Morgunblaðið - 12.05.1992, Side 18
18
pj t/■ m r! möfiwn/im oiíTA.tnwuoíiof/í
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
Iþróttamót Gusts:
íris Björk sló þeim
eldri við í töltinu
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Jón Gísli Þorkelsson var atkvæðamikill að þessu sinni og hér
innsiglar hann sigur sinn í fimmgangi á Mekki.
Sandra Karlsdóttir sigraði í tölti og fjórgangi bama á Júníor.
_________Hestar______________
Valdimar Kristinsson
ÍRIS Björk Hafsteinsdóttir sem
keppti í ungmennaflokki á
tveggja daga íþróttamóti Gusts
í Kópavogi skaut þeim eldri ref
fyrir rass i töltkeppninni er hún
hlaut flest stig allra keppenda
í greininni. Keppti hún á hryss-
unni Gleði og hlutu þær 83,73
stig. Þá náði Jón Gisli Þorkels-
son ágætum árangri í fimm-
gangi er hann hlaut 61,20 stig
á hestinum Mekki.
Úrslit urðu annars sem hér seg-
ir
Fullorðinsflokkur
Tölt
1. Friðfinnur Hilmarsson á Stíg-
anda 82,93.
2. Jón Gísli Þorkelsson á Bijáni,
72,27.
3. Guðríður Gunnarsdóttir á
Flóka, 74,67.
Fjórgangur
1. Sigutjón Gylfason á Adam
45,39.
2. Friðfinnur Hilmarsson á Stíg-
anda 44,20.
3. Guðríður Gunnarsdóttir Flóka
43,35.
Fimmgangur
1. Jón Gísli Þorkelsson á Mekki,
61,20.
2. Halldór Gísli Guðnason á Funa,
46,40.
3. Baltasar K. Baltasarson á Grími
44,60.
Gæðingaskeið
1. Jón Gísli Þorkelsson á Mekki,
69.
2. Siguijón Gylfason á Gnýfara
61,5.
3. Halldór Gísli Guðnason 59.
Hlýðni B
1. Jón Gsli Þorkelsson á Stíganda,
41.
2. Erla Guðný Gylfadóttir á Eitli.
Hindrun
1. Jón Gísli Þorkelsson á Stíg-
anda, 16.
íslensk tvíkeppni
Friðfínnur Hilmarsson á Stíg-
anda, 127,13.
Ólympísk tvíkeppni
Jón Gísli Þorkelsson á Stíganda,
57.
Skeiðtvikeppni
Jón Gísli Þorkelsson á Mekki,
130,20.
Stigahæsti keppandi
Jón Gísli Þorkelsson, 25,47.
U ngmennafl okkur
Tölt
1. íris Björk Hafsteinsdóttir á
Gleði, 83,73.
2. Halldór Victorsson á Straumi,
73,33.
3. Magnús Magnússon á Reyni,
68,27.
Fjórgangur
1. Halldór Victorsson á Nökkva,
40,46.
2. Magnús Magnússon á Reyni,
40,80.
3. Magnús Ólafsson á Svali,
41,65.
Fimmgangur
1. Halldór Victorsson á Straumi,
44.80.
2. Magnús Ólafsson á Jörp, 26,60.
íslensk tvíkeppni
íris Björk Hafsteinsdóttir á Gleði,
121,64.
Halldór Victorsson, 158,59.
Unglingaflokkur
Tölt
1. Sigurður Sigurðsson á Degi,
67,47.
2. Victor Victorsson á Snúði,
68.80.
3. Haukur Guðmundsson á
Slqóna, 53,07.
Fjórgangur
1. Victor Victorsson á Snúði,
35,20.
2. Karl Sigfússon á Drafnari,
35,70.
3. Haukur Guðmundsson á
Skjóna, 28,22.
íslensk tvíkeppni
Victor Victorsson á Snúði, 103,82.
Barnaflokkur
Tölt
1. Sandra Karlsdóttir á Júníor,
67,47.
2. Ásta Dögg Bjamadóttir á Sí-
fani, 61,07.
3. Sigríður Þorsteinsdóttir á
Brimli, 58,67. Sama röð keppenda
varð í fjórgangi.
Islensk tvíkeppni
Sandra Karlsdóttir á Júníor.
Það virðist orðin lenska að
sleppa fæðingarstað keppnis-
hrossa á mörgum smærri hesta-
mótum og þá sérstaklega íþrótta-
mótum. Er ástæða til að hvetja
forráðamenn móta til að hafa
fæðingarstað hrossanna með
þannig að lesendur hafí möguleika
á að glöggva sig á hver hrossin
eru. Nafn hestsins eða hryssunnar
eitt og sér segir manni lítið.
Kynbótasýning á Hólum:
Tveir stóðhestar yfir átta
OFT HAFA sést betri kynbótahross í Skagafirði en sýnd voru á
kynbótasýningu sem haldin var að Hólum í Hjaltadal á laugar-
dag. Tíu stóðhestar og sex hryssur komu þar fyrir augu sýningar-
gesta. Tveir stóðhestanna hlutu fyrstu verðlaun eða einkunn yfir
átta.
