Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992 21 Sólarflug mun fljúga með Sterl- ing Airways FLUGFERÐIR-Sólarflug hf. hef- ur samið við danska leiguflugfé- lagið Sterling Ariways um flug fyrir farþega sína í sumar. Guðni Þórðarsson hjá Sólarflug segir að Sterling hafi boðist til að taka að sér allt það flug sem Sólarflug þurfi á að halda og þeir séu mjög ánægðir með þann samning sem gerður hefur verið. Vegna samningsins við Sterling mun ferðatilhögun farþega Sólar- flugs til og frá Kaupmannahöfn breytast þannig að frá Islandi verð- ur flogið klukkan 15 að degi til í stað klukkan 7 að morgni en sömu brottfarartímar eru á ferðum frá Kaupamannahöfn og áður var aug- lýst. Guðni Þórðarson segir að þeir vonist til að um næstu mánaðarmót verði komnir á sömu brottfarar- tímar og upphaflega voru áætlaðir. Sterling mun nota Boeing 727-200 vél í þetta flug og segir Guðni að þeor séu ánægðir með þá tilhögun. Það hafi einnig komið þeim á óvart að flugfélagið átti lausa vél handa þeim á föstudögum i allt sumar en þann dag er yfir- leitt er mest að gera hjá leiguflugfé- lögum. Höfundar og flytjendurnir sem fram koma á Púlsinum í kvöld á jass og ljóðadagskránni: I þorpi drottningar englanna. RÚREK ’92: Jass og ljóð frá Los Angeles „í ÞORPI drottningar englanna" nefnist jass- og ljóðadagskrá sem flutt verður á Púlsinum í kvöld sem hluti af Rúrek jasshátíðinni. Það er Stefán S. Stefánsson sem samið hefur tónlistina við sam- Siglinga- málastofnun: Kvótalögin hvetji til nefndan Ijóðabálk eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. Flytjendur verksins auk höfund- anna eru allir í fremstu röð íslenskra jassara; söngkonan Ellen Kristjáns- dóttir og hljóðfæraleikararnir Arni Scheving, Gunnar Hrafnsson og Matthías Hemstock. Ljóðin orti Sveinbjörn í Los Ang- eles þar sem hann bjó um fímm ára skeið, og fjalia þau um lífsmynstrið í stórborginni, andstæðurnar sem þar mætast og ólguna sem þar til nú nýverið kraumaði undir glitrandi yf- irborðinu. Segja má að tónlistin endurspegli allt þetta og skjóti auk þess öngum út og suður um allt jass- kortið, segir í fréttatilkynningu frá RÚREK. Listskreytta skjalið sem Halldór Laxness fékk frá páfa Páfi sendi Halldóri Lax- ness afmæliskveðju I TILEFNI af níræðisafmæli Halldórs Laxness fyrir skömmu bár- ust skáldinu fjölmargar heillaóskir og kveðjur víðs vegar úr. heim- inum. Flestar útlendu heillaóskirnar frá einu landi bárust frá Þýskalandi en þar hafa bækur skáldsins verið gefnar út oftar en annars staðar erlendis. Meðal annars bárust skáldinu kveðjur frá forseta Þýskalands, Ricliard von Weitzacker. Þá bárust afmælis- kveðjur frá páfagarði. Frá Jóhannesi Páli páfa II fékk Halldór Laxness skrautskrifað listskreytt skjal í tilefni afmælis- ins. Á skjalinu var áletrun sem hljóðar svo í íslenskri þýðinu: „Hans heilagleiki Jóhannes Páll páfi II sendir Halldóri Kiljan Lax- ness níræðum, 23. apríl 1992, sína postullegu blessun og fyrirheit um guðlega náð og miskunn." Halldór Laxness var skírður til kaþólskrar trúar 6. janúar 1923 í klaustrinu Saint Maurice de Clerv- aux og í stað nafnsins Halldór Guðjónsson tók hann við það til- efni upp dýrlingsnafnið Kiljan og ættamafnið Laxness. Um dvöl sína í klaustrinu fjallar hann í bók sinni Dagar hjá múnk- um sem gefin var út 1987 en upþistaða þeirrar bókar er dagbók sem hann hélt í klaustrinu 1923. veiða í öll- um veðrum PÁLL Hjartarsson siglingamála- stjóri segir að núgildandi lög um stjórnun fiskveiða hvelji smábáta- eigendur til veiða í öllum veðrum í því skyni að afla sér kvót- réttinda. Honum finnst ekki óeðli- legt að sjávarútvegsráðuneytið sé hvatt til að breyta lögum um sljórnun fiskveiða í ljósi reynsl- unnar, en óhöppum smábáta hefur fjölgað að undanförnu. Páll sagði að menn hefðu lesið út úr núgildandi lögum að hafa mætti allar klær úti til að ná í kvóta- réttindi. „Það segir hins vegar ekki að menn eigi að fara ógætilega. Þannig er það alltaf mat hvers sjó- manns hvort veður er til að róa eða ekki,“ sagði hann. Aðspurður sagði Páll að eflaust væri hægt að draga úr þessari til- hneigingu manna ef kvótalögunum yrði breytt. Honum fyndist ekki óeðlilegt að hagsmunaaðilar beindu þeim tilmælum til sjávarútvegs- ráðuneytisins með tilliti til fenginnar reynslu. ------♦"♦--«----- Sigrún söng við góðar undir tektir í London „ÞETTA gekk vonum framar,“ segir Sigrún Hjálmtýsdóttir, söng- kona, um tónleika sína í St. John’s Smith Squire-tónleikahúsinu í London 5. mai. Sigrún segir að undirtektir hafi verið mjög góðar. Áheyrendur hafi verið á fjórða hundrað á tónleikunum, sem sé mjög gott þar sem hún sé alveg óþekkt. Sigrún söng í London við undirleik Krystynu Cortes. Á efnisskránni voru óperuaríur, ítölsk og íslensk lög. Segir Sigrún að íslensku lögin hafi vakið sérstaka hrifningu. Sigrún segist ekki hafa séð neina dóma um tónleikana en fyrir sig séu það undirtektirnar á tónleikunum sem séu bestu verðlaunin. Þá hafi allt skipulag verið til sóma en Jakob Magnússon hafði veg og vanda af því. Sigrún segir að eftir tónleikana hafi umboðsmenn haft samband við sig og viljað skipuleggja prufusöng við óperuhús. Tíminn hafi hins vegar verið svo knappur að hún þurfi að fara áftur til þess að fylgja þessu eftir. 100 NYIR BILAR A SERTILBODI SKODA FAVORIT1092 - SKEMMTILEGA ODYR <D SHO Ofl Skoda Favorit er glæsilegasti og vandað- asti bíll sem Skoda-verksmiöjurnar hafa framleitt til þessa. Nú eiga Þjóðverjar hlut í verksmiðjunum enda ber bíllinn þess greinileg merki; Skoda hefur öðlast mun evrópskara yfirbragð og eiginleika en áður. Þrátt fyrir það færðu nýjan Skoda Favorit á sama verði og gamall, notaður bíll fæst á, eða frá aðeins 498.500,- krónum. Það eru góð og skynsamleg kaup í nýjum og glæsi- legum Skoda Favorit. Ef þú ert í bílahug- leiöingum skaltu skoða Skoda Favorit, - áður en þú gerir nokkuð annað. JÖFUR NÝBÝLAVEGI 2 • SIMI 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.