Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 Útgefandi Árvakur h.f., Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Moskvustyrkir Máls og menningar Jón Ólafsson fréttamaður Rík- issjónvarpsins dvaldi um tíma í Moskvu þar sem hann athugaði fyrrum leyndarskjöl, m.a. um samskipti Kommúnista- flokks Ráðstjómarríkjanna við sovétsinnuð samtök og og sovét- sinnaða einstaklinga hér á landi. í fréttum, sem byggðar eru á þessum heimildum, hefur sitt hvað komið í ljós, sem styrkt hefur fyrri frásagnir og grun- semdir um pólitíska íhlutun Sov- étmanna í íslenzka menningu og íslenzk stjómmál. í fréttum Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld er varpað ljósi á enn eitt dæmið þessa efnis. Þar sagði að sovézki kommúnistaflokkur- inn hafi veitt bókaútgáfunni Máli og menningu umtalsverða fjárstyrki á árunum 1968 og 1970. Samkvæmt skjölunum sótti þáverandi framkvæmda- stjóri Máls og menningar um fjárstyrk til útgáfunnar árið 1970, að jafngildi 6,8 milljóna króna, og er þess þar getið að sambærilegur styrkur hafi feng- izt árið 1968. Þetta er orðað svo í endursögn Morgunblaðsins í gær af frétt Ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld: „Samkvæmt upplýsingum sem Jón Ólafsson fréttamaður aflaði í Moskvu nam styrkurinn 20 þúsund Bandaríkjadölum, eða um 1.760 þúsundum króna á þáverandi gengi. Jafngildir það um 6,8 milljónum á núverandi verðlagi. Kemur þetta fram í nýfundnum skjölum sovézka kommúnistaflokksins, sem geymd eru í Moskvu." Núverandi framkvæmdastjóri Máls og menningar segir að þá- verandi framkvæmdastjóri hafí sótt um styrkinn algerlega upp á eigin einsdæmi, ef leyndar- skjölin skýri rétt frá, en upplýs- ingar um þessar styrkveitingar sé ekki að fínna í gögnum fyrir- tækisins. Þrátt fyrir þau orð núverandi framkvæmdastjóra MM verður að líta svo á að frétt- ir Ríkissjónvarpsins síðustu vik- ur, sem byggðar eru á rannsókn- um á fyrrum leyndarskjölum sovézka kommúnistaflokksins, styrki rökstuddar grunsemdir, sem lengi hafa verið tíundaðar hér í blaðinu, um tengsl fyrrum valdhafa í Sovétríkjunum við Kommúnistaflokk íslands, Sam- einingarflokk alþýðu Sósíalista- flokkinn og öfl innan Alþýðu- bandalagsins. Alþýðubandalagið var stofnað sem kosningasamtök árið 1956 og sem formlegur stjórnmála- flokkur árið 1968, sama árið og fyrri styrkur sovézka kommún- istaflokksins til Máls og menn- ingar er veittur, samkvæmt þeim skjölum, sem fréttamaður Ríkis- sjónvarpsins hefur upplýst okkur um. Síðari styrkurinn, sem skjöl- in tíunda, er frá árinu 1970. Samkvæmt þessum skjölum virð- ast því tengsl Kommúnistaflokks Sovétríkjanna við hérlenda sam- heija ennþá haldgóð á árunum eftir stofnun Alþýðubandalags- ins, þótt svo hafi verið látið heita að þau heyrðu þá fortíðinni til. Kommúnistaflokkur íslands, stofnaður 1930, var aðili að Al- þjóðasambandi kommúnista (3ja Intemationale, Komintern). Arf- taki hans, Sósíalistaflokkurinn, fór heldur ekki dult með viðhorf sín. Höfuðmarkmið hans var „að vinna bug á auðvaldsskipulaginu á íslandi og koma á í þess stað á þjóðskipulagi sósíalismans ... skoðanir sínar byggir flokkurinn á grundvelli hins vísindalega sós- íalisma, marxismanum.“ Stefnu- skrá Alþýðubandalagsins (1981) er enn við svipað heygarðshom, þótt svarið sé fyrir öll tengsl við Sovétríkin, en þar segir að hreyf- ingin „hljóti einkum að beijast fyrir þeim umbótum, sem skapað geti forsendur fýrir breytingu þjóðfélagsins í sósíalíska átt“. Fréttir Ríkissjónvarpsins, unn- ar upp úr skjölum sovézka kommúnistaflokksins, staðfesta í megindráttum það sem borg- aralega sinnuð blöð hafa í ára- tugi haldið fram um tengsl Moskvu við vinstri sósíalista hér á landi. Þau tengsl eiga að vera okkur víti til vamaðar. Enginn getur flúið fortíð sína, hvort heldur hún er marxísk eða annars konar. Hún er og verður í farteskinu inn í framtíðina. En það er mikilvægt að gera upp við þessa fortíð og draga réttan lærdóm af henni. Þá er von til þess að ekki verði myrkur um miðjan dag uppvaxandi kynslóð- ar í veröldinn. Loks má benda á að á sínum tíma var talað um Rúbluna, rússagull og annað slíkt. Þá höfðu samtök sósíalista oft happ- drætti til styrktar starfseminni, og Þjóðviljinn, aðalmálgagnið ásamt Rétti og Tímariti Máls og menningar, ekki bókhaldsskyld- ur samkvæmt reglum um stjórn- málaflokka og málgögn þeirra. Rússagull átti því greiða leið til aðalstöðva kommúnista hér á landi. Enn á vafalaust ýmislegt eftir að koma í ljós áður en upp verður staðið eins og rætt var um í síðasta Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins. Sagan á eftir að fella sinn dóm yfír marxistum eins og öðrum. AFLAHEIMILDIR NÆSTA FISKVEIÐIÁR5 Þorskveiðikvótinn verður 205 þús. tonn Málamiðlun, segir Þorsteinn Pálsson LEYFILEGUR þorskafli landsmanna fyrir fiskveiðiárið sem hefst þann 1. september nk. verður 205 þúsund tonn, samkvæmt reglu- gerð þeirri sem Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra gaf út í gær. Samtals nemur leyfður heildarafli kvótabundinna tegunda á næsta ári 439 þúsund þorskígildistonnum. Ríkisstjórnin fundaði daglangt í gær um málið og fékkst ofangreind niðurstaða laust fyrir kl. 15.30. Sjávarútvegsráðherra nefnir þessa niðurstöðu mála- miðlun. Sú málamiðlun felur það ekki í sér að úthlutað verði úr Hagræðingarsjóði með þeim hætti sem ráðherra hafði lagt til. Morgunblaðið spurði sjávarút- vegsráðherra hvort það hefði aldrei komið til greina í hans huga að standa og falla með eigin sannfær- ingu og leggja til á ríkisstjómar- fundinum að hámarksafli þorsks yrði takmarkaður við 190 þúsund tonn: „Ég lagði aðaláherslu á að finna lausn og ná samstöðu um málið. Ég sagði það frá upphafí. Ég neita því ekkert að ég hefði viljað fá meiri árangur í friðun, en ég tel þó að við höfum náð hér mjög umtalsverðum árangri og stigið skref fram á við. Mín ósk hefði auðvitað verið sú að ná fram meiri árangri, en þegar menn þurfa að miðla málum, þá verða allir að fá eitthvað af sínum sjónarmiðum viðurkennd. Ég óttast það, og er reyndar alveg sannfærður um það, að ef ég hefði látið reyna á ýtrustu kröfur af minni hálfu og yfírgefíð ríkisstjómina vegna þess að þær hefðu ekki náðst fram, þá hefði niðurstaðan að öllum líkindum orðið miklum mun meiri veiði, og minni verndun þorskstofnsins. Þess vegna taldi ég réttlætanlegt og reyndar nauðsynlegt út frá þjóðarhagsmun- um að gera slíkt samkomulag," sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra. „Hér er vissulega um málamiðlun að ræða, sem hefur líka í för með sér að það er tekin nokkur áhætta með þorskstofninn, miðað við þær vísindalegu niðurstöður sem við höfum í höndum. Að mínu mati er hér um að ræða ásættanlega niður- stöðu miðað við allar aðstæður," sagði sjávarútvegsráðherra á fundi með fréttamönnum síðdegis í gær. Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær var samþykkt svohljóðandi bókun: „Ríkisstjómin samþykkir að fela Byggðastofnun að gera rækilega athugun á áhrifum þorskbrests á einstök svæði og vinna að álitsgerð um þær ráðstafanir sem mögulegar eru til að milda það áfall sem af þorskbresti leiðir." Morgunblaðið spurði sjávarút- vegsráðherra í gær hvort ofan- greindri bókun væri ætlað að koma í stað hugmyndar hans um úthlutun án endurgjalds úr Hagræðingar- sjóði til þeirra byggðarlaga sem ella hefðu farið verst út úr þorsk- skerðingunni: „Að vissu leyti má segja það. Ég hafði kynnt hug- myndir eða dæmi sem fólu í sér meiri verndun þorskstofnsins en hér fæst niðurstaða um og jafnframt að við þær aðstæður yrði Hagræð- ingarsjóður notaður til að jafna áfallið gagnvart þeim byggðum sem verst hefðu orðið úti af þeim sök- um. Það var ekki samkomulag í ríkisstjóminni um að nota Hagræð- ingarsjóðinn í þessu skyni. Það má segja að á móti komi þessi ákvörð- un að fela Byggðastofnun þetta verkefni,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Sjávarútvegsráðherra benti í þessu sambandi á að Byggðastofn- un hefði ónýtta lántökuheimild upp ,á um 300 milljónir króna, „lántöku- heimild, sem stofnunin á að geta nýtt í þessu skyni og vonandi hefur ný reglugerð ekki takmarkandi áhrif á að hægt sé að nota þessa lántökuheimild," sagði Þorsteinn. Morgunblaðið spurði sjávarút- vegsráðherra hvort hann teldi að þessi niðurstaða yrði ásættanleg fyrir þau byggðarlög sem verst færu út úr skerðingunni: „Það verða ugglaust skiptar skoðanir um það,“ og aðspurður hvort hann teldi að málið kæmi til kasta þingsins svaraði ráðherra: „Ég get ekkert um það sagt, en það verður ekki af ríkisstjómarinnar hálfu.“ Sjávarútvegsráðherra sagði að niðurstaða sú sem fékkst í gær svaraði til 2,4% lækkunar á afla- verðmæti milli ára. Hann sagði að lauslega mætti áætla að þetta þýddi rétt innan við 1% samdrátt í lands- framleiðslu, en enn lægju ekki fyrir endanlegir útreikningar Þjóðhags- stofnunar þar að lútandi. „Vissulega er hér um gífurlegan samdrátt í þorskveiðum að ræða. Honum er að hluta til mætt með meiri veiði úr öðmm stofnum, en þar sem þorskveiðin er hátt hlut- fall af heildarveiði í einstökum byggðum, þá verður áfallið meira. Eina leiðin til þess að mæta því innan fískveiðistjómunarkerfísins, hefði verið að nota aflaheimildir Hagræðingarsjóðs, en um það varð ekki samstaða," sagði sjávarút- vegsráðherra og bætti við að áður en til þessarar ákvörðunar um heildarafla kom hefðu menn vitað að sjávarútvegsfyrirtækin í landinu hefðu mörg hver verið í miklum rekstrarörðugleikum. „Heildar- vandi sjávarútvegsins í dag verður auðvitað nokkuð meiri í þeim sjáv- arplássum sem verða fyrir mestri skerðingu — það liggur í augum uppi,“ sagði Þorsteinn. Sjávarútvegsráðherra var spurð- ur hvort hann liti þannig á að hann hefði orðið undir í þessu máli: „Það er nú þannig með málamiðlanir að það fá allir eitthvað fýrir sinn snúð. Vissulega er það svo að ég hefði talið skynsamlegt að ganga lengra í vemdun þorskstofnsins og hraða uppbyggingu hans meir en þessi niðurstaða segir til um. Á hinn bóginn má ljóst vera, út frá þeim þungu kröfum sem uppi voru um að fara ekki með veiðamar undir 230 þúsund lestir, þá er hér um verulegan árangur að ræða út frá verndunarsjónarmiðum. Við hverf- um frá jafnstöðumarkmiðinu og inn á braut uppbyggingarmarkmiðs- ins.“ Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra: Vildi bókun um að úthlutun úr Hagræðing-arsjóði var hafnað JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að niðurstaðan sem varð í ríkisstjórn i gær, þegar tillögur Þorsteins Pálssonar sjávarút- vegsráðherra um leyfilegan hámarksafla á næsta fískveiðiári voru samþykktar, sé ásættanleg, þar sem þorskstofninum sé ekki teflt i tvísýnu, jafnframt því sem dregið sé úr efnahagslegu áfalli eins og unnt er með því að auka veiðiheimildir í sterkari stofna og með því að auka þorskveiðikvótann úr 190 þúsund tonna tillögu Hafrannsókna- stofnunar i 205 þúsund tonn, sem komi Vestfjörðum og Norðurlandi best. „Að þessu leyti hefur verið komið til móts við okkar sjónarmið," sagði Jón Baldvin í samtali við Morgun- blaðið í gær, „ásamt með því að Hagræðingarsjóði er haldið fýrir utan þetta. 12 þúsund tonna afla- heimildum verður veitt úr honum gegn endurgjaldi, samkvæmt gild- andi reglum. Sá sjóður hleypur ekki frá okkur og hann verður áfram til umfjöllunar að því er varðar starf nefndar þeirrar sem nú endurskoðar lög um stjómun fiskveiða," sagði utanríkisráðherra. Utanríkisráðherra sagði að Al- þýðuflokkurinn hefði frá upphafi haft það að leiðarljósi að ekki mætti tefla í tvísýnu þorskstofninum, auk þess sem flokkurinn hefði sagt að það yrði að leita allra leiða til þess að draga úr efnahagsáfallinu. „Til- laga sjávarútvegsráðherra sem sam- þykkt var felur í sér þann gullna meðalveg, sem fullnægir þessum sjónarmiðum," sagði Jón Baldvin. Jón Baldvin sagði að í fjölmiðla- umfjöllun undanfama daga, hefði mjög gleymst að gæta þess hversu fjárhagsleg staða sjávarútvegsins sem heildar væri hörmuleg og hversu litlu hefði mátt muna til þess að fyrirtæki mundu unnvörpum falla fyrir borð og atvinnuástand verða ógnvænlegt. „Ég tel að eftir ræki- lega skoðun og heitar umræður, þá hafí niðurstaðan verið sú skársta sem unnt var að fá í þessari stöðu,“ sagði Jón Baldvin. Utanríkisráðherra sagði jafn- framt: „Við lýstum okkur reiðubúna til þess, þegar sjávarútvegsráðherra opnaði á það í þessu samhengi að ræða framtíðarfiskveiðistefnuna. Við vorum og emm reiðubúnir til þess. í því samhengi vomm við reiðu- búnir til þess að fallast á að leggja fyrir Alþingi fmmvarp um breyting- ar á lögum um Hagræðingarsjóðinn, en því aðeins að það væri hluti af sameiginlegri niðurstöðu um fram- tíðarlausn hvað varðar fískveiði- stefnu. En niðurstaðan varð sú að tíminn til þess var of naumur. Það þarf lengri tíma til þess að eyða óvissu að því er varðar útfærslu á þeim tillögum sem nú em til já- kvæðrar umræðu í fískveiðistjómun- MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 23 Tillöguraar og kvótinn Hér er gerður samanburður á tillögum Alþjóðahafrannsóknaráðsins og Hafrannsóknarstofnunar um þorskafla og ákvarðanir ríkis- stjórnarinnar um kvóta. Þess ber að geta að fyrirfiskveiðiárin 1993-1995 leggur Hafrannsóknarstofnun til 175.000 tonna þorskafla IÞorskkvóti 1991-1992: 265.000 tonn 