Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
17
ardeyfu vegna hávaða á vinnu-
stöðum, en hún virðist algeng. Á
árabilinu 1981-1991 greindust
um 3.570 einstaklingar sem orðið
höfðu fyrir slíkri heyrnarskemmd.
Skráning vinnuslysa og atvinnu-
sjúkdóma er eitt af því sem bæta
þarf hér á landi.
Vinnuslys og atvinnusjúkdómar
leiða til mannlegrar þjáningar sem
allir eru sammála um að forðast
beri með tiltækum ráðum. Hitt er
einnig ljóst að kostnaður samfé-
lagsins vegna þessa er mikill og
forvarnir því þjóðhagslega hag-
kvæmar ef árangur næst. Sam-
kvæmt úttekt á vegum Alþjóða-
vinnumálaskrifstofunnar er þessi
kostnaður víða á Vesturlöndum
talinn á bilinu 1-3,25% af vergri
landsframleiðslu („The cost of
Occupational Accidents and disea-
ses“, ILO, Genf 1984). Hér á landi
jafngildir þetta 3-11 milljörðum á
ári m.v. landsframleiðslu 1991.
Til þess að auka vinnuvernd á
íslandi þarf fjölmargt að gera.
Mikilvægast er, að mati þess sem
þetta ritar, að innra starf að þess-
um málum aukist á vinnustöðun-
um sjálfum. Til þess að svo megi
verða þurfa stjórnendur fyrirtækja
og stofnana m.a. að taka þessi
mál fastari tökum en algengast
hefur verið. Þeir þurfa að móta
ákveðna stefnu þar sem öryggi og
vellíðan starfsmanna er sett í fyr-
irrúm og fylgja henni fast eftir
með markvissu starfi í samvinnu
við starfsmenn og með þátttöku
þeirra. Á vinnuverndarári verður
lögð áhersla á slíkt innra starf í
fyrirtækjum. Stjórnendur fyrir-
tækja og stofnana yfir tiltekinni
stærð munu í næsta mánuði fá
hvatningarbréf ásamt leiðbeining-
um um það hvernig unnt er að
bera sig að til að ná árangri. Nán-
ar verður einnig fjallað um leiðir
til að ná árangri innan fyrirtækj-
anna sjálfra í sérstakri grein hér
í blaðinu síðar.
Höfundur cr forstjóri
Vinnueftirlits ríkisins.
Laufey Steingrímsdóttir
mæli sé og flokkast því fremur til
ábætisrétta en undirstöðufæðu.
Engjaþykknið er til dæmis svo fitu-
ríkt að það líkist meira ijómabúðing
en hollum morgunverði. í venju-
legri mjólk eða súrmjólk eru um 4
grömm af fitu í hveijum desilítra
eða 100 grömmum. í léttmjólk eru
aðeins 1,5 grömm af fitu en í sama
magni af engjaþykkni með morgun-
korni eru hvorki meira né minna
en 9,2 grömm af fitu.
Með fjölbreyttu vöruúrvali verður
æ brýnna að neytendur fylgist með
innihaldi matvara og hafi næga
þekkingu til að geta valið af skyn-
semi. Þeir sem gefa hollustunni ein-
hvern gaum velja fremur fituminni
mjólkurvörur dagsdaglega en nota
ijómann tii hátíðabrigða.
Höfundur er skrifstofustjóri
Manncldisráðs.
Umhverfisráðherra:
Osoneyðandi efni bönn-
uð frá 1. janúar
UNNIÐ er að undirbúningi að setningu reglugerðar í umhverfisráðu-
neytinu sem mun leggja bann við innflutningi, sölu og notkun klórflúor-
kolefna og halona á íslandi og er gert ráð fyrir að notkun á öllum
ósoneyðandi efnum sem eru á bannlista verði hætt fyrir 1. janúar
1995. Eiður Guðnason umhverfisráðherra upplýsti þetta í svari við
fyrirspurn frá Hjörleifi Guttormssyni alþingismanni á Alþingi á
fimmtudag sem var um hvort ríkisstjórnin væri reiðubúin að beita
sér fyrir að hætt verði við notkun ósoneyðandi efna í síðasta lagi 1995.
í ræðu umhverfisráðherra kom
fram að stefnt væri að því að reglu-
gerðin verði gefin út síðar á þessu
ári. Eiður sagði að þetta væri í
samræmi við aðgerðir um stöðvun
á notkun ósoneyðandi efna í Svíþjóð
og Noregi. Ákveðnir fyrirvarar yrðu
þó settir varðandi notkun á afmörk-
uðum sviðum eins og til dæmis í
slökkvikerfum farþegaflugvéla.
1995
Ráðherra sagði einnig að til stæði
að auka ósonrannsóknir á norður-
hveli jarðar. „íslendingar munu
fylgja áætlunum sem þær þjóðir
fylgja sem lengst ganga í þessum
efnum,“ sagði Eiður.
Hjörleifur fagnaði yfirlýsingu
umhverfisráðherra sem hann sagð-
ist álíta að væri skuldbindandi um
að Island myndi setja reglur um
að allri notkun ósoneyðandi efna,
sem eru á bannlista, verði hætt
fyrir 1995.
KÚPLINGS -LEGUR
-DISKAR, -PRESSUR,
SVINGHJÓLSLEGUR
Allir sem Tópasi geta valdið ættu að taka þátt í
Tópas hjólaleiknum. Nældu þér í þátttökublað á
MHI JMTTXf
næsta sölustað Tópas og þú átt möguleika á að
hljóta glæsilegt DBS reiðhjól í sumarglaðning.
Gangi þér vel og gleðilegt hjólasumar.
Glæsilegir vinningar:
12 DBS reiðhjól.
50 Britax hjólreiðahjálmar.
100 Tópasbolir.
i
Skilafrestur er til 23. maí 1992.