Morgunblaðið - 20.06.1992, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992
31
Sigfús Pétursson,
Boulder — Minning
Hinn 27. maí sl. lést á heimili
sínu í Boulder, Colorado, Sigfús
Pétursson, svili minn og góðvinur
okkar hjóna, eftir æðrulausa en
stranga baráttu sem þau hjónin
háðu saman við manninn með ljá-
inn. Sigfús fæddist á Húsavík 7.
júlí 1924, fjórða af sex börnum
hjónanna Birnu Bjarnadóttur og
Péturs Sigfússonar, síðar kaupfé-
lagsstjóra á Borðeyri. Eldri systkini
voru Bjarni, Sigríður, María,
Hulda, Heimir fósturbróðir, þá Sig-
fús, Sigurður Már (látinn) og Þór-
arinn. Sigfús ólst upp á Húsavík
og -Borðeyri, hann var barn síns
tíma, fór á Laugaskóla og síðan
fljótlega að vinna eins og margir
ungir menn á stríðsárunum, síðar
lauk hann námi í húsasmíði í
Reykjavík. Hann var vel gefinn og
glaðsinna, eignaðist marga vini og
var hörkuduglegur.
Sigfús giftist systur manns míns,
Dagmar Sörensdóttur, 1950 og
eiga þau þijú börn, Sigþór, Birnu
og Pétur. Fyrir hjónaband eignaðist
Sigfús tvær dætur, þær Arnrúnu
og Sigríði. Svo var mál með vexti
að Sigríður María (Sigga Maja)
giftist bandarískum liðsforingja,
Georg Williams, og eftir að hún
var flutt til Bandaríkjanna stuðlaði
hún að því að hluti fjölskyldu henn-
ar fluttist vestur líka 1955. Þangað
fluttust þá foreldrar hennar, Pétur
og Birna, Bjarni og Sigurbjörg og
Sigfús og Dagmar ásamt tveimur
elstu börnum þeirra. Búgarður var
keyptur í Klettafjöllum og var
Fimmtudaginn 18. júní var jarð-
settur frá Fossvogskapellu, mágur
minn Benedikt Hannesson. Hann
var fæddur 31. júlí 1918 á Hellis-
sandi, sonUr hjónanna Steinunnar
Jóhannesdóttur og Hannesar Bene-
diktssonar. Hannes varð fyrir því
áfalli á ungum aldri að missa heils-
una og varð óvinnufær upp frá
því. Þau Steinunn fluttu þá til
Reykjavíkur ásamt börnum sínum
og hófu þar lífsbaráttuna, sem ör-
ugglega hefur oft verið erfið. Þá
voru engar örorkubætur til hjálpar.
Fólk varð bara að bjarga sér sjálft.
Það gefur auga leið að Benni,
eins og hann var sévinlega kallað-
ur, varð fljótt, þó ungur væri að
leggja hönd á plóg og fara að vinna
| strax og hann gat vettlingi valdið,
til hjálpar móður sinni. Hann vann
ýmsa vinnu sem bauðst meðan
j hann var unglingur, en fór svo að
vinna hjá Eimskipafélagi íslands,
þegar hann hafði aldur til og vann
I þar í mörg ár, en vann svo hjá
Heilsugæslustöðinni í Reykjavík í
25 ár, eða meðan heilsan leyfði.
I gær var borinn til grafar bróð-
ir okkar. Þorsteinn Einarsson, eða
Steini frændi eins og við systumar
kölluðum hann.
Þegar við vorum yngri var Steini
( frændi til sjós og þegar úr langsigl-
ingum var komið brást ekki að
hann færði okkur systrunum leik-
| föng og góðgæti.
Þegar árin liðu hætti Steini á
sjónum og þá gafst okkur betra
| tækifæri til að kynnast honum, en
hann varð þá tíður gestur á heimili
okkar. Alltaf þótti okkur jafn gam-
an að spjalla við hann og hlusta á
hann segja sögur frá gamalli tíð.
nefndur Petersdale. Þar bjuggu
þessi þrenn hjón í sambýli í nokkur
ár, mun sá búskapur hafa verið
erfiður og slítandi. Svo fór að Pét-
ur og Bima fluttu heim aftur eftir
fá ár og nokkru seinna Bjarni og
Sigurbjörg.
Sigfús og Dagmar urðu eftir, en
hann hafði lofað henni að ef hún
yndi sér ekki þar vestra flyttust
þau heim að fimm árum liðnum.