2Tillögur Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins fyrir 1992-1993:175.000 tonn 3Tillögur Hafrannsókna- stofnunar fyrir 1992-1993:190.000 tonn 4Ákvörðun ríkisstjórnar- innar um þorsk- kvóta 1992-1993: 205.000 tonn Byggðastofnun geri athug- un á áhrifum þorskbrests HÉR á eftir fer fréttatilkynning Þorsteins Pálssonar sjávarút- vegsráðherra um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári, 1992-1993. Sjávarútvegsráðherra hefur í dag gefíð út reglugerð um veiðar í at- vinnuskyni fyrir fiskveiðiárið sem hefst 1. september nk. Með reglu- gerðinni er leyfður heildarafli á komandi fískveiðiári ákveðinn sem hér segir (til glöggvunar er jafn- framt sýndur leyfílegur heildarafli yfírstandandi fiskveiðiárs og tillög- ur Hafrannsóknastofnunar fyrir komandi fiskveiðiár): (SJÁ töflu) Ofangreindar tölur eru miðaðar við þyngd á afla upp úr sjó. I framangreindri reglugerð er tekin ákvörðun um aflahámark á næsta fískveiðiári af öllum þeim tegundum sem sæta ákvörðun um leyfílegan heildarafla, nema loðnu. Davíð Oddsson forsætisráðherra: Breyting á Hagræðing- arsióði aldrei raunhæf DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segist telja að almennt séð, út frá heildarhagsmunum þjóðfélagsins, bæði efnahagsmálum ríkisins, ein- stakra fyrirtækja og þjóðarinnar sem heildar, sé sú niðurstaða sem fékkst á ríkisstjórnarfundi í gær um hámarksafla landsmanna á næsta fiskveið- iári góð. „Þess er gætt að reyna að milda það áfall sem þorskbresturinn óneitanlega veldur, fyrirtækjum í sjávarútvegi og þjóðinni allri," sagði forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég er mjög ánægð- ur með þessa niðurstöðu," sagði Davíð. Forsætisráðherra sagðist telja að ofangreindu markmiði hefði verið náð, án þess að nokkrum fiskistofnum væri í voða stefnt. „Það er sótt nokkru meira í þá stofna sem öruggir teljast, að mati þeirra sem best þekkja til. Á hinn bóginn er gengið miklu skemur í þorskveiðum heldur en nokkru sinni fyrr í okkar sögu og meðvituð upp- byggingarstefna á hrygningarstofni þar með hafin. Auðvitað vonum við að hún skili árangri, þótt það sé auð- vitað óvissu háð. Eins og kunnugt er þá töldu fiskifræðingar að 220 þúsund tonna afli myndi vera jafnstöðuafli, arnefndinni. Þess vegna var ekki unnt á þessum tíma að fallast á kröf- ur eða óskir um að taka Hagræðing- arsjóðinn inn í þetta dæmi. Hann fer hins vegar ekkert frá okkur og á næstu vikum og mánuðum stöndum við frammi fýrir meiriháttar verkefn- um að því er varðar framtíð sjávarút- vegs á Islandi. Það er skipulags- vandi sjávarútvegsins sem ekki hefur verið leystur og er enn brýnna að leysa nú, þegar aflaverðmæti og velta fýrirtækja í sjávarútvegi mun fyrirsjáanlega minnka og hitt er að móta stefnu til frambúðar sem getur gefíð sjávarútveginum kost á að búa við stöðugleika til lengri tíma, að því er varðar þau skilyrði sem honum eru búin.“ Jón Baldvin kvaðst sérstaklega hafa óskað eftir því á ríkisstjórnar- fundinum í gær að það yrði fært til bókar að ríkisstjómin hefði hafnað þeirri kröfu að veiðiheimildum úr Hagræðingarsjóði yrði úthlutað án endurgjalds. „En ég tók tiliit til þess, þegar á það var bent, að þess þyrfti ekki, þar sem það væri hluti af yfír- lýstri ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Þannig að það er á hreinu að þetta tiltekna mál er afgreitt í ríkisstjórn. Þetta er mikilvægt, vegna þess að málinu er að sjálfsögðu ekki lokið,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra. þótt hrygningarstofninn myndi aukast nokkuð. Miðað við ákvörðun okkar má ætla að nú gefist tóm til að byggja hrygningarstofninn upp, sem er auð- vitað heilmikið efnahagslegt átak, en skilar þó vonandi efnahagslegum árangri, þótt síðar sé,“ sagði forsætis- ráðherra. Morgunblaðið spurði forsætisráð- herra hvort sú staðreynd að ríkis- stjómin hefði hafnað því að úthluta úr Hagræðingarsjóði á þann veg sem sjávarútvegsráðherra hefði viljað, gerði það ekki að verkum að þau byggðarlög sem verst færu út úr þorskskerðingunni, væru beinlínis skilin eftir á köldum klaka: „Hagræð- ingarsjóðsdæmið út af fyrir sig hefði ekki breytt því, þar sem þá hefði ver- ið veitt minna af þorski á íslandsmið- um á næsta ári og þá hefði íslenska þjóðin öll tapað á því, að mínu mati bæði til lengri og skemmri tíma. Nú- verandi fyrirkomulag Hagræðingar- sjóðs var ákveðið með sátt milli stjórn- arflokkanna. Það var angi af þeirri stefnu að aukin kostnaðarþátttaka ætti sér stað í þjónustu ríkisins, bæði hjá fyrirtækjum og almenningi. Það er nauðsynlegt að fyrirtækin taki þátt í slíku. Hér er ekki um stórar upphæð- ir að ræða miðað við getu sjávar- útvegsins. Þó að þessi aðferð fari í taugarnar á sumum forsvarsmönnum sjávarútvegsins, þá finnst mér full ástæða til þess að við varðveitum þetta kostnaðar-„prinsip“ sem upp var tekið. Það myndi hrynja víða annars staðar ef við myndum falla frá því í þessu tilviki. Ég tel að það hafí ekki verið raunhæft og aldrei verið raun- hæft að leggja það til núna að hverfa frá þeirri notkun á Hagræðingarsjóðn- um, sem samkomulag hafði orðið um,“ sagði forsætisráðherra. Davíð benti á að ákveðið hefði ver- ið í gær að auka þorskaflann um álíka mörg þorskígildi og Hagræðingarsjóð- ur hefði yfir að ráða og sú aukning kæmi auðvitað þeim best til góða, sem verst hefðu farið út úr þorskveiðita- kmörkunum. „Þannig að ég tel að eftir atvikum hafi tekist vel í þeirri ákvörðun sem sjávarútvegsráðherra tók í samráði við ríkisstjórn að sam- ræma sjónarmið," sagði forsætisráð- herra. Forsætisráðherra var spurður hvort hann teldi að málið kæmi hugsanlega til kasta Alþingis þegar þing kemur saman og ákveðnir landsbyggðarþing- menn myndu hugsanlega beita sér fyrir því að reglum um Hagræðingar- sjóð yrði breytt í samræmi við fram- komnar hugmyndir sjávarútvegsráð- herra: „Ég á ekki von á því að þetta mál komi til kasta þingsins. Þetta áfall er auðvitað áfall allrar þjóðarinn- ar og menn verða að horfa framhjá þrengstu kjördæmahagsmunum. Menn eru auðvitað ekki bara á Al- þingi til þess að sinna hagsmunum kjördæmanna í þrengstum skilningi. Það væri að minnsta kosti ekki gott ef allir þingmenn hugsuðu þannig og þá yrði nú lítið úr störfum í þinginu. Við vissum að sú ákvörðun að draga svo mikið úr þorskveiðum hlaut að hafa vissar afleiðingar í för með sér. Menn kölluðu mjög fast eftir því að þetta væri gert með þessum hætti, þótt önnur sjónarmið væru einnig á Iofti um að fara aðeins hægar í sakim- ar, án þess að stefna málum í tví- sýnu. Þessi ákvörðun hlaut að kalla á þá niðurstöðu sem orðið hefur og menn verða að sæta henni. Önnur byggðarlög