Morgunblaðið - 12.05.1992, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1992
OPNUM UTIBUIHAFNARFIRÐI
Haukur Dór sýnir myndir á báðum stöðum 2. - 30. maí.
Veriö
velkomin
Vinir
Hafnafjaröar
BORG "
Sérverslun með flísar og hreinlætistæki.
Samstaða um óháð ísland:
Sænski sigurvegarinn Fredrik Olsen á fullri ferð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sænskur sigur í flokki
sérútbúinna torfærubíla
Jeppaklúbbur-Reykjavíkur gekkst fyrir torfærukeppni í Jós-
epsdal laugardaginn 9. maí. Sigurvegarar urðu Fredrik Olsen í
flokki sérútbúinna bíla og Þorsteinn Einarsson í flokki götubíla.
Olsen er sænskur. A milli 5-6000 áhorfendur fylgdust með keppn-
inni.
Annar í flokki sérútbúinna bíla
varð Helgi Schiöth, þriðji Henrik
Vesa, fjórði Stefán Sigurðsson,
fimmti Þórir Schiöth og sjötti
Magnús Bergsson.
Annar í flokki götubíla varð
Guðmundur Sigvaldason, þriðji
Steingrímur Bjarnason, fjórði
Rögnvaldur Ragnarsson, fimmti
Gunnar Guðmundsson, sjötti
Guðni Jónsson, sjöundi Kristján
Finnbjömsson, áttundi Ragnar
Skúlason, níundi Hallgrímur Æv-
arsson og tíundi Siguijón Guðm-
arsson.
Átta veltur urðu í keppninni.
EES-samningurinn gegn
anda stj órnar skrárinnar
SAMSTAÐA um óháð Island samþykkti á aðalfundi sínum sl.
laugardag ávarp þar sem ítrekuð er krafa samtakanna um að
þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um samninginn um Evrópskt
efnahagssvæði að lokinni kynningu á honum. í ávarpinu segir
að viðskiptalega eigi Islendingar að horfa til allra átta og hag-
nýta sér landfræðilega sérstöðu en sameinast um að vísa á bug
aðild að Evrópsku efnahagssvæði og hafna aðild að Evrópuband-
alaginu. Fundurinn var haldinn á Hótel íslandi.
í ávarpinu segir að með EES-
samningnum sé ótvírætt gengið
gegn anda stjórnarskrárinnar.
Samningurinn kveði á um, að ekki
megi mismuna eftir þjóðerni sem
þýði að 380 milljónir manna fái
sama rétt og íslendingar hafi ein-
ir haft í landinu til þessa.
„Veiðiskipum Evrópuband-
alagsins á nú að hleypa inn í ís-
lenska landhelgi í skiptum fyrir
tollaívilnanir. Utlendingar munu
keppa við íslendinga um kaup á
landareignum og hlunnindum og
fá sömu aðstöðu til atvinnurekstr-
ar, nema í fiskveiðum og frum-
vinnslu sjávarafla,“ segir í ávaip-
inu.
Þá segir að með samningnum
verði stjómarfarslegt sjálfstæði
þjóðarinnar skert í miklum mæli.
Islendingar eigi að taka við laga-
safni Evrópubandalagsins á sviði
efnahags- og atvinnumála og
verði framvegis að setja lög eftir
fyrirskipunum frá Brussel. Þar
sem íslensk lög og EES-reglur
greini á, eigi íslensk lög að víkja.
í ávarpinu segir auk þess að
samningurinn geri þeim öflum
margfalt auðveldara fyrir, sem
keyra vilji ísland inn í Evrópu-
bandalagið. Þjóðin standi á kross-
götum og þeir sein séu andvígir
EB-aðild hljóti að beita sér að al-
efli gegn aðild íslands að Evr-
ópsku efnahagssvæði.
Sauðárkrókur:
Kiwanismenn gefa íþróttafélag-
inu Grósku keppnisbúninga
þeim íþróttagreinum sem henta
vel fyrir aldraða og fatlaða.
Á sumardaginn fyrsta afhentu
félagar í Kiwanisklúbbnum Drang-
ey Gróskufélögum formlega nýja
keppnisbúninga sérstaklega
merkta félaginu og gefendunum
við athöfn sem fram fór í Sveins-
búð, félagsheimili björgunarsveit-
anna á Sauðárkróki.
Það var Steinn Ástvaldsson for-
seti Kiwanisklúbbsins sem bauð
gesti velkomna og gerði grein fyr-
ir þeirri gjöf sem nú yrði afhent
formlega, og bað hann Sólveigu
Jónasdóttur formann Grósku að
koma og veita gjöfinni viðtöku.
Sólveig þakkaði þessa ágætu
gjöf, og kom fram í ræðu hennar,
að þó að nú færi formleg afhend-
ing fram hefðu Gróskufélagar sent
fjóra þátttakendur á íslandsmót
fatlaðra fyrir skemmstu, og hefðu
þeir keppt þar í hinum nýju búning-
um. Sagði Sólveig að ljóst væri að
þrátt fyrir skamman undirbúriing
og æfingatíma hefðu keppendur
Grósku komið heim með fímm
verðlaunagripi og væri því ljóst að
gifta fylgdi nýju búningunum, sem
hún kvaðst viss um að fylgdi þeim
áfram.
Framundan sagði Sólveig vera
Hængsmótið á Akureyri, en stefnt
væri að því að þangað færi að
minnsta kosti tólf manna hópur frá
Grósku.
Að lokum komu fram keppend-
umir sem til verðlauna unnu á ís-
landsmótinu, íklæddir nýju búning-
unum með verðlaunagripi sína og
var þeim vel fagnað með lófataki.
- BB
Morgunblaðið/Sverrir
Frá fundi Samstöðu um óháð ísland, sem fram fór á Hótel íslandi
s.l. laugardag.
Sauðárkróki.
FYRIR nokkru var stofnað á
Sauðárkróki nýtt íþróttafélag,
Gróska, sem sérstaklega stefnir
að íþróttaæfingum og þjálfun í
boccia og bogfimi og öðrum
Knarrarvogi 4 - s. 686755 - Bæjarhrauni 20 - s. 654755
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Keppnislið Grósku ásamt formanni félagsins og forseta Kiwanis-
klúbbsins Drangeyjar, f.v.: Sólveig Jónasdóttir, Krislján H. Viðars-
son, Valgeir E. Levy, Rökkvi Sigurlaugsson og Steinn Ástvaldsson.
V.
A
<Í
i
í
í
í
í
i
i
i