Morgunblaðið - 06.03.1992, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1992
39
KÖRFUKNATTLEIKUR / BIKARKEPPNIN - UNDANURSLIT
Kominn tími til að leika í urslitum
- sagði Henning Henningsson, íyrirliði Hauka, efitrað lið hans hafði unnið bikarmeistara KR
HAUKAR báru sigurorð af KR-ingum, 86:81, í undanúrslitum bik-
arkeppni KKÍ í æsispennandi leik og hafa þvítryggt sér rétt til
að leika til úrslita gegn Njarðvík eða Val. „Það var kominn tími
til að Haukar leiki til úrslita. Við höfum ekki verið í úrslitum frá
þvívið vorum íslandsmeistarar 1986,“ sagði Henning Hennings-
son, fyrirliði Hauka, eftir leikinn. „Við vissum að þetta yrði jafn
ieikur og því spurning um að halda haus. KR-ingar voru óheppn-
ir að missa bæði Baer og Pál Kolbeinsson útaf með fimm villur." ,
Bæði lið hófu leikinn af miklum
krafti. Hraðinn var mikill og
góð hittni. Liðin léku bæði maður
^■■■■1 á mann vörn og
PéturHrafn gekk KR-ingum illa
Sigurðsson að eiga við John
skrífar Rhodes, sem lék
hreint stórkostlega
og gerði 23 stig af 41 stigi Hauka
í fyrri hálfleik. Ennfremur tók hann
fjölda frákasta bæði í sókn og vörn.
KR-ingar með Pál Kolbeinsson í
broddi fylkingar léku vel í fyrri
hálfleik. Páll var mjög sterkur í
vöminni og hélt bakvörðum Hauka
alveg niðri. Hálfleikurinn var jafn
og spennandi og það var ekki fyrr
en undir lokin að KR-ingar komust
sjö stig yfir. Haukum tókst þó að
minnka muninn í 4 stig þegar Jón
Amar gerði þriggja stiga körfu eft-
ir að hafa fengið boltann úr innk-
asti þegar ein sekúnda var til leik-
hlés.
í síðari hálfleik náðu KR-ingar
nokkmm tökum á leiknum. Þeir
breyttu yfir í svæðisvörn og freist-
uðu þess að stöðva John Rhodes.
Það tókst mjög vel því Haukar áttu
erfitt með að koma boltanum inná
Rhodes og þegar það tókst var
hann umkringdur KR-ingum og
hitti því illa. A þessum tíma hittu
Haukar einnig illa fyrir utan og
KR-ingar juku forskotið.
„Það vantaði hreifanleika í sókn-
ina gegn svæðisvörn KR-inga,“
sagði Olafur Rafnsson, þjálfari
Hauka. „En við erum með góðar
skyttur og því aðeins spurning um
hvænar boltinn færi ofaní. Annars
var þetta sigur liðsheildarinnar. Ég
notaði níu leikmenn og allir stóðu
þeir frábærlega vel fyrir sínu.“
KR-ingar vom óheppnir og kom-
ust fljótlega í villuvandræði í síðari
hálfleik. Þegar fjórar mínútur vom
eftir fékk Jon Bear tæknivillu fyrir
mótmæli við dómara leiksins og var
það jafnframt fimmta villa hans.
Þá var staðan 69:77 en fjarvera
Bear reyndist KR-ingum dýrkeypt
því eftir að hann fór að leikvelli
náðu Haukar að skora átta stig í
röð og jafna leikinn. Þegar tvær
mínútur voru eftir fór Páll Kolbeins-
son einnig útaf með fimm villur.
KR-ingar hengdu haus og þrátt
fyrir eggjunarorð frá Axel Nikulás-
syni, sem aldrei gefst upp, tókst
þeim ekki að jafna leikinn.
