Morgunblaðið - 12.05.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
Heimir Ársælsson og Arnar Bjarnason.
Hitt níusex:
Morgunblaðið/KGA
Ný útvarpsstöð
í burðarliðnum
NÝRRI útvarpsstöð, Hitt níusex, verður hleypt af stokkunum næst-
komandi fimmtudag kl. 14. Útvarpað verður allan sólarhringinn á
tíðninni 96,6 og nást útsendingar um Faxaflóa, Reykjanes og sunnan-
vert Snæfellsnes. Þrír ungir menn standa að rekstri stöðvarinnar
og er útvarpsstjóri Ingimar Andrésson.
Amar Bjarnason, dagskrárstjóri,
og Heimir Ársælsson, markaðs-
stjóri, sögðu að stöðin myndi höfða
til fólks á öllum aldri. „Hitt níusex
verður fyrst og fremst tónlistarstöð.
Við leggjum áherslu á nýja tónlist,
íslenska og erlenda, og munum
styðja vel við bakið á íslensku tón-
listarmönnunum okkar í sumar,"
sagði Arnar.
Heimir benti á að ekki yrði um
neina byltingu að ræða með tilkomu
stöðvarinnar. „Það sem við erum
að gera hefur verið gert áður.
Breytingin er einfaldlega sú að við
komum inn í þetta ferskir og metn-
aðarfullir," sagði hann en báður
sögðust þeir félagar sannfærðir um
að rými væri fyrir Hitt níusex-
útvarpsstöðina meðal þeirra út-
varpsstöða sem fyrir væru. Annars
hefðu þeir ekki farið út í stofnun
stöðvarinnar. Dagskrárgerðarfólk á
Hitt níusex kemur allt af öðrum
útvarpsstöðvum.
Hitt níusex er staðsett í fyrrum
húsakynnum útvarpsstöðvarinnar
FM, Smiðjuvegi 42 d. Eigendur eru
Ingimar Andrésson, Jóhann Jó-
hannesson og Heimir Ársælsson.
Sauðárkrókur:
Fíkniefnamál upplýst
LOGREGLAN á Sauðárkróki
lagði um helgina hald á 10
grömm af afmetamíni og um 10
grömm af hassi og upplýst þátt
um það bils tugar manna, flestra
nemenda í fjölbrautarskólanum
í bænum, í dreifingu og neyslu
efnanna. Fólkið hefur játað
neyslu á 50-70 grömmum frá
áramótum. Einnig var lagt hald
á pípur og ýmis tól sem tengjast
neyslu eiturlyfja.
send norður frá Reykjavíkursvæð-
inu og jafnvel með viðkomu á Vest-
fjörðum.
Fleiri lögregluembætti, í Húna-
vatnssýslu, Vestfjörðum, höfuð-
borgarsvæðinu og á Suðurnesjum,
hafa blandast inn í rannsóknina og
þar hefur verið yfírheyrður um það
bil einn tugur manna sem einnig
tengist málinu.
LAG Grétars Örvarssonar og
Friðriks Karlsson við texta Stef-
áns Hilmarssonar varð í 7. sæti
í Evrópusöngvakeppninni í Mál-
mey í Svíþjóð á laugardag. Irska
lagið, Why me, varð í fyrsta
sæti, breska lagið, One step out
of time, í öðru sæti og malt-
verska lagið, Little child, í því
þriðja.
Friðrik Karlsson sagði að hann
væri bara nokkuð ánægður með
úrslitin. „Við vorum orðin frekar
bjartsýn héma heima fyrir keppn-
inna en úti var meðbyrinn ekki
mikill í fyrstu. Mikið var um að
okkur væri spáð einu af botnsætun-
um og maður hafði það á tilfinning-
unni að við værum hreinlega ekki
með nema þá í botnbaráttunni.
Þegar leið að keppninni fórum við
svo að færast upp á við,“ sagði
hann og benti jafnframt á að í
svona keppni skipti fleira máli en
Reutcr
íslensku söngkonurnar Sigríður Beinteinsdóttir og Sigrún Eva Ár-
mannsdóttir flylja lagið Nei eða já í Evrópusöngvakeppninni s.l.
laugar dagsk völd.
tónlistin. „Við vorum til dæmis með
myndband sem ekki þótti gott.
Aftur á móti held ég að við höfum
náð töluverðri athygli þegar dró
að keppninni. Blaðamannafundur-
inn tókst til dæmis vel. Þannig kom
þetta svona hægt og rólega og ég
gæti alveg trúað að ef við hefðum
haft meiri tíma eða betra mynd-
band hefðum við farið ofar.“
Annars sagði Friðrik að ferðin
hefði verið mjög skemmtileg og
ýmislegt hefði komið út úr henni.
Mætti þar nefna að unnið væri að
því að koma laginu út í Bretlandi
en það yrði gefið út í Skandinavíu,
Hollandi, Belgíu og Lúxemborg í
næstu viku. Ennfremur hefur
Stjóminni verið boðið að leika í
Kína á næsta ári og áhugi er fyrir
því að fá hana til að leika í Skandin-
avíu. Hljómsveitinni hefur einnig
verið boðin aðstoð við að gefa út
stóra hljómplötu þar.
