Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.07.1992, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992 « « W rl. dIULIIuAIu Sýnd kl. 9 og 11. Bönnuö innan 16 ára. Sýnd kl. 5. Miðaverð kr. 300. ÓÐURTIL HAFSINS Sýnd kl. 9. B.i.14 KROKUR Sýnd kl. 4.45. INGALO Sýnd kl. 7.05. ENGLISH SUBTITLE BORNNATTÚRUNNAR Sýnd kl. 7 í A-sal. BUGSY Sýnd ki. 11.15. B.i. 16. SPECTRal recoRPIJG ._ nni DoœYsrrölHa í AogB sal 16 500 Meísölublaó á hvetjum degi! Fræðsluskrifstofan flyt- ur í nýtt leiguhúsnæði Fræðsluskrifstofa Reykjavíkurumdæmis hefur tekið á leigu Hallveigarstaði, að Túngötu 14, og mun innan skamms flytja starfsemi sína þangað. Þannig verður öll starfsemin undir einu þaki þótt boðið verði upp á sálfræðiþjónustu í skólunum sjálfum eins og áður. Nýja húsnæðið er talsvert stærra en það gamla að sögn Áslaugar Bryiyólfsdóttur, fræðslustjóra, en hins vegar eru leigusamningar hagstæðir og leigukostnaður því svipaður og áður. Starfsemin er fjölþætt og auk þess að bjóða upp á sálfræðiþjónustu fyrir nem- endur eru haldin námskeið fyrir kennara þar sem bæði er rifjað upp, opnað fyrir upplýsingastreymi og nýir hlutir kenndir. Til dæmis verður í ágúst námskeið fyrir alla kennara fimm barnaskóla um sveigjanlega kennsluhætti. Áslaug segir að í nýja húsnæðinu verði aðstaða fyrir alla fundi og námskeið mun betri. Hjá fræðsluskrifstofunni vinna 13 sálfræðingar og í allt starfa þar rúmlega 20 manns. „Það er alveg eins gott fyrir fólk í til dæmis Foldahverfi að koma að tala við okkur á Hallveigarstöð- um eins og að fara upp í Breiðholt á deildina þar“, sagði Áslaug. Hún sagði ennfremur að með þessu móti losnaði líka dýrmætt pláss fyrir skólana. Þegar hefur verið hafíst handa við að undirbúa flutninginn sem verður væntanlega á næstunni. McCarlhy STÆRSTA BIOIÐ ÞAR SEM • -* . ALLIR SALIR ERU FYRSTA y FLOKKS HASKOLABIO SIMI2214Q FRUMSÝNIR SUMARSMELLINN GRÍNMYNDSUMARSINS baraþú VERÖLDWAYNES Preston Hunt Oni f *»<« IÍ..K- Wl ■ I I V r»Mioþ m1m.uI I.Miinjx llw ri«M f«T lUt- *nmí nirl. GRIN, SPENNA OG ROMANTIK! Aðalhlutverk: ANDREW McCARTHY (St. Elmos Fire, Pretty in Pink, Weekend at Bernies), KELLY PRESTON (Twins og Run), HELEN HUNT (Project X, Peggy Sue got married). Sýnd kl. 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05. ★ ★ ★ *TVIMÆLALAUST GAMAIMMYIMD SUMARSINS F.l. Bíólínan. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. I TERENCE HIL.L. skyttAn i vHftA vcttHnu .,. skJútArl cn cljín skusgl' Tíimuit Máls og merniingar komið út ÚT ER komið 2. hefti ársins af Tímariti Máls og menn- ingar. Meðað efnis má nefna grein eftir Birnu Bjarna- dóttur, sem deilir á freudíska og femíniska túlkun á Tímaþjófnum eftir Steinunni Sigurðardóttur og Gerplu Halldórs Laxness. Þá fjallar Ástráður Ey- steinsson um sagnagerð síð- asta áratugar, Hjálmar Sveinsson skrifar grein, þar sem hann varar við þeirri kröfu að bókmenntir séu fyrst og fremst skemmtileg- ar, Kolbrún Bergþórsdóttir fjallar um verk fjögurra höf- unda, sem komu út á síðasta ári og Álfrún G. Guðrúnar- dóttir, Sigurður A. Magnús- son, Silja Aðalsteinsdóttir og Úlfhildur Dagsdóttir skrifa ritdóma um ný íslensk skáld- verk. Af öðru efni má nefna smásögur eftir Svein Yngva Egilsson, Atla Magnússon og Stefán Sigurkarlsson, ljóð eftir Jón Stefánsson, Hrafn Harðarson, Kristján Krist- jánsson, Kristínu Hafsteins- dóttur, Eyvind og Ásgeir Lárusson. Alls skrifa 23 höf- undar í Tímarit Máls og menningar að þessu sinni og er það 112 síður að stærð. Ritstjóri er Árni Sigurjóns- son. Mikil veiði í Stóru Laxá og í Aðaldalnum Mikill lax er í Laxá í Aðaldal og veiðin miklu meiri nú heldur en á sama tíma í fyrra. Á sunnudaginn voru kotnnir um 1200 laxar úr ánni á móti 5-600 löxum á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir þessa ágætu veiði, er veiðinni verulega misskipt, þannig hefur mjög léleg veiði verið á Nesveiðum, sem að öllu jöfnu eru með bestu svæðum árinnar. Einhver