Morgunblaðið - 12.05.1992, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1992
43
SÍMi 320 7S
Stórmyndin með Robert De Niro
og Nick Nolte.
Sýnd i B-sal
kl. 5, 8.50 og 11.10.
Bönnuð innan 16 ára.
HETJUR
HÁLOFTANNA
Fjörug og skemmtileg mynd
um leikara sem þarf að læra
þotuflug.
Sýnd í C-sal
kl. 5, 7, 9 og 11.
★ ★ ★ ★ „Mynd sem fólk á aö sjá. Skemmtileg,
mynd og líka frumleg, vel gerð og hefur það umfram
flestar myndir í bíó, að geta komið fólki á óvart."
PRESSAN
★ ★★ - MBL.
EFTIR LEIKSTJÓRA „DRUGSTORE COWBOY11
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11. - Bönnuð innan 16 ára.
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ - MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR MYNDIR.
Himinn inn ýfir Idaho
Kvikmyndir
Arnaldurlndriðason
Mitt eigið Idaho („My Own
Private Idalio“). Sýnd í
Laugarásbíói. Leikstjóri
og handritshöfundur: Gus
Van Sant. Aðalhlutverk:
River Phoenix, Keanu
Reeves og James Russo.
Bandaríkin, 1991.
Myndirnar vestan úr
Bandarikjunum sýna sjald-
an viðlíka hreinskilni eða
leyfa sér að vera jafn sann-
ar lýsingar á einstæðings-
kennd, depurð og ömurleika
og Mitt eigið Idaho eftir Gus
Van Sant. Eða sýna afsk-
ræminguna að baki þess að
stunda kynlíf fyrir pening.
Fáar myndir hafa líka þá
djörfung að segja frá karl-
mellum ef út í það er farið,
ungum mönnum sem selja
sig. Efnið hentar ekki beint
markaðskönnuðum kvik-
myndaveranna. Van Sant
hefur gert úr því ásækið
listaverk, magnaða bíómynd
sem reyndar er ekki allra
en þeir sem á annað borð
leggja sig eftir henni fá það
ríkulega launað.
Leikstjórinn vakti fyrst
athygli á sér fyrir mynd-
ina„Drugstore Cowboy",
blákalda lýsingu á utan-
garðsfólki sem lifir fyrir
dóp. Hér er mun ljóðrænna,
persónulegra verk á ferðinni
þar sem ber frásagnartækn-
in og galdrar kvikmyndar-
innar eru mun meira áber-
andi, nokkuð sem leikstjór-
inn hefur þróað talsvert frá
síðustu mynd: Karimódel
tala hvert við annað af fors-
íðum tímarita í klámbúllu,
götukrakkar lýsa afsk-
ræmdri veröld sinni beint í
myndavélina, endurminn-
ingar aðalsöguhetjunnar,
sem River Phoenix leikur
frábærlega, eru átta milli-
metra upptökur af henni
með mömmu sinni á löngu
gleymdum stað í Idaho.
Kynlífsatriðin eru sýnd í
kyrrmyndum. Himinninn
'ólmast í hraðfleygum skýj-
um í einskonar drauma-
ástandi söguhetjunnar; hús-
kofi fellur úr loftlnu niður á
þjóðveginn.
Það síðastnefnda gæti vel
komið úr Galdrakarlinum í
Oz. Van Sant hentar vel
þessi draumkennda frá-
sagnaraðferð til að segja
napurlega sögu án málam-
iðlana. Tilfinningalega er
myndin eins og opið sár.
River Phoenix leikur strák
sem leitar móður sinnar og
uppruna eða staðfestu í lífi
sem er í rauninni hvorki líf
né dauði heldur nokkurs-
konar limbó þar á milli;
hann fellur jafnvel í dá með
reglulegu millibili. Hann býr
á götuni úti í Seattle þegar
myndin hefst og selur sig
konum og körlum til að
skrimta. Vinur hans, sem
Keanu Reeves leikur, selur
sig líka fyrir pening en hann
er meira í þessu uppá
skemmtilegheitin og til að
storka föður sínum sem er
borgarstjóri. Saman vitja
þeir bróður Phoenix, sem
hann telur að sé faðir sinn
líka, og leit þeirra að móður
hans ber þá alla leið til ítal-
íu.
Það er ekki á allra færi
að fjalla um persónur sem
þessar og umhverfið sem
þær lifa í en Van Sant hefur
fundið leið sem virkar. Hann
kveikir líf í svipmyndum,
sem kannski orka betur ein-
ar sér en sem heild. Veik-
asti hlekkurinn er samband
félaganna við nk. Fagin,
eldri mann sem ræður yfir
þjófagengi af götunni. Kafl-
arnir með honum komast í
skáldlegri hæðir sem ganga
á skjön við persónurnar og
umhverfið sem þær búa í.
Leikurinn er dæmalaust
góður hjá hinum ungu leik-
urum, sérstaklega er Phoen-
ix frábær eins og þegar
hann varfærnislega imprar
á möguleikanum á ást á
milli tveggja karlmanna við
vin sinn, Reeves. En honum
verður ekki að ósk sinni.
Strákum eins og honum
verður aldrei að ósk sinni.
MITT EIGIÐ IDAHO
RlVEI* KEANU
phoenix reeves
Stórtónleikar í Þjóðleikhúsinu 18. maí:
„Sameinumst gegn alnæmi“
SAMTÖK áhugafólks um
alnæmisvandann halda tón-
leika til styrktar starfsemi
sinni í Þjóðleikhúsinu 18.
maí kl. 20.00. Fram koma
Todmobile, Hilmar Örn
Hilmarsson, Sálin hans Jóns
míns, Vinir Dóra, Síðan
skein sól, Egill Ólafsson og
Draumasveitin og tækni-
landsliðið. Kynnir verður
Páll Óskar Hjálmtýsson.
Allir aðstandendur tónleik-
anna gefa vinnu sína. Verð
aðgöngumiða er 2.000 kr.
og forsala aðgöngumiða er
í Þjóðleikhúsinu.
Markmið samtakanna er
að auka þekkingu og skiln-
ing á alnæmi og að styðja
smitaða og sjúka og aðstand-
endur þeirra. Þau njóta
engra opinberra styrkja en
standa fyrir margháttaðri
starfsemi þar sem velferðar-
kerfið þrýtur.
un film Íh
JEUNET tt CARO
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
MIÐAVERÐ KR. 300 Á ALLAR MYNDIR NEMA „LOSTÆTI"
L0STÆTI
LETTLYNDA
RÓSA
Sýnd kl. 5, 7,9
og 11.
CUudk' OSvSARD -prto'nu
HR.OGFRUBRIDGE
*# * A« «• t**M ** t
■ri'*■ ¥*&* & A ti«*>'***.< «<<« , ★★><♦.•<.'* * K
*k\\v >«■★,« *« < >■> <■
Hef ur þú eiuhvern tíma velt fyrir þér hvaða
fígúra það er sem semur þessa texta?
Þú heldur kannski að þessi f ígúra geti bara
sett niður hverja vitleysuna á fætur ann-
arri og verið ánægður. Ó nei, ekki aldeilis.
Hvað myndir þú gera ef þú ættir að semja
jtexta við þessa mynd? Ég held að þú mynd-
ir sturlast, því það er ekki hægt. Ég segi
bara eitt og get ekki ýkt það: Þessi mynd
er hrikalega fyndin og hrikalega góð.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
KOLSTAKKUR
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuði. 16ára.
HOMOFABER
★ ★★★ Helgarbl.
Sýnd kl. 5 og 11.
FREEJACK
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuði. 16.
Sýnd kl. 5,9 og 11.15.
#pm
REGNBOGINN SÍMI: 19000
Norrænir heilbrigðisstarfs-
menn þinga um trúarleg efni
„KRISTIN LÍFS-
STEFNA“ verður yfir-
skrift norrænar ráð-
stefnu á vegum Kristi-
legra félaga heilbrigðis-
stétta á Norðurlöndum.
