Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992
37
„HRAÐNÁMSTÆKNI“
eftir Erlu S.
Kristjánsclóttur
Hraðnám byggist á nýjustu
uppgötvunum á námstækni.
Vísindamenn hafa fullyrt að við
getum haldið heila okkar eins
ferskum og ungum og þegar við
vorum 10 ára, ulla ævi.
Nýlegar rannsóknir sýna, að við
getum aukið gáfur okkar svo lengi
sem við iifum. Sannanir benda til
þess að á hvaða aldri sem er
(20-40-80) hefur heili okkar
hæfni til frekari þroska. Til þess
að halda heila okkar í þjálfun þurf-
um við samt sem áður að æfa
hann alveg eins og vöðvana í lík-
ama okkar. Rannsóknir á hugan-
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
i fltogMfiMfiftfft
um sýna, að hann verður þeim
mun hæfari til náms sem hann er
látinn læra meira. Því meira sem
maður leggur á minnið, þeim mun
betra verður það. An nægrar örv-
unar mun þessi stórkostlegi þroski
þó ekki verða og hæfni heilans
minnkar. „use it or lose it' (not-
aðu hann eða tapaðu honum) er
lögmál, sem gildir ekki aðeins um
líkamann, hvað varðar vöðvastyrk
og liðleika, heldur einnig um það
að halda heilanum í góðri þjálfun.
Heilinn þarfnast örvunar og rann-
sóknir hafa sýnt, að ein besta að-
ferðin til þess er að læra tungu-
mál með hraðnámstækni.
Hraðnámstækni notar aðferðir,
sem við notuðum sem börn til þéss
að læra móðurmál okkar. Til þess
að vera viss um að allur heilinn
taki þátt í náminu er nýja tungu-
málið kennt sjónrænt, með því að
nota sjónina, hljóðrænt með því
að hlusta og hreyfirænt með hreyf-
ingu og snertingu. Þægileg tón-
list, sem stuðlar að því að bæði
heilahvolfin starfa er spiluð.
Ásamt slökun hjálpar þessi tónlist
nemandanum til þess að ná jafn-
vægi og heilanum til þess að fram-
leiða „alfa“ bylgjur. Þegar hugur-
inn er í „alfa“ lærir einstaklingur-
inn betur og hraðar og honum líð-
ur vel. Jákvæðar staðhæfingár og
skapandi ímyndanir eru notaðar.
Hreyfingar, snerting og leikir
gegna einnig mikilvægu hlutverki.
Það er engin tilviljun að það er
„Hraðnámstækni reyn-
ir að endurvekja tíma-
bil bernskunnar, þegar
við raunverulega tók-
um þátt í náminu af lífi
og sál, og það var til-
hlökkunarefni að kynn-
ast öllu nýju.“
mjög auðvelt að læra söngtexta.
Þegar við hlustum á söng er
vinstra heilahvolfið upptekið af
textanum en það hægra af tónlist-
inni. Bæði heilahvolfin vinna þá
saman.
Hraðnámstækni byggist á því
að örva allan heilann. Með því að
nota ýmsar aðferðir til þess að
örva bæði heilahvolfin er okkur
gert kleift að tileinka okkur nýtt
tungumál auðveldlega. Við heyrum
það, sjáum og „snertum". Markm-
iðið er að hafa ánægju af tungu-
málanáminu.
Skólar í Sydney í Ástralíu hafa
kennt þriggja ára námsefni í
frönsku á þremur mánuðum með
því að nota þessar aðferðir. Nem-
endurnir lærðu frönsku í að
minnsta kosti 90 mínútur á dag,
5 daga á viku í 3 mánuði. Með
notkun hraðnámstækni náðu þeir
á þessum tíma að læra þriggja ára
námsefni.
Erla S. Kristjánsdóttir
Gamall kínverskur málsháttur
segir:,, Ég heyri og ég gleymi. Ég
sé og ég man, en ég læri það sem
ég geri.“ Hraðnámstækni reynir
að endurvekja tímabil bernskunn-
ar, þegar við raunverulega tókum
þátt í náminu af lífi og sál, og það
var tilhlökkunarefni að kynnast
öllu nýju. Við getum því sagt með
sanni „haltu þér í huglegri þjálf-
un“. Æfðu hugann með því að
læra nýtt tungumál.
