Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992
Fangelsi í 4 ár fyrir
manndráp af ásetningi
TVÍTUG kona, Jónína Sigríður Guðmundsdóttir, hefur verið sak-
felld fyrir manndráp af ásetningi og dæmd til fjögurra ára fangelsis-
vistar fyrir að hafa þann 11. janúar síðastliðinn orðið sambýlis-
manni sinum að bana á heimili þeirra og tveggja ungra barna þeirra
i Vestmannaeyjum með því að leggja hann flökunarhnífi í hjartastað.
Atburðurinn átti sér stað laust
eftir klukkan sjö að morgni laugar-
dagsins 11. janúar. Maðurinn sat
ásamt kunningjum sínum að
drykkju á heimilinu og neitaði ósk-
um konunnar, sem einnig var ölv-
uð, um að vísa gestunum út. Fram
kemur í dóminum að hún hafði
tvisvar hringt og óskað eftir lög-
regluaðstoð við að fjarlægja gestina
en vegna aðstæðna var illmögulegt
fyrir lögreglu að fara strax á stað-
inn, að því er segir í dóminum.
Eftir tilraunir til að fá lögreglu
á staðinn kom til frekari orðaskipta
milli sambýlisfólksins og í fram-
haldi af því sótti konan flökunar-
hníf í eldhús íbúðarinnar sem hún
otaði að manninum og lagði síðan
til hans í hjartastað þegar hann
hæddist að henni að því er fram
kemur í dóminum.
í niðurstöðum dómsins segir að
skert dómgreind hennar vegna mik-
illar áfengisneyslu verði ekki virt
henni til málsbóta. Hins vegar hljóti
að vega þungt þegar refsing hennar
sé ákvörðuð að maðurinn hafi mis-
boðið henni þegar hann hafi af-
dráttarlaust synjað réttmætri beiðni
hennar um að gestir hans færu úr
íbúðinni.
Það hversu lögregla hafí verið
illa í stakk búin til að koma til að-
stoðar hafi aukið á reiði konunnar
sem og, að því er virðist, kæruleys-
isleg viðbrögð mannsins við yfirvof-
andi hættu. Full reiði og í mikilli
geðshræringu, sem maðurinn hafi
átt þátt í að skapa, hafi hún lagt
til hans með hnífnum. Konan var
sakfelld fyrir manndráp af ásetn-
ingi þar sem henni hafí hlotið að
vera ljóst að það að leggja hnífnum
til mannsins gat dregið hann til
dauða en ekki var talið að hún hefði
fyrirfram ætlað að ráða honum
bana.
Við ákvörðun refsingar var með-
al annars tekið tillit til þess að kon-
an var 19 ára þegar hún framdi
brotið og þess að eftir atburðinn
hafi hún verið full iðrunar og hafi
játað brot sitt hreinskilnislega.
Einnig er meðal annars vísað til
75. greinar hegningarlaganna þar
sem segir að færa megi refsingu
niður ef brot hafí verið framið í
ákafri geðshræringu eða svo sé
ástatt að öðru leyti að verknaðurinn
sé ekki talinn líkt því eins refsiverð-
ur og venjulegt sé um samskonar
brot. Samkvæmt því að refsing
konunnar ákveðin 4 ára fangelsi. I
málinu var konan sýknuð af ákæru
vegna tékkafölsunar.
Við dómsuppkvaðningu í gær tók
konan sér 14 daga frest til að
ákveða hvort hún áfrýji dóminum
og að sögn Björns Helgasonar sak-
sóknara hefur ákæruvaldið ekki
tekið afstöðu til þess hvort dómin-
um verði áfrýjað.
Morgunblaðið/Jóhann Guðmundsson
Gorbatsjov hefur viðdvöl
á íslandi
Mikhaíl Gorbatsjov, fýrrum Sovétleiðtogi, gerði stuttan stans í Leifs-
stöð á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Bandaríkjanna á laugardag.
