Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992 Morgunblaðið/Rúnar Þór Útför Jóns Karlssonar gerð frá Akureyrarkirkju Útför Jóns Karlssonar var gerð frá Akureyrarkirkju í gær. Séra Hannes Öm Blandon, sóknarprestur í Laugalands- prestakalli í Eyjafjarðarsveit jarðsetti. Viðstaddir útförina voru fulltrúar alþjóða Rauðakrossins í Genf. Útfararræða og bænir voru að hluta flutt á ensku, en eiginkona Jóns, foreldrar hennar og systir eru enskumælandi. Hluti Kórs Langholtskirkju söng við athöfnina undir stjórn Jóns Stefánssonar, en Jón söng með kórnum meðan hann var búsettur hér á landi. Fulltrúar Rauða krossins stóðu heiðursvörð við kistuna og fulltrúi frá alþjóða Rauða krossinum í Genf flutti ávarp í erfidrykkju að lokinni athöfn. Kistuna báru bræður Jóns, Gunnar, Hólmgeir, Hans, Randver Ingvar, og Stefán Öm Stefánsson frændi Jóns. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 5. MAI YFIRLIT: Á vestanverðu Grænlandshafi, vestur af Vestfjörðum, er 979 mb lægð sem þokast heldur suður, en 980 mb lægð skammt norður af Melrakk8sléttu hreyfist norðaustur. SPÁ: Suðvestan stinningskaldi en sfðan hægari vestan eða norðvestan. Þurrt norðaustanlands í fyrstu en annars él, síst suðaustanlands. Hiti á bilinu 0-5 stig. Kólnandi norðanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Vestan strekkingur við suðurströndina, norð- vestlæg átt norðaustanlands en hægviðri norðvestanlands. Smáskúrir vestanlands og él norðaustantil en þurrt og bjart veður suðaustanlands og einnig í innsveitum norðvestanlands. Hiti 0-6 stig, hlýjast suðautan- lands. HORFUR Á FIMMTUDAG: Hæg norðvestlæg og síðar breytileg átt. Él við norðurströndina í fyrstu en annars þurrt og nokkuð bjart veður. Hiti 0-4 stig. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. TÁKN: y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður • V Skúrir er 2 vindstig. * Él A V Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka A / / / ~~— Þokumóða Hálfskýjað * / * 5 5 Súld r * r * Slydda oo Mistur Sky|að / * / * * * 4 Skafrenningur ^4/^ Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 10 skýjað Reykjavík 2 slydduél Bergen 7 súld Helsinki 13 skýjað Kaupmannahöfn 12 skýjað Narssarssuaq +7 heiðskírt Nuuk +9 skýjað Ósló 14 rigning Stokkhólmur 17 léttskýjað Aigarve 21 heiðskírt Amsterdam vantar Barcelona 20 mlstur Berlín 13 léttskýjaö Chicago vantar Feneyjar 24 léttskýjað Frankfurt 15 léttskýjað Glasgow 13 skýjað Hamborg 12 léttskýjað London 16 léttskýjað Los Angeles 16 skýjað Lúxemborg 14 skýjað Madríd 19 hátfskýjað Malaga 21 skýjað Mallorca 20 skýjað Montreal 4 léttskýjað New York vantar Orlando 20 mistur París 15 léttskýjað Madeira 17 skýjað Róm vantar Vín 14 alskýjað Washington 12 léttskýjað Winnipeg +2 léttskýjað Breytingar á ríkisstjórn til umræðu: Get vel hugsað mér að snúa mér að öðrum verkefnum -segir Jón Baldvin Hannibalsson JÓN Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra segist vera jákvæð- ur gagnvart þeirri hugmynd að gerð verði uppstokkun innan rík- isstjórnarinnar í kjölfar af- greiðslu EES-málsins. „Þegar þessu mikla máli er lokið og það hefur verið endanlega til lykta leitt get ég vel hugsað mér að snúa mér að öðrum verkefnum," segir hann. Aðspurður segist Jón Baldvin eiga við að þetta gæti átt sér stað eftir að EES- samningur- inn hefur verið til lykta leiddur á Alþingi. Davíð Oddsson forsæt- isráðherra segir að ekki hafi átt sér stað umræður um breytingar af hálfu sjálfstæðismanna en ef Alþýðuflokkurinn vilji gera breytingar muni því verða vel tekið. Jón Baldvin segir þetta mál varða stjórnarflokkana báða. „Ég