EVR0PUS0NGVAKEPPNIN
i Málmey, Svíþjóð, 9. mai 1992 Land Heiti lags y c£ mí/ f/ /4 #/ 74 i/> /9° /4 ú % iL/ /f/é ¥Á 74 i/ 74 f4 té f/ /9/ AV#4° /i/4 f/f /<9 Röð
1. Spánn Todo esto es la musica 1 . 1 4 6 - - - 2 - 3 - 3 2 1 - 1 7 - 5 - 1 37 14.
2. Belgia Nous on vout des violons 3 . 4 - 3 - - - . - . 1 . - - . - - - . - 11 20.
3. ísrael Ze rak sport 10 - 2 - 8 4 7 4 7 - - 4 8 1 7 - 2 - 12 2 4 3 85 6.
4. Tyrkland Yazbitti 17 19.
5. Grikkland Olou tou kosmou i elpida - - 7 8 jl 7 3 5 12 - 2 5 10 - 4 - - - 12 7 8 - 4 94 5.
6. Frakkland Monte la rivie 6 - 12 3 W - - 3 - - 7 12 - ... - 5 - 6 - 10 3 6 73 8.
7. Svíþjóö I morgon ár en annan dag 1 4 9 22.
8. Portúgal Amor d'agua fresca - - 8 - 2 - - - - - 2 - - - - - - 1 5 - 8 - 26 17.
Q. Kýpur In love I trust - - 3 - 10 2 - 2 1 - 8 2 - - - 6 - 4 8 3 - 8 57 11.
10. Malta Uttle child 12 10 - - 7 - 12 12 1 8 - 5 12 8 - 10 8 3 10 - - 5 123 3.
11. ÍSLAND Nei eða já 8 4 4 - 6 - 6 6 - - - 3 5 7 12 - 5 5 - 1 6 2 80 7.
12. Finnland Yamma-Yamma - - 1 - - - - . - - - - - - - - - - 3 ■- - - 4 23.
13. Sviss Mister music man - 5 - - - - - - - 12 - - - 4 1 - 10 . - - - 32 15.
14. Lúxemborg Sou frái 10 10 21.
15. Austurríki Zusammen gehn 2 8 - - 8 - 1 3 8 4 - - - - 10 12 7 63 10.
16. Bretland One step out of time 5 12 2 10 . 10 5 - 6 6 4 6 8 7 12 7 12 8 W - 12 7 139 2.
17. írland Why me 1 7 - 12 12 - 10 4 5 12 7 10 6 10 10 8 10 2 2 7 10 10 155 1.
18. Danmörk Alt det som ingen ser 4 6 - - - 7 1 - - 6 . - 6 3 3 - - 6 5 - 47 12.
19. Italía Rapsodia - - - 5 3 12 8 8 10 5 10 12 7 - 6 - - - | - 12 1 12 111 4.
20. Júgóslavía Ljubin te pesmama . - 10 6 1 5 - - 2 3 5 4 2 - - 4 ^ - - 2 - 44 13.
21. Noregur Visjoner . 3 - - - - 2 - - - 1 1 - 4 - 5 - 6 - 1 - - 23 18.
22. Þýskaland Tráumesíndfuralleda . 6 10 6 2 3 - - - - 27 16.
23. Holland Wijs me de weg 7 2 5 7 5 4 - - 7 - 3 - 1 - 5 2 8 - - - 4 7 67 9.
Menntamálaráðherra:
Evrópusöngvakeppnin:
[
Anægður með úrslitin
- segir Friðrik
Karlsson annar
höfundur ís-
lenska lagsins
sem varð í 7. sæti
Spamaður í framhalds-
skólum þungur í vöfum
Að sögn Björns Mikaelssonar
yfírlögregluþjóns á Sauðárkróki
hafði lögreglan um skeið unnið að
rannsókn málsins vegna gruns um
að fíkniefni væru höfð um hönd á
heimavist fjölbrautarskólans. Á
föstudaginn voru svo fjórir ungir
menn handteknir og í vídeóspólu
sem þeir höfðu undir höndum fund-
ust 10 grömm af amfetamíni. Rann-
sókn málsins var fram haldið um
helgina og þá var einnig lagt hald
á 10 grömm af hassi sem komu í
sendingu með rútu til bæjarins.
Alls tengist tugur manna nyrðra
málinu, um helmingur þeirra dvelst
á heimavist fjölbrautarskólans og
flestir hinna eru einnig nemendur
í skólanum. Að sögn Björns Mika-
elssonar virðist sem efnin hafi verið
Varð und-
irjeppa
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
var send inn í Veiðivötn á laugar-
dag að sækja 11 ára telpu sem
orðið hafði undir jeppa.
Eitt hjól jeppans mun hafa lent
ofan á stúlkunni. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar á Hvolsvelli
mun hún þó ekki hafa slasast eins
alvarlega og óttast var í fyrstu var
það því að þakka að alldjúpur snjór
var yfir þar sem slysis varð.