Hún verður haldin í Grim-
stad í Suður-Noregi
23.-28. júní 1992.
Fjölhyggja samtímans og
kapphlaup um hugi manna
veldur því að mörgum finnst
sem kristin lífsgildi falli í
skuggann. Því vill Kristilegt
félag heilbrigðisstétta bjóða
norrænum heilbrigðis-
starfsmönnum til ráðstefnu
um kristna lífsstefnu. Þar
verða reifuð mál sem varða
kristna trú. Framúrskar-
andi ræðumenn, læknar,
prestar og hjúkranarfræð-
ingar. Um er að ræða mikil-
væga þætti trúarinnar svo
sem bænina, boðun, starfið
sem köllun eða frama, sið-
ferðilega afstöðu í flóknum
og viðkvæmum rannsókn-
um og meðferðum s.s.
erfðarannsóknum og líf-
færaflutningum. Kristin
lífsstefna kallar á alhliða
umönnun sjúkra. Fjallað
verður um trúarlegar þarfir
sjúkra og umönnun hinna
deyjandi og aðstandenda
þeirra og það hvernig
kristnir starfsmenn geta
mætt skjólstæðingum sín-
um með fagnaðarboðskap
og kærleika Krists að leið-
arljósi. Gefinn verður tími
fyrir afslöppun í fögru um-
hverfi. Skeijagarðurinn
býður upp á marga mögu-
leika fyrir alla fjölskylduna.
Fyrsta flokks tjaldstæði er
fyrir þá sem kjósa að tengja
ráðstefnuna sumarleyfinu.
Kristilegt félag heilbrigð-
isstétta er samkirkjuleg, al-
þjóðleg hreyfing með starf
í meira en 120 þjóðlöndum.
Á Norðurlöndum starfar
hún í Finnlandi, Svíþjóð,
Danmörku, Noregi og ís-
landi. Starf hreyfíngarinnar
byggst á kristniboðsskipun
Jesú Krists um að fara og
kristna allar þjóðir. Svæðis-
Þriðjud. 12 maiopið kl. 20-01
RÚREK DJASSHÁTÍÐ ’92
í ÞORPIDROTTNINQAR ENGLANNA
Tónlist
STEFÁN S. STEFÁNSSON
vid Ijodaflokk
SVEINBJARNAR
BALQVINSSONAR
Flytjendur:
Stefán S. Stefánsson, saxófónar,
Sveinbjörn Baldvinsson, gítar,
Arni Scheving, víbrafonn.
Gunnar Hrafnsson. bassi,
Einar Scheving, trommur,
Ellen Kristjánsdóttir, söngur.
Miövikud. 13. maí opid kl. 20-01
TÓNSKRATT AR
BRÆÐINGSHLJÓMSVEIT FÍH
og söngkonan
HELGA MÖLLER
PÚLSINIM
- með púlsinn á hreinu!
stjóri hreyfmgarinnar á
Norðurlöndum er séra
Magnús Björnsson en for-
maður KFH á íslandi er
Vigdís Magnúsdóttir, hjúkr-
unarforstjóri Landspítalans.
(Fréttatilkynning)
mkk
MIÐBÆRKL. 17.
Karnivala marserar um
miöbœinn og lýkur leik í
Tjarnarsal Ráðhússins.
DJASSÁ
VEITIkGAHÖSUM
PÚLSINN:
íþorpi drottningar
englanna eftir
Stefán S. Stefánsson og
Sveinbjörn Baldvinsson.
KRINGL UKRÁIN:
Kuran swing.
JAZZ:
Kvartett
Kristjáns Magnússonar.
HRESSINGAR-
SKÁLINN:
3 plús jazz.
DJÚPIÐ:
Helga Möller og kvartett
Reynis SigurÖssonar.
Forsala á tónleika Jon
Hendricks & kompanis í
Háskólabíói er í Japis,
Brautarholti.