Morgunblaðið - 12.05.1992, Page 16

Morgunblaðið - 12.05.1992, Page 16
I 16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1992 Hátækniiðnaður á íslandi II Rannsók nasj óður hefur tap- að þriðjungi raungildisins eftir Pál Theodórsson Þörf fyrir nýsköpun í íslensku atvinnulífi er brýn um þessar mundir. En hve frjór er jarðvegur- inn? Er stutt skipulega við við- leitni til að skapa nýjar atvinnu- greinar? í fyrri grein minni sagði ég frá samtali við ungan íslenskan hugvitsmann, rafmagnsverkfræð- ing, sem vill nú snúa heim eftir framhaldsnám erlendis og nokk- urra ára starf þar. Mál hans lýsir vel erfíðleikum á að nýta hugvit til nýsköpunar í hátækni á ís- landi. Ég vil því rekja sögu hans frekar. Hann lýsti fyrir mér snjallri hugmynd sem hann hefur unnið að á eigin vegum um nokkum tíma. Hann er að hanna tæki sem mikil þörf er fyrir í ýmsum fram- leiðslugreinum, en þar eru vaxandi kröfur um gæðaeftirlit. Hann vill nú reyna að fullþróa tækið á Is- landi og framleiða það þar, en stór hluti framleiðslunnar færi til út- flutnings. íslenskt atvinnulíf hefur nú mikla þörf fyrir nýjar framleiðslu- greinar, ekki síst greinar sem byggjast á vinnu og hugviti ungs fólks sem hefur verið að snúa heim frá námi og störfum erlendis síð- ustu ár. Þar sem hugmynd kunningja míns er snjöll mætti ætla að auðvelt verði að fá stuðn- ing við þróunarstarfíð. Helst væri að leita til Rannsóknasjóðs rann- sóknaráðs ríkisins, en hlutverk sjóðsins er einmitt að styðja við þróunarverkefni sem geta leitt til nýrrar framleiðslu á íslandi. Kunn- ingi minn hafði spurt hvort þessi sjóður hefði ekki verið efldur nú Fjárveitingar til Rannsóknasjóðs 1985-1992 Verðlag fjárlagafrumvarps 1992 þegar þörfin fyrir nýsköpun væri meiri en síðustu ár, bæði vegna þess að fyrirsjáanlegt er að afla- kvótar munu varla stækka.á næstu árum og nokkur bið verður á því að raforka verði notuð í auknum mæli í stóriðju. Ég hafði því í síð- asta spjalli okkar lofað að afla mér þessara upplýsinga til að sýna honum. Áður en ég ræði fjárhagsstöu Rannsóknasjóðs vil ég fjalla nokk- uð um möguleika á sviði nýrrar tækni tii nýsköpunar í íslensku atvinnulífí, möguleika sem byggj- ast fyrst og fremst á hugviti ungra karla og kvenna sem hafa lokið námi í háskólum, á íslandi og er- lendis. Að loknu námi, oft við ýmsa bestu háskóla heims, hefur fjöldi þessa fólks síðan aukið við þekkingu sína og reynslu með nokkurra ára starfí í sérgrein sinni erlendis. Þessi þekking er auðlind, dýrkeypt auðlind sem hefur vaxið ört á síðustu árum í kjölfar efling- ar framhaldsskóla og skóla á há- skólastigi á Islandi á síðustu tveimur áratugum og með eflingu Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hvers vegna hefur þjóðfélagið eflt skólana og stutt nemendur til náms? Til að einstaklingar geti svalað fróðleiksþorsta sínum eða vill þjóðin með þessu leggja grund- völl að traustara og íjölbreyttara og laugardagskvöld: sýningar á heimsmælikvarða Staður lifandi tónlistar jjQTEii S s.687111 30-60-120-266-300 lítra. Ryifrítt stál - Blöndunarloki. áratuga góð reyosla. Elnar Farestveit&CoJif BORGARTÚNI28, SÍMI622901 4 stoppar vW dyraar Páll Theodórsson „Miðað við vaxandi þörf er raungildi sjóðsins nú trúlega aðeins þriðj- ungur af uppliaflegu verðgildi hans.“ atvinnulífí? Ég efast ekki um að svar unga fólksins, sem hefur lagt á sig miklar skuldabyrðar (þótt sumir telji þær reyndar of léttar) og varið til þess nokkrum bestu árum ævi sinnar, sé að allt þetta sé gert til að nýta menntunina í þjóðfélagi sem í vaxandi mæli þarfnast nýrrar þekkingar. Hér vil ég ræða um þá sem hafa stundað nám í vísinda- og tæknigreinum. Vandi þeirra er að menntunin tekur mið af þörfum iðnaðarþjóða með fjölbreytilegan og háþróaðan iðnað. Þar er beðið eftir fólki með þessa menntun. Á íslandi þarf að byggja upp nýjar atvinnugreinar, sem byggjast á margvíslegri nútímaþekkingu. Sé ekki unnið skipulega að uppbygg- ingu þessara greina er mikil hætta á að sú mikla auðlind, sem felst í þekkingu unga fólksins, nýtist að takmörkuðu leyti. Rannsókna- sjóður rannsóknaráðs gegnir þar mikilvægu hlutverki. Nú kem ég að spumingu hug- vitsmannsins sem vonar að honum gefíst tækifæri til að koma upp- /’/■/■'/:/:/:/:i \ HITAKUTAR ELFA-OSO fínningu sinni í framleiðslu á ís- landi: Hefur Rannsóknasjóður rannsóknaráðs ekki verið efldur síðustu misseri þegar sívaxandi þörf hefur verið fyrir fjölbreyttara atvinnulíf? Árlegt framlag rikisins til sjóðsins er sýnt á meðfylgjandi stöplariti. Hann hefur ekki verið efldur, framlag hans á fjárlögum er að raungildi minna nú en í fyrra. og hefur tapað þriðjungi af verð- gildi sínu frá því hann var stofnað- ur fyrir sjö árum. Þó hefur um- sóknum til sjóðsins fjölgað mjög. Miðað við vaxandi þörf er raun- gildi sjóðsins nú trúlega aðeins þriðjungur af upphaflegu verðgildi hans. Þegar hugvitsmaðurinn sá þessa mynd stundi hann og sagði eftir dálitla stund, en nokkurs efa gætti í röddinni: Kannski get ég þrátt fyrir erfiða stöðu sjóðsins fengið nægilegan styrk frá honum. Ég rek samræð- ur okkar ekki lengra hér, en læt það bíða næstu greinar. Höfundur er eðlisfræðingw og starfar við Raunvísindastofnun Háskólans. I SUMARBUSTAÐINN Sturtuklefi 80*80 meö stöng, barkaúðara og sápuskál Verð aðeins kr. Æk 44.990,- arma M s Skeifunni 8, Reykjavík ÍP682466 OTRULEGTen satt 25% OPNUNARTILBOÐ gegn afhendingu þessa miða KAPUSALAN, Snorrabraut 56 hjó Herraríki, Sími 624362 WQ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.