Sokki frá Sólheimum stóð efst-
ur með 8.11, en hann var sem
kunnugt er sýndur fjögra vetra á
Landsmótinu 1990 og vakti þá
athygli fýrir jafna og góða bygg-
ingu en knappa hæfileika að sama
skapi. Það sama virðist upp ten-
ingnum í dag, hækkar örlítið fyr-
ir byggingu er nú með 8,58 en
bætir við sig tuttugu kommum
fyrir hæfileika og hlýtur nú 7.64
sem er ansi lítið. Sjálfsagt má
nota hest eins og Sokka á bráð-
flinkar og skrokkmjúkar hryssur
en vafasamt er að menn eigi eftir
að mæta með hryssur sínar í hóp-
um til hans. Sokki er undan
Krumma sem er undan Hrafni 802
og móðir er Sokka bæði frá Sól-
heimum. Einn fímm vetra hestur
Huginn frá Höskuldsstöðum A-
Hún, undan Gusti 923 frá Sauðár-
króki og Kommu 4953 frá
Höskuldsstöðum hlaut fyrstu
verðlaun, 8,15 fyrir byggingu og
7,89 fyrir hæfileika, samtals 8,02.
Huginn er vel gerður hestur með
afar trausta fætur, 9,0 fyrir fóta-
gerð, hæfíleikar mættu vera meiri
er þó með 8,5 fyrir tölt en aðeins
7,0 fyrir brokk og skeið. Sámur
frá Flugumýri hálfbróðir þess
kunna Ófeigs 882 kom þama fram
en hann er undan sömu hryssu
Kengálu og Fáfni frá Fagranesi.
Hann hlaut 7,90 í einkunn.
Einn fjögra vetra hestur kom
fram, Höldur frá Brún v/Akureyri
en sá er undan Hrammi frá Akur-
eyri og osk frá Brún. Hlaut hann
fyrir byggingu 7,90 og 7,97 fyrir
hæfileika, samtals 7,94. Höldur
virðist til alls líklegur en hann
kom prýðilega fyrir í sýningunni.
Nokkrir þriggja og fjögra vetra
stóðhestar voru byggingadæmdir
og stóðu þar efstir Kjami frá
Kálfsstöðum með 8,33 af fjögra
vetra hestum en Garpur frá
Skúfsstöðum var efstur þeirra
yngri með 8,20. Af hryssunum
sem fram komu stóð efst fímm
vetra hryssa frá Skáney Pípa sem
er undan Hrafni frá Eskiholti og
Gleði frá Skaney. Hlaut hún 7,88
fyrir byggingu og 7,74 fyrir hæfí-
leika eða 7,81 í aðaleinkunn sem
fleytir henni inn á fjórðungsmótið
á Kaldármelum en hún er í eigu
Bjama bónda í Skáney í Borgar-
fírði.
Að lokinni kynbótasýningu fór
fram keppni í tölti og fimmgangi.
í töltinu bar hæstan hlut Birgir
Árnason á Skottu en fímmgang-
inn sigraði Erlingur Erlingsson á
Stíganda. .
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Höldur frá Brún þyk-
ir efnilegur stóðhest-
ur með einkunn rétt
við 8,0. Knapi er eig-
andinn Matthías Eiðs-
son.
Huginn frá Höskulds-
stöðum hlaut 8,02 í
einkunn, knapi er
Jóhann Þorsteinsson.
TiMKErr
KEILULEGUR
FAE
KÚLU- OG RÚLLULEGUR
iho
LEGUHUS
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
{FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 814670
Eigum á lager allar gerðir af
legum f bíla, vinnuvélar,
framleiðsluvélar og
iðnaðartæki. Allt evrópsk og
bandarísk gæðavara. Utvegum
allar fáanlegar iegur með hraði
■ LOFTUR Guttormsson, pró-
fessor flytur í dag, þriðjudag 12.
maí kl. 17.00, opinberan fyrirlestur
í Kennaraháskóla íslands, st. 301.
Fyrirlesturinn nefnist: Hvers má sín
Upplýsing? Hegðunarmjmstur og
upplýst gagnrýni 1750-1850. í fyr-
irlestrinum mun Loftur nota niður-
stöður nýlegra sagnfræðirannsókna
sem tilefni til almennrar umfjöllun-
ar um þær samfélags- og menning-
arbreytingar sem urðu á tímabilinu.
Athygli verður vakin á því að á
tímabilinu breyttust sumir þættir
samfélags og menningar í nútíma-
átt meðan aðrir þættir tóku gagn-
stæða stefnu. Til þess að leita skýr-
inga á þessu verða tekin dæmi af
tveimur fétagslegum og menningar-
bundnum þáttum, annars vegar
árstíðasveiflum hjónavígslna og
hins vegar hjúskapar- og kynlífssið-
ferði. Upplýsingafrömuðum var
umhugða að brejda hegðun manna
og viðhorfí gagnvart báðum þessum
atriðum en hér sem í mörgu öðru
bar viðleitni þeirra mjög misjafnan
árangur.
(Fréttatilkynning)