Morgunblaðið - 05.05.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
33
Fjórðungssamband Norðlendinga lagt niður:
Lít svo á að við séum að
stíga heillaskref fyrir
norðlenskar byggðir
- segir Ingunn St.
Svavarsdóttir for-
maður sambandsins
„ÉG LÍT svo á að með skiptingu
Fjórðungssambandsins í tvö kjör-
dæmasamtök séum við að st.íga
heillaskref fyrir norðlenskar
byggðir. Ef við ætlum okkur að
sporna við fólksflóttanum út fjórð-
ungnum og hefja nýja sókn í stað
þeirrar varnarstöðu sem við höf-
um verið í þá þurfum við að taka
upp markvissari vinnubrögð og
harðskeyttari," sagði Ingunn St.
Svavarsdóttir formaður Fjórð-
ungssambands Norðlendinga í
ávarpi sínu við setningu auka-
þings sambandsins sem haldið var
í síðustu viku.
Á aukaþinginu var samþykkt að
leggja Fjórðungssamband Norðlend-
inga niður á næsta þingi þess sem
haldið verður í Vestur-Húnavatns-
sýslu í haust. Þá var samþykkt að
ganga til stofnunar samtaka sveitar-
félaga í kjördæmunum tveimur.
Á þinginu var kosið í nefndir til
að ganga frá lagafrumvörpum
vegna stofnunar hinna nýju sam-
taka og til að undirbúa formlegan
stofnfund samtakanna sem haldinn
verður samhliða reglulegu
Fjórðungsþingi Norðlendinga á
komandi hausti.
„Það er komin tími til að snúa
við blaðinu í byggðamálum á ís-
landi og auðvitað vinnum við
áfram sama að þeim málefnum er
varða Norðurland í heild,“ sagði
Ingunn. „Við þurfum að beijast
fyrir meira sjálfræði í eigin málum
og sýna og sanna fyrir okkur og
öðrum að við erum menn til að
takst þá ábyrgð á hendur að
stjórna okkar málum sjálf og þar
sem sveitarfélögin duga ekki til
að sinna sínum málum ein og
óstudd þrátt fyrir stækkun þarf
að koma til samstarf og samvinna
rétt eins og við þekkjum í dag.
Ég sé fyrir mér að kjördæmasam-
tökin gætu unnið að lausn slíkra
mála og auðvitað vil ég sjá þau
hafa meiri völd en Fjórðungssam-
bandið hefur nokkurn tíma haft,“
sagði Ingunn.
Morgunbladið/Guðmundur Hrafn
Klæjar unchin kraganum
Einhver gæti haldið að kötturinn Snorri hefði fengið það hlutverk
að vera gangandi úrkomumælir, en því fer víðs fjarri. Hann Snorri
meiddist nýlega á fæti og var þá gripið til þess ráðs að setja á hann
þennan fína kraga til að koma í veg fyrir að hann nagaði sárið. Eins
og sjá má á svip hans er hrifning hans lítil.
Skólanefnd
mælir með
Sigurði Aðal-
geirssyni sem
skólastjóra
Ytri-Tjörnum.
SKOLANEFND Eyjafjarðarsveit-
ar hefur mælt með því að Sigurð-
ur Aðalgeirsson verði ráðinn
skólasljóri hins nýja grunnskóla
sveitarinnar, sem tekur til starfa
næsta haust.
Tvær umsóknir bámst um skóla-
stjórastöðuna, frá Sigurði, sem er
nú skólastjóri unglingastigsins við
Hrafnagilsskóla og Ásthildi Sigurð-
ardóttur, skólastjóra gmnnskóla-
stigsins við«Hrafnagilsskóla. Á fundi
skólanefndar fékk Sigurður fimm
atkvæði, en Ásthildur eitt.
Menntamálaráðherra skipar í
stöðuna, en hann hefur tekið sér
nokkurra daga frest áður en hann
ákveður hvetjum hún verður veitt.
Þá bárust þtjár umsóknir um
stöðu yfirkennara við skólann, en
þeir sem sóttu um voru: Anna Guð-
mundsdóttir, kennari í Hrafnagils-
skóla, Garðar Karlsson, skólastjóri
Laugalandsskóla, og Sigríður Ása
Harðardóttir, kennari í Hrafnagils-
skóla.
— Benjamín
MENOR - Menningardagskrá
Tónlist
Miðvikudagur 6. maí
Samkomuhúsið á Akureyri (LA)
kl. 20.30. Óperuvinna söngdeildar
Tónlistarskólans á Akureyri. Fluttir
verða lokaþættir úr óperunum
Anna Bolena eftir Donizetti og
Töfraflautunni eftir W.A. Mozart.