breyting sem mannleg augu hafa enn ekki numið, hefur orðið á rennsli árinnar á þessum slóðum með þeim afleiðing- um að lax leggst ekki í sín gömlu bæli. Þeim mun meira veiðist á öðrum svæðum. Skyggnstí munann á laxastig; anum í Ár- bæjarfossi í Ytri Rangá fyrir fáum dögum. Morgunblaðið/gg. Að sögn Orra Vigfússonar for- manns Laxárfélagsins hafa verið að veiðast milli 50 og 60 laxar á degi hvetjum í allri ánni og með sama áframhaldi sé ekki of bjart- sýnt að gera sér vonir um að heild- arveiði verði í kring um 2500 laxa. „Ofan á allt saman, þá eru komnar rokheimtur úr sleppingu göngu- seiða frá vorinu 1991. Þetta eru stórir smálaxar, 6 til 8 punda. Þriðjungur seiðanna voru örmerkt, en laxamir eru flestir auðþekkjan- legir. Orri sagði enn fremur að hann væri með í athugun að fá til þess sérstakt leyfi til að færa til venjulegan dagveiðitíma þegar mjög bjart væri í veiði, að veiða lengur á kvöldin á meðan birtan leyfði. „Veiðimálastofnun þarf að vera með í ráðum, en segja má að ég hefði þurft að vera hálfum mán- uði fyrr á ferðinni með þetta. Við sjáum þó hvað setur,“ sagði Orri. Vopnafjörðurinn góður. „Það er mikill lax í ánum hér fyrir austan og veiði góð miðað við að- stæður. Hofsáin er best, hefur gef- ið tæpa 500 laxa, Seláin milli 270 og 280 laxa og Vesturdalsáin 130 laxa. Seláin er kannski lökust vegna þess að hún er köldust þeirra og svo hefur verið óvenjulega mik- ið um mink víða við ána og er að sjá að tilvist hans hafi komið í veg fyrir að lax hafí lagst á nokkru rótgróna staði og styggt hann veru- lega á öðrum. Ekki er það vegna þess að það vantar í hana laxinn, af honum er nóg eins og í hinum ánum tveimur," sagði Garðar H. Svavarsson í samtali við Morgun- blaðið í gærdag. Garðar sagði stærstu laxanna úr ánum hafa ver- ið 17 til 18 punda, en miklu stærri fískar væru á sveimi og hefðu slit- ið sig af, einkum þó í Selánni. Sem dæmi um veiðibatann í Vopnafírði sagði Garðar að 130 laxa veiðin í Vesturdalsá væri meiri en 100 pró- sent aukning frá síðasta sumri og meiri veiði en kom á land allt síð- asta sumar. í ánni er einnig góð sjóbleikjuveiði. Glimrandi gengi Stóru Laxár... í gær voru komnir 183 laxar á land úr Stóru Laxá í Hreppum. Efsta svæðið hafði gefið 58 laxa, miðsvæðið 50 og neðstu svæðin 75 iaxa. Er sýnt að veiðin í ánni verði vel yfir meðallagi stðustu ára og hefur áin nú gefið mun fleiri laxa heldur en á sama tíma í fyrra. Sunnudaginn 19. júlí var mikil ganga í ána og þá veiddust 14 lax- ar á neðstu svæðunum og eitthvað ofar í ánni. Eitthvað er til af óseld- um leyfum á skrifstofu SVFR. Hér og þar... Rangámar eru enn að gefa reyt- ingsveiði og í vikubyrjun voru komnir um 160 laxar af öllu svæð- inu sem er betri útkoma en á sama tíma í fyrra. Eystri áin hefur gefið betur þessa daganna og hefur það komið dálítið á óvart því yfirleitt er hún mun seinni til en Ytri Rangá. Á mánudag veiddust t.d. 9 laxar í Eystri Rangá, en aðeins einn í Ytri Rangá. í Ytri ánni er þó lax á öllum svæðum og nýr fískur að koma inn flestar nætur. Góð nýting er á leyf- um í Ytri Rangá, en lítið bókað í Eystri Rangá. Gljúfurá í Borgarfirði hafði gefið 110 laxa í vikubyijun og veit það á gott og bendir til að þessi litla og fallega á sé að jafna sig eftir mörg mögur ár. Lítið hefur verið farið í Hvítá fyrir landi Gíslastaða, sem er skammt neðan við ósa Brúarár. Stangaveiðifélag Reykjavíkur er með svæðið á leigu og á skrifstofu félagsins fengust þær fregnir að þeir fáu sem hafi farið á svæðið hafí flestir fengið einhvem afla og sumir eftirminnilegan, t.d. Jón G. Guðmundsson sem fór fyrir skömmu og fékk tvo laxa, 18 og 22 punda. Um síðustu helgi veidd- ust enn boltalaxar, allt að 18 punda laxar og herma fregnir að talsvert sé af laxi á svæðinu. Mikið er óselt á svæðið þrátt fyrir lágt verð veiði- leyfa. Brynjudalsá hikstar enn, þar hafa einungis veiðst um 40 laxar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.