Morgunblaðið - 12.05.1992, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
Innlánsstofnanir
Innlán dragast saman en
verðbréfaútgáfa eykst
INNLÁN banka og sparisjóða á fyrsta ársfjórðungi drógust saman
um 1% eða sem nemur um 1,4 milljörðum þegar ekki er tekið tillit
til vaxta. Á sama tíma í fyrra varð um 1,8% aukning á innlánum
sem svarar til 2,3 milljarða. Hins vegar jókst verðbréfaútgáfa um
5 milljarða á tímabilinu samanborið við 2 milljarða í fyrra. Skýr-
ingin á þessari þróun er líklega fyrst og fremst góð ávöxtun banka-
víxla síðustu mánuði en útistandandi víxlar jukust um 3,9 millj-
arða á fyrsta ársfjórðungi.
BYGGÐAVERK — Á síðastliðnum tveimur árum hefur átt
sér stað töluverð endurskipulagning á skrifstofu Byggðaverks í kjölfar
aukingar hlutafjár. Forstjóri Byggðaverks hf. er Sigurður Siguijóns-
son, en aðstoðarforstjóri er Kristinn Jörundsson. Framkvæmdastjóri
tæknilegra framkvæmda er Óskar Valdimarsson og yfirmaður inn-
kaupadeildar er Gísli Rafnsson. Skrifstofustjóri er Stefán Stefánsson.
Á aðalfundinum sem haldinn var 2. maí sl. voru kosnir í stjórn þeir
Sigurður Friðriksson, Sigurður Siguijónsson og Gísli R. Rafnsson.
Endurskoðandi hluthafa félagsins var kjörinn Birgir Ólafsson lögg.
endurskoðandi. Á myndinni eru hluthafar, stjórnendur og endurskoð-
andi Byggðaverks hf., ásamt félagsstjórn.
Iðnaður
Byggðaverk með 21
millj. króna hagnað
Heildarinnlán banka og spari-
sjóða með áætluðum vöxtum juk-
ust um 0,2% á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs samanborið við 3,7% á
sl. ári. Að meðtaldri verðbréfaútg-
áfu er aukningin 3,2% samanborið
við 4,7% í fyrra. Útlán að meðtöld-
um gengisbundnum afurðalánum
hafa hins vegar aukist um 1,1%
þannig að lausafjárstaða batnaði
á fyrsta ársfjórðungi sem nemur
um 1,3 milljörðum króna.
Staða ríkissjóðs við Seðlabank-
ann í lok mars var mun betri en
á sama tíma í fyrra og nam skuld
ríkissjóðs við bankann þá einungis
tæpum 700 milljónum samanborið
við um 5,6 milljarða á sama tíma
í fyrra. Þessi hagstæða staða á
viðskiptareikningi ríkissjóðs skýr-
ist af því að tekin hafa verið er-
lend lán til gera upp þá skuldina
sem myndaðist vegna ársins í
fyrra.
Samstarf
P&sogACO
semja um
RICOH
faxtæki
PÓSTUR og sími og ACO hf.
hafa undirritað samstarfssamn-
ing um þjónustu og sölu á RICOH
faxtækjum.
ACO hefur selt tæki frá RICOH
sl. fimm ár, einkum á höfuðborgar-
svæðinu. Póstur og sími er hins
vegar með rúmlega 80 afgreiðslu-
staði um land allt og hefur boðið
faxtæki og annan símbúnað til sölu
um langt árabil.
I fréttatilkynningu frá Pósti og
síma segir að RICOH sé einn stærsti
og virtasti framleiðandi faxtækja í
heiminum í dag og frá þeim megi
fá allt frá minnstu ferðafaxtækjum
upp í heilar faxmiðstöðvar. Þessa
dagana kynna fyrirtækin nokkrar
nýjar gerðir af faxtækjum, m.a.
fyrir venjulegan pappír og bílafax-
tæki.