Menntamálaráðherra segir að
sparnaður í framhaldskólunum
hafi reynst þyngri í vöfum en
áætlað var við gerð fjárlaga, og
hann hafi áhyggjur af að þau
sparnaðarmarkmið muni ekki
nást.
í skýrslu ijármálaráðherra um
framkvæmd fjárlaga á fyrsta árs-
fjórðungi segir að enn hafí nokkur
ráðuneyti ekki gripið til fullnægjandi
aðgerða til að tryggja útgjalda-
markmið fjárlaga. Sem dæmi eru
nefnd málefni framhaldsskóla, ýmis
verkefni umhverfísráðuneytis,
embætti sýslumanna og sjúkratrygg-
ingar.
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra sagði við Morgunblaðið, að
skólastarf í framhaldsskólum hefði
verið skipulagt síðasta haust, og
þótt þá strax hafí ákveðnar aðhalds-
aðgerðjr hafist, hefði alltaf legið ljóst
fyrir að ekki næðust afgerandi tök
á þessum sparnaði fyrr en á næsta
haustmisseri. „Það kemur því ekki á
óvart þótt aðhaldsaðgerðir séu ekki
famar að skila sér núna á miðju
skólaári," sagði Ólafur.
Þegar Ólafur var spurður hvers
vegna ekki áætlanir hefðu þá ekki
gert ráð fyrir því að sparnaður skil-
aði sér ekki fyrr en undir haustið,
sagði hann að því væri ekki að neita
að sparnaður hefði reynst þyngri í
vöfum en vonast var til. „Þetta er
breytilegt eftir skólum og þarf í raun
séraðgerðir fyrir hvem skóla. Til
samanburðar eru aðgerðir í grunn-
skólum mun einfaldari þar sem til
dæmis ein ákvörðun í ráðuneytinu
hefur áhrif á alla skóla,“ sagði Ólafur.
Fyrirhugað var að skera niður
útgjöld vegna framhaldsskólanna um
120 milljónir á þessu ári. Ólafur sagði
að reynt yrði að ná þessu markmiði.
„En við höfum allan tímann haft
verulegar áhyggjur af þessu,“ sagði
hann.
Eiður Guðnasson umhverfisráð-
herra sagði um málefni umhverfis-
ráðuneytisins að hvað það ráðuneyti
varðaði hefði gagnrýni fjármálaráð-
herra einkum beinst gegn Náttúru-
verndarráði sem hefði gengið illa að
halda sig við ljárlagarammann. Grip-
ið hefði verið til ráðstafana þar, m.a.
ráðinn sérstakur fjármálastjóri fyrir
Náttúruverndarráð og Náttúrufræði-
stofnun sem eru í sömu húsakynnum.
„En umhverfísráðuneytið er ungt
r'áðuneyti og ég hef oft lýst þeirri
skoðun að það hafí aldrei komist á
réttan fjárlagagrunn þar sem ekki
hefur í nægilega ríkum mæli verið
tekið tillit til þess sem hér þarf að
sinna,“ sagði Eiður.
Samkvæmt upplýsingum Þórðar
H. Ólafssonar skrifstofustjóra um-
hverfisráðuneytsins fóru Náttúru-
vemdarráð og Náttúrfræðistofnun
um 1,5 milljónir króna fram yfír
greiðsluáætlanir hvor stofnun á-
fyrsta ársíjórðungi. Samkvæmt fjár-
lögum á rekstur Náttúruvemdarráðs
að kosta 37,5 milljónir króna og
Náttúrufræðistofnunar 32,9 milljónir
króna.
Þórður sagði að Náttúruverndar-
ráð hefði tekið sig á í apríl og hefði
verið á áætlun í lok þess mánaðar.
Þá væri rekstur aðalskrifstofu ráðu-
neytisins vel innan við greiðsluheim-
ildir.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sagði um sýslumannsembætt-
in, að misræmi væri milli greiðslu-
áætlunar ijármálaráðuneytis og
rekstraráætlana embættanna sjálfra.
Þannig væru sýslumannsembættin
komin 25 milljónum fram úr áætlun
fjármálaráðuneytis en væru 15 millj>
ónum undir áætluðum útgjöldum
samkvæmt eigin áætlunum.
Dómsmálaráðherra sagði að þess-
ar áætlanir hefðu ekki verið sam-
ræmdar. Aðhaldsaðgerðir embætt-
anna kæmu að talsverðu leyti fram
í minni afleysingum og yfirvinnu
yfír sumarmánuðina. Því væri ekki
Hífegt að halda því fram enn sem
komið væri, að sýslumannsembættin
væru komin fram úr áætlunum.
Dómsmálaráðuneytið hélt fund
með sýslumönnum í síðustu viku þar
sem þeim var gert að gera frekari
grein fyrir því hvernig þeir ætluðu
að ná fram markmiðum fjárlaga.
Óskað var eftir greinargerðum frá
þeim sem vænst er á næstu tveimur
vikum.