vona að menn ræði hver vilji utanríkisráðherra og Alþýðuflokks- manna er í málinu þegar utanríkis- ráðherra kemur heim. Það hafa eng- ar formlegar umræður átt sér stað á milli flokkanna um þetta en ef Alþýðuflokkurinn hefur áhuga fyrir slíkum breytingum munum við vera liprir í þeim efnum," sagði Davíð. „Við höfum ekki rætt um neinar breytingar hjá okkur, hvorki inn- byrðis eða útávið en við höfum aldr- ei útilokað að slíkar breytingar gætu átt sér stað á kjörímabilinu. Þetta virðist aðallega vera hjá Alþýðu- flokknum,“ sagði Davíð. Forsætisráðherra sagði of fljótt að segja til um hvort breytingar yrðu gerðar strax í sumar. „En mið- að við ummæli utanríkisráðherra og viðskiptaráðherra sýnist það geta gerst,“ segir Davíð. Athugasemd í lok dagskrárkynningar á heimildarmyndinni „í köldum sjó“ sem að sýnd var í Sjónvarp- inu 1. maí sl. segir „Dr. Jón Axel Axelsson samdi handritið". Þetta er meinleg villa. Hið sanna er að handrit og texti myndar- innar eru árangur náins sam- starfs hóps áhugamanna um kuldavarnir og Sigmars B. Haukssonar, sem var frumkvöð- ull að gerð myndarinnar. Sam- starfshópinn skipuðu einstakl- ingar frá Slysavarnaskóla sjó- manna, Landhelgisgæslu, Borg- arspítala og rannsóknastofu HI. í lífeðlisfræði. Þeir sem auk undirritaðs lögðu mesta vinnu í gerð hand- rits og texta eru læknarnir Alma D. Möller og Amaldur Valgarðs- son og Sigurður Steinar Ketils- son skipherra. — Jóhann Axelsson lífeðlisfræðingur. Ritgerðasafn Þórarins Þórarinssonar fyrrverandi ritstjóra og alþingismanns VINIR og samstarfsmenn Þórar- ins Þórarinssonar, fyrrv. alþingis- manns og ritsljóra Tímans, hafa ákveðið að gangast fyrir útgáfu ritgerða- og greinasafns eftir hann og fyrirhugað að bókin komi út í haust. Efnisval er unnið í sam- ráði við Þórarin og undirbúningur vel á veg kominn. Ritið verður um 240 bls. að stærð og vandað að frágangi í hvívetna. Til þess að tryggja ijárhagsaf- komu útgáfunnar er sú leið valin að safna áskrifendum að bókinni. Áætl- að áskriftarverð er 2.500 til 2.900 kr. Hefur þegar verið hafíst handa um áskriftasöfnun. Nöfn áskrifenda verða birt sem heillaóskaskrá í bók- inni. Því er æskilegt að þeir, sem til verður leitað með sérstöku bréfí og óska að heiðra Þórarin á þennan hátt, staðfesti áskrift sína tímanlega. Þess skal getið að áskriftaloforð ber að senda skrifstofu Framsóknar- flokksins, Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík. Þórarinn Þórarinsson Rannsóknir á djúpslóð og búrfiski: Mikilvægt verkefni — segir sj ávarútvegsráðherra ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að fyrirhugaðar rannsóknir Hafrannsóknarstofnunar á djúpslóðinni kringum landið og þeim tegundum sem þar er að finna, þar á meðal búrfisk, séu mikilvægt verkefni.„Sjávarútvegsráðuneytið hefur lagt áherslu á að unnin væri rannsóknaráætlun um þetta verkefni og við erum nú með þá áætlun til skoðunar," segir Þorsteinn. Fram kom í frétt í Morgunblaðinu á sunnudag að aðstoðarforstjóri Hafrannsóknarstofnunar telur rannsóknina kosta um 30 milljónir króna og að það fé hafi stofnunin ekki tiltækt fyrr en á næsta ári. Aðspurður um hvort ráðuneytið muni beita sér fyrir að fé verði afl- að svo hægt sé að framkvæma þessa rannsókn fyrr segir Þorsteinn að ráðuneytið hafi ekki sérstaka sjóði til að láta af hendi í þetta verkefni. „Fé til þessa verkefnis verður að koma af ráðstöfunarfé Hafrannsóknarstofnunar og þó ég telji að þessi rannsókn sé eitt af brýnustu málum stofnunarinnar er það hún sjálf sem raðar verkefnum sínum í forgangsröð," segir Þor- steinn Pálsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.