Morgunblaðið - 11.08.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPn/AlVINNUIÍF ÞRIÐJUDAGUK 11. ÁGÚST 1992
Verslun
Tískuverslanir með
„útibú“í Kolaportín u
INNAN um harðfísk frá Vestfjörðum og heimabakaðar kökur kvenfé-
laga utan af landi er til sölu tiskufatnaður, sem alla jafna fæst aðeins
í sérverslunum við Laugaveg og í Kringlunni. Staðurinn er Kolaportið
við Kalkofnsveg, en þar hefur þróast séríslenskur helgarmarkaður þar
sem ægir saman aðskiljanlegustu hlutum, notuðum og nýjum. Verslan-
ir með tískuvöru eiga erfitt uppdráttar um þessar mundir og kemur
einkum tvennt til; mikil samkeppni og minni fjárráð almennings. Til
aði koma tískufatnaði i verð er Kolaportið þrautalending, en þó eru
þess dæmi að fatnaður sé gagngert fluttur inn til að selja í Kolaportinu.
í vor var farið að selja í Kolaport-
inu vörur úr tískuverslununum Evu
og Gallerí við Laugaveg. Nína Þórar-
insdóttir, sem hafði umsjón með söl-
unni, segir að fyrsta kastið hafí um
tilraun verið að ræða en þegar frá
leið var sölubás leigður báða dagana
sem markaðurinn í Kolaportinu
starfar, laugardaga og sunnudaga.
Verslunarhættir í Kolaportinu eru
þeir að fólk sem áhuga hefur á að
versla leigir bás á föstu verði og
getur jafnframt fengið borð og slár
á leigu. Nína sagði að hún hefði
borgað 5000 krónur fyrir sjö fer-
metra bás og fínnst það fulldýr leiga.
Fatnaðurinn sem var til sölu var hluti
af gömlum lager. „Við tímdum ekki
að henda fötunum og fannst betra
að reyna að selja hann í Kolaport-
inu,“ segir Nína. Verðið sem sett er
upp fyrir flíkumar er mun lægra en
sést í sérverslunum. Algengt verð á
flík er á bilinu 500 til 1000 krónur.
Það er ekki á vísan að róa þegar
leigður er sölubás í Kolaportinu. Nína
segir að bestu dagana hafi selst fyr-
ir rúmlega 100 þúsund krónur en
aðra daga hafí þetta dottið niður í
30 þúsund. Tvær manneskjur sáu
um söluna og þegar tekið er saman
kaup þeirra, leiga á bás og greiða-
bíll ti! að flytja fatnaðinn og kostnað-
urinn dreginn frá sölutelq'um er ekki
mikill afgangur af 30 þúsund krón-
Nína veit ekki hvort framhald
verður á versluninni í Kolaportinu,
segir það ráðast meðal annars af því
hversu gangi á lagerinn á útsölunum
sem standa nú yfír. Móðir Nínu er
Marta Bjamadóttir en hún hefur
verið með tískuverslanir í rúm 20
ár. Marta segir svartsýni ríkja í tísku-
versluninni og viða erfíðleikar, sér-
staklega hjá þeim sem em með sínar
verslanir í dýru húsnæði og hafa
ekki sýnt varúð í rekstri.
Hulda Hauksdóttir hefur um eins
árs skeið reglulega leigt sölubás í
Kolaportinu. Hluti af þeim fatnaði
sem hún selur þar er innfluttur gagn-
gert í þeim tilgangi að selja í Kolap-
ortinu.
Hulda bjó í Kaupmannahöfn í 6
ár og nam þar viðskiptafræði, auk
markaðs- og stjómunarfræði. Þegar
heim kom fann Hulda ekki starf við
sitt hæfí og byijaði upp úr því með
heildsölu og átti einkum í viðskiptum
við verslanir úti á landi.
Sölubásinn í Kolaportinu var ekki
hugsaður til frambúðar en hefur
reynst ágætlega.
Hörð samkeppni
Leiðinlegt veður í sumar bætti gráu
ofan á svart hjá tískuverslunum.
Sala á sumarfatnaði er háð veðrátt-
unni og ótíð á Suðvesturlandi boðar
minni veltu sérverslana með tísku-
vörur. Útsölur byijuðu snemma í
sumar og viða á Laugaveginum mátti
sjá þær auglýstar í byijun júlí. Versl-
anir í Kringlunni byijuðu má sínar
útsölur um miðjan mánuðinn, en
verslunareigendur þar hafa með sér
samtök að hefja ekki útsölur fyrr en
15. júlí.
Það er hröð velta í tískuverslun,
tískan síbreytileg og með hverri árs-
tíð kemur eitthvað „nýtt“. Marta
Bjarnadóttir segir flík vera orðna
gamla þegar hún hefur staðið í versl-
uninni í 2-3 mánuði. „Það er viss
hópur sem sækir tískuverslanir, ef
sömu flíkumar eru alltaf á boðstólum
hættir fólk að koma í verslunina,“
segir Marta.
Til að endumýja lagerinn og fylgj-
ast með tískusveiflum verða eigendur
tískuverslana að sækja reglulega
kaupstefnur í útlöndum. Hulda
Hauksdóttir segist fara utan einu
sinni í mánuði, en til að vera vel
heima í þessum viðskiptum er talið
lágmark að fara til útlanda annan
hvem mánuð.
Sú samkeppni sem fer mest í taug-
amar á fatakaupmönnum eru inn-
kaupaferðir landans til útlanda og
hömlulaus innflutningur einstