Morgunblaðið - 12.05.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1992
17
Kvennahlaup - til hvers?
eftir Lovísu
Einarsdóttur
Kvennahlaup ÍSÍ hefur farið
fram tvö síðustu árin. í bæði skipt-
in tókst það með miklum ágætum
og vakti mikla athygli. Tilgangur
og tilhögun hlaupsins hefur höfðað
til kvenna. Mest hefur þátttakan
verið í hlaupinu í Garðabæ en víða
um land var þátttaka einnig góð
og vonum framar.
Þriðja Kvennahlaupið verður
haldið 20. júní nk. Ef að líkum
lætur munu konur fjölmenna í
hlaupið. í Garðabæ hefur hlaupið
verið undirbúið af sérstakri nefnd.
Hún hefur ákveðið að bæta einni
vegalengd við þannig að nú geta
konur spreytt sig á þremur vega-
lengdum, 2 km, 5 km og 7 km.
Lengsta vegalengdin er sérstak-
lega ætluð þeim konum sem lengra
eru komnar í þjálfun sinni. Hægt
er að velja um göngu, skokk eða
hlaup. Æfingar eru þegar hafnar
og fara þær fram við íþróttamið-
stöðina Asgarð á laugardögum kl.
10. Þessum æfmgum stjórna
reyndir íþróttakennarar. Allar kon-
ur eru boðnar velkomnar á æfing-
arnar.
Utan höfuðborgarsvæðisins
verður Kvennahlaupið haldið á
a.m.k. 17 stöðum.
Tilgangurinn
Tilgangurinn með Kvennahlaup-
inu er að örva konur til þátttöku
í íþróttum, hvetja þær til þess að
stunda. reglubundna líkamsrækt
sér til heilsubótar og ánægju. Til-
gangurinn er einnig sá að hvetja
konur til að starfa að íþróttamáium
og vinna að framgangi kvenna-
íþrótta; í þeim efnum er úrbóta
þörf. Ahrifa kvenna innan íþrótt-
anna í landinu gætir ekki nægjan-
lega, þau eru í engu samræmi við
þann mikla fjölda kvenna sem
stundar íþróttir. Það er líka um-
hugsunarvert fyrir forystu íþrótta-
hreyfingarinnar að hundruð eða
jafnvel þúsundir kvenna stunda
einhvers konar líkamsrækt utan
íþróttasamtaka.
Karlar ráða ferðinni
Áhrif kvenna í íþróttahreyfing-
unni hafa verið alltof lítil og eru
það enn. Konur eru þó um
þriðjungur þeirra sem stunda
íþróttir innan íþróttasamtaka. Það
er vissulega fagnaðarefni að kon-
KVENNAHLAUP
GARDABÆR
um hefur fjölgað í ábyrgðarstöðum
í íþróttahreyfingunni á undanförn-
um árum en þær eru of fáar. Á
flestum sviðum eru það karlar sem
ráða ferðinni. Þeir koma sér í
helstu áhrifastöður og sitja þar
sem fastast. í valdamestu stofnun-
'um íþróttahreyfingarinnar virðast
konur ekki eiga neitt erindi, ekki
að mati karlanna. Hér nægir að
benda á nokkur dæmi. Engin kona
hefur til þessa^ átt sæti í fram-
kvæmdanefnd Ólympíunefndar ís-
lands, ekki heldur í íþróttanefnd
ríkisins í öll þau 50 ár sem hún
hefur starfað. Engin kona hefur
setið í stjórn Afreksmannasjóðs ÍSÍ
né í stjórnarnefnd íslenskrar get-
spár (Lottó) og íslenskra getrauna.
Oft hefur verið á það bent hversu
hlutur kvenna í umfjöllun fjölmiðla
um íþróttir er fyrir borð borinn. í
nýlegri könnun íjölmiðlanefndar
ÍSÍ kom fram að konur fá aðeins
um 10% umfjöllun af auglýstu
íþróttaefni dagblaða og ljósvak-
amiðla. Þó eru íþróttaafrek ís-
lenskra kvenna virkilega þess virði
að um þau sé fjallað og þau metin
að verðleikum. í því sambandi má
minna á sundafrek Ragnheiðar
Runólfsdóttur og athyglisverða
frammistöðu kvennaliða í hand-
knattleik að undanförnu.
