Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 Stærsta auðlindin Hæfing starfskrafta í atvinnulífinu eftir Vilhjálm Einarsson Hér á eftir verður gerð grein fyrir nokkrum niðurstöðum úr könnun sem gerð var í febrúar 1992 og miðaði að því að afla upplýsinga um vinnandi fólk á íslenska vinnu- markaðnum um þessar mundir; hvernig því liði og hvaða áhuga það hafi á að bæta kunnáttu sína, þekk- ingu eða þroska. Um var að ræða símakönnun og farið eftir tilviljana- kenndu úrtaki úr þjóðskrá. 600 manns á aldrinum 25-65 ára voru spurðir. Þeir sem ekki kváðust vera virkir í atvinnulífinu voru ekki spurðir um afstöðu sína til þeirra þátta sem á eftir fara. Framkvæmd Samdar voru 20 spurningar, margar fjölþættar. Spurt var m.a. um: * áhuga á uppriljun eða endurnýj- Lcimbakjötsveisla 1.-10. maí lOdaga tilbei veitiaga- hísaana í lambakiats- ríttna Dagana 1.- 10. maí bjóða valin veitingahús pér Ijúffenga lambakjötsrétti á sérstöku tilboðsverði. Hver staður býður uppáfjóra rétti, af ólíkum toga og á verði semfólk hefur ekki vanist áður. TJppskriftin fylgir hverjum rétti. Verið velkomin og njótið vel! SAMBAND VEITINGA- OG GISTIHUSA SAMSTARFSHÓPUR UM SÖLU Á LAMBAKJÖTI un á starfsþekkingu og af hvaða toga slíkur áhugi væri, * ánægju í starfi og líðan (höfuð- verk, eymsli í vöðvum, þreytu), * áhuga á líkamsrækt, slökun, til- fínningalífi og mannlegum sam- skiptum, * áhuga á sögu, bókmenntum og ýmsu er varðar þjóðlífið. Samsetning hópsins Úrtakið náði til 600 karla og kvenna á aldrinum 25-65 ára. Alls svöruðu 456 eða 76%. Af þeim voru 400 manns „virkir“ eða í a.m.k. hlutastarfi. Þetta gæti bent til þess að 87,7% af fólki á aldrinum 25 ára til 65 ára hefði vinnu utan heimilis. Langflestir voru í fullu starfi eða 77% og í fullu eða meira en hálfu starfi 87,5%. í hálfu starfi voru 7% en aðeins 5,5% í minna en hálfu starfi. Áhugi á upprifjun eða endurnýjun Ein spurning könnunarinnar hljóðaði svo: Hve mikinn áhuga hefur þú á uppriíjun eða endurnýjun á starfsþekkingu þinni? Hefurðu mikinn áhuga á því, nokkurn áhuga eða ekki áhuga? Ekki er hægt að segja annað en að starfsfólkið á hinum íslenska vinnumarkaði sé opið fyrir því að afla sér nýrrar reynslu og þekking- ar. Innan við fimmti hver starfs- kraftur annaðhvort veit ekki (5%) hvort hann hafi áhuga eða beinlínis yfirlýsir að hann hafi það ekki (14,3%). TAFLA 1 Veitekki Ekki áhuga Nokkurn áhuga Mikinn áhuga 5% 14,3% 30,5% 44,3% TAFLA 2 Til að geta breytt um starf 33% Til að geta hækkað í launum54% Til að geta sinnt starfi betur 7% Til að líða betur í starfi 40% Vilhjálmur Einarsson „Ekki er hægt að segja annað en að starfsfólk- ið á hinum íslenska vinnumarkaði sé opið fyrir því að afla sér nýrrar reynslu og þekkingar.“ Hversu mikil hæfing er í gangi? Þegar könnunin fór fram kváðust 16,5%, eða einn af hveijum sex, vera þátttakendur í „fræðslu, þjálf- un eða námskeiði". Þeir sem hins vegar höfðu notið einhverrar fræðslu síðastliðna 12 mánuði voru 37% eða rúmlega einn af hverjum þremur. Er „hamingjusamasta þjóð í heimi“ ánægð í vinnunni? Fólk var spurt að því hversu ánægt það væri með starf sitt. „Ertu mjög ánægð(ur), frekar ánægð(ur), frekar óánægð(ur) eða mjög óánægð(ur)“? Svörin sem komu ættu að gleðja íslenska at- vinnuveitendur: Af hverju stafar áhuginn? Næst voru þeir sem mikinn eða nokkurn áhuga höfðu spurðir að ástæðum fyrir því. Þeim voru gefn- ir fjórir valkostir og jafnframt að tíunda eitthvað annað. Niðurstaðan sést hér á eftir: TAFLA 3 Mjög óánægður 0,8% Frekar óánægður 3,8% Frekar ánægður 52,5% Mjög ánægður 43% Þess ber að gæta að fólk mátti nefna fleiri en eitt atriði. Það breyt- ir ekki því að um það bil níu af hveijum tíu höfðu löngun til að sinna starfí sínu betur og álíka margir vildu leggja á sig endur- menntun/hæfíngu til að líða betur í starfínu. Eins og fram kemur á línuritinu eru meira en nítján af hveijum tutt- ugu (95,5%!) aðilum sem starfandi eru í atvinnulífinu annaðhvort frek- ar ánægðir eða harðánægðir með starf sitt eftir niðurstöðum könnun- arinnar að dæma. Athyglisverð svör Eins og fram kom hér að framan var könnunin allvíðtæk og snerti skoðanir fólks um sjálft sig einkan- lega með hliðsjón af því á hvaða sviðum menn helst vildu njóta leið- sagnar til að bæta sinn hag í víð- ustu merkingu orðanna. Segja má að könnunin sé liður í þeirri við- leitni minni, sem fram hefur