Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 13

Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 13 LAYLA - LAYLA - LAYLA Layla eru ítalskar snyrtivörur í TOPP GÆÐAFLOKKl Á GÓÐU VERÐI. VARALITUR: kr. 550,- NAGLALAKK: kr. 430,- MASKARI: KR. 660,- MAKE: KR. 995,- VÖRURNAR ERU OFNÆMISPRÓFAÐAR. Laugaveg 51, S. 12128. Skagfirska söngsveitin __________Tónlist______________ Jón Ásgeirsson Skagfirska söngsveitin, undir stjórn Björgvins Þ. Valdimarssonar, hélt vortónleika 1. maí sl. Björgvin hefur verið framsækinn og í vali viðfangsefna hefur hann -stefnt söngsveitinni til átaka við stór verk- efni og nú síðast kallað til sam- starfs við sig hljómsveit. Tónleik- arnir hófust á tveimur „a capella" kórverkum, það fyrra var Kyrie úr „Missa secunda", eftir Hans Leo Hassler en það seinna var kyrie, eftir Mozart og var þess ekki getið í efnisskrá úr hvaða messu það Kyrie er. Kórinn söng þessi verk ágætlega, en í heild var söngur hans þó nokkuð harður, sem gæti verið vegna þess að í þessum verk- um er gerð önnur krafa um tón- myndun en í venjulegum alþýðleg- um kórlögum. Þessi „hljómharka" var nokkuð áberandi í Gloría eftir Vivaldi en þar sungu Svanhildur Sveinbjörns- dóttir og Ragnheiður Fjelsted tví- söng og Svanhildur síðan ein það fræga Domine Deus. Þær stöllur stóðu sig vel, svo og kórinn og auðheyrt að stjórnandinn er dugleg- ur kórstjóri. Ýmislegt hefði mátt fínvinna betur, bæði hjá kórnum og í hijómsveitinni, en þarna er um frumraun að ræða og rétt að liafa það í huga, að „enginn verður óbar- inn biskup“. Seinni hluti tónleikanna var af léttara taginu og minntu tvö fyrstu lögin undirritaðan á fjörutíu ára uppfærslu kóra, en þá voru verkefn- in Úr útsæ rísa Islandsfjöll eftir Pál ísólfsson og ísland eftir Sigfús Einarsson. í þessum verkum þarf kórinn takast á við hljómstyrk, sem aðeins hljómar vel hjá þjálfuðum sögvurum og því var flutningurinn stundum í grófara lagi. Heim til þín heitir verk eftir Björgvin Þ. Valdimarsson við kvæði eftir Tómas Guðmundsson. Tónmál verksins er í raun þrískipt í stíl og verkið auk þess helst til lauslegt í formi. Björg- vin hefur fengist nokkuð við tón- smíðar og þá aðallega samið kórlög en er hér í fyrsta sinn að fást við form af stærri gerðinni. Rauðasta rósin og ástardúett úr Sigaunabaróninum eru elskuleg dægurlög, sem voru flutt af þokka en í þessum lögum sungu Fríður Sigurðardótti, Guðmundur Sigurðs- son, Halla S. Jónsdóttir og Einar Gunnarsson einsöng. Síðasta verk- ið, og það sem sungið var af mestri reisn, var Aðalsmannakórinn úr Tannhauser eftir Wagner. Hljóm- sveitin var nokkuð fáliðuð en kórinn söng í þessu skemmtilega verki margt ágætlega vel. Það sem er athyglisvert við þessa tónleika er stórhugur stjórnandans og er það rétt stefna hjá honum, að sækja á í vali viðfangsefna og stefna kórnum til átaka við erfið verkefni. Skagfirska söngsveitin hefur á að skipa góðu söngfólki, sem varðveitt hefur sönggleðina og þó enn megi fíngera eitt og annað og sníða af ýmsa hörkulega agnúa, einkum þegar sterkt er sungið, verður ekki annað sagt en að söng- sveitin sé á rétt'ri leið í þeirra ætlan að verða góður kór, undir stjórn Björgvins Þ. Valdimarssonar. Glæsi- \egur Ro- dolfo Tónlist Jón Ásgeirsson Ný kynslóð ungra söngvara er að hasla sér völl á þeim víghólma sem leiksviðið er og á sunnudags- kvöldið söng Ólafur Árni Bjarnason Rodolfo í Borgarleikhúsinu. Ólafur er efnilegur söngvari og á ekki langt í það að taka sér sæti meðal þeirra bestu. Rödd hans er glæsileg, tæknilega er hann á góðri leið og leikur hans er innilegur. Allt þetta kom hvað best fram í þriðja þætti, sem var frábærlega vel sunginn og leikinn hjá Ólafi. Það er í engu of- sagt að við íslendingar höfum þeg- ar „eignast" í Ólafi efni í nýjan stórsöngvara, þó hann hafí aðeins rétt hafíð starf sitt sem óperusöngv- ari. Sýningin var ekki aðeins mikill sigur fyrir Ólaf Árna, heldur og aðra þátttakendur og miðað við frumsýninguna hefur Ingibjörg Guðjónsdóttir tekið miklum fram- förum. Sama má segja um Jóhönnu Linnet og er Ijóst að fái þessar ungu söngkonur tækifæri til að glíma við fleiri verkefni má vænta mikils af þeim í framUðinni. Þetta mun vera síðasta sýningin, sem Keith Reed syngur í þessari upp- færslu af La Bohéme og þarf engu við að bæta um frammistöðu hans. Sem var frá upphafi frábær. Annað, sem rétt er að komi fram, er að hljómsveitin var mjög góð og lék af ólíkt meiri ástríðu en á frum- sýningunni. Það sama gildir um hinn unga stjórnanda, Guðmund Óla Gunnarsson, og aðra þátttak- endur í þessu ævintýri Óperusmiðj- unnar, að æfingin skapar meistar- ann og það er í sannleika sagt þessi gróandi, sem heillar mest í starf- semi Óperusmiðjunnar. Kjörnir tíl hverskonar vöruflutninga og fólksflutninga □ Án vsk □ Bensín- eöa Dieselhreyfill □ Aflstýri/Framhjóladrif □ 5 gíra handskipting/sjálfskipting □ Burðargeta 1-1,2 tonn □ Farþegafjöldi allt aö 11 manns □ Þriggja ára ábyrgð VANDAÐIR VINNUBÍLAR J/IÁ VOLKSWAGEN Lokaður VW Transporter Verð frá kr. 1.411.200 (m.vsk.) 6 manna VW Transporter meö palli Verð frá kr. 1.457.280 (m.vsk.) 0 HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI 695500 BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.