Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.02.1992, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRUAR 1992 Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar: Garðabær greiðir fyrir þjónustuna - segir Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri Garðabæjar „EG VEIT ekki til þess að íbúar Garðabæjar séu upp á Hafnfirðinga komnir nieð þjónustu," sagði Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri Garðabæjar, þegar hann var spurður álits á ummælum Guðmundar Arna Stefánssonar bayarstjóra Hafnarfjarðar við síðari umræðu um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar. I máli Guðmundar Arna kom fram að Hafnarfjörður hefði sérstöðu miðað við Garðabær, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes, þar sem þau bæjarfélög veittu takmarkaða þjónustu á ýmsum sviðum og að íbúar leituðu með hana til nágrannabyggðarlaga. Kristján Árnason prófessor afhendir kandídötum prófskírteini. 109 kandídatar luku prófi frá Háskóla Islands Ingimundur Sigurpálsson sagði, að þessi ummæli kæmu sér mjög á óvart, þar sem Garðabær, Bessa- staðahreppur og Hafnarfjörður hefðu gert með sér samninga um sameiginlegan rekstur almanna- varna, heilbrigðiseftirlits og bruna- varna og væri sá rekstur greiddur af samningsaðilum fullu verði. „Ég held, að það fari ekki á milli mála, að þjónusta Garðabæjar við þegna sína þoli fullan samanburð við þá þjónustu, sem veitt er í öðrum bæjar- félögum. Um það vitnar sá fjöldi, sem sækist eftir því að búa í /Garðabæ. Því miður er það þó svo, að Garðbæingar hafa þurft að sæta því að sækja fógetaþjónustu og lög- gæslu til Hafnarljarðar, en sú þjón- usta er vel að merkja bæði veitt og greidd af ríkinu. Við Garðbæingar höfum barist fyrir því undanfarin ár og nú með sérstökum þunga, að þessi þjónusta verði veitt í Garðabæ og reyndar erum við meira en fús til þess að leggja land undir skrif- stofur sýslumanns, sem þjónustaði Bessastaðahrepp, Hafnarfjörð og Garðabæ." Ingimundur benti á, að áiagning- arhlutfall í Garðabæ væri óbreytt árið 1992 og að bæjarstjórn Garða- btejar hafi ákveðið að mæta þeim skatti, sem ríkisvaldið leggði á sveit- arfélögin, með því að draga úr fram- kvæmdum á árinu. „Bæjarstjórn þótti ekki stætt á því að velta þeirri skattlagningu yfir á bæjarbúa og þótti rétt að mæta henni með að- haldi og sparnaði í útgjöldum á þessu ári á sama hátt og fjölmörg heimili í bænum verða að gera,“ sagði hann. „Utsvarshækkun Hafnarijarðar á ekkert .skylt við að Garðbæingar sæki þangað þjónustu og ekki stór- mannlegt að réttlæta gjörðir sínar með því að kasta rýrð á aðra, síst af öllu þegar benlínis er hallað réttu máli. Garðabær og Hafnarfjarðar- bær hafa átt ágæta samvinnu á ýmsum sviðum um árabil, báðum bæjarfélögunum til hagsbóta að ég ætla, og af kynnum mínum af Guð- mundi Arna Stefánssyni trúi ég því ekki að óreyndu, að ummæli þau, sem vitnað er til, séu rétt eftir höfð,“ sagði Ingimundur. í LOK haustmisseris brautskráð- ust 109 kandídatar frá Háskóla Islands. Auk þess luku 5 nemend- ur eins árs viðbótarnámi við fé- Iagsvísindadeild. Guðfræðideild (2) Embættispróf í guðfræði (2) Sigfús Baldvin Ingvason Sigríður Oladóttir Læknadeild (2) BS-próf í hjúkrunarfræði (1) Guðrún Helga Teitsdóttir BS-próf í sjúkraþjálfun (1) Unnur Pétursdóttir Lagadeild (11) Embættispróf í lögfræði Aðalsteinn Egill Jónasson Anna Dóra Helgadóttir Auður Inga Ingvarsdóttir Birgir Guðjón Magnússon Bryndís Hlöðversdóttir Jón Tryggvi Jóhannesson Jónas Friðrik Jónsson Magnús Ingi Erlingsson Margrét Viðar Ólafur Finnbogi Haraldsson • Ragný Þóra Guðjohnsen Viðskipta- og hagfræðideild (17) Kandídatspróf í viðskiptíifræðum (16) Elfa Bára Bjarnadóttir Elín Magnadóttir Guðmunda Lilja Gunnarsdóttir Guðmundur G. Sigurbergsson Guðni G. Jónsson Gunnar Skúlason Halldór Eiríksson Hólmar Ingi Guðmundsson Hólmfríður Gísladóttir Kjartan Steinsson Kristinn Guðmundur Jónsson Lucia Lund Reynir Arngrímsson Skúli Svanur Júlíusson Stefán Baldvin Friðriksson Steinhildur Hildimundardóttir BS-próf í hagfræði (1) Róbert Gunnarsson Heimspekideild (30) Cand.mag.