Höfundur er verkefnissljóri hjá
Stjórnunarfélagi íslands og
Málaskólanum Mími.
Pennavinir
Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka
með áhuga á ferðalögum, menn-
ingu, kvikmyndum o.fl.:
Lydia Kvvaning,
P.O.Box 1317,
Cape Coast,
Ghana.
Japanskur 21 árs vélaverkfræði-
nemi með áhuga á íþróttum og úti-
vist, tónlist, alþjóðastjórnmálum,
tungumálum, kvikmyndum ofl.
Hann vill skrifast á við stúlkur:
Hirofumi Yamaguchi,
2-6-17 Hirafuku,
Okayama-shi,
Okayama,
702 Japan.
44 ára gift tékknesk kona sem
elur þann draum í bijósti að eiga
eftir að ferðast til íslands:
Andela Dallosova,
Kupecka 47,
921 01 Piesany okr. Trnava,
Czechoslovakia.
Þýskur stúdent sem getur ekki
um aldur en er líklega liðlega tví-
tugur. Með mikinn Islandsáhuga:
Ulrich Loth,
Osteröder Strasse 36,
W-3392 Clausthal-Zellerfeld,
Germany.
Sautján ára Ghana-piltur með
áhuga á íþróttum, tónlist og hnefa-
leikum:
Lavbi Seth,
P. O. Box 370,
Koforidua E/R,
Ghana.
RAÐ/\UGL YSINGAk
Aðalfundur
Aðalfundur Búseta hsf., Reykjavík, verður
haldinn á Hótel Borg í „Gyllta salnum“,
þriðjudaginn 19. maí nk. og hefst kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Skrifstofa Búseta, Reykjavík, Laufásvegi 17,
er opin frá kl. 9-16.
Stjórn Búseta hsf.
FLUGVI RKJAFÉLAG ÍSLANDS
Almennur félagsfundur
F.V.F.Í. verður haldinn í Borgartúni 22 í dag,
þriðjudaginn 5. maí, kl. 16.00.
1. Samningarnir.
2. Heimild til handa stjórnar- og trúnaðar-
mannaráðs til boðunar vinnustöðvunar.
3. Orlofshúsamál.
4. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Allsherjaratkvæðagreiðsla um miðl-
unartillögu ríkissáttasemjara
Allsherjaratkvæðagreiðsla um miðlunartil-
lögu ríkissáttasemjara sem lögð var fram
þann 26. apríl sl. verður framhaldið í dag
þriðjudag 5. maí og miðvikudag 6. maí í húsa-
kynnum félagsins í Húsi verslunarinnar 9.
hæð, Kringlunni 7.
Kjörfundur stendur báða dagana frá kl. 9.00
til 21.00.
Kjörskrá liggurframmi á skrifstofu félagsins.
Kjörstjórn.
Laxveiði
Tilboð óskast í laxveiði í Bakká, Hrútafirði.
í ánni eru 80 stangaveiðidagar.
Upplýsingar gefur Sigurður Pálsson í síma
91-36744.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„L - 14358“ fyrir 13. maí.
KENNSLA
Starfsþjálfun fatlaðra
Nýir nemendur verða teknir inn fyrir haust-
önn 1992.
Námið tekur 3 annir og er hugsað sem stökk-
pallur út í atvinnulífið eða almenna skóla.
Kennslugreinar eru: Tölvunotkun, bókfærsla,
verslunarreikningur, íslenska, enska og sam-
félagsfræði.
Tölvunámskeið
grunn- og framhaldsnámskeið, verða haldin
í maí - júní.
Móttaka umsókna
fyrirskólann og námskeið, stendurtil 20. maí.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást hjá Starfsþjálfun fatlaðra, Hátúni 10a,
9. hæð, sími 29380.
Forstöðumaður.
NA UÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fara fram á skrifstofu embættisins,
Bjólfsgötu 7, Seyðisfirði föstudaginn 8. maí 1992 kl. 10.00:
Árstíg 8, Seyðisfirði, þingl. eign Elínar Frímann, eftir kröfu Lífeyris-
sjóðs Austurlands.
Bröttuhlíð 6, Seyðisfirði, þingl. eign Guðnýjar Jónsdóttur og Steinars
Ó. Gunnarssonar, eftir kröfum Tryggingastofnunar ríkisins og Lifeyr-
issjóðs verslunarmanna.