hafa áður þurft að sæta því að þeirra hagsmunir hafa heldur liðið miðað við önnur svæði, þegar aðrir stofnar hafa staðið verr. Við megum ekki gleyma því að ef það tekst nú vel að byggja upp hrygning- arstofn þorsksins, þá munu einmitt þessi svæði, sem nú taka örlítið meiri þrengingum en hin, ekki þó neinu sem sköpum skiptir, njóta mest góðs af því að hrygningarstofninn og væntan- lega þar með veiðistofninn verði byggðir upp,“ sagði forsætisráðherra. Forsætisráðherra var spurður hvort hann liti þá þannig á að í heildina ættu flestir að geta unað nokkuð vel við þá niðurstöðu sem fékkst í ríkis stjórn í gær: „í heildina býst ég við að vart finnist nokkur maður sem segi að niðurstaðan sé nákvæmlega eins og hann vill hafa hana. Auðvitað hefðu menn viljað hafa margt öðm vísi í þessari niðurstöðu og ég er einn af þeim. Raunar býst ég við að flestir ráðherrar ríkisstjómarinnar séu sama sinnis. En miðað við að þetta er sam komulagsmál við mjög þýðingarmikla ákvörðun, þá held ég að allir ættu að geta mjög bærilega við unað,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra. Heildarafli fiskveiðiárið 1991 til 1992 Þús. lestir TillSgur Hafrannsókna- stofnunar fiskveiði- árið 1992 til 1993 Þús. lestir Heildarafli fiskveiðiárið 1992 til 1993 Þús. lestir Þorskur 265 190 205 Ýsa 50 60 65 Ufsi 75 80 92 Karfi 90 90 104 Grálúða 25 30 30 Skarkoli 11 10 13 sna 110 90 110 Úthafsrækja 35 35 40 Innfjarðarrækja 7,1 7,3 7,3 Humar 2,1 2,2 2,4 Hörpudiskur 11,2 11,3 11,3 Þegar hefur verið ákveðinn 500 þús. lesta bráðabirgðakvóti af loðnu en endanleg ákvörðun um heildar- afla mun verða tekin þegar niður- stöður liggja fyrir úr haustleiðangri Hafrannsóknastofnunar. Með ákvörðun um 205 þús. lesta þorskafla á komandi fiskveiðiári er stefnt að uppbyggingu á hrygning- arstofni þorsks og horfíð frá fyrri leið um jafnstöðu þorsksins. Ljóst er að hrygningarstofn þorsks mun vaxa hægar en orðið hefði ef farið hefði verið að tillögum Hafrann- sóknastofnunarinnar um 190 þús. lesta hámarksafla. Þá var svohljóðandi bókun gerð á fundi ríkisstjómarinnar í dag: „Ríkisstjómin samþykkir að fela Byggðastofnun að gera rækilega athugun á áhrifum þorskbrests á einstök byggðarlög og svæði og áð álitsgerð um þær ráðstafanir sem mögulegar eru til að milda það áfall sem af þroskbresti leiðir.“ Með framangreindri ákvörðun er farið talsvert fram úr tillögum Haf- rannsóknastofnunar varðandi flesta aðra nytjastofna en þorsk. Er reynt að ganga eins langt og fært þykir til móts við tillögur um samdrátt í þorskveiðum, en til að vega upp tekjutap þjóðarbúsins sem af því hlýst á næsta ári er afli ákveðinn nokkuð meiri en tillögur fískifræð- inga gera ráð fyrir að ýsu, ufsa, karfa, skarkola, síld og úthafs- rækju. Allt eru þetta stofnar sem era í góðu ástandi og því ekki ástæða til að ætla að þessi ákvörð- un hafí alvarleg áhrif á viðkomu þeirra. Aukin sókn í þessa stofna til lengri tíma litið mun hinsvegar ekki skila þjóðarbúinu auknum arði, en er réttlætanleg á næsta ári vegna þess áfalls sem 22,6% sam- dráttur í þorskveiðum milli ára hef- ur í för með sér. Varðandi ýsuna er hámarksafli ákveðinn 15 þús. lestum meiri en á yfírstandandi fískveiðiári og er það 30% aukning. Góðir ýsuárgang- ar eru að bætast við veiðistofninn og mun hrygingarstofn ýsuna fara