Bestir í liði Hauka voru John
Rhodes, sem lék frábærleg vel sér-
staklega í fyrri hálfleik og lok þess
seinni. Jón Arnar og Henning Henn-
ingsson léku einnig vel ásamt Braga
Magnússyni, ungum nýliða sem
skoraði körfur á mikilvægum
augnablikum. Hjá KR vom Axel,
Guðni Guðnason og Jon Baer bestir
og Páll Kolbeinsson átti einnig góð-
an leik.
Morgunblaðið/KGA
Haukar höfðu ríka ástæðu til að gleðjast eftir bikarleikinn gegn KR í
gær. Haukar leika til úrslita í bikarkeppninni í fyrsta sinn síðan 1986.
Haukar-KR 86:81
íþróttahúsið í Hafnarfirði, undanúrslit
í bikarkeppni karla, fimmtudaginn 5.
mars 1992.
Gangur leiksins: 0:3, 12:13, 23:30,
27:32, 38:43, 41:45, 56:55, 61:70,
69:77, 77:77, 80:79, 86:81.
Stig Hauka: John Rhodes 31, Jón
Amar Ingvarsson 14, tvar Ásgrims-
son 11, Henning Henningsson 7, Pét-
ur Ingvarsson 7, Bragi Magnússon
6, Jón Örn Guðmundsson 4, Tryggvi
Jónsson 4.
Stig KR: Jon Baer 23, Axel Nikulás-
son 21, Guðni Guðnason 21, Hermann
Hauksson 9, Páll Kolbeinsson 7.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og
Kristján Möller. Höfðu góð tök á
leiknum.
Áhorfendun 600.
Bikarkeppni kvenna, undan-
úrslit:
ÍBK-ÍR...................84:57
Haukar - Njarðvík........72:53
BADMINTON
Broddi og Ámi Þór
í Ólympíusæti
Verða meðal keppenda um helgina á sterkasta alþjóðlega
mótinu sem haldið hefurverið hérá landi
BRODDI Kristjánsson og Árni
Þór Hallgrímsson verða með-
al keppenda á Ólympíuleikun-
um í Barcelona, ef þeir halda
þeim sætum sem þeir eru í
nú á styrkleikalista Alþjóða
Badmintonsambandsins fyrir
leikana. Þeir verða meðal
þátttakenda á Meistaramóti
Reykjavíkur sem fram fer um
helgina. Þetta er alþjóðlegt
mót og gefur stig á styrkleika-
listann fyrir Ólympíuleikana í
sumar.
Broddi er „inni“ í einliðaleikn-
um og ætti að vera nokkuð
öruggur með sæti á leikunum í
Barcelona. Árni Þór er hins vegar
talsvert frá því að komast inn í
einliðaleikinn. Staða þeirra félaga
er góð í tvíliðaleiknum og miklar
líkur á að þeir keppi á þeim vett-
vangi í Barcelona.
Níu erlendir keppendur verða
með að þessu sinni, fjórir Skotar,
þrír Englendingar, einn frá Wales
og einn frá Grenada. Þetta er
sterkasta opna badmintonmót
sem haldið hefur verið hér hingað
til, því ofangreindir keppendur eru
meðal þeirra bestu frá sínum þjóð-
um, og eru að beijast um sæti á
ÓL.
Mótið fer fram í TBR-húsunum
og hefst á morgun, laugardag,
kl. 13.00 Undanúrslit hefjast á
morgun kl. 16.00 í öllum greinum
nema einliðaleik. Þau verða á
sunnudag kl. 10.00 og strax á
eftir hefjast úrslitaleikirnir.
ÍÞRÚntR
FOLK
■ SKAPTI Hallgrímsson á
Morgunblaðinu var kjörinn formað-
ur Samtaka íþróttafréttamanna á
aðalfundi þeirra á dögunum. Hann
tók við af Samúel Erni Erlings-
syni á Ríkisútvarpinu, sem ekki gaf
kost á sér til endurkjörs, en Samú:
el hafði verið formaður í sjö ár. í
stjóm SI eru einnig Logi Berg-
mann Eiðsson, RUV og Jón Krist-
ján Sigurðsson, DV.