Fyrri sýning. Flytjendur eru kenn-
arar og nemendur söngdeildar TA.
Píanóleikari Richard Simm. Tónlist-
arstjóri Gordon J. Jack. Leikstjóri
Sigurður Hallmarsson.
Svalbarðseyri kl. 20.30. Vortón-
leikar Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Fimmtudagur 7. maí
Samkomuhúsið á Akureyri kl.
20.30. Anna Bolena og Töfraflaut-
an. Seinni sýning. Óperuvinna
söngdeildar Tónlistarskólans á Ak-
ureyri.
Föstudagur 8. maí
Félagsheimilið í Hrísey kl. 21.00.
Þjóðlagatríóið X-tríóið flytur dag-
skrá í tilefni 5 ára starfsafmælis.
Frumsamin lög og lög eftir Sigurð
Þórarinsson, Jónas Friðrik, og ljóð
eftir m.a. Davíð Stefánsson og Jón
Thoroddsen.
Laugardagur 9. maí
íþróttaskemman á Akureyri kl.
15.00. Syngjum saman. Uppskeru-
hátíð vegna árs söngsins. íjölmarg-
ir kórar syngja saman m.a. ísl.
ættjarðarlög. Fjöldasöngur. Ókeyp-
is aðgangur.' Kaffisala. Kór Akur-
eyrarkirkju, Kór Glerárkirkju, Kór
MA, Kór aldraðra, Kirkjukór
Grundarkirkju, Kirkjukór Dalvíkur,
Karlakór Akureyrar/Geysir, Mána-
kórinn og Kirkjukór Svarfdæla.
Sólgarðurkl. 15.00. Vortónleikar
Tónlistarskóla Eyjaíjarðar.
Tónlistarskólinn Sauðárkróki.
Vortónleikar nemenda Tónlistar-
skóla Sauðárkróks. Vortónleikar
söngdeildar TS verða síðar í mán-
uðinum.
Sunnudagur 10. maf
Melar í Hörgárdal kl. 21.00.
Þjóðlagatríóið X-tríóið (afmælistón-
leikar).
Laugaborg í Eyjafjarðarsveit kl.
13.30. Vortónleikar Tónlistarskóla
Eyjaljarðar (Nemendur í Lauga-
landsskóla og Grunnskólanum á
Hrafnagili).
Grenivík kl. 17.00. Vortónleikar
Tónlistarskóla Eyjaijarðar.
Mánudagur 11. maí
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 20.30. „Flavian Ensembles."
Tónleikaferð um ísland 9.—16.
maí. Hrólfur Vagnsson harmoníka,
Elisbet Moser, harmoníka,
Alexander Stein, þverflauta, og
Christoph Marks, selló. Fjölþætt
efnisskrá m.a. frumflutt verk samið
sérstaklega fyrir hópinn.
Laugaborg í Eyjafjarðarsveit kl.
20.30. Vortónleikar söngdeildar
Tónlistarskóla Eyjaijarðar.
Þriðjudagur 12. maí
Akureyrarkirkja kl. 20.00. Vor-
tónleikar strengjadeildar Tónlistar-
skólans á Akureyri.
Miðvikudagur 13. maí
Á sal Tónlistarskóla Siglufjarðar
kl. 20.30. Vortónleikar nemenda
Tónlistarskóla Siglufjarðar.
Fimmtudagur 14. maí
Akureyrarkirkja kl. 20.00. Vor-
tónleikar blásaradeildar Tónlistar-
skólans á Akureyri.
Föstudagur 15. maí
Miðgarður í Skagafirði kl. 21.00.
Kór Akureyrarkirkju flytur íslenska
og erlenda efnisskrá. Stjórnandi
Bjöm Steinar Sólbergsson.
Köge í Danmörku (vinabæjarmót
15.-17. maí). Stórsveit Tónlistar-
skóla Sauðárkróks.
Laugardagur 16. maí
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju. Nemendatónleikar Tónlist-
arskólans á Akureyri. Kl. 15.00
yngri nemeridur, kl. 17.00 eldri
nemendur.
Félagsheimilið í Grímsey kl.
20.30. Þjóðlagatríóið X-tríóið (af-
mælistónleikar).
Miðgarður í Skagafirði kl. 20.30.
íslenska óperan. Töfraflautan eftir
W.A. Mozart.
