Morgunblaðið - 12.05.1992, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
31
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vorstemmning í Hrísey
Hríseyingar fögnuðu blíðviðrinu á sunnudaginn eftir vorhretið langa. Vorstemmningin var alls ráðandi og
allir sem vettlingi gátu valið fundu sér eitthvað að sýsla við utandyra. Það var ys og þys við höfnina, bátar
að koma og fara, Áslaugur var að koma að landi á trillunni sinni þegar ljósmyndari var á ferð niðri á
bryggju. En þær stöllur Asrún Ýr og Díana Björg fundu sér bát uppi á þurru landi sem hentaði vel til leikja,
en félagamir Kristján og Ámi voru önnum kafnir við að koma sér þaki yfír höfuðið. Þeir hafa staðið í
ströngu við að byggja sér kofa sem þeir nefna Lækjarrennu.
Öllu starfsfólki Striks-
ins sagt upp störfum
Stefnt að endurráðningu í kjölfar hlutafjársöfnunar
ÞRJÁTÍU og sex starfsmönnum skóverksmiðjunnar Striksins á Akur-
eyri var sagt upp störfum um síðustu mánaðamót. Vonast er til að
hægt verði að endurráða allt starfsfólkið eftir að nýir hluthafar
koma inn í fyrirtækið, en unnið hefur verið að þvi að safna nýju
hlutafé inn í fyrirtækið frá því í júlí í fyrra. Eigendur Striksins eru
sjö einstaklingar, en 22 aðilar hafa skrifað sig fyrir hlutafjárloforð-
um. Hlutafé verður aukið um 15 milljónir, úr 12 í 27 milljónir.
Haukur Ármannsson fram-
kvæmdastjóri skóverksmiðjunnar
Striksins sagði að menn hefðu séð
hvert stefndi- á síðasta ári og þá
þegar hafí verið ákveðið að reyna
að auka hlutafé í fyrirtækinu, jafn-
framt því sem ekki var ráðið í þær
stöður sem losnuðu. Þannig fækkað
starfsfólki úr 52 í 36, en Haukur
segir það þó ekki nándar nærri nóg
miðað við hve slæm staðan sé. „Við
vildum fara mjúku leiðina og segja
ekki öllum upp á einu bretti, en
þessi fækkun starfsfólks hjá okkur
með þessari leið hefur tekið of lang-
an tíma og það var ekki annað
hægt nú, en að segja fólkinu upp.
Við vildum að nýir aðilar og ný
stjórn í fyrirtækinu kæmu að hreinu
borði og hefðu eitthvað um það að
segja hvað verður í framtíðinni,"
sagði Haukur.
Byijað var að safna hlutafjárlof-
orðum í júlí í fyrra og sagði Hauk-
ur að öll vinna í kringum það hefði
tekið alltof langan tíma. Þegar um
áramót hefðu legið fyrir hlutafjár-
loforð upp á 15 milljónir króna, en
stefnt var að þvi að auka hlutafé' í
fyrirtækinu um þá upphæð. „Þessi
vinna hefur gengið mjög hægt, það
hefur sífellt eitthvað verið að koma
upp á sem orðið hefur til þess að
draga á langinn að hlutimir gegnu
í gegn.“
Haukur sagðist vona að smella
myndi saman í þessum mánuði, en
alls hafa 22 aðilar skrifað sig fyrir
nýju hlutafé, en þar á meðal eru
Alcureyrarbær, Byggðastofnun og
lífeyrissjóðir. Hluthafar í fyrirtæk-
inu verða því 29. Sjö einstaklingar
hafa átt verksmiðjuna síðustu §ög-
ur ár, en hana keyptu þeir af Sam-
bandinu á sínum tíma.
Keðja dróst yfir bifreiðar
TÖLUVERÐAR skemmdir urðu stæðinu dróst keðjan yfír fjórar bif-
á fjórum bílum sem voru á stæði
við Akureyrarflugvöll á sunnu-
dagskvöld.
Tildrögin eru þau, að sögn varð-
stjóra lögreglunnar á Akureyri, að
bifreið var lagt í bílastæði sem af-
markað var með keðjum. Af ein-
hveijum ástæðum var keðjan föst
við afturstuðara bílsins þannig að
þegar ökumaður fór af stað úr
reiðar áður en ökumaður uppgötv-
aði hvað var á seiði..
Ekið var aftan á kyrrstæðan bil
í Kaupvangstræti skömmu eftir
hádegi í gær og skemmdist hann
töluvert, en engin slys urðu á fólki.
Þá voru brotnar tvær stórar rúð-
ur í verslunum í miðbæ Akureyrar
á föstudagskvöld, en ekki tókst að
hafa hendur í hári þeirra sem þar
voru að verki.
Sumarskóli í list hef-
ur starfsemi 1 júní
SUMARSKÓLINN á Akureyri mun hefja starfsemi sína 20. júní næst-
komandi, en yfírskrift hans er „Listir, líf og Ieikir“. Það er Örn Ingi
Gíslason myndlistarmaður sem stendur að Sumarskólanum og er þetta
fyrsta starfssumarið. Hvert námskeið stendur í hálfan mánuð og lýk-
ur með sýningu í Iþróttaskemmunni. Skólinn er ætlaður börnum á
aldnnum 10 til 14 ára.