vaxandi þrátt fyrir þessa veiðiaukn- ingu. Að mati Hafrannsóknastofnunar nemur langtímaafrakstursgeta ufsastofnsins 70-80 þús. lestum. Leyfður heildarafli þessa fiskveið- iárs er 75 þús. lestir en ákvörðun er tekin um að auka veiðamar í 92 þús. lestir eða um 22,7%. Karfaafli er ákveðinn 104 þús. lestir sem eru 14 þús. lesta aukning milli ára en Hafrannsóknastofnun leggur til óbreyttan hámarksafla. Er aukningin 15,6% varðandi karfa- stofninn er rétt að taka fram að nýjar bergmálsmælingar benda til þess að djúpkarfastofninn sé stærri en áður hafði verið ætlað og tillög- ur um afla næsta árs miðuðust við. Hafrannsóknastofnun gerir til lögu um 5 þús. lesta aukningu gráðlúðuaflans og er þeirri tillögu fylgt. Þá er skarkolaaflinn ákveðinn 13 þús. lestir sem er 2 þús. lestir umfram aflaheimildir yfírstandandi árs. Leyfður heildarafli af síld er ákveðinn hinn sami og á síðustu vertíð. Islenski sumargotssíldar- stofninn er afar sterkur eftir mark- vissa uppbyggingu undanfarinna ára og mun stofninn stækka þrátt fyrir að með ákvörðuninni fari afl- inn í 20 þús. lestir eða 22,2% fram úr tillögum Hafrannsóknastofnuh- ar. Uthafsrækjustofninn hefur farið vaxandi undanfarin ár og var leyfð- ur heildarafli aukinn í 35 þús. lest- ir eftir upphaf yfírstandandi fisk- veiðiárs. Á næsta fískveiðiári er leyfður heildarafli 40 þús. lestir sem era 14% umfram tillögur Hafrann- sóknastofnunar. Samtals nemur leyfður heildar- afli kvótabundinna tegunda á næsta ári 439 þús. lestum í þorskí- gildum talið og er þá miðað við sömu aflaheimildir af loðnu og á yfirstandandi ári. Verður heildar- afli af þessum tegundum því um 10 þús. þorskígildislestum minni á næsta fískveiðiári en því sem nú er að ljúka, eða sem svarar til 2,4% lækkunar á aflaverðmæti milli ára. í þessu sambandi er þó rétt að benda á að vaxandi áhugi er fyrir veiðum á vannýttum tegundum og benda nýjar rannsóknir á djúp- karfastofninum til að verulega megi auka veiðar af honum. Er því ástæða til að ætla að fiskiskipaflot- inn geti bætt sér upp aflasamdrátt- inn með aukinni sókn í nýjar teg- undir. í reglugerðinni er einnig kveðið á um veiðitímabil og fjölmörg önnur atriði er varða fyrirkomulag veiða á komandi fískveiðiári. Era flest ákvæði reglugerðarinnar óbreytt frá því sem gilt hefur varðandi veið- arnar í ár. Þannig er t.d. óbreytt ákvæði um að afli sem seldur er óunninn úr landi skuli metinn með tilteknu álagi sem og ákvæði varð- andi undirmálsfísk. Ekki era heldur gerðar breytingar á reglum um endurnýjun fiskiskipa. I samræmi við nýsamþykkt lög um Fiskistofu miðar reglugerðin við að dagleg framkvæmd fískveiði- stjórnunar sem og veiðieftirliti flytj- ist frá ráðuneytinu til Fiskistofu frá upphafí næsta fiskveiðiárs. Þá er í reglugerðinni kveðið á um að út- gerðir skipa skuli senda Fiskistofu svonefndar kvótaskýrslur á þriggja mánaða fresti í stað mánaðarlegra skýrsluskyldu nú. Munu upplýs- ingar um afla einstakra skipa fram- vegis fyrst og fremst byggðar á gögnum um landaðan afla sem daglega berast frá fískihöfnum landsins en í samvinnu milli Hafna- sambands sveitarfélaga og ráðu- neytisins hefur á undanfömum misserum verið unnið að því að koma upp samræmdri skráningu 'og gagnavinnslukerfi fyrir sjávar- afla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.