Fossgötu 5, Seyðisfirði, þingl. eign Þórðar Sigurössonar, eftir kröfum
Gjaldheimtu Austurlands og Húsnæðisstofnunar rikisins. Annað og
síðara.
Torfastöðum, Vopnafirði, þingl. eign Sigurðar Péturs Alfreðssonar,
eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hrl. og Byggingasjóös ríkisins. Annað
og sfðara.
Lagarfelli 16, Fellabæ, þingl. eign Baldurs Sigfússonar, eftir kröfu
Sveins H. Valdimarssonar hrl. Annað og sfðara.
Hafnargötu 48, e.h., Seyðisfirði, þingl. eign Einars Hólms Guðmunds-
sonar, eftir kröfu Búnaðarbanka Islands. Annað og síðara.
Vestdalseyrarvegi 2, Seyöisfiröi, þingl. eign Hafsídar hf., eftir kröfu
veödeildar íslandsbanka. Annað og síðara.
Hamrabakka 10, Seyðisfirði, þingl. eign Húsnæðisnefndar Seyðis-
fjarðarkaupstaðar, eftir kröfu Landsbanka Islands, lögfræðingadeild-
ar. Annað og síðara.
Hafnargötu 44b, Seyðisfirði, þingl. eign Brynjólfs Sigurbjörnssonar,
eftir kröfu Búnaðarbanka Islands, lögfræðideildar. Annað og sfðara.
Árstíg 1, Seyöisfirði, talinn eign Elíasar Sigurðssonar, eftir kröfum
Gjaldheimtu Austurlands, veðdeildar Landsbanka Islands, Sigurðar
I. Halldórssonar hdl., Grétars Haraldssonar hrl. og Magnúsar M.
Norðdahl. hrl. Annað og sfðara.
Öldugötu 16, Seyðisfirði, þingl. eign Vélsmiðjunnar Stál hf., eftir
kröfu innheimtumanns ríkissjóðs. Annað og sfðara.
Árbakka, Tunguhreppi, þingl. eign Kára Ólafssonar, eftir kröfum inn-
heimtumanns rfkissjóðs. Annað og síðara.
Botnahlíð 12, Seyðisfirði, þingl. eign Ólafs R. Ólafssonar, eftir kröfu
Árna Halldórssonar hrl. Annað og síðara.
Bakka, Borgarfirði eystra, þingl. eign Borgarfjarðarhrepps, eftir kröfu
Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Annað og sfðara.
Deildarfelli, Vopnafirði, þingl. eign Antons Gunnarssonar, eftir kröfu
Stofnlánadeildar landbúnaðarins,- Annað og sfðara.
Kolbeinsgötu 58, Vopnafirði, þingl. eign Heimis Þórs Gíslasonar,
eftir kröfum Landsbanka Islands, Höfðabakka og Lífeyrissjóðs Aust-
urlands. Annað og síðara.
Sýslumaður Norður-Múlasýslu,
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði.
Nauðungaruppboð
Föstudaginn 8. maí 1992 fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum
fasteignum:
Miðstræti 23, austurendi, Neskaupstað. Þingl. eig. Ásmundur Jóns-
son. Uppboðsbeiðendur eru: Byggingasjóður ríkisins, Lífeyrissjóður
Austurlands, Bæjarsjóður Neskaupstaðar og Ríkisútvarpið. Kl. 14.30
á skrifstofu embættisins, Miðstræti 18, Neskaupstað. Önnur og
sfðari sala.
Melagata 11, Neskaustað. Þingl. eig. Magni Kristjánsson. Uppboðs-
beiðendur eru: Atvinnutryggingasjóður útflutningsgreina, innheimtu-
maður ríkissjóðs, Lífeyrissjóöur byggingarmanna, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Byggingarsjóöur rfkisins. Kl. 14.00, á eigninni
sjálfri. Þriðja og síðasta sala.
Strandgata 62, Neskaupstað. Þingl. eig. Gylfi Gunnarsson og Ásdfs
Hannibalsdóttir. Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Neskaupstað-
ar, Landsbanki Islands, Trésmiðja Fljótsdalshéraðs, Póst- og sima-
málastofnun og innheimtumaöur ríkissjóð. Kl. 15.00, á eigninni
sjálfri. Þriðja og sfðasta sala.
Bæjarfógetinn i Neskaupstað.