Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 7

Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 7 Listasafn íslands: Sýning á mósaíkverkum frá fyrstu öldum okkar tíma Jórdaníudrottning opnar sýninguna JÓRDANÍUDROTTNING opn- ar 30. maí nk. sýningu á mósa- íkverkum, skartgripum og kvenbúningum í Listasafni ís- lands. Mósaikgólfin koma frá Þjóðminjasafni Jórdaníu en skartgripirnir og búningarnir frá einkasafni frú Widad Kaw- ar í Amman. Mósaíkin er komin til landsins og voru kassarnir með verkunum, sem vega um 6 tonn, opnaðir í Listasafni ís- lands í gær. Að sögn Beru Nordal, forstöðu- manns Listasafns íslands, er sýn- ingin mikill listviðburður. „Þetta er í fyrsta skipti sem við fáum hingað listaverk frá þessu forna menningarsvæði og það er ómetanlegt fyrir okkur sem þekkj- um þetta land aðeins vegna þeirra Morgunblaðið/Sverrir Bera Nordal forstöðumaður Listasafns íslands, Þorgeir Ólafsson listfræðingur og Viktor Smári Sæmundsson skoða eina mósaíkmyndina. átaka sem þar hafa verið undan- farna áratugi," segir Bera. Jórdanía og Palestína eru hluti forns menningarsvæðis sem tengdist um langan tíma veldi Rómveija í Miðausturlöndum og síðar Býsanska ríkinu. Þetta hafði mikil áhrif á menningararfleifð þessa svæðis, einkum í norður- hluta núverandi Jórdaníu. í suður- hlutanum er hins vegar samfélag hirðingja og bænda sem þróuðu með sér litríka skreytilist í búning- um, skarti og teppum. Bera segir að sýningin gefi góða innsýn í báðar þessar menn- ingarhefðir. „Mósaíkmyndirnar voru afsprengi borgarmenningar- innar. Myndirnar koma frá norð- ur- og vesturhluta Jórdaníu en þær fundust við fornleifauppgröft í byggingum frá rómverskum- og býsönskum tíma og eru taldar vera frá 6. til 8. öld eftir krist.“ Hún segir að mósaíksýningin samanstandi af tveimur stórum mósaíkgólfum og hlutum úr öðr- um. Gólfin séu bæði úr kirkjuleg- um byggingum, almenningsböð- um og frá einkaheimilum yfirstétt- arinnar. Búningarnir og skartið séu hins vegar arfleifð hirðingja- samfélagsins. „Sýningin er ekki síður athygl- isverð þar sem þetta er í fyrsta sinn sem Jórdanir senda svo stóra mósaíksýningu út fyrir landstein- ana,“ segir Bera. 1992 ■ ■ 1992 ESCORT/ORION Nýr Ford á aðeins 899.000 Þú veröur að koma og prófa nýju Ford Escort og Ford Orion bílana hjá Globus, því annars sérðu þessa kraftmíklu pýsku gæðagripi fljúga framhjá þér, með einhvern annan undir stýri. Pctta eru ótrúlega kraftmíklír bílar og aksturseiginleikarnir eru slíkir að þú hefur tæþast kynnst öðru eins. Nýju Ford Escort og Ford Orion eru fjölskyldubilar nútimans, rúmgóðir, vandaðir, öflugir og sparneytnir. Og þú færð þá á aðeins frá 899 þúsund krónum með ryðvörn og skráningu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.