Einnig hefur verið á það bent
að innan íþróttasamtakanna sitja
konur ekki við sama borð og karl-
ar. Stúlkur fá færri æfingatíma
hjá íþróttafélögum en piltar auk
þess sem vitað er að kaflaflokkar
ganga yfirleitt fyrir en konurnar
látnar mæta afgangi.
Breytinga er þörf
Þessu þarf að breyta og fyrir
því þurfa konur að beijast. Það er
einfaldlega jafnréttismál. í ágætu
viðtali við Erlu Rafnsdóttur þjálf-
ara kvennalandsliðsins í hand-
knattleik, í Morgunblaðinu nýver-
ið, sagði Erla að „kvenfólk næði
ekki langt í íþróttum nema konur
stæðu vörð um þær. Það gerðu þær
best með því að starfa fyrir félög-
Lovísa Einarsdóttir
„Yonandi verður þátt-
takan í þriðja Kvenna-
hlaupinu meiri en í hin-
um tveimur. Með því
sýna konur samtaka-
mátt sinn og vilja til að
efla íþróttaiðkun og lík-
amsrækt meðal kvenna
í landinu öllu. Stöndum
saman! Hvetjum hver
aðra til þátttöku!
Anægjuleg dagstund er
framundan þegar við
hittumst í Kvenna-
hlaupinu.“
in, sækjast eftir stjórnarstörf-
um .. .“ Þessi orð Erlu ættu sem
flestar konur að taka til sín og
láta hendur standa fram úr ermum.
Ef konur ætla sér meiri áhrif innan
íþróttahreyfingarinnar og efla
íþróttaiðkun kvenna verða þær
sjálfar að láta meira að sér kveða.
Konurnar í Garðabæ, sem standa
að baki meistaraflokki kvenna í
handknattleik hjá Stjörnunni, eru
lýsandi dæmi um hvað hægt er að
gera ef viljinn er fyrir hendi.
Alþjóðleg barátta
Það er ekki bara á íslandi sem
konur í íþróttum eiga á brattan
að sækja. I flestum nálægum lönd-
um er ástandið ekki betra þrátt
fyrir að konur hafi í þeim löndum
reynt að efla íþróttir kvenna og
auka áhrif þeirra í íþróttasamtök-
um. Hin síðari ár hafa konur tekið
upp alþjóðlega samvinnu til þess
að stuðla að framgangi kvenna í
íþróttum. Þessi samvinna hefur
borið ávöxt. Á vegum Evrópuráðs-
ins starfar nefnd um konur og
íþróttir. Nefndin hefur m.a. hvatt
til þess að íþróttasamtök stefni að
því að ákvörðunartaka og fram-
kvæmd innan samtakanna sé bæði
í höndum karla og kvenna, að
íþróttasamtök leiti leiða til að
fjölga konum í framkvæmda- og
ábyrgðastöðum.
Umbótanefnd ÍSÍ
í alþjóðlegu samstarfi um íþrótt-
ir hafa konur á Norðurlöndum lát-
ið verulega að sér kveða. Barátta
þeirra hefur haft sín áhrif hér á
landi. Framganga þeirra varð m.a.
til þess að á íþróttaþingi ÍSÍ árið
1990 var samþykkt að setja á lagg-
irnar nefnd til að vinna að aukinni
þátttöku kvenna í íþróttastarfi.
Þessi nefnd hefur nú starfað í tæp
tvö ár og tekið á mörgum málum.
T.d. hefur hún haldið leiðtoganám-
skeið og ráðstefnur um ýmsa þætti
íþrótta kvenna og jafnframt tekið
þátt í alþjóðlegu samstarfi. Nefnd-
in hefur því miður ekki enn getað
ráðið sér starfsmann og fjármagn
hennar er af skornum skammti. í
nefndinni sitja hins vegar dugmikl-
ar konur og má því mikils af henni
vænta. Nefndin vinnur nú að nor-
rænu samstarfsverkefni sem ber
titilinn: íþróttaleiðtogar- 10. ára-
tugarins eru einnig konur.