Fjarlægðin gerir fjöllin blá og þau
fluttu heim eftir þessi umtöluðu
fimm ár og vom hér á landi í eitt
ár, en fóru svo aftur til Bandaríkj-
anna. Þau settust að í Boulder,
Colorado, fallegum háskólabæ við
rætur Klettafjalla, þar búa einnig
Sigga Maja og Georg maður henn-
ar. í Boulder vænkaðist hagur
þeirra fljótlega, því bæði voru
hörkudugleg. Sigfús vann lengi við
fyrirtæki mágs síns við húsbygg-
ingar, en starfaði síðan sjálfstætt
að smíði húsa. Dagmar vann fyrst
á saumastofu með heimilinu og síð-
ar þegar tækifæri bauðst settu þau
á stofn vínverslun í nýju verslunar-
hverfi og þá verslun hefur Dagmar
rekið af miklum dugnaði og útsjón-
arsemi, lengst af með hjálp Birnu
dóttur sinnar.
Þegar heilsu Sigfúsar tók að
hraka, en hann þurfti að fara í tvo
stóra uppskurði fyrir nokkrum
árum, hætti hann smíðum og setti
upp brýningarverkstæði og þótti
mörgum gott að koma í smiðju
hans, svo glaðsinna og hjálplegur
sem hann var.
Ég man fyrst eftir Benna þegar
ég var krakki. Hann kom í heim-
sókn, með systur minni Hallfríði,
en þau voru þá gift, gengu í hjóna-
band árið 1943. Mér þótti hann
afskaplega myndarlegur maður.
Þau komu mjög oft í heimsókn
vestur meðan foreldrar mínir voru
þar vestra. Þau eignuðust fjögur
börn. Þau eru Ásta fulltrúi hjá
póstgíróstofunni í Reykjavík,
Hannes flugvirki í Bandaríkjunum,
Magnús, hann lést 12 ára gamall
og Knútur rafvirkjameistari í
Reykjavík. Þau eiga átta bamabörn
á lifi og tvö barnabarnabörn. Þau
byijuðu búskap á heimili foreldra
hans á Hofsvallagötu 18 og bjuggu
þar lengi, en þegar börnunum fjölg-
aði, varð þröngt um þau, svo þau
festu kaup á nýrri íbúð í Skálagerð-
inu, en þau voru þar ekki langan
tíma. Steinunni þótti tómlegt eftir
að þau fóru og vildi fá þau aftur,
svo þau fluttu aftur á Hofsvallagöt-
una og bjuggu þar alla tíð síðan.
Þau eignuðust sumarbústað í
Hólmslandi við Geitháls, sem þau
Steini frændi var okkur góður
og alltaf var hann tilbúinn að rétta
okkur hjálparhönd ef eitthvað bját-
aði á. Með þesum örfáu orðum lang-
ar okkur að kveðja Steina frænda,
sem nú hverfur yfir móðuna miklu.
Blessuð sé minning hans.
Guð komi sjálfur nú með náð,
nú sjái Guð mitt efni og ráð,
nú er mér, Jesú, þörf á þér,
þér hefi ég treyst í heimi hér.
(H.P.)
Gerður og Kristrún
Einarsdætur.
Við hjónin höfum átt því láni að
fagna að hafa heimsótt þessa vini
okkar þrisvar til Boulder og í tvö
skiptin farið með þeim í þriggja
vikna ferðir í hjólhýsi sem þau áttu.
í ferðum þessum var farið um 22
fylki Bandaríkjanna og margt og
mikið séð, flest af því sem Banda-
ríkjamenn segja vera stærst og
mest í heimi. Þessar ferðir eru
ógleymanlegar og það ekki síst
vegna þeirrar sönnu vináttu sem
ríkti í þeim. Við Dagga kölluðum
þá mágana Sigfús og Stefán, tví-
burana, því ef annar hreyfði sig
eða fór út að athuga eitthvað, var
hinn kominn á hæla hans. Þeir
voru einkar samhentir við öll störf
sem ferðalaginu viðkom og hinir
bestu vinir.
Sama er að segja af okkur mág-
konunum og heimilisverkin í hús-
vagninum virtust næstum gera sig
höfðu mikið yndi af. í þá daga
þótti langt að fara upp að Geit-
hálsi, þó gekk þangað strætisvagn.
Þau áttu þennan bústað árum sam-
an og þar var Fríða með krakkana
allt sumarið, en Benni kom um
helgar. Öllum þótti gott að vera í
sveitinni. Það var ákaflega gest-
kvæmt á heimili þeirra. Ég kom
þar oft sem barn, með foreldrum
mínum. Við héldum náttúrulega til
hjá Fríðu og Benna og þótti sjálf-
sagt að öll fjölskylda okkar héldi
þar til, þegar á þurfti að halda,
enda þau hjón ákaflega gestrisin
og allir hjartanlega velkomnir, þótt
þau byggju þröngt. Þau voru líka
heimsótt mikið af öllum ættingjum
og vinum. Þau voru ákaflega vin-
mörg. Ég hélt líka stundum til hjá
þeim eftir að ég eignaðist fjölskyldu
og var búsett vestra.