Boeing 727 flugvél er flutti hann til Bandaríkjanna lenti á Keflavíkur-
flugvelli á hádegi og hóf flugið um það bil klukkustund síðar eftir
að tekið hafði verið inn eldsneyti. Eiginkona Gorbatsjovs, Raísa, var
í för með honum ásamt fylgdarliði. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var Gorbatsjov í senn afslappaður og ræðinn.
Reykjavíkurborg:
160 mílljónum verði varið til
Hellissandur:
Grunaðir um
að nauðga 13
ára telpu
TVEIR piltar um tvítugt hafa ver-
ið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til
næstkomandi föstudags vegna
gruns um að þeir hafi nauðgað
13 ára telpu í verbúð á Hellissandi
aðfaranótt 1. maí.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var telpan ásamt vinkenu
sinni á líku reki í samkvæmi í verbúð-
inni um kvöldið ásamt piltunum en
vinkona hennar var farin úr húsinu
þegar atburðurinn átti sér stað. RLR
fer með rannsókn málsins en þar
fengust í gær engar upplýsingar um
atvik málsins.
Mennirnir voru handteknir daginn
eftir, annar í Ólafsvík og hinn á
Akranesi. Þeir voru færðir til Reykja-
víkur og úrskurðaðir þar í gæsluvarð-
hald af sakadómi.
----» ♦ ♦---
Ríkissaksóknari:
Ekkí ólögmæt
aðferð við
handtökuna
RÍKISSAKSÓKNARI telur að
rannsókn á kæru sem lögð var
fram gegn tveimur lögreglumönn-
um vegna meints harðræðis við
handtöku tveggja manna í Mos-
fellsbæ að morgni 22. mars síðast-
liðins hafi ekki leitt í Ijós að lög-
reglumennirnir hafi beitt ólög-
mætum aðferðum miðað við að-
stæður.
Þetta tilkynnti ríkissaksóknari
rannsóknarlögreglu í gær og jafn-
framt að ákæruvaldið geri enga
kröfu um frekari aðgerðir gegn lög-
reglumönnunum.
----»-»■■♦--
Sjávarútvegs-
viðhalds skóla og skólalóða
í BORGARRÁÐI verður væntanlega lögð fram í dag tillaga um rúm-
lega 160 milljón króna aukafjárveitingn til viðhalds skóla og skólalóða
auk þess sem sett verði á laggirnar 35 störf við námskeið á vegum
íþrótta- og tómstundaráðs og í íþróttamannvirkjum í sumar. Ástandið
í atvinnumálum borgarinnar er nú betra en það var fyrir nokkrum
vikum.
Að sögn Markúsar Amar Antons-
sonar, borgarstjóra, hefur ástandið
í atvinnumálum borgarinnar batnað
að undanfömu og em nú um 1.300
manns á skrá hjá Ráðningarskrif-
stofu Reykjavíkur en voru tæplega
1.500 fyrir nokkmm vikum. „Við
gerum samt sem áður ráð fyrir að
borgin þurfí að grípa inn í með því
að leggja til fé í sérstök verkefni sem
bætt gætu atvinnuástandið," segir
Markús Örn.
Hann segir að í dag verði rædd í
borgarráði tillaga sem geri ráð fyrir
rúmíega 160 milljón króna aukafjár-
veitingu til viðhalds skóla og skóla-
lóða auk 35 starfa við sumamámske-
ið á vegum íþrótta- og tómstunda-
ráðs og í íþróttamannvirkjum í sum-
ar. Nú er gert ráð fyrir í ijárhags-
áætlun að 130 milljónum verði varið
til viðhalds skólahúsnæðis og 18,2
milljónum til venjubundins viðhalds
skólalóða.
„Aukafjárveitingarnar em sam-
tals upp á 153,7 milljónir varðandi
skólana. og lóðirnar þannig að ef
þetta verður samþykkt má gera ráð
fyrir að um miðbik verktímans í sum-
ar fái 110 manns störf við þessi verk-
efni,“ segir Markús Öm.