Sunnudagur 17. maí
Akureyrarkirkja kl. 17.00. Kór
Akureyrarkirkju flytur íslenska og
erlenda efnisskrá. Stjómandi Björn
Steinar Sólbergsson.
fþróttaskemman á Akureyri kl.
20.30. Vorkliður. Passíukórinn,
Karlakór Akureyrar/Geysir og
Blásarasveit æskunnar. Stjórnandi
Roar Kvam. Richard Simm píanó-
leikari. Þráinn Karlsson upplestur.
Einsöngvarar.
Mánudagur 18. maí
Tjamarborg á Ólafsfirði kl.
20.30. Vordagar Ólafsfjarðarkirkju
18.-24. maí. Kór Akureyrarkirkju
flytur íslenska og erlenda efnisskrá.
Stjórnandi Björn Steinar Sólbergs-
son.
Miðvikudagur 20. maí
Ólafsfjarðarkirkja kl. 20.30. Vor-
dagar Ólafsfjarðarkirkju 18.-24.
maí. Kirkjukvöld: Ræðumaður
Bjarni Guðleifsson. Kirkjukór
Ólafsfjarðar, stjómandi Jakob Kol-
osowsky, einsöngur Andrea Gylfa-
dóttir.
Hvammstangakirkja kl. 21.00.
Tónlistarfélag V-Húnavatnssýslu:
Hörður Áskelsson leikur orgelverk
frá barokk og rómantíska tímabil-
unum.
Fimmtudagur 21. maí
Tjarnarborg ■ á Ólafsfírði kl.
20.30. Vordagar Ólafsfjarðarkirkju
18.-24. maí. Ólafsfirskt kvöld:
Menningar- og skemmtidagskrá
með þátttöku listafólks úr Ölafs-
firði og nágrenni. ,
Föstudagur 22. maí
Tjarnarborg á Ólafsfirði kl.
20.00. Vordagar Ólafsfjarðarkirkju
18.-24. maí. Barna- og unglinga-
tónleikar: Hljómsveitin Todmobile.
Laugardagur 23. maí
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 20.30. íslensk píanóhátíð
23.-25. maí. Örn Magnússon, pían-
óleikari.
Tjarnarborg á Ólafsfirði kl.
20.30. Vordagar Ólafsfjarðarkirkju
18.-24. maí. Karlakórinn Geysir
frá Akureyri og Karlakórinn Fóst-
bræður úr Reykjavík.
Sunnudagur 24. maí
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 20.30. íslensk píanóhátíð
23.-25. maí. Eldri píanónemendur
leika íslenska píanótónlist.
Tjarnarborg á Ólafsfirði kl.
20.30. Vordagar Ólafsfjarðarkirkju
18.-24. maí. Órn Magnússon pían-
óleikari.
Mánudagur 25. maí
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 14.00. íslensk píanóhátíð
23.-25. maí. Yngri píanónemendur
leika íslenska píanótónlist.
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 20.30. Kammerhljómsveit Akur-
eyrar, stjórnandi Guðmundur Óli
Gunnarsson. Einleikur á píanó
Kristinn Örn Kristinsson og Þórar-
inn Stefánsson, flutt verk eftir Atla
Heimi Sveinsson, Oliver Kentish og
John Speight.
Fimmtudagur 28. maí
Henning í Danmörku (Jótlandi).
Vinabæjamót 28.-31. maí. Barna-
og unglingahljómsveit Tónlistar-
skóla Siglufjarðar. Stjómandi Elías
Þorvaldsson.
Sunnudagur 31. maí
St. Mortensdómkirkja í Randers
(vinabæ Akureyrar) Danmörku kl.
17.00. Kór Akureyrarkirkju flytur
íslenska og erlenda efnisskrá.
Stjórnandi Björn Steinar Sólbergs-
son.
Kvikmyndir
Borgarbíó. Kvikmyndaklúbbur
Akureyrar sýnir í þriðju viku maí:
Tvöfalt líf Veroníku.
Leiklist
Leikfélag Akureyrar
Samkomuhúsinu á Akureyri. ís-
landsklukkan eftir Halldór Lax-
ness. Leikstjóri Sunna Borg.
Föstud. 8. maí kl. 20.30 og laug-
ard. 9. maí kl. 20.30. Síðustu sýn-
ingar! Upplýsingar og miðasala í
síma 96-24073 alla daga nema
mánudaga frá kl. 14.00-18.00.
Freyvangsleikhúsið
Freyvangur í Eyjafjarðarsveit.
Messías mannsonur eftir Andrew
Webber og Tim Rice. Leikstjóri
Kolbrún Halldórsdóttir. Fimmtud.
7. maí kl. 20.30, föstud. 8. maí kl.
20.30 og laugard. 9. maí kl. 20.30.
Allra síðustu sýningar! Upplýsingar
og miðasala í síma 96-31196 milli
17.00 og 19.00.
Myndlist
Einar Hákonarson, málverk.
Gallerí AllraHanda, listagili Ak-
ureyri. 2. maí til 17. maí, kl. 15-18.
Anna G. Torfadóttir, grafík.
Gallerí AllraHanda, listagili Ak-
ureyri. 23. maí til 7. júní kl. 15-18.
Elín Kjartansdóttir, vefnaður úr
leðri, mokkaskinni, ull og hör.
Blómaskálinn Vín, Eyjafjarðar-
sveit. 5. til 17. maí kl. 12.00-22.00.
íslensk píanóhátíð 23.-25. maí.
Dröfn Friðfinnsdóttir, tréristur. Örn
Ingi, blönduð tækni.
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
(opnuð 23. maí kl. 15.00.)
Fyrirlestrar
Þriðjudagur 19. maí
Safnaðarheimili Ólafsfjarðar-
kirkju kl. 20.30. Vordagar Ólafs-
fjarðarkirkju 18.-24. maí. Einar
Gylfi Jónsson forstöðumaður Ungl-
ingaheimilis ríkisins, flytur erindi
og ræðir um unglinga og svarar
fyrirspurnum.
Laugardagur 23. maí
Safnaðarheimili Ólafsíjarðar-
kirkju kl. 10.30. Vordagar Ólafs-
fjarðarkirkju 18.-24. maí. „Velferð-
arsamfélagið og þjóðfélagsleg
ábyrgð kirkjunnar," dr. Björn
Björnsson yfirmaður fræðsludeildar
þjóðkirkjunnar flytur erindi. Vínar-
brauð og kaffi. Fjölskyldudagur eft-
ir hádegið með útileikjum, grillveislu
og varðeldi.
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 10-15. íslensk píanóhátíð
23.-25. maí. Kl. 10.30 Nína Mar-
grét Grimsdóttir, Saga og þróun
íslenskrar píanótónlistar. Kl. 13.00
Snorri Sigfús Birgisson ræðir um
píanóverk sem hann hefur samið
fyrir byijendur. Hulda Bragadóttir,
Richard J. Simm, Guðríður St.
Sigurðardóttir píanóleikarar og
Christopher A. Thornton klarinettu-
leikari leika verk á milli atriða m.a.
eftir Jónas Tómasson og Þorkel
Sigurbjömsson.
Sunnudagur 24. maí
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 10-15. íslensk píanóhátíð
23.-25. maí. Kl. 10.00 kynning á
tónskáldinu Hróðmari I. Sigur-
björnssyni (Tilbrigði). Kl. 10.15 Dr.
Marek Podhajski: Sérstaða íslenskr-
ar tónlistar. Kl. 11.15 Halldór Har-
aldsson: Túlkunarmáti íslenskrar
píanótónlistar. Kl. 14.00 Elías Dav-
íðsson: Kynning á tónsteinum (hljóð-
færi). Richard J. Simm píanó, Mar-
grét Bóasdóttir sópran, Arnbjörg
Sigurðardóttir þverflauta, Christop-
her A. Thornton klarinett, leika verk
á milli atriða m.a. eftir Hróðmar I.
Sigurbjörnsson og Karólínu Eiríks-
dóttur.
Mánudagur 25. maí
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
kl. 10-15. íslensk píanóhátíð
23.-25. maí. Kl. 10.00 kynning á
tónskáldinu Jóni Hlöðver Áskelssyni
(Svíta úr íslandsklukkunni). Eilen
Silcocks, selló og blokkflauta, Jacqu-
eline F. Simm óbó, Richard J. Simm
píanó. Kl. 10.15 Tónskáldaþing:
Atli Heimir Sveinsson, Elías Davíðs-
son, Hafliði Hallgrímsson, Hjálmar
H. Ragnarsson, Hróðmar I. Sigur-
bjömsson, Jón Hlöðver Áskelsson,
Jónas Tómasson, Karólína Eiríks-
dóttir, Oliver Kentish, Páll P. Páls-
son og Snorri Sigfús Birgisson.
Menningardagskrá þessi er unnin
af Menningarsamtökum Norðlend-
inga og byggist á upplýsingum sem
berast símloiðis til tengiliða í hverri
sýslu Norðlendingafjórðungs, og er
birt fyrsta þriðjudag í hverjum
mánuði. Skráin er birt með fyrirvara
um breytingar.