„Markmið skólans er margþætt
samspil ólíkra listgreina 1 nánum
tengslum við lífíð sjálft. Leitast verð-
ur við að laða fram þá möguleika
sem hver einstaklingur býr yfír á
sem fjölbreytilegastan hátt og út frá
hans eigin forsendum," segir í kynn-
ingu frá Sumarskólanum.
Boðið verður upp á nám í mynd-
list, leiklist, dansi og matargerðarlist
og verður fyrirkomulagið þannig að
hver nemandi velur sér eina aðaln-
ámsgrein, sem vegur um 75% af
námstímanum, en kynnir sér jafn-
framt aðrar greinar sem í boði eru
til frekari sjálfsleitar og kynningar.
Hægt verður að taka á móti 70
til 90 þátttakendum á heimavist,
sem verður í einhverjum af skólum
bæjarins.
„Hugmyndin að þessu kom eigin-
lega af sjálfu sér eftir það starf sem
ég hef verið að vinna víða um land-
ið. Ég var alltaf að rekast á litla
snillinga og fannst stundum eins og
ég skildi þá eftir í tómarúmi; þeir
höfðu kannski blómstrað á nám-
skeiði, en síðan varð ekkert fram-
hald. Mig langaði til að safna saman
þessum krökkum sem búa yfír ein-
hverri sérgáfu og kveikja svolítið upp
í þeim,“ sagði Óm Ingi, sem sagðist
eiga þann draum að hægt verði að
koma upp miðstöð bamamenningar
á Akureyri.
Hann sagði að starfsemi Sumar-
skólans yrði íjölbreytt, auk þesS sem
bömin væru að sinna listgrein sinni,
yrði farið út í skoðunarferðir, iðnfyr-
irtæki skoðuð og merkir staðir í
nágrenni bæjarins, en af nógu væri
að taka.
Um viðtökur sagði Örn Ingi að
lítið væri vitað nú, en þessa dagana
er v'erið að kynna þessa starfsemi í
skólum landsins. „Það er búið að spá
vel fyrir þessu," sagði hann „en
maður hefur vissar áhyggjur af því
að vera of seinn og af þeim sökum
er kannski skrekkur í manni.“ Innrit-
un í Sumarskólann er að hefjast, en
hún fer fram hjá Emi Inga frá kl.
17 til 19 alla daga. Akureyrarbær
veitti Sumarskóianum 100 þúsund
króna styrk, en að öðru leyti sagðist
Öm Ingi reka skólann á sína ábyrgð.
Skólaslit í Grímsey:
Verðlaun í Grímsejj-
arhlaupinu afhent
SKÓLASLIT voru í barnaskóianum í Grímsey miðvikudaginn 6. maí
síðastliðinn. Skólastarfið hefur gengið vel í vetur og hefur verið
bryddað upp á nokkrum nýjungum, ma. í handmenntakennslu.
Við skólaslitin vom afhent verð-
laun í Grímseyjarhlaupinu, en það
er árlegur viðburður hér i eynni.
Skólabömin hlaupa þá eftir flug-
brautinni, þau eldri alla brautina
eða um einn kílómetra, en þau yngri
350 metra. Kiwanis-menn í Gríms-
ey gefa peningaverðlaun og þá er
veittur farandbikar til þeirra sem
eru í fyrsta sæti í hvorri deild.
í eldri deildinni sigraði Björg
Jónína Gunnarsdóttir, Hafrún Elma
Símonardóttir var í öðru sæti og
Stella Gunnarsdóttir í því þriðja.
Ámi Már Ólafsson sigraði með yfír-
burðum í yngri deildinni, Vilborg
Sigurðardóttir varð í öðru sæti og
Einar Þór Óttarsson í þriðja sæti.
í tengslum við skólaslitin var
haldin sýning á verkum sem nem-
endur hafa unnið að i vetur og má
segja að þar hafí verið bryddað upp
á ýmsum nýjungum. Bömin í eldri
deildinni unnu munu úr leðri, fimo-
leir og stunduðu silki- ogtaumálun,
en þau yngri gerðu m.a. styttur úr
keramik-efni og blésu lit á kodda
og föndruðu ýmislegt úr þvotta-
klemmum, svo dæmi séu tekin.
Veittar voru viðurkenningar fyrir
besta námsárangur og hana hlaut
Hafrún Elma Símonardóttir, en
Henning Henningsson fékk viður-
kenningu fyrir að hafa bætt sig
mest í námi í vetur.
Skólastjórinn María Steinþórs-
dóttir og eiginmaður hennar Jón
Ingimarsson kennari hafa kennt við
skólann í vetur, en þau hafa ekki
gert upp hug sinn varðandi áfram-
haldandi dvöl í Grímsey næsta vet-
ur. " -HSH
Sjávarútvegsdeildin
á Dalvík - VMA
veturinn 1992-1993
Skipstjórnarnám:
Kennt er til skipstjórnarprófs, 1. og 2. stigs.
Fiskiðnaðarnám:
Kennt er til fiskiðnaðarmannsprófs.
Almennt framhaldsnám:
1. bekkur framhaldsskóla.
Heimavist á staðnum.
Umsóknarfrestur til 15. júní.
Upplýsingar í símum (96) 61380, 61162, 61218
og 61160.
Skólastjóri.