Hann segir að auk þess hafí verið
óskað eftir því við forstöðumenn fyr-
irtækja borgarinnar, veitufyrirtækja
og hafnarinnar að þeir geri áætlanir
um hvað hægt sé að flýta verkefnum
á þeirra vegum eða taka fyrir af
nýjum verkefnum með tilliti til að-
stæðna nú á vinnumarkaðnum.
Félagsmálaráðuneytið og Sam-
band íslenskra sveitarfélaga hafa
komið sér saman um ákveðnar við-
miðunartölur varðandi fjárhag
sveitarfélaga þar sem miðað er við
að nettóskuldir sveitarfélaga fari að
jafnaði ekki yfír 50% af sameiginleg-
um árlegum tekjum og hættumörk-
um sé náð þegar hlutfallið er orðið
80-90%. í nýju fréttabréfí frá Lands-
bréfum hf. kemur fram að miðað við
50% skuldsetningu gæti Reykjavík
aflað lánsfjár fyrir rúmlega 3,3 millj-
arða króna.
Aðspurður segir Markús Örn að
möguleikar á slíkri lántöku hafí ekki
komið til umræðu. „Þessar tölur sýna
að fjárhagsstaða borgarinnar er
mjög sterk en ég er ekki meðmæltur
því að við förum að taka stórfelld
erlend lán til að taka á vanda sem
Roskinn maður lést úr berklum
MAÐUR um sextugt, sem fannst látinn á heimili sínu á Hvolsvelli í
síðustu viku, greindist með berkla við krufningu og er talið að þeir
hafi dregið hann til dauða en maðurinn mun ekki hafa gengið með
annan sjúkdóm. Að sögn Þorsteins Blöndal yfirlæknis Iungna- og
berklavarnardeildar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur má telja víst
að með einföldum hætti hefði verið unnt að lækna berklana ef maður-
inn hefði leitað læknis vegna þess hósta og óþæginda sem víst er talið
að hafi hrjáð hann.
Við berklapróf sem gert var á
föstudag á fólki í nánasta umhverfi
mannsins fundust tveir menn af tíu
með jákvæða svörun við berklaprófi,
sem jafngildir ekki því að fólkið
hafi greinst með berkla. Talið er lík-
legt en þó ekki víst að ástæðu hinn-
ar jákvæðu svörunar megi rekja til
umgengni fólksins við hinn látna.
Þetta fólk hefur verið sett á fyrir-
byggjandi lyíjameðferð. Ibúum
Hvolsvallar stendur til boða að gang-
ast undir berklapróf, hvort sem þeir
hafa verið í smithættu vegna um-
gengni við manninn eða ekki.
Þótt 15-20 tilfelli berkla komi upp
hérlendis á ári hvetju er það fátítt
eða einstakt á síðari árum að maður
deyji af þeirra völdum, sem ekki á
jafnframt við annan sjúkdóm að
stríða. Að sögn Þorsteins Blöndal
geta berklar hins vegar átt þátt í
dauða fólks sem langt er leitt af
öðrum sjúkdómum, svo sem al-
næmi. Bakterían berst á milli með
úðasmiti, eða hósta berklasjúklinga.
Við berklapróf í grunnskólum hef-
ur um eitt af hveijum þúsund börn-
um gefið jákvæða svörun en meðal
íslendinga 60 ára og eldri reynast
allt að 40% gefa jákvæða svörun,
að sögn Þorsteins. Hann sagði að
90% berklatilfella kæmu upp hjá
fólki sem lengi hafi gefíð jákvæða
svörun á berklaprófi lengi án sjúk-
dómseinkenna en veikist af berklum
þegar viðnámsþróttur líkamans dvíni
af öðrum orsökum. Á árunum í
kringum 1930, áður en lækning við
sjúkdómnum fannst, dóu árlega um
200 af hveijum 100.000 íslendingum
úr berklum, sem miðað við núver-
andi íbúatölu jafngilti um 500 dauðs-
föllum úr sjúkdómnum á ári.
vonandi er tímabundinn."
„Ég legg einnig áherslu á að það
má ekki líta á þetta ástand sem úr-
lausnarefni Reykjavíkurborgar einn-
ar. í tengslum við kjarasamningana
kom yfirlýsing frá ríkisstjórninni að
hún hygðist setja á laggimar sér-
staka nefnd til að huga að atvinnu-
málunum og gera það í samvinnu
við sveitarfélögin. Við munum að
sjálfsögðu tilnefna okkar fulltrúa í
samvinnu við atvinnumálanefnd rík-
isins um stöðu máia hér í Reykja-
vík,“ segir Markús Öm.
ráðherra Oman
í heimsókn
Sjávarútvegsráðherra Oman,
Sheikh Mohammed bin Abdulla
bin Zaher Al-Hinai, er í opinberri
heimsókn hér á landi þessa vikuna
til viðræðna við starfsbróður sinn
Þorstein Pálsson.
Með Sheikh Mohammed í för eru
nokkur fjöldi embættismanna og full-
trúa úr sjávarútvegi og viðskiptalífí
Omans. í dag heimsækir ráðherrann
meðal annars Vigdísi Finnbogadótt-
ur, forseta íslands. Heimsókninni
lýkur á fímmtudagskvöld með fundi
Þorsteins Pálssonar og Sheik Mo-
hammeds í sjávarútvegsráðuneytinu.
Farþegar Sólarflugs
fara með Flugleiðum
HALLDOR Sigurðsson framkvæmdastjóri Atlantsflugs segir að hann
sé gáttaður á málflutningi Guðna Þórðarsonar hjá Flugferðum-Sólar-
flugi í þeirri deilu sem fyrirtækin hafa átt í síðustu daga. „Staðreynd-
in er sú að Sólarflug skuldaði okkur 34 milljónir króna er við riftum
samningi okkar við ferðaskrifstofuna,“ segir Halldór. Guðni Þórðarson
hjá Sólarflug segir að þeir séu nú að kanna tilboð sem þeim hafa bor-
ist um flug en í dag munu farþegar þeirra fara með einni af vélum
Flugleiða utan.
af samningnum við undirskrift, 10%
þrjátíu dögum fyrir flug og síðan
80% sjö dögum fyrir flug og ekkert
af þessu stóðst.“
Guðni Þórðarson segir að Sólar-
fíugi hafi borist fjöldi tilboða í Ieigu-
flug fyrir farþega þeirra og að þau
tilboð séu nú í könnun. Farþegar
ferðaskrifstofunnar fara í dag utan
með þotu frá Flugleiðum en fyrir
flug Sólarflugs á föstudag verður
Tri-Star-þota Atlanta notuð. Guðni
segir að fyrir föstudag eigi svo að
liggja fyrir varanleg lausn á flug-
vélamálum Sólarflugs í sumar. Með
Flugleiðum í dag fara farþegar á
leið til Kaupmannahafnar og Lond-
on, samtals rúmlega 100 manns.
í máli Halldórs kemur einnig
fram að Atlantsflug sé að íhuga
að fara í skaðabótamál gegn Flug-
ferðum-Sólarflugi vegna vanefnda
á samningnum sem þessir aðilar
gerðu með sér um leiguflug í októ-
ber sl. Eru lögfræðingar Atlants-
flugs nú að skoða það mál. „Ég
veit ekki hvað Guðni er að fara
þegar hann segir að ein af ástæðum
þess að hann hætti viðskiptum við
okkur hafi verið að ein af vélum
okkar hafí verið kyrrsett af fjár-
hagsástæðum. Slíkt er della,“ segir
Halldór. „Þetta hefur ekki komið
fyrir og ég sé enga skynsemi í svona
málflutningi. Hinsvegar má nefna
að Guðni átti að borga okkur 10%