Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992 1 Opní tilboðsmarkaðurinn: Fimm tilboð bár- ust á fyrsta degi FJÖGUR sölutilboð og eitt kauptilboð bárust í hlutabréf í fjórum félög- um á fyrsta degi viðskipta á Opna tilboðsmarkaðnum (OTM) sem hóf starfsemi í gær. ÖII tilboðin bárust frá Verðbréfamarkaði Fjárfestingar- félagsins. Um leið hættu verðbréfafyrirtækin eigin skráningu hluta- bréfa en þau eiga öll aðild að markaðnum. í gær bárust sölutilboð í hlutabréf bilinu 4,60-4,77. í Eignarhaldsfélagi Verslunarbank- ans, Skagstrendingi og Skeljungi en kauptílboð í hlutabréf í Eimskipa- félagi íslands. í bréf í Eignarhalds- félaginu barst sölutilboð að nafnverði 1300 þúsund á genginu 1,49 en síð- asta skráð gengi í félaginu var á bilinu 1,35-1,65. í bréf í Skagstrend- ingi bárust 2 sölutilboð, hvort að nafnverði 950 þúsund, á genginu 4,20 og 4,80. Síðasta skráð gengi var á bilinu 4,41-4,50. í bréf í Skelj- ungi barst sölutilboð að nafnverði 468 þúsund á genginu 4,60. Síðast skráða gengi var á bilinu 4,35-4,82. Þá barst kauptilboð í hlutabréf í Eim- skip að nafnverði 473 þúsund á geng- inu 4,40. Síðast skráða gengi var á Engin viðskipti áttu sér hins vegar stað á markaðnum í gær. Þau tilboð sem bárust eru birt í peningamark- aði Morgunblaðsins í dag en fram- vegis munu koma þar fram hagstæð- ustu tilboð á hveijum tíma í hluta- bréf einstakra félaga. Jafnframt verða birtar upplýsingar um síðustu viðskipti, upphæð allra viðskipta síð- asta viðskiptadags, lokaverð og breytingu á verði. Verðbréfaþing íslands annast rekstur Opna tilboðsmarkaðarins fyrir þingaðila en setur engar reglur um markaðinn eða hefur afskipti af honum að öðru leyti. Sjá peningamarkaðinn á bls. 26. Tillögur um vegteng- ingu yfir Skeijafjörð FJÓRAR hugmyndir um tengingu Reykjavikur og Bessastaðahrepps með brú yfir Skeijafjörð eða göngum undir fjörðinn komu fram í hugmyndasamkeppni um skipu- lag Bessastaðahrepps sem hrepps- nefndin, Skipulagsstjórn ríkisins og Bessastaðanefnd efndu til fyrir skömmu. Að sögn Sigurðar Vals Ásbjarn- arsonar sveitarstjóra var efnt til sam- keppninnar meðal arkitekta til að fá fram hugmyndir um landnotkun og skipulag á landi Bessastaða auk hug- mynda um uppbyggingu miðbæjar- kjarna í Bessastaðahreppi. „Niðurstöðurnar úr samkeppninni vöktu okkur til umhugsunar um nauðsyn þess að koma á nánara sam- starfi í skipulagsmálum meðal sveit- arfélaganna á höfuðborgarsvæðinu," segir Sigurður Valur. AIls bárust tólf tillögur í sam- keppnina og eru fjórar þeirra um vegtengingu yfir Skerjafjörð. Tvær hugmyndanna ganga út á að komið verði fyrir brú yst á Breiða- bólstaðareyrinni yfir á Suðurgötuna í Reykjavík. Þá er hugmynd um að brú komi yfir á Bessastaðanes og tengist annarri brú yfir í Engidal. Loks er hugmynd um að göng verði gerð undir Skerjafjörðinn. „Dómnefndin komst að þeirri nið- urstöðu að ef einhvem tíma yrði ráð- ist í þetta væri æskilegra fyrir sveit- arfélagið að brú yrði lögð yfír á Bessastaðanesið þannig að umferðin færi ekki í gegnum sveitarfélagið. Þetta er hins vegar framtíðarsýn en ekki hugmyndir sem verða að veru- leika á næstu árum,“ segir Sigurður Valur. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Frá slysstaðnum á Eyrarbakkavegi. Lögreglumenn kanna aðstæður. Bílvelta á Eyrarbakkavegi; Tveir menn alvarlega slasaðir Selfossi. TVEIR ungir menn slösuðust alvarlega þegar bifreið þeirra fór útaf Eyrarbakkavegi í gær- morgun. Þeir voru fluttir á Sjukrahús Suðurlands en þaðan með þyrlu til Reykjavíkur. Bifreiðin var á leið suður Eyrar- bakkaveg og fór útaf veginum vinstra megin, í aflíðandi beygju á móts við bæinn Stekka. Af ummerkjum er ljóst að bifreiðin hefur verið á nokkuð mikillí ferð og endastungist þegar hún lenti útaf. Ökumaður og farþegi köst- uðust út úr bflnum en hvorugur þeirra var í öryggisbelti. Ekki er ljóst hvað olli slysinu en bifreiðin er gjörónýt. Við útafaksturinn skarst hægri afturhjólbarðinn alveg af felgunni þannig að einungis hliðar hjól- barðans voru á henni en slitflötur barðans lá skammt frá bílnum. Sig. Jóns. Halldór Guðbjarnason, bankastjóri Landsbanka Islands: Overðtrygg’ðir vextir eftir að breyt- ast meira en þeir verðtryggðu HALLDÓR Guðbjarnason, banka- sljóri Landsbanka íslands, segir að bankinn muni efna það sem hann segi í yfirlýsingu um vaxta- mál sem gefin hafi verið í tengsl- um við gerð kjarasainninga. Fyrsta skrefið hafi verið stigið með breytingum á vöxtum verð- tryggðra og óverðtryggðra lána, en sjálfsagt eigi vextir á óverð- tryggðum lánum eftir að taka meiri breytingum en þeir verð- tryggðu og það verði auðvitað að sjá til hvað gerist á eftirmarkaði með vexti á ríkisskuldabréfum. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, segir að forsvarsmenn Landsbankans hafí sagt að staðið verði við yfirlýs- ingu bankans í tengslum við gerð kjarasamninga. Þess vegna sé eðli- legt að búast við vaxtabreytingum hjá bankanum á næsta vaxtabreyt- ingardegi sem sé 21. þessa mánaðar. Ásmundur Stefánsson, forseti Al- þýðusambands íslands, og Kjartan Gunnarsson, varaformaður banka- ráðs Landsbanka íslands, hittust í gær til að ræða efndir bankans á yfirlýsingu í tengslum við kjarasamn- inga. Ásmundur sagði að engin nið- urstaða hefði orðið af fundinum en farið hefði verið yfir málið og hann gert grein fyrir í hvaða atriðum þeir teldu bankann ekki hafa staðið við það sem fram kæmi í yfírlýsingunni. Kjartan Gunnarsson sagði að bank- inn myndi í einu og öllu standa við yfirlýsingu sína og telji sig hafa gert það. Gert er ráð fyrir að fulltrúar Landsbankans og váxtanefnd aðila vinnumarkaðarins hittist á fundi síð- ar í vikunni og bankaráðsfundur í Landsbankanum hefur. verið boðaður á fimmtudaginn kemur. Sjá ennfremur fréttir á miðopnu Kvikmyndin „Karlakórinn Hekla“: Kvikmyndasjóður Evr- ópu lánar 12,7 milljónir Kvikmyndasjóður Evrópu hefur ákveðið að lána 12,7 milljónir króna, eða 1,2 milljónir franskra franka, til kvikmyndar Guðnýjar Halldórsdóttur, Karlakórsins Heklu. Þessi ákvörðun var tekin á fundi sjóðsins í lok síðasta mánaðar þar sem veitt voru lán til 12 kvik- mynda og þriggja heimildarmynda. Halldór Þorgeirsson, framleiðandi milljónir íslenskra króna. Eftir er Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra: Fjórtánfaldur munur á tekjum hinna hæst og lægst launuðu JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagði við almennar stjórnmálaumræður á Alþingi í gærkvöldi að bilið á milli ríkra og fátækra á íslandi færi vaxandi. Ef borin væri saman dreifing atvinnutekna samkvæmt skattframtölum á árabilinu 1987-1990 kæmi í ljós að hlutur þess fimmtungs starfandi fólks á vinnumark- aði, sem hefðu hæstar tekjur, hefði verið tæp 44% en hlutur þess fimmtungs sem voru með lægstar tekjur hefði verið innan við 4%. Sagði hún ennfremur að samanburður á dreifingu atvinnutekna kvæntra karla á aldrinum 26-65 ára leiddi í Ijós fjórtánfaldan raun á tekjum þeirra hæst launuðu og hinna sem hefðu lægstar tekjur. Jóhanna sagði í ræðu sinni að reglur í þessari virðulegu stofnun í leiðara Morgunblaðsins hefði því verið haldið fram að bandarískt þjóðfélag væri að rotna innanfrá og þar væri þörf á miklum þjóðfé- lagsumbótum. Hún vildi ekki líkja íslensku þjóðfélagi við það banda- ríska en þegar borið væri saman bilið í tekju- og eignaskiptingu ríkra og fátækra, sem færi vax- andi, þá spyrði þjóðin hvort leik- Alþingi væru réttar og hvort við værum á sömu braut og Bandarík- in. Jóhanna spurði á hvaða leið við værum þegar ríkasta sveitarfélag landsins þyrfti að fara að úthluta matargjöfum til sveltandi gamal- menna, vegalausra unglinga og útigangsfólks. Vísbendingar um svarið mætti e.t.v. sjá þegar borin væri saman dreifing atvinnutekna á árabilinu 1987-1990. Athyglis- vert væri að sömu tilhneigingar gætti og í Bandaríkjunum. Hlutur þeirra tekjuhæstu hefði vaxið en hlutur lágtekju- og meðaltekju- fólks hefði minnkað. Félagsmálaráðherra sagði einnig að þessi munur væri enn meiri en fram kæmi í ofangreind- um tölum ef undandráttur frá skatti væri tekinn með í saman- burðinum. Ef notaður væri sami mælikvarði og notaður var við úttekt á skattsvikum árið 1985 mætti áætla að undandráttur frá skatti væri ekki undir 18 milljörð- um króna. Það væri hærri fjárhæð en allur tekjuskattur sem ein- staklingar og félög greiddu. myndarinnar, segir að hér sé um víkjandi lán að ræða og sem slíkt sé það ágæt búbót fyrir aðstandend- ur myndarinnar. „Þetta breytir tölu- verðu fyrir okkur því þessi lánveit- ing er á vissan hátt gæðastimpill fyrir myndina og auðveldar okkur frekari íjáröflun erlendis," segir Halldór. Samkvæmt upplýsingum Hall- dórs er áætlað að myndin kosti 124 að afla um 16-17% þeirrar upphæð- ar en Halldór segir að von sé til að það markmið náist fyrir 1. júlí nk. „Við erum með tvo möguleika er- lendis á að geta lokað dæminu fyrir tökur, annars vegar með forsölu og hins vegar með öðru víkjandi láni,“ segir Halldór. „Það væri skemmtileg tilbreyting ef við gætum fjármagnað myndina að fuliu áður en fram- leiðsia hennar hefst.“ Vísitala framfærslu lækkar um 0,1 prósent VÍSITALA framfærslukostnaðar lækkar um 0,1% í maí frá því sem hún var í aprílmánuði, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu ís- lands. Matvara og kostnaður vegna bifreiðar hækkar litilega en lækk- un fjármagnskostnaðar gerir meira en vega upp þær hækkanir. Matvörur hækkuðu um 0,3% frá vísitöluna um 0,06%. Á móti vóg apríl til maí sem þýðir 0,06% hækkun vísitölunnar og föt og skófatnaður hækkuðu einnig um 0,3% sem þýðir 0,02% hækkun vísitölunnar. Rekstr- arkostnaður eigin bfls hækkaði um 0,2% sem þýðir 0,04% hækkun og breyting á faststeignagjöldum þýddi 0,05% hækkun vísitölunnar, auk þess sem sem verðhækkun ýmissa ann- arra vöru- og þjónustuliða hækkaði 5,5% lækkun fjármagnskostnaðar sem olli um 0,31% lækkun á vísi- tölunni. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísi- tala framfærslukostnaðar hækkað um 5%. Undanfarna þijá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,06% sem jafngildir rúmlega 0,2% verð- bólgu á heilu ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.