Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.05.1992, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 45 Að lokum vil ég senda eiginkonu hans og fjölskyldu mínar innilegustu samúðarkveðjur. Lúðvík H. Gröndal. Nú ríkir mikil sorg meðal hjúkr- unarfræðinga því á morgun, 4. maí, er kvaddur hinstu kveðju Jón Karlsson hjúkrunarfræðingur sem féll vegna stríðsátaka við hjúkrun- arstörf í Afganistan 22. apríl síðast- liðinn. Þvílíkur atburður — þvílík sorg. Hjúkrunarstörf eru margvísleg og sumum þeirra fylgir mikil áhætta. Margir hjúkrunarfræðingar hafa fengið hættulega og langvinna sjúkdóma við hjúkrunarstörf, orðið fyrir meiðslum og nokkrir hafa stað- ið aðeins sekúndubrot frá dauða- stundu. Slík áhætta fylgir störfum hjúkrunarfræðinga. En Jón Karls- son er fyrsti íslenski hjúkrunarfræð- ingurinn sem lætur lífið við hjúkrun- arstörf. Þegar á árinu 1985 valdi Jón Karlsson sér starfsvettvang meðal helsærðra og þjáðra. Hann gerði sér grein fyrir áhættunni sem í því fólst. Það hindraði hins vegar ekki áform hans um að taka sig upp aftur og aftur til að takast á við áhættusöm verkefni. Það var hans heimur, þar fann hann þörfina og fékk þá um- bun sem hann leitaði eftir — að hjúkra og líkna þeim sem hann taldi hafa mesta þörf fyrir aðstoð. í gegn- um þau störf náði Jón að afla sér sértækrar þekkingar og hæfni og ávann sér verðugt traust og virðingu samstarfsfólks. Það voru mannkær- leikurinn og mannúðarhugsjónin sem knúðu hann áfram — sú hug- sjón að hlúa að mönnum og vernda alla jafnt án tillits til kynþáttar, trúar, stjórnmálaskoðana, stöðu eða stéttar. Jón Karlsson helgaði íslandi einn- ig krafta sína. Að loknu hjúkr- unarnámi frá Hjúkrunarskóla ís- lands árið 1981 hóf hann störf á skurðiækningadeild Borgarspítal- ans og starfaði þar samfellt til árs- ins 1985. Frá árinu 1986 starfaði hann á gjörgæsludeild Borgarspít- alans milli þess sem hann vann er- lendis við hjúkrunarstörf á vegum Rauða kross íslands. Jón Karlsson lét málefni hjúkrun- ar og hjúkrunarfræðinga mjög til I sín taka. Þegar að loknu hjúkrun- arnámi var hann valinn til forystu- starfa innan Hjúkrunarfélags ísr lands. Hann var formaður Reykja- víkurdeildar félajgsins á árunum 1981 til 1985. A þeim árum átti hann drjúgan þátt í að byggja upp trúnaðarmannakerfi innan félagsins og stuðlaði á margvíslegan hátt að framgangi þess og vexti. Síðar voru honum falin ýmis ábyrgðarstörf inn- an félagsins. Félagar í Hjúkrunarfélagi íslands þakka Jóni Karlssyni fyrir störf hans við hjúkrun og fyrir störf hans í þágu Hjúkrunarfélags Islands. Við sendum eiginkonu hans, foreldrum, öðrum aðstandendum, vinum og ( samstarfsfólki innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum þeim guðs bless- unar. Blessuð sé minning Jóns Karls- sonar hjúkrunarfræðings. Vilborg Ingólfsdóttir I formaður Hjúkrunarfélags Islands. ERFIDRYKKJUR Perlan á Öskjuhlíð i- e r l a n sími 620200 + Ástkær sambýliskona mín, ARNHEIÐUR HÖSKULDSDÓTTIR, Hófgerði 17, Kópavogi, lést í Landspítalanum 3. maí. Þórarinn Samúelsson. Eiginmaður minn, MARKÚS JÓNSSON, Bláskógum 1, Hveragerði, verður jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju fimmtudaginn 7. maí kl. 14.00. Sigurbjörg Þorleifsdóttir. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT DUNGAL, Miklubraut 20, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. maí kl. 15.00. Sigrún Dungal, Sveinn Björnsson, Gunnar B. Dungal, Þórdís A. Sigurðardóttir, Páll Halldór Dungal, Elín Kjartansdóttir og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, PÁLL BERGSSON kennari frá Akureyri, Fossheiði 54, Selfossi, lést föstudaginn 1. maí. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 8. maí kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hans, láti Krabbameinsfélagið njóta þess. Helga Guðnadóttir. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINUNN JÓNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis f Helgamagrastræti 47, Akureyri, sem lést 23. april, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 6. maí kl. 13.30. Jóhann Pétur Sigurbjörnsson, Erla Sigurðardóttir, Þórunn Sigurbjörnsdóttir, Magnús Björnsson, Jón Haukur Sigurbjörnsson, Halldóra Jónsdóttir, María Sigríður Sigurbjörnsdóttir, Guðmundur Guðlaugsson og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, BENEDIKT EYÞÓRSSON húsgagnasmíðameistari, Njörvasundi 40, sem lést í Borgarspítalanum 24. apríl sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 6. maí kl. 15.00. Astrid Eyþórsson, BjörgJ. Benediktsdóttir, Guðmundur Júlíusson, Jan E. Benediktsson, Jóhanna Bjarnadóttir, Frank N. Benediktsson, Marie Hovdenak, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginkona mín, móðirokkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR, Hlíðarstræti 26, Bolungarvík, lést 22. apríl að heimili sínu. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhannes Þórarinsson, Gunnjóna Jóhannesdóttir, Magnús Jóhannesson, GunnarJóhannesson, Guðmundur Jóhannesson, Kristjana Jóhannesdóttir, Óli Jóhannesson, Þorbergur Jóhannesson, Þórarinn Jóhannesson, Helgi Jóhannesson, Hildur Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ragnheiður Benediktsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Sædis Ingvarsdóttir, Guðný Kjartansdóttir, María Halldórsdóttir, Einar Friðbergsson, + GUÐNÝ RÓSA TÓMASDÓTTIR, Eyjum í Kjós, andaðist 9. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug. Tómas Steindórsson, Sigurbirna Guðjónsdóttir, Guðrún Tómasdóttir, Magnús Sæmundsson. + Bróðir okkar, STEINAR SIGURÐSSON, Götu, Hvolhreppi, andaðist á heimili sínu 26. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Þuríður Magnúsdóttir, Guðbjörg Magnea Magnúsdóttir. + Móðir okkar, BRYNHILDUR PÁLSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Grenimel 5, lést 20. apríl. Jarðarförin hefur farið fram. Páll Leifur Gíslason, Jónína Helga Gísladóttir, Sigrún Gerða Gísladóttir og fjölskyldur. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA JÓNASDÓTTIR, Seljahlíð, Hjallaseli 55, andaðist 25. apríl. Jarðarförin hefur far- ið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmunda Halldórsdóttir, Jóhann Halldórsson, Elín Halldórsdóttir, Pétur Ingvason, barnabörn og barnabarnabörn. + Sendum öllum alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar sonar míns, þróður okkar og mágs, KRISTJÁNS JÓNSSONAR stýrimanns, Erluhrauni 11, Hafnarfirði. Petrína Hjörleifsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Hjörleifur Jónsson, Erna Helgadóttir. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÁGÚSTS ÞÓRS GUÐJÓNSSONAR. Jón Ágústsson, Ágúst Ágústsson, Þorlákur Ari Ágústsson, Gróa Eyjólfsdóttir, Guðjón Róbert Ágústsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Þuriður Jana Ágústsdóttir, Arnlaugur Samúelsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Verslanir, vöruafgreiðsla og skrifstofur Pennans eru lokaðar frá kl. 14.00 í dag, þriðjudaginn 5. maí, vegna jarðarfarar frú MARGRÉTAR DUNG- AL. Penninn Hallarmúla 2, Reykjavík. LEGSTEINAR t ©r««il s/ff HELLUHRAUNI 14-220 HAFNARFIRÐI SÍMI652707
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.