■ KRISTINN Björnsson, skíða-
maður, var nýlega útnefndur
íþróttamaður Ólafsfjarðar 1991.
KNATTSPYRNA
Höttur og Magni
leika um sæti í
þriðju deildinni
Höttur frá Egilsstöðum og
Magni frá Grenivík mætast í
aukaleik um sæti í 3. deildinni í
knattspymu á komandi keppnis-
tímabili, á Sandgrasvellinum í
Kópavogi á morgun kl. 14.00.
Magni varð í 9. sæti 3. deildar í
fyrra og átti að falla í 4. deild en
eftir að íþróttafélag Kópavogs var
lýst gjaldþrota og lagt niður, var
ákveðið að Magni og Höttur, sem
varð í 3. sæti í úrslitakeppni 4.
deildar, mættust í aukaleik um
sæti ÍK.
Félögin mega eingöngu nota þá
leikmenn í þessum leik sem voru
löglegir með þeim í lok keppnistíma-
bilsins í fyrra. Leikið verður til
þrautar, þ.e. ef jafnt verður eftir
90 mínútur verður framlengt í 2x15
mín. og verði þá enn jafnt ráðast
úrslit í vítaspyrnukeppni.
UBKhefurkært
leikinn gegn ÍR
Breiðablik, sem leikur í 1. deild
karla í körfuknattleik, hefur
kært leikinn við ÍR á þriðjudags-
kvöld til dómstóls ÍBR, en sam-
kvæmt leikskýrslu vann ÍR með 82
stigum gegn 80. Breiðabliksmenn
fullyrða að karfa sem þeir skoruðu
í lok leiksins hafi verið 'gild, en
dómarar leiksins sögðu að leikurinn
hafi verið búinn þegar boltinn fór
í körfuna. Einnig segja þeir að ritar-
ar leiksins hafi gert mistök og skráð
tvö stig fyrir eitt vítaskot IR-inga
í leiknum.
Blikar telja sig því hafa unnið
leikinn 81:82. Máli sínu til stuðn-
ings hafa þeir lagt inn myndbands-
upptöku af leiknum.
KNATTSPYRNA
Oruggur sigur
íslenska liðsins
í Þýskalandi
ÍSLENSKA kvennalandsliðió í
knattspyrnu lék æfingaleik
gegn svæðisúrvali Giessen í
Þýskaiandi í gær og sigraði
4:1. Guðrún Sæmundsdóttir
úr Val gerði tvö marka íslands
og lagði upp það þriðja.
Að sögn Sigurðar Hannesson-
ar, þjálfara liðsins, lék ís-
lenska liðið nokkuð vel. „Guðrún
Sæmundsdóttir átti stórleik og
eins lék Jónína Víglundsdóttir
mjög vel. Þetta lið var ekki alveg
eins sterkt og lið Hessen sem við
töpuðum fyrir á þriðjudaginn. En
engu að síður stóðu íslensku stúlk-
urnar sig vel og ég er ánægður
með leikinn," sagði Sigurður.
Jafnræði var á með liðunum
fyrsta stundarfjórðunginn eða allt
þar til íslenska liðið fékk víta-
spyrnu sem Guðrún Sæmunds-
dóttir skoraði úr. Jónína Víglunds-
dóttir bætti öðru markinu við
skömmu síðar og þannig var stað-
an í leikhléi. Þýska liðið náði að
minnka muninn í upphafi síðari
hálfleiks en síðan tók íslenska lið-
ið völdin og gerði tvö mörk áðu^*
en flautað var til leiksloka. Guð-
rún Sæmundsdóttir gerði það
fyrra af 20 metra færi og síðan
Asta B. Gunnlaugsdóttir af stuttu
færi eftir fyrirgjöf frá Guðrúnu.
í dag fara stúlkumar til Frank-
furt og verða m.a. gestir borgar-
stjórans. Þær leika síðan við þýskt
úrvalsdeildarlið frá Frankfurt á
laugardaginn. Liðið kemur heim
á sunnudag.