Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
Neytendur, GATT
og verðlag búvara
eftir Gunnlaug
Júlíusson
Á síðustu dögum hefur verið
nokkuð til umræðu skýrsla sú sem
Hagfræðistofnun Háskólans vann
fyrir Neytendafélag höfuðborgar-
svæðisins umhugsanleg áhrif samn-
ingsdraganna á verðlag landbúnað-
arafurða á íslandi. Skýrsla þessi
er gerð með hliðsjón af samantekt
sem unnin var fyrir Norsku neyt-
endasamtökin og ýmsar tölur tekn-
ar beint upp úr henni.
Niðurstöður skýrslunnar og
túlkun þeirra
Niðurstöðum skýrslunnar hefur
verið tekið opnum örmum a| ýmsum
aðilum og stórum fyrirsögnum sleg-
ið upp í því sambandi. Þær hafa
m.a. verið notaðar til árása á for-
svarsmenn launþegahreyfingarinn-
ar fyrir afturhald og nefndar sem
rökstuðningur þess hve auðvelt sé
að bæta lífskjör hérlendis gegnum
innflutning búvara. Það að hag-
fræðistofnun Háskóla íslands hefur
unnið skýrsluna gefur henni mun
meiri þyngd en ef einhver „maður
úti í bæ“ hefði gert álíka saman-
tekt. En á hinn bóginn er ábyrgð
hagfræðistofnunarinnar einnig
meiri þegar hún lætur frá sér fara
slíkar skýrslur, þannig að gagnaöfl-
un, talnameðferð og túlkun niður-
staðna sé á þann veg að hæfi nafni
Háskólans.
Lágar niðurgreiðslur og hátt
raungengi á árinu 1987
Þegar slíkur samanburður er
gerður milli landa, þá hlýtur hann
alltaf að vera gerður með ákveðnum
fyrirvörum, m.a vegna þess hve
aðstæður geta verið mismunandi
milli landa. í Noregi eru greiddir
fjölþættir styrkir til bænda, sem
hafa síðan áhrif á verð vörunnar.
Hérlendis hafa niðurgreiðslur ein-
ungis verið greiddar út á heildsölu-
stig. Niðurgreiðslur á mjólk- og
kjötvörur voru mjög lágar á árunum
1984—1987, svo lágar að verulegur
samdráttur varð í neyslu mjólkur
og kindakjöts, og hefur kindakjöts-
neyslan aldrei náð sér aftur hér-
lendis eftir þetta áfall. Þegar niður-
greiðslur lækka, þá hækkar heild-
söluverð. Því gefur samanburður á
heildsöluverði búvara í Noregi og
íslandi á árinu 1987 ranga mynd
og skekkta niðurstöðu, þar sem nið-
urgreiðslur hérlendis voru mjög lág-
ar. Einnig var raungengi krónunnar
mjög hátt á árinu 1987 þegar geng-
inu var haldið því sem næst föstu
í verðbólgu sem var yfir 20%. Benda
má á að í áfangaskýrslu nefndar
sem fjallaði sem GATT-samningana
og áhrif þeirra á íslenskan landbún-
að og hefur nýlega komið fram, er
vakin sérstök athygli á því að raun-
gengi var mjög hátt hérlendis á
árunum 1986—1988 sem hafi í för
með sér að innlent verðlag hafi
verið mjög hátt samanborið við er-
lent. Við vandaða skýrslugerð, eins
og hægt er að ætlast til að hagfræð-
istofnun Háskóla íslands skili frá
sér, hefði verið vakin athygli á'þess-
um atriðum sem hafa áhrif á niður-
stöðurnar. Það er ekki gert, og er
það kannske í takt við það viðhorf
sem kemur fram í því að talað er
um „bjartsýna spá“ í skýrslunni
þegar metin eru áhrif mikillar opn-
unar fyrir innflutning í framhaldi
af GATT-samningum.
Heildsöluverð er ekki sama
og smásöluverð
í skýrslunni er unnið út frá heild-
söluverði búvara en því slegið föstu
að „íslenskir neytendur megi eiga
von á verðlækkun landbúnaðaraf-
urða að undanskilinni mjólk á bilinu
20—30%“ þegar reiknaður eru út
breytingar á heildsöluverði miðað
við mismunandi túlkun Dunkelstil-
lögunnar. Smásöluálagningerftjáls
á stærstum hluta unninna búvara
hérlendis, og því á engan hátt hægt
að fullyrða að breytingar á heild-
söluverði og smásöluverði fylgist
að, eða því lækkar smásöluverð
kartaflna ekki um fleiri hundruð
prósent frá innlendu verði þegar
þær eru fluttar inn? Því lækka
garðávextir ekki um mörg hundruð
prósent þegar þeir eru fluttir inn?
Iðulega eru þeir seldir hærra verði
en innlend framleiðsla. Það.er því
afar hæpið, svo ekki sé meira sagt,
að setja jafnaðarmerki milli breyt-
inga á heildsöluverði og smásölu-
verði.
Samanburður á kartöfluverði
Því hefur verið slegið upp með
stórum stöfum að reiknað heildsölu-
verð kartaflna hafi verið 760%
hærra á íslandi en í Noregi á árinu
1987. í fyrsta lagi er nauðsynlegt
að geta þess að skráð heildsöluverð
á kartöflum var ekki til á árinu
1987 hérlendis, heldur giltu allt að
því dagprísar í veslun milli framleið-
enda og verslana, enda kartöfluverð
sjaldan verið hærra í smásölu. I
öðru lagi kemur það í ljós að á
sama tíma og heildsöluverð kart-
aflna í Noregi er metið 1,0 norska
króna, þá er verð til bænda samkv.
norskum búreikningum 1,54 norsk-
ar krónur pr. kíló að jafnaði eða
yfir 50% hærra en það heildsölu-
verð sem unnið er út frá. Hvað ligg-
ur hér að baki get ég ekki sagt um.
Því er þessi samanburður hæpinn,
svo ekki sé dýpra i árina tekið.
Til viðbótar fá kartöfluframleið-
endur í Noregi einnig eftirtalda
styrki fyrir utan skráð framleið-
endaverð:
1) Styrkur pr/kg til geymslu á
kartöflum.
2) Styrkur pr/kg eftir gæðum kart-
aflnanna.
3) Styrkur pr/kg m.t.t. þurrefnis-
innihalds.
4) Byggðastyrkur til framleiðenda
í Norður-Noregi.
5) Flutningsstyrk vegna flutnings
innan Norður-Noregs og milli
landshluta.
Þegar þetta er skoðað ætti hvetj-
um og einum hugsandi manni að
vera ljóst að út í hött er að gera
gagnrýnislausan samanburð á
heildsöluverði á kartöflum í Noregi
og einhveiju dagprísaverði hérlend-
is. Ekki voru settir fram neinir var-
naglar af hálfu skýrsluhöfundar
varðandi þær háu tölur sem komu
út úr dæminu heldur þeim fleygt út
í umræðuna án fyrirvara.
Áætlað heildsöluverð
Á svínakjöti, kjúklingum og eggj-
um var ekki skráð heildsöluverð á
árinu 1987. Hagfræðistofnunin
áætlar heildsöluverð fyrir þessar
Gunnlaugur Júlíusson
„Þegar verðbreytingar
þeirra búvara sem falla
undir opinbera verðlag-
ingu eru skoðaðar á
gildistíma þjóðarsáttar-
samninga (frá febrúar
1990 — febrúar 1992)
kemur í ljós að búvörur
hafa hækkað að jafnaði
um 7,9% á meðan fram-
færsluvísitala í landinu
hefur hækkað um
13,4%.“
afurðir en ekkert er skýrt frá því
hvernig áætlanirnar eru byggðar
upp. A þessum árum voru miklar
sveiflur í verði þessara vara vegna
óstöðugleika á markaðnum og mik-
illar samkeppni milli framleiðenda.
Því hefði verið eðlilegur hlutur að
skýra frá því í skýrslunni á hvern
hátt svokallað „heildsöluverð" var
fundið fyrir fyrrgreindar vörur,
þannig að ekki þurfi neinn að vera
í vafa um aðferðirnar. Þegar slíkur
samanburður er gerður og niður-
Næst lægsta
tilboði tekið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt,
að tillögu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, að taka
næst lægsta tilboði Garðavals
hf., 12,7 millj. eða 80,66% af
kostnaðaráætlun, sem er 15,7
millj., í lóðaframkvæmdir við
Seljaskóla. Fjórtán tilhoð bárust
í verkið.
Lægsta boð, rúmar 12,2 milljón-
ir áttu Jón og Tryggi hf., en þeir
óskuðu eftir að falla frá tilboðinu,
þar sem þeir áttu einnig lægsta
boð og var tekið í frágang undir
malbikun á íþróttaleikvanginum í
Laugardal. Aðrir sem buðu voru
Á.N. verktakar hf., 14,4 millj, eða
91,61% af kostnaðaráætlun,
stöðurnar notaðar í pólitískum til-
gangi, þá er lágmarkskrafa að öll
spil séu lögð á borðið.
Verðþróun búvara
í stað þess að velta fyrir sér
margra ára gömlum tölum og draga
hæpnar ályktanir af þeim, hefði
verið áhugavert í þessu samhengi
fyrir áhugamenn um málefnið að
skoða verðþróun búvara á síðustu
árum, ekki síst með tilliti til þess
að niðurstöður skýrslunnar hafa
verið tengdar við verðþróun ann- j
arra þátta í þjóðfélaginu (Jón .
Magnússon í Sjónvarpinu 25. mars).
Þegar verðbreytingar þeirra búvara
sem falla undir opinbera verðlagn-
ingu eru skoðaðar á gildistíma þjóð-
arsáttarsamninga (frá febrúar 1990
— febrúar 1992) kemur í ljós að
búvörur hafa hækkað að jafnaði
um 7,9% á meðan framfærsluvísi-
tala í landinu hefur hækkað um
13,4%. Niðurgreiðslur hafa ekki
breyst á tímabilinu sem neinu nem-
ur. Því er hægt að fullyrða að verð-
þróun íslenskra búvara hafi leitt til
þess að vísitölubundin lán hafi
hækkað minna en ef hún hefði fylgt
almennri verðþróun.
Að lokum t
Hér hafa verið settar fram nokkr-
ar athugasemdir við skýrslu þá sem
Hagfræðistofnun Háskóla Islands |
staðfærði eftir norskri samantekt
um áhrif GATT-samninganna á
heildsöluverð búvara. Við slíka (
skýrslugerð verður að ætlast til
þess af opinberri fræðastofnun sem
kennd er við Háskóla íslands, að
vakin sé athygli á þeim fyrirvörum
og veikleikum sem í umræddri
gagnaöflun felast, til að ekki séu
dregnar . af niðurstöðum hennar
aðrar þær ályktanir en sem hægt
er að standa við. Ef það er ekki
gert hlýtur maður að álykta sem
svo að annaðhvort sé ekki talin
þörf á að nefna augljósa fyrirvara
af ásettu ráði eða að skýrsluhöfund-
ar hafi ekki áttað sig á þeim.
Garðaprýði, 14,6 millj. eða 92,91%,
af kostnaðaráætlun, Dalverk sf.,
14.6 millj., eða 92,98% af kostnað-
aráætlun, Þór Snorrason, rúmlega
14.7 millj.,.eða 93,69% af kostnað-
aráætlun, Völur hf., rúmlega 14,7
millj., eða 93,70% af kostnaðar-
áætlun.
Loftorka Reykjavík hf., og Jón
Stefánsson, buðu 14,9 millj., eða
94,40% af kostnaðaráætlun, B.J.
verktakar hf., 15,2 millj. eða
96,49% af kostnaðaráætlun, Jarð-
efni hf., 15,4 millj., eða 97,63% ■
af kostnaðaráætlun, Jón Elíasson ■
16,2 millj., eða 102,61% af kostn-
aðaráætlun, Ásgeir Þór Hjaltason ■
16,4 millj., eða 104,20% af kostn- ®
aðaráætlun, Hagvirki - Klettur
16.8 millj., eða 106,5% af kostnað- ■
aráætlun og Guðlaugur Valgeirs- *
son bauð 16,8 millj., eða 106,51%
af kostnaðaráætlun.
SUZUKISWIFT
3JA DYRA, ÁRGERÐ 1992
★ Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu
★ Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4,0 l. á hundraðið.
★ Framdrif.
★ 5 gíra.
★ Verð kr. 726.000.- á götuna, stgr.
$ SUZUKI
t'AV
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 68 S1 00
LIPUR OG SKEMMTILEGUR 5 MANNA BÍLL
VINNUSKOLI REYKJAVÍKUR
Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa í byrjun júní
nk. og starfar í júní og júlí.
í skólann verða teknir unglingar fæddir 1977 og
1978 sem voru nemendur í 8. og 9. bekk grunn-
skóla Reykjavíkur skólaárið 1991-1992.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Vinnuskóla
Reykjavíkur, Borgartúni 1, efri hæð, sími 632590,
(Ath. breytt aðsetur), og skal umsóknum skilað
þangað fyrir 15. maí nk.
Gefa þarf upp kennitölu.
Vinnuskóli Reykjavíkur.
1
1
I
Höfundur er hagfræðingur
Stéttarsambands bænda.
12,7 millj. í lóðafram- 1
kvæmdir við Seljaskóla 1