nú
starfa hérlendis höfðu það í huga að
skipta eingöngu við íslensk flugfélög
í sumar og þá Flugleiðir að stærstum
hluta. En það var ekki fyrr búið að