I haust verður ráðstefna haldin
í Kaupmannahöfn um þetta verk-
efni og þar munu Islendingar
leggja sitt af mörkum.
Mikilvægur stuðningur
frá þingkonum
Seint á síðasta ári lögðu 14
konur á Alþingi úr öllum stjórn-
málaflokkum fram eftirfarandi
þingsályktunartillögu: „Alþingi
ályktar að fela ríkisstjórninni að
beita sér fyrir því að gert verði
átak tiþ að efla íþróttaiðkun
kvenna. Áhersla verði lögð á mikil-
vægi íþrótta i líkamlegu og félags-
legu uppeldi og sem fyrirbyggjandi
aðferðir til að bæta heilsu og
vinnuþrek. Fjárframlög ríkisins til
íþrótta skulu veitt með það að
markmiði að gera íþróttaiðkun
kvenna og karla jafnhátt undir
höfði.“
Þessari tillögu ber að fagna og
ekki síður því að allar konur á
Alþingi íslendinga skuli sameinast
um að leggja þessum málum lið
með þessum skýra hætti. Vonandi
hafa þingmenn þrek og þor til að
veita tillögunni brautargengi. Það
væri kvennaíþróttum á Islandi
ómetanlegur stuðningur.
Mætum 20. júní!
Vonandi verður þátttakan í
þriðja Kvennahlaupinu meiri en í
hinum tveimur. Með því sýna kon-
ur samtakamátt sinn og vilja til
að efla íþróttaiðkun og líkamsrækt
meðal kvenna í landinu öllu. Stönd-
um saman! Hvetjum hver aðra til
þátttöku! Ánægjuleg dagstund er
framundan þegar við hittumst í
Kvennahlaupinu.
Höfundur er íþróttakennari og &
sæti í framkvæmdanefnd ÍSÍ.
Aðalfundur
Stjórnunarfélags
Islands
Aðalfundur Stjórnunarfélags íslands
verður haldinn á Hótel Sögu í
Ársal fimmtudaginn 14. maí
kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. „Nýsköpun í atvinnurekstri.“
Markús Örn Antonsson, borgarstjóri.
Boðið verður upp á iéttar veitingar
að fundi loknum.
Þátttaka tilkynnist í síma 621066
Fundarstjóri: Geir Magnússon,
forstjóri Olíufélagsins hf.
b A P F A b I N
SP^ JFwl m m. m II8®* I . m
FRÁ MÚLALUNDt FYRIR RÁDSTEFNUR,
NÁMSKEIÐ OG FUNDI.
Stendur fyrir dyrum ráSstefna,námskeiS eSa fundur?
Fundarmöppurnar og barmmerkin (nafnmerkin) frá
Múlalundi eru einstakt þarfaþing sem auSvelda skipulag
og auka þægindi og árangur þátttakenda. Allar gerðir,
margar stærSir, úrval lita og áletranir aS (oinni ósk!
HafSu samband vi& sölumenn okkar í síma 68 84 76
e&a 68 84 59.
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS - Hátúni 10c - Símar: 68 84 76 og 68 84 59.
Morgunblaðið/Pétur Þorsteinsson
Hópurinn í samfélagseflingu í sal gamla skála.
Vorskólamót í Vatnaskógi
V ORSKÓL AMÓT Kristilegra
skólasamtaka var haldið í Vatna-
skógi um bænadagana. Voru
þátttakendur alls um 70 og var
yfirskrift mótsins „Jesús, hvað
get ég þér gefið“.
Dagskrá mótsins var hefðbundin,
biblíulestrar á morgnana, messa á
skírdagskvöld í umsjón skólaprests,
Guðna Gunnarssonar, og vitnis-
burðastund á föstudagskvöldið.
Uppfræðendur á mótinu voru Helgi
Gíslason, Skúli Svavarsson og Sig-
ríður Scram.
Kristileg skólasamtök eru með
samkomur laugardagskvöld kl.
20.30 í sal Kristniboðssambandsins
á Háaleitisbraut 58. Formaður
skólasamtakanna er Áslaug Una-
dóttir nemi.
- P.Þ.