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ
By&gðaverk skilaði hagnaði
upp á rúmlega 21 milljón krón-
ur á sl. ári samanborið við rúm-
lega 9 milljón króna hagnað
árið 1990. Eigið fé fyrirtækisins
er 76,4 milljónir en árið áður
var það 71,3 milljónir króna, að
sögn Kristins Jörundssonar að-
stoðarforsljóra Byggðaverks.
Kristinn Jörundsson segist til-
tölulega sáttur við afkomuna á sl.
ári ekki síst í ljósi þeirra þreng-
inga sem hafi verið á byggingar-
markaðnum. Jafnframt segir hann
verkefnastöðu fyrirtækisins vera
góða út þetta ár og nú sé t.d.
unnið að byggingu Heildar III við
Skútuvog, U-byggingu Landsspít-
ala, byggingu íbúða fyrir öldrunar-
samtökin Höfn í Hafnarfirði,
byggingu fjölbýlishúsa fyrir Bú-
seta svf. og fullnaðarfrágang fyrir
Alviðru í Garðabæ.
Kristinn telur rétt að fram komi
að Byggðaverk notaði mismunandi
uppgjörsaðferðir árin 1990 og
1991. Á sl. ári þegar fyrirtækið
skilaði hagaði upp á rúmlega 21
milljón var gert upp samkvæmt
„áfangauppgjörsaðferð", sem fel-
ur í sér að verkið er tekjufært
eftir hvern áfanga sem unninn er.
Árið 1990 var hins vegar gert upp
samkvæmt „verklokaaðferð“, sem
þýðir að verkið er ekki bókfært
fyrr en því er lokið. Kristinn segir
þó ekki geta sagt til um hvaða
áhrif þessar mismunandi upp-
gjörsaðferðir hafi á bókfærðan
hagnað hjá fyrirtækinu.
TÓNLEIKAR
— Gul tónleikoröö —
í Hóskólabíói fimmrudQginn 14. moíl kl. 20.00
EFNISSKRÁ:
Leevi MQdetojo: Sinfónía nr. 2
Karólína Eiríksdórrir: Klifur
Richard Srrauss: Valsar úr Rósariddaranum
HUÓMSVEITARSTJÓRI:
Peíri Sakori
Þetta eru síðustu óskriftartónleikar vetrarins
Miðapantanir og sala fara fram ó skrifstofu
Sinfóníuhljómsveitarinnar í Hóskólabíói alla virka daga
fró kl. 9-17, sími 622255. Einnig eru seldir miðar í
anddyri við upphaf tónleikanna.
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS
Hóskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255.
Utibú
á landsbyggðinni
.Raufarhflfn
Egilsstaðir. ^fcJstaðu,.
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður.,FjðRÐUR
Stöðvarfjörður m
t/Broiðda!svfk
Djúpivogur
KEFLAVIK
arn
Lei
Grindaví
Þoriákshöfn _____________ , I
í Reykjavík eru nú auk aðal-
bankans 13 útibú og 4 afgreiðslur
TVÆR villur slæddust inn á kort yfir útibú Landsbankans á landsbyggðinni
í viðskiptablaði fimmtudaginn 30. apríl. Aðalútibú á Austfjörðum var sýnt á
Egilsstöðum en hið rétta er að aðalútibú verður á Eskifirði. Ennfremur mátti
lesa út úr kortinu að útibúið í Hafnarfirði tilheyrði Reykjanesi en svo er ekki
heldur heyrir það undir net Landsbankans í Reykjavík. Kortið ér endurbirt
um leið og beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
ÁTAKSÞJÁLFUN!
MÁTTUR heldur námskeið fyrir þá sem
vilja koma sér í góða þjálfun fyrir sumarið.
Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað þeim
sem eru í góðri þjálfun en vilja komast í
betra form á skömmum tíma.
Æfingar fara fram í hádeginu alla daga.
VILJI-VELLÍÐAN
FAXAFENI 14, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 689915
GARÐASTAL
Afgreitt eftir máli.
Allir fylgihlutir.
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000