Benni var mikið ljúfmenni og
hugsaði vel um sitt. Hann fylgdist
vel með þjóðmálum og stundum
gat slegið í brýnu með honum og
bónda mínum, þegar við komum í
heimsókn, út af einhveiju sem var
að gerast í þjóðfélaginu, en allt í
góðu. Þau heimsóttu okkur hjónin
líka vestur og krakkarnir þeirra
voru hjá okkur. Ásta var barnapía
ein tvö sumur og Magnús var líka
hjá okkur. Eitt sinn komu, að mig
minnir, öll systkini Benna með fjöl-
skyldu. Þau voru að heimsækja
æskustöðvarnar. Þau hjónin
ferðuðust talsvert mikið, fóru oft
til Bandaríkjanna að heimsækja
Hannes og ýmislegt fleira ferðuð-
ust þau. Þeim þótti ákaflega gaman
að ferðast og nutu þess mjög.
Síðustu árin gekk Benni ekki
heill til skógar. Hann fékk þennan
erfiða sjúkdóm, sem hijáir svo
marga „alsæmi“, en hann var þó
oftast nokkuð hress og Fríða hugs-
aði um hann heima. En svo kom
að því að það varð henni of erfítt
og hann fékk inni á Kumbaravogi,
þar sem honum leið vel og var sátt-
ur við að vera. Fríða og börnin
heimsóttu hann í hverri viku svo
og aðrir ættingjar þeirra og vinir.
Hann var þar í nokkra mánuði og
nú er hann allur.
Fríða mín, við Skúli og börnin
okkar vottum þér og fjölskyldu
okkar dýpstu samúð. Megi minn-
ingin um þinn góða mann ylja á
ókomnum árum.
Hrefna Magnúsdóttir.
sjálf.
Árið 1984 heimsóttu þau hjónin
ísland og ættingja sína hér og
ókum við þá með þau hringveginn
í sól og blíðu mest allan tímann,
landið okkar tók vel á móti burt-
fluttu börnunum sinum. Ekki var
þó húsvagn í ferðinni í það skiptið,
enda í mörg horn að líta hjá skyld-
fólki fyrir norðan.
Nú er komið að kveðjustund, við
hjónin biðjum Sigfúsi vini okkar
allrar blessunar á þeim slóðum sem
nú taka við og vonumst til að hitta
hann hinum megin og hver veit
nema að við eigum þá eftir að ferð-
ast eitthvað skemmtilegt saman.
Ég vil helst trúa því.
Elsku Döggu okkar, börnum,
systkinum og öðrum vandamönn-
um sendum við hjónin innilegar
samúðarkveðjur.
Perla Kolka.
Mágur minn Sigfús Pétursson
lést í Boulder, Colorado, USA.
Hann var fæddur á Húsavík,
sonur hjónanna Birnu Bjarnadóttur
frá Húsavík og Péturs Sigfússonar
frá Halldórsstöðum í Reykjadal.
Hann ólst upp á Húsavík í stórum
systkinahópi, síðar fluttist fjöl-
skyldan til Borðeyrar er Pétur gerð-
ist kaupfélagsstjóri þar. Næsti
dvalarstaður Sigfúsar var Borgar-
nes, þaðan fluttist hann til Reykja-
víkur. í Reykjavík lærði hann húsa-
smíði sem varð hans ævistarf, fyrst
hér á landi og síðar í Boulder.
Hann varð ekki gamall maður,
hefði orðið 68 ára 7. júlí í sumar.
Ég hitti Sigfús, eða Sudda eins og
hann var oftast kallaður, þegar ég
giftist bróður hans fyrir rúmum
40 árum. Sigfús var glæsilegur
maður og hvers manns hugljúfi.
Það var stór hópur af fólki sem
lagði út í það ævintýri að flytja
vestur til Bandaríkjanna um haust-
ið 1955, ellefu manns, þetta voru
tengdaforeldrar mínir, Birna og
Pétur, Sigfús og Lára Dagmar
Sörensdóttir með tvö börn sín, síð-
ar fæddist þeim það þriðja fyrir
vestan, svo var það undirrituð og
maður minn, Bjarni, ásamt þremur
stjúpbörnum mínum. Við settumst
Fóðurblöndunarstöð Jötuns hf.