komið í nokkrum Morgunblaðsgreinum undangengin misseri, að benda á þörfina á bættrí ogjafnarí aðstöðu til fullorðinsmenntunar. Þar hefi ég oft bent á að framtíðarverkefni héraðsskólanna væri vel vaiið á þessu sviði. Eins og lesa má í svörin sem gerð er grein fyrir hér að framan er ljóst, að betur má ef duga skal hvað varðar fullorðinsfræðsluna: Aðeins liðlega þriðjungur vinnandi fólks tók þátt í fræðslu eða nám- skeiðum allt síðastliðið ár meðan fjórir af hveijum fimm segja sig hafa nokkurn eða mikinn áhuga á slíku. Mesta auðlindin Nýlega fór fram í Noregi könnun á viðhorfi fólks til lífsins og tilver- unnar. Niðurstöður könnunarinnar komu ýmsum þægilega á óvart: Margt benti til þess að Norðmenn hefðu tekið ríkidæmi sitt til endur- mats og að meirihluti fólks hefði annað gildismat en stjórnmálamenn og forsprakkar vinnumarkaðarins gerðu sér grein fyrir, þegar aðeins var karpað um launin. Könnunin sýndi að almenningi í Noregi er annt um umhverfi sitt og heilsu, bæði andlega og líkamlega. Góður efnahagur er forsenda góðs lífs en Iífsgæðin batna aðeins að vissu marki í hlutfalli við aukna kaup- getu. Eins og flestir vita breyttist hag- ur landsins mjög við tilkomu olíu- teknanna fyrir um það bil þrjátíu árum. Kaupmáttur launa jókst stór- lega og „framfarir" urðu stórstígar. En ýmsir fylgikvillar skutu upp kollinum. Margir sýktust af „vel- megunarsjúkdómum“. Eiturlyfja- neysla jókst stórlega, sjálfsvígum fjölgaði og ýmsir fóru að spyija: Hvar endar þetta ef svo fer sem horfir? íslenska könnunin, sem grein þessi byggist á, sýnir að mínu mati svipaðar niðurstöður og hin norska. Skyldu svörin við spurningunni um ástæður fyrir áhuga á endurmennt- un (tafla 2) ekki koma ýmsum á óvart? Er ekki full ástæða fyrir for- svarsmenn vinnumarkaðarins að gefa þessu gætur! Svo virðist sem aðrir þættir en kaupið eitt skipti meira máli en ætla mætti þegar hlustað eða horft er á „vígaferli" stríðsmannanna í kjarabaráttunni. Ég læt lesendum eftir að túlka töflu 2. Eins og getið er um í upp- hafi greinarinnar er könnunin nýaf- staðin. Hér í blaðinu munu birtast fleiri greinar eftir því sem úrvinnsla fer fram. Eitt virðist mér koma skýrt fram: Starfandi fólk á íslandi er upp til hópa ánægt í starfi en það hefur mikinn hug á að bæta sig, bæði sína eigin líðan, hæfni og aðstöðu en ekki síður að geta skilað betra verki. Slíkt fólk er mesta auðlind hverrar þjóðar. Slíka orku þarf að virkja. Höfimdur er skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum. Undanþágnr til löndunar einkennileg ráðstöfun - segir Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri LÍÚ „MÉR ÞYKIR afar einkenniieg sú ráðstöfun sjávarútvegsráðherra að heimiia hér landanir erlendra skipa, sem veiða rækju á Do- hrnbanka. Samkvæmt nýsamþykktum lögum var ætlunin að þrengja stöðu þeirra skipa til löndunar hér, sem veiða úr sameiginlegum fiskistofnum. Rækjan á Dohrnbanka er sameiginlegur stofn, sem við höfum árum saman verið að reyna að fá Grænlendinga til að tak- marka sókn í en ekkert hefur gengið. Nú virðumst við einfaldlega komin á fjóra fætur vegna skammtíma viðskiptahagsmuna, en hugs- um ekki um framtíðina og uppbyggingu rækjustofnins," segir Krist- ján Ragnarsson, framkvæmdasfjóri LIU. Alþingi samþykkti nýlega frum- sérstaka undanþágu frá lögunum. varp til laga, þar sem erlendum fískiskipum er heimilað að leita hér almennrar þjónustu og landa afla sínum í höfnum landsins. Þó er í lögunum ákvæðl þess efnis, að stundi viðkomandi skip veiðar úr sameiginlegum fiskistofnum, þurfi Sjávarútvegsráðherra heimilaði með reglugerð fyrir skömmu er- lendum fiskiskipum að leita hafnar hér og landa afla sínum þrátt fyr- ir að þau stunduðu veiðar úr sam- eiginlegum fískistofnum. Þarna er um að ræða rækjuna á Do- hrnbanka, djúpkarfa og kolmunna. Kristján Ragnarsson segir, að íslendingar hefðu árum saman reynt að fá Grænlendinga til sam- vinnu hvað varði nýtingu rækju- stofnsins á Dohrnbanka en ekkert hafi gengið. Því hafi það ákvæði í nýju lögunum að banna landanir skipa, sem veiða sameiginlega stofna, verið ætlað sem þrýstingur á Grænlendinga til að ganga til samvinnu um nýtingu rækjunnar. Þessar undanþágur komi í veg fyr- ir slíkan þrýsting og dragi verulega úr því langtíma markmiði, sem samkomulag um skynsamlega nýt- ingu rækjustofnsins er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.