Morgunblaðið - 05.05.1992, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
Sýning stóðhestastöðvar BI:
Svartur frá Unalæk
skákaði þeim eldri
__________Hestar______________
Valdimar Kristinsson
EKKERT lát virðist á vinsældum
sýningar Stóðhestastöðvar Islands
í Gunnarsliolti og virðist enginn
hestamaður með hestamönnum
nema hann mæti á sýningarnar og
fylgist með því sem þar er að ger-
ast. Er þetta vel og sýnir best
hversu áhuginn fyrir hrossarækt-
inni er mikill. A sýningu stöðvar-
innar um helgina mættu að því er
talið er á fjórða þúsund manns til
að sjá nýjar stjörnur á vettvangi
hrossaræktarinnar.
Ekki brugðust vonír manna um
stjörnurnar að þessu sinni frekar en
fyrri daginn og skein þar skærast
Svartur frá Unalæk, fjögurra vetra
hestur sem hlaut 8,16 í aðaleinkunn
sem er fágætur árangur hjá svo ung-
um hesti en með þessum árangri
skaut hann aftur fyrir sig öðrum
hestum sýningarinnar bæði eldri og
jafn gömlum. Fyrir byggingu hlaut
hann 8,18, 8,5 fyrir háls og herðar
og hófa samanlagt fyrir hæfileika
8,0. Fyrir tölt, geðslag og fegurð í
reið fékk hann 8,0, fyrir skeið, stökk
og vilja fékk hann 8,5 en 7,5 fyrir
brokk, samanlagt fyrir hæfíleika
8,14. Ef ekkert fer úrskeiðis með
þennan hest má telja líklegt að hann
eigi eftir að bæta hæfileikaeinkunn-
ina t.d. fyrir tölt og brokk. Svartur
er undan Kjarval 1025 frá Sauðár-
króki og móðirin er Fiðla 5861 frá
Snartarsöðum sem var undan Ófeigi
818 frá Hvanneyri. Annar fjögurra
vetra hestur náði fyrstu verðlaunum
eða fyrstu einkunn, því nú er víst
ekki lengur talað um fyrstu verðlaun.
Var þar á ferðinni Gumi frá Laugar-
vatni, stór og myndarlegur foli með
fallegar hreyfíngar. Hlaut hann sömu
einkunn og Svartur fyrir byggingu
og meðal annars 9,0 fyrir háls og
herðar. Gumi var hedur lægri fyrir
hæfileika eða 7,86 og 8,02 í aðalein-
kunn. Hann er undan Eiðfaxasynin-
um Pá frá Laugarvatni og Dreyra-
dótturinni Glímu 6152 frá Laugavar-
vatni. Einnig er ástæða til að geta
hér Gnýs frá Hrepphólum sem er
undan Gassa frá Vorsabæ II og Gígju
4040 frá Drumboddsstöðum en hann
var rétt við fyrstu einkunn með 7,96,
7,95 fyrir byggingu og 7,97 fyrir
hæfileika. Með 9,0 fyrir tölt og 8,5
fyrir brokk, klárhestur með tölti að
minnsta kosti á þessu stigi málsins.
Af öðrum ungum folum mætti geta
þriggja Ljórasona sem líklegir eru til
að láta að sér kveða í framtíðinni.
Allir hlutu þeir fyrstu einkunn fyrir
byggingu en eiga eftir að sanna sig
betur hvað varðar hæfíleikana eins
og eðlilegt má teljast með fola á þess-
um aldri. Efstur þeirra varð Fengur
frá Stokkseyri undan Perlu dóttur
Haðar 954 bæði frá Hvoli, með 7,95
í aðaleinkunn. Næstur er Dugur frá
Mosfellsbæ undan Drottningu 5391
frá Stykkishólmi en hún er dótir
Ófeigs 818, með 7,80 í aðaleinkunn
og síðastur þeirra er Blær frá Kjam-
holtum undan Kolbrá 5354 sama stað
en hún er undan Hrafni 802. Bæði
Dugur og Blær eru- lágir fyrir hæfi-
leika en eftir að hafa séð þá í reið
má ætla að þeir eigi alla möguleika
á að bæta sig verulega. Ljóri virðist
gefa mjög örugglega góða frambygg-
ingu en gott bak og góð lend eru þó
líklega hans aðal í erfðum. Einnig
mætti minnast á þátt Kjarvals 1025
í þessari sýningu en hann virðist
stefna í að verða afkastamikill stóð-
hestafaðir.