(áður Fóðurblöndunarstöð Sam-
bandsins) var meðal fyrstu fyrir-
tækjanna sem hófu starfsemi í
Sundahöfninni, eftir að hún var
byggð. Á næsta ári eru því 20 ár
liðin frá því að starfsemi þessi hófst.
Hægt verður að skoða fóðurverk-
smiðjuna og fóðurbirgðastöðina,
ásamt fóðurefnum og ýmsum fóður-
vörum. Fullkomin fóðurflutninga-
fyrst að í Boulder, Colorado, en þar
bjó fyrir mágkona mín, Sigríður
María, og Georg Williams ásamt
tveimur drengjum þeirra. Þarna
vorum við í nokkra mánuði en flutt-
um síðan upp í fjöllin á búgarð sem
var skírður Pétursdale Ranch. Pét-
ursdale er nálægt miklum skíðabæ
sem heitir Steamboat Springs,
þarna bjuggum við saman í tæp
fímm ár. Bræðurnir, Bjarni og Sig-
fús, með sínar fjölskyldur í sama
húsi, en tengdaforeldrar mínir í
húsi skammt frá. Þegar ég lít til
baka, til þessara góðu ára, fínnst
mér að allt hafí verið skemmtilegt.
Búskapurinn var stór í sniðum,
holdanaut, mjólkurkýr, kindur og
mikil kornrækt. Sigfús er mér
minnisstæður sem einstaklega góð-
ur verkmaður, sterkur og lipur,
hann var ljúfur í lund og því auð-
velt að vera nærri honum. Það var
mikið unnið á þessum árum því
metnaður var mikill í að standa
sig. Hver hafði sitt verk að vinna
og var ekkert þras eða rifrildi. Syo
fór að við Bjarni fluttum alfarin
heim til íslands, áður höfðu tengda-
foreldrar mínir farið heim, en Sig-
fús og hans fjölskylda fluttu til
Boulder og hafa búið þar síðan að
undanskildu einu ári er þau dvöldu
á Húsavík.
Sigfús var gæfumaður í einka-
lífí, eignaðist góða fjölskyldu.
Dagmar kona hans er frá Húsavík.
Hún er traust og mikilhæf kona
sem vildi allt það besta fyrir hann.
Sigfús tók veikindum sínum af
mikilli karlmennsku og æðruleysi,
vel studdur af fjölskyldu sinni. Það
hefur fækkað í þessum systkina-
hópi, en mágur minn, Sigurður
Már, lést fyrir fímm árum, aðeins
58 ára gamall. „Enginn ræður sín-
um næturstað."
Ég vil með þessum orðum þakka
Sigfúsi góð kynni og þá sérstaklega
þessi tæp fimm ár sem við áttum
öll saman í Pétursdale. Döggu og
bömunum sendum við Bjarni, Sig-
ríður Birna, Sigfús, Arnaldur og
þeirra fjölskyldur, innilegar samúð-
arkveðjur og þakkir fyrir allt. Guð
blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Magnúsdóttir,
(Bíbí).
bifreið sem getur flutt allt að
16.500 kílóum af lausu fóðri í einni
ferð, verður til sýnir á sýningar-
svæðinu, ásamt margvíslegum öðr-
um búnaði í sambandi við fóður-
framleiðslu.
Fóðurblöndunarstöð Jötuns hf.
framleiðir um 13.000 tonn af fóðri
á ári og er meðal stærstu fyrir-
tækja hér á landi á sínu sviði.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda vinóttu og hluttekningu við fráfall
eiginkonu minnar,
GUÐRÚNAR BERGSDÓTTUR,
Grenimel 4,
Reykjavik.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Þorleifur Guðmundsson.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför óstkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
MAGNÚSAR EINARSSONAR,
Litlagerði 1,
Hvolsvelli.
Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Sigriður Magnúsdóttir, Jón Óskarsson,
Guðmundur Magnússon, Helga Pálsdóttir,
Einar Magnússon, Benedikta Steingrímsdóttir,
Hanna Magnúsdóttir, Bjarní Hjálmtýsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Benedikt Hannes
son — Minning
Þorsteinn Einars-
son - Kveðjuorð
Fyrirtæki til sýnis
í TILEFNI af Hafnardeginum sem er í dag, laugardaginn 20. júní,
til þess að halda upp á 75 ára afmæli Reykjavíkurhafnar, mun Fóður-
blöndunarstöð Jötuns hf., Korngörðum 6 og 7 í Sundahöfn, verða
opin almenningi á milli kl. 10 f.h. til 5. e.h. til kynningar á þeirri
starfsemi sem þar fer fram.