Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 10
r
10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
FASTEIGNASALA
Suðurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reynsla - Öryggi
Hilmar Valdimarsson.
SÍMAR: 687828 OG 687808
Vantar eignir á skrá.
Skoðum og
verðmetum samdægurs.
Einbýli
ÁLFTANES
Vorum að fá í sölu glæsil. einbhús
v/Norðurtún. Húsið er 173 fm. Bílsk.
55 fm. 4 góð svefnherb. Vandaðar
innr. og gólfefni. Verð 14,3 millj.
Eignaskipti mögul.
LINDARBRAUT
Mjög gott einbhús á einni hæð. Hús-
ið er 145 fm auk 30 fm biómaskála.
Bílsk. 35 fm. Arinn í stofu. Parket.
Fallegur garður.
Raðhús
HRAUNBÆR
Mjög gott parhús á einni hæð.
137 fm. Nýtt parket. Bílskrétt-
ur. Skípti á góðri 3ja-4ra herb.
(b. koms til greina.
BREKKUBYGGÐ V. 8,5 M.
Vorum að fá í sölu raðhús á tveimur
hæðum, samt. 90 fm, auk bíisk.
4ra—6 herb.
HRÍSATEIGUR
Til sölu falleg 4ra herb. 80 fm íb. á
1. hæö í 4ra íb. húsi. Eign í mjög
góðu standi.
ENGIHJALLI
Til sölu 4ra herb. 107 fm íb. á 5. hæð
í lyftuh. Laus nú þegar.
UÓSHEIMAR
Til sölu mjög góð 4ra herb. endaíb.
á 7. hæð. Parket á stofu. Skipti á
minni eign mögul.
ESKIHLÍÐ
Vorum að fá í sölu góða 4ra-5 herb.
108 fm íb. á 3. hæð í fjölbhúsi.
ÁNALAND - 4RA
HERB. M. BÍLSKÚR
Vorum að fá i sölu stórgl. 108
fm íb. á 1. hæð með bílsk.
Arínn i stofu. Parket. Suðursv.
3ja herb.
ÁLFTAMÝRI
Vorum að fá í sölu góða 3ja herb.
endaíb. á 4. hæð. Suðursvalir. Áhv.
2,3 millj. húsnstjlán.
HLÍÐARHJALLI
Vorum að fá sí sölu glæsil. 3ja
herb. 85 fm fb. á 3. hæð. Stór-
ar suðursv. 25 fm bilsk. Áhv.
5,6 m. frd húsnstj.
GRUNDARGERÐI
Falleg 3ja herb. risib. Sérinng. V. 4,2 m.
2ja herb.
HLÍÐARHJALLI
Glæsil. 2ja herb. 60 fm íb. á 1. hæð.
Stórar suðursvalir.
Hilmar Valdimarsson,
Sigmundur Böðvarsson hdl.,
Brynjar Fransson, hs. 39558.
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
ir GBC-Skírteini/barmmerki
fyrir: félagasamtök, ráðstefnur,
starfsmenn fyrirtækja, o.m.fl.
Efni og tæki fyririiggjandi.
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
51500
Reykjavík
Úthlíð
Glæsil. ca 130 fm neðri sérhæð
auk bílsk. Áhv. byggsjóður ca
2.5 millj.
Vesturgata
Til sölu timbur einbhús á tveim-
ur hæðum ca 121 fm. Byggt
um aldamótin. Eignarlóð.
Maríubakki
Góð 3ja herb. íb. með sérherb.
í kjallara.
Hafnarfjörður
Öldugata
Gott timbureinbýlishús, kj.,
hæð og ris. Ekkert áhv.
Öldutún
Raðhús ca 150 fm auk bílsk. á
tveimur hæðum. Ekkert áhv.
Álfaskeið
Góð 4ra herb. rúml. 100 fm íb.
á 3. hæð auk bílsk. Áhv. ca 3,0
millj. Verð 7,6 millj.
Breiðvangur
Góð 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð.
Gott útsýni.
Blómvangur
Glæsil. efri sérh. í tvíbhúsi
ásamt bílsk.
Smyrlahraun
Gott eldra timbureinbh., ca 170
fm kj., hæð og ris. Verð 9,0 millj.
Hjallabraut
Góð 4ra-5 herb. ca 110 fm íb.
á 1. hæð.
Drangahraun
Höfum fengið til sölu gott iðn,-
og/eða versl.-/skrifsthúsn.,
382.5 fm. Fokhelt.
Einbýlishús óskast
í Hafnarfirði í skiptum fyrir efri
sérh. ásamt risi ca 140 fm.
Atvinnuhúsnæði
Vantar atvhúsnæði ca 1000-
1500 fm. Helmingur lagerpláss.
Vantar - vantar
Höfum kaupendur að 2ja, 3ja
og 4ra herb. íb. í Hafnarfirði.
Kópavogur - Álfabrekka
Gott einbhús á góðum stað á
tveimur hæðum ca 270 fm
þ.m.t. bílsk.
j Arni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hafn.,
símar 51500 og 51501.
