Morgunblaðið - 12.05.1992, Síða 48
Fæðingarheimilið:
Samkomu-
-lagnáðist
ÁRNI Gunnarsson, formaður
stjórnarnefndar Ríkisspítala,
segist vonast til að samkomulag
hafi náðst um framtíð Fæðingar-
heimilisins í Reykjavík en í gær
hafi verið fundin lausn sem feli
í sér að konur eigi áfram þann
valkost sem Fæðingarheimilið
hefur verið.
Fundur var haldinn í gær með
formanni stjórnarnefndar, stjórn-
endum Landspítalans, forstöðu-
mönnum Fæðingarheimilisins og
fulltrúum Ljósmæðrafélagsins.
Ámi sagðist ekki vilja greina nánar
frá hvað fælist í samkomulaginu
' þar sem eftir væri að bera það upp
innan stjómarnefndar Ríkisspítala
o g kynna það öðm starfsfólki spítal-
ans.
„Ekki er alveg fyriséð hvernig
okkur tekst að hrinda þessu í fram-
kvæmd en ég vona að það takist.
Ég tel að við höfum komist niður
á lausn sem allir geta orðið sáttir
við,“ sagði Ámi.
----» ♦ ♦--
^lslandsflug:
Flugi hætt til
Blönduóss og
Stykkishólms
„ Játum okkar
sigraða fyrir bíln-
um,“ segir fram-
kvæmdastjórinn
j— fsr.ANnsFT.iTfí hættir flugi til
Stykkishólms og Blönduós þegar
sumaráætlun tekur gildi 15. maí.
Félagið hefur lagt inn sérleyfi sín
á flugleiðunum til samgönguráðu-
neytisins. Þar hefur ekki verið
tekin ákvörðun um hvort eða hve-
nær öðrum aðila verður veitt sér-
leyfi á fyrrnefndum leiðum.
Morgunblaðið/Júlíus
Hvítur flekkurinn náði langt frá landi á sjónum undan Lýsi hf.
Lífræn sápa myndaði flekk á sjónum
LÍFRÆN sápa myndaði hvítan
flekk á yfirborði sjávar við
Grandaveg fyrir neðan Lýsi hf.
í gær. Hjá Lýsi fengust þær
upplýsingar að verið væri að
afsýra loðnulýsi til dýrafóðurs
sem væri óvenju súrt og því
þyrfti að nota meira af natr-
íum-hýdroxíði en venjulega.
Vegna stillunnar settist efnið
svo en myndi hverfa á örfáum
klukkustundum eftir að afsýr-
un lyki.
Haukur Stefánsson verksmiðju-
stjóri hjá Lýsi hf. segir að fitusýr-
umar í lýsinu séu fjarlægðar með
því að blanda í það natríum-
hýdroxíði svo úr verði náttúruleg
sápa og algjörlega skaðlaus-
„Þessi aðferð er viðurkennd
förgunaraðferð á fítu hjá Holl-
ustuvernd ríkisins enda erum við
búnir að notast við hana í 53 ár.
Yfirleitt verður bletturinn hins
vegar mun minni þar sem lýsið er
í undantekningatilfellum svona
súrt,“ segir Haukur.
Samskip hf. fá 65% sjóflutninga varnarliðsins:
Tilboðið 150 millj; lægra
en Eimskip fékk í fyrra
Van Ommeren fékk 35% flutmnganna o g hefur áhuga á samkeppni við fslendinga
„Við játum okkur sigraða af bíln-
um,“ segir Gunnar Þorvaldsson
framkvæmdastjóri Amarflugs.
Hann bendir á að með bættum vega-
samgöngum, hafrþað orðið ómögu-
legt að keppa við bílinn. Farþegum
hafi stöðugt fækkað og það hafi
ekki hjálpað þótt þeir hafi bæði
lækkað verðið og íjölgað ferðum.