-próf í íslenskum bók- menntum (1) Ólína Þoivarðardóttir Cand.mag.-próf í sagnfræði (1) Eggert Þór Bernharðsson M.Paed.-próf (1) Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir Bacc.philol. ísl.-próf (1) Jórunn Rotenborg B.Ph.ísl.-próf (íslenska fyrir er- lenda stúdenta) (1) Paolo Maria Turchi BA-próf í heimspekideild (25) Aðalbjörg Jónsdóttir Anna Gréta Möller Ágústa Elín Ingþórsdóttir Ásta Emilsdóttir Bergur Þorgeirsson Björgvin Þórisson Eygerður Guðbrandsdóttir Gerður Kristný Guðjónsdóttir Hrafnhildur Bl. Hrafnkelsdóttir Hrafnhildur Erla Karlsdóttir Hreinn Erlendsson Jófríður Anna Jófisdóttir Jóhann Björnsson Jóhanna I. Barðdal Jóhanna Eydís Þórarinsdóttir Jóna Símonía Bjarnadóttir Kamilla Suzanne Kaldalóns Kristín Hildur Sætran Kristján Þórður Hrafnsson Óskar Bjarnason Pétur Halldórsson Pétur Pétursson Sigríður Konráðsdóttir Þóra Sen Þorsteinn Siglaugsson Verkfræðideild (1) Lokapróf í rafmagnsverkfræði (1) Jón Bjarnason Raunvísindadeild (17) MS-próf í jarðfræði (1) Magnús A. Sigurgeirsson BS-próf í efnafræði (2) Einar Karl Friðriksson Halldór Guðfinnur Svavarsson BS-próf í jarðfræði (1) Steinunn Hauksdóttir MS-próf í jarðeðlisfræði (1) Halldór Björnsson BS-próf í landafræði (1) Eydís Aðalbjörnsdóttir BS-próf í líffræði (7) Davíð Gíslason Gunnlaugur B. Ólafsson Haraldur Arnar Einarsson Járngerður Grétarsdóttir Tómas Guðbergsson Þorsteinn Narfason Þóra Árnadóttir BS-próf í tölvunarfræði (4) Agnar Örn Arason Ólafur Guðmundsson Sigþór Örn Guðmundsson Þorleifur Einarsson Félagsvísindadeild (29) (+5) BA-próf í bókasafns- og upplýs- ingafræði (7) Anna Magnea Charlesdóttir Ástþrúður Sif Sveinsdóttir Herdís Tómasdóttir Inga Guðmunda Aradóttir Ingibjörg Bergmundsdóttir Ragnhildur Blöndal Sjöfn Hjöivar BA-próf í sálarfræði (9) Anna Valgerður Einarsdóttir Anna Sigríður Þorkelsdóttir Egill Héðinn Bragason Guðríður Haraldsdóttir Helma Rut Einarsdóttir Hrund Sigurðardóttir Linda Björk Hassing Sigrún Sigurgeirsdóttir Sigþrúður Erla Arnardóttir BÁ-próf í félagsfræði (2) Aðalbjörg Traustadóttir Bryndís Kjartansdóttir BÁ-próf í mannfræði (1) Jóhanna Gunnlaugsdóttir BA-próf í stjórnmálafræði (5) Ari Sigvaldason Guðmundur Auðunsson Hrönn Marinósdóttir Ragnheiður S. Dagsdóttir Sveinbjörn Hannesson BA-próf í uppeldis- og kennslufræði (5) Alma Vestmann Ingibjörg Atladóttir Þormar Lýður Pálsson María Hildur Maack Steinunn Guðjónsdóttir Hansen Auk þess hafa eftirtaldir 5 nemend- ur lokið eins árs viðbótarnámi í félags- vísindadeild til starfsréttinda í félags- ráðgjöf: Aðalbjörg Traustadóttir Álflieiður Guðlaugsdóttir Guðrún Jónsdóttir Kristinn Guðjón Kristinsson Kristín G. Jónsdóttir Á' Orðsending til lífeyrisþega Þann 1. febrúar sl. gengu í gildi breytingar á lögum um almannatryggingar sem varða grunnlífeyri elli- og örorkulífeyrisþega. Stærstur hluti lífeyrisþega, eða um 90% þeirra, verður ekki fyrir neinni skerðingu. Lífeyrisgreiðslur þeirra haldast óbreyttar. Skerðing grunnlífeyris á sér einungis stað ef atvinnutekjur eru umfram 66 þúsund krónur á mánuði. Þá skerðist grunnlífeyririnn um 250 krónur fyrir hverjar 1000 krónur í atvinnutekjum umfram 66 þúsund krónur á mánuði. Greiðslur úr lífeyrissjóðum og almannatryggingum hafa ekld áhrif til lækkunar. Slíkar greiðslur skerða ekld grunnlífeyrinn^ Við mat á atvinnutekjum er miðað við síðasta skattframtal, þ.e. framtaldar tekjur ársins 1990. Hafí atvinnutekjur elli- og örorkulífeyrisþega lækkað frá atvinnutekjunum árið 1990 getur lífeyrisþegi átt rétt á hækkun grunnlífeyris hafi grunnlífeyrir verið skertur þann 1. febrúar sl. Upplýsingar þar um má fá hjá Tryggingastofnun ríkisins og umboðsskrifstofum hennar. Þeir, sem þurfa á frekari upplýsingum að halda um þessar breytingar, vinsamlega snúi sér til ráðuneytisins í síma 91-609700 eða til Tryggingastofnunar ríkisins í síma 91-604400. Reykjavík, 4. febrúar 1992 Heilbrigdis- og tryggingamálaráðuneytið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.