1)4 4 cn 1)4 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjór:
L \ lvU“fclÖ/V KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.loggilturfasteignasali
Ný eígn á fasteignamarkaðnum
Við Kóngsbakka - mikið endurn.
4ra herb. íb. 93,6 fm nettó auk geymslu og sameignar. Nýtt parket.
Nýtt bað. Sér þvottahús. Sólsvalir. Góð sameign. Vinsæll staður.
Skammt frá Hótel Sögu
Mikið endurnýjuð 3ja herb. íb. tæpir 80 fm á 3. hæð. Sólsvalir. Ris-
herb. með snyrtingu fylgir. Stór geymsla í kj. Góð sameign.
Glæsileg íbúð - langtímalán
Ný og rúmgóð 2ja herb. íb. á 1. hæð við Næfurás 68,8 fm nettó.
Parket. Sólsvalir. Sérþvottahús. Ágæt sameign. Mikiö útsýni. 40 ára
húsnæðislán kr. 2,4 millj.
í Vesturborginni - hagkv. skipti
Nýleg og góð 3ja herb. íb. á vinsælum stað. Skipti möguleg á 2ia
herb. lítilli íb. á 1. eða 2. hæð.
í Háaleitishverfi eða nágrenni
Þurfum að útvega 4ra-6 herb. góða eign sem mest sér. Skipti mögu-
leg á mjög góðu einbhúsi af meðalstærö i Hafnarfiröi.
• 4
Lokað
kl. 12.00
vegna jarðarfarar. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
•• AtMENNA
l?é9oo FASTEIGNASALAN
Frumraun í hljóm-
sveitarsljórn
_________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Síðustu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands voru for-
vitnilegir fyrir tvennt. Þar kom
fram með hljómsveitinni ungur
íslenskur hljómsveitarstjóri, Orn
Óskarsson, og tékkneskur píanó-
leikari, Peter Máté, sem undanf-
arin tvö ár hefur starfað sem
tónlistarkennari á Stöðvarfirði og
Breiðdalsvík. Á efnisskránni voru
þijú verk; Á steppum Mið-Asíu
eftir Borodin, b-moll píanókon-
sertinn eftir Tsjajkovskíj og sin-
fónían „Frá nýja heiminum", eft-
ir Dvorák.
Tónaljóð Borodins er falleg
tónsmíð en gengur árekstrarlaust
fyrir sig og reyndi ekki mikið á
hæfni stjórnandans, sem þó mót-
aði þetta hugljúfa verk nokkuð
fallega. Hlutirnir fóru að taka á
sig mynd í píanókonsertinum eft-
ir Tsjajkovskíj, því píanóleikarinn
Peter Máté lék konsertinn af
glæsibrag. Það væri sannarlega
áhugavert að heyra þennan
ágæta píanóleikara enn frekar,
því bæði hefur hann góða tækni,
sem kom áþreifanlega fram í
píanókonsertinum og einnig, að
leikur hans var borinn upp af
músikölsku innsæi. Leikur Peter
Máté var sannarlega óvænt og
mjög svo ánægjuleg uppákoma.
Það sem í heild einkum ein-
kenndi stjórn Arnar Óskarssonar
Peter Máté
og þá ekki síst í konsertinum,
var varfærni og auk þess komu
fyrir einstaka smáslys, eins og
örstutt stopp í lok einnar kaden-
sunnar í fyrsta þætti píanókon-
sertsins, rétt eins og stjórnandinn
hafi um stund gleymt sér.
Það reyndi þó mest á stjórn-
hæfni Arnar í sinfóníunni eftir
Dvorák og þar var varfærnin of
ráðandi. í svona stórbrotnu
skáldverki er ekki nóg að stýra
takti og öðru varðandi leiktækni-
lega útfærslu, heldur þarf að
knýja fram skáldleg tilþrif hljóm-
sveitarmanna. Það er varla von
að ungur hljómsveitarstjóri sjái
Örn Óskarsson
út yfir það, sem er tæknilegt og
þar fór allt sæmilega fram í hönd-
um Arnar. Þó \mátti merkja að
slagið hjá honum væri á köflum
reikult, einkum í largo kaflanum,
þar sem samspil blásaranna riðl-
aðist nokkuð áberandi, sérstak-
lega í upphafi kaflans. Örn hefði
þurft að berja frá sér varfærnina
og stýra sínum mönnum fram á
ögurbrún áhættunnar, því þar
gerast hlutirnir en ekki í öryggi
áhættuleysisins. Nú hefur Öm
„slegið sinn fyrsta slag“ og allt
fór þekkilega fram en næst verð-
ur hann að hafa hrist af sér var-
færnisslikjuna og fínna sig í að
„stjórna“ sínum mönnum og
knýja þá til listrænnar og skáld-
legrar túlkunar, átaka við listina
sjálfa, sem er meginviðfangsefni
stjómandans og hlutverk hans
sem listamanns, því tæknikunn-
áttan er úrlausnarefni hljóðfæra-
leikaranna sjálfra.