FLUTNINGADEILD bandaríska
sjóhersins hefur samþykkt tilboð
Samskipa hf. og hollenska skipa-
félagsins Van Ommeren, í sjó-
flutninga fyrir varnarliðið á Is-
landi til eins árs. Tilboð Sam-
skipa í flutningana í heild nam
3,8 milljónum Bandaríkjadala en
tilboð Van Ommeren nam 6,2
mil^. dala. Samskip fær 65%
flutninganna í sinn hlut sem þýð-
ir að félagið fær flutningana fyr-
ir 2,47 millj. dala eða að jafn-
virði tæplega 150 milljóna króna
en Van Ommeren fær 35% flutn-
inganna fyrir tæplega 4 millj.
dala eða um 240 millj. króna.
Eimskipafélag íslands, sem haft
Ung stúlka lést í umferðarslysi
17 ára stúlka lést í umferðar-
slysi á mótum Sæbrautar og
Holtavegar um kvöldmatarleytið
r gærkvöldi.
Tildrög slyssins voru þau að
jeppabifreið, sem kom ofan úr
Breiðhoiti, ók í hliðina á fólksbíl,
sem kom frá Miklagarði. Kastaðist
fólksbíllinn á tvo aðra bíla sem
báðir skemmdust. Stúlkan, sem var
ökumaður fólksbílsins sem ekið var
á, slasaðist mjög mikið og lést á
slysadeild síðar um kvöldið. Hún
var í ökutíma. Tveir farþegar í bíln-
um slösuðust svo og ökumaður
annars bílsins sem fólksbíllinn rakst
á. Að sögn lögreglu er talið að jepp-
inn hafi keyrt á móti rauðu ljósi.
Ekki er unnt að greina frá nafni
stúlkunnar að svo stöddu.
Morgunblaðið/Ingvar
hefur þessa flutninga með höndum
á undanfömum ámm, lagði einnig
inn tilboð en að sögn Harðar Sigur-
gestssonar, forstjóra félagsins, hef-
ur Eimskip ekki áhuga á þessum
flutningum fyrir það verð sem Sam-
skip buðu og segist ekki sjá ávinn-
ing í því. Segir Hörður að það feli
í sér 52% lækkun frá þeim tekjum
sem Eimskip hafí fengið fyrir 65%
flutninganna sl. ár, sem hafi numið
5,1 millj. dala eða um 300 millj. kr.
Samningurinn tekur gildi 1. júni
og gildir til eins árs. Alls bárust sex
tilboð í flutningana. Þrjú frá íslandi
og þrjú frá Bandaríkjunum. Auk
tilboða Samskipa og Eimskips og
Van Ommeren barst tilboð frá
Magnúsi Baldvinssyni, skipafélag-
inu Rainbow Navigation og banda-
rískum einstaklingi, Phil Busby að
nafni.
Ómar Hl. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samskipa, segir að
tiiboð Samskipa nú sé hærra en það
tilboð sem Eimskip hafí gert í þessa
flutninga fyrir fjórum árum. „Hins
vegar hafa þeir síðan hækkað það
verð um 150-200%,“ sagði Ómar.
Hörður Sigurgestsson segir að
Eimskip muni áfram halda uppi
siglingum á þessari leið en minnka
framboðið og aðlaga sig breyttri
eftirspurn.
Guðmundur Kjærnested, við-
skiptafræðingur sem starfar á
skrifstofu Van Ommeren í New
York, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að félagið hefði lengi haft
augastað á þessum flutningum fyr-
ir skip félagsins sem sigla undir
bandarískum fána. Sagði hann að
fyrirtækið hefði auk þess áhuga á
koma inn í frekari vöruflutninga til
og frá íslandi samhliða flutningun-
um fyrir varnarliðið.
Sjá einnig frétt á miðopnu.
Skákmót í St. Martín:
Islendins'ar
í efstu sætum
ÍSLENSKIR skákmenn voru sig-
ursælir á opnu alþjóðlegu skák-
móti í Saint Martin í Frönsku
Vestur-Indíum, sem er nýlokið.
Úrslitin urðu þau að þeir Helgi
Ólafsson og Jón L. Ámason urðu í
1.-4. sæti, ásamt Dimitri Gurevich
og Alexander Ivanov, Bandaríkjun-
um. Þessir kappar fengu 7 vinninga
af 9 mögulegum. Ivanov var úrskurð-
aður sigurvegari á stigum, rétt á
undan Jóni L. Margeir Péturson, sem
sigraði á mótinu í fyrra, varð nú í
5.-10. sæti með 6V2 vinning.