Fjórir fimmvetra stöðvarhestar
komu fram og stóð þar efstur Far-
sæll frá Ási í Hegranesi sem hafði
staðið efstur fjögra vetra hesta í
fyrra. Var hann með 8,10 í aðalein-
kunn en frammistaða hans ræðst
fyrst og fremst af mjög góðri bygg-
ingareinkunn 8,28. Er^hann án efa
hæstur afkvæma Náttfara 776 frá
Ytra-Dalsgerði í byggingareinkunn.
Fyrir hæfileika fékk hann 7,93 sem
Gumi frá Laugarvatni hlaut hæstu einkunn fyrir háls og herðar 9,0
og fyrstu einkunn samanlagt 8,02, knapi er Eiríkur Guðmundsson.
Farsæll frá Ási hélt sínu efsta sæti þegar hann var dæmdur öðru
sinni á stóðhestastöðinni, með 8,10 í einkunn, knapi er Eiríkur Guð-
mundsson.
Hestadagar í Reiðhöllinni:
*
Agæt skemmtun
- endurtekið efni
REIÐSKÓLINN og Fákur stóðu fyrir Hestadögum í reiðhöllinni sem
jafnframt er lokapunktur í starfsemi Reiðskólans á þessu ári. Var sýn-
ingin með mjög hefðbundnu sniði og lík þeim tveimur sýningum sem
haldnar voru í vetur í Reiðhöllinni.
Fáksmenn riðu á vaðið með fánareið
almennra féiagsmanna og fór vel á
því í tilefni 70 ára afmælis Fáks.
Þá mætti á staðinn Sigurður Ólafs-
son söngvari og hestamaður sem nú
er 75 ára og reið hann þarna um
salarkynnin á gráum huggulegum
klárhesti með tölti og var óspart
hylltur af sýningargestum en hann
var sem kunnugt er einn fresti skeið-
reiðarmaður landsins fyrr á árum.
Þijú gæðingshross voru sýnd, Mard-
öll frá Reykjavík og Sókron frá
Sunnuhvoli, sem komu fram saman,
og Gýmir frá Vindhemum, sem var
einn síns liðs. Knapar voru Sigvaldi
Ægisson, Atli Guðmundsson og
Trausti Þór Guðmundsson. Sókron,
sem er sextán vetra gamail, virðist
í feikna formi og naut sín mjög vel
Seimur frá Sveinatungu óvenju jafn og góður að hæfileikum en að
sama skapi slæmar einkunnir fyrir fætur, knapi er Þórður Þorgeirsson.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Svartur frá Unalæk hlaut hæstu aðaleinkunn þrátt fyrir að vera 4
vetra og lítið taminn og skaut þar með sér eldri hestum aftur fyrir
sig. Knapi er Þórður Þorgeirsson.
Gnýr frá Ilrepphólum hélt merki klárhestanna á lofti með 9,0 fyrir
tölt og 8,5 fyrir brokk, knapi er Elvar Einarsson.
Ernir frá Efri-Brú kominn með fyrstu einkunn, 8,5 fyrir skeið og
fegurð í reið. Knapi er Eiríkur Guðmundsson.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Sigurbjörn Bárðarson og Höfði frá Húsavík sýndu nýjar fimiæfingar
sem ekki hafa sést hér opinberlega fyrr og virðist Sigurbjörn fikra
sig ótrauður upp eftir fimiæfingaskalanum þar sem hann glímir við
sífellt erfiðari æfingar.
á öllum gangi.
Félag tamningamanna var með
hópsýningu sem gekk að mestu
áfallalaust fyrir sig, sæmilega út-
færð, en einhvernveginn fannst
manni að maður hafi séð þessa sýn-
ingu áður og mættu FT-menn gjarn-
an fara að leggja höfuðið í bleyti
áður en kemur að næstu hópsýningu
þeirra. Þá var Sigurbjörn Bárðarson
og Höfði frá Húsavík með einkasýn-
ingu í nafni FT sem byggð var að
mestu upp á ýmsum erfiðum hlýðni
eða fimiæfingum. Syning kynbóta-