Listahátíð á Seltjarnarnesi
Listahátíð í Seltjamarnes-
kirkju undir titlinum „Vorið og
sköpunarverkið“ var framhaldið
sl. sunnudag. Tónleikarnir hófust
á því að Sigrún V. Gestsdóttir
söng við gítarundirleik Einars
Kr. Einarssonar, sex enska „lútu-
söngva“ ogþijátrúbadorasöngva
frá 12. öld í útsetningu Ferenc
Farkas. Sigrún söng þessi fallegu
lög mjög vel og var ótrúlega
gott styrkleikajafnvægi í samleik
hennar og Einars. Ensku lögin
eru eftir Rosseter Johnson, Byrd
og Dowland og voru lögin eftir
Rosseter, What then is love but
mourning?, vögguvísa eftir Byrd
og það fræga lag Dowlands,
Come again, frábærlega vel
sungin, með látlausum hljómi,
sem féll einkar vel að ágætum
gítarleik Einars. Trúbadoralögin
voru flutt af þokka en hvorki
ágætlega útfært undirspilið eftir
Ferenc Farkas eða flutningur
Sigrúnar og Einars áttu mikið
skylt við upprunaleik þessara
verka. Þarna mátti heyra tilraun
til að færa lögin nær nútímanum
með margbrotinni hljómskipan
og kontrapunktisku raddferli,
sem menn kunnu fyrst á 16. og
jafnvel ekki fyrr en á 18. öld.
Guðmundur Magnússon píanó-
leikari lék tvö verk eftir Chopin,
Prelúdíu í As-dúr og polonesuna
frægu í As-dúr. Guðmundur er
góður píanóleikari en mikil
hljómgun kirkjunnar gerði leik
Guðmundar það loðinn, að undir-
ritaður naut þess lítt að heyra
bæði þessi skemmtilegu verk,
sem Guðmundur lék vel og af
öryggi.
Hólmfríður Þóroddsdóttir óbó-
leikari og Sólveig Anna Jónsdótt-
ir píanóleikari léku Adagio og
Allegro eftir Schumann. Hólm-
fríður er snjall óbóleikari og
merkileg nokk, þá hljómaði tónn
óbósins mjög vel. Hólmfríður lék
verkið fallega og sama má segja
um frammistöðu píanóleikarans,
þó hljómgun kirkjunnar gerði
henni nokkuð þungt fyrir.
Sigríður Hagalín leikari las
upp nokkur ljóð og þar á meðal
Söknuð eftir Jóhann Jónsson.
Ekki gerði yfirhljómgun kirkj-
unnar það létt verk fyrir Sigríði,
að ná til áheyrenda. Tónleikunum
lauk með tónflutningi tveggja
nemenda en það voru Rúnar Ösk-
arsson, er lék klarinettueinleikinn
úr „Kvartett um endalok tímans“
eftir Messiaen og Þóra Einars-
dóttir, er söng tvær aríur úr
Messiasi eftir Handel. Með Þóru
léku Hólmfríður Þóroddsdóttir á
óbó, Jón Stefánsson á orgel og
Stefán Arnarson á selló og var
samleikur þeirra ágætur. Það
verður ekki annað sagt en að
Rúnar og Þóra, sem munu ljúka
8. stigi næstu daga, séu bráðefni-
legir nemendur.
Enn um La Bohéme
Tíð mannaskipti hafa orðið í
La Bohéme eftir Puccini og nú
síðast bættust í hópinn Sigurður
Bragason í hlutverk Marcell og
Stefán Arngrímsson sem Colline.
Um aðra í sýningunni hefur ver-
ið Qallað og fáu þar við að bæta,
nema að sýningin í heild hefur
liðkast og öryggi söngvara sí-
fellt aukist. Sigurvegarinn á
tveimur síðustu sýningunum sem
undirritaður fór á, var tvímæla-
laust Ólafur Árni Bjarnason, sem
bætti verulega við sig á seinni
sýningunni og söng meðal ann-
ars fyrstu aríuna „Che gelida
manina“ alveg ótrúlega vel. Þá
var Inga Backman einnig mjög
góð og söngur hennar í þriðja
þætti glæsilegur.
Nýgræðingarnir í seinni sýn-
ingunni voru Sigurður Bragason
og Stefán Arngrímsson. Hvað
leik snertir er þeir bundnir upp-
setningunni og fara mjög svipað
að og fyrri söngvarar, þó auðvit-
að sé þar á nokkur blæmunur.
Það sem einkum er aðfínnslu-
vert, er söngmáti þeirra félaga.
Hjá báðum er tónninn ofdekkað-
ur, með þvingaða hljómlegu og
innilokaður, er olli því t.d. að
þeir „drifu illa í gegn“ í sam-
söngsatriðunum.
Ekki verður þó sagt að rödd
Sigurðar sé hljómlítil, því annar
framlægari og sterkari tónn
heyrðist, er hann beitti talrödd-
inni (Parlando) í rifrildisatriðun-
um á móti Musettu í þriðja þætti.
Stefán söng „frakkaaríuna“ fal-
lega og af innileik, sem á vel við
þessa sérstæðu aríu. Þrátt fyrir
að báðir sungu af öryggi og að
Ólafur Árni Bjarnason
leikur þeirra var hnökralaus, var
frammistaða þeirra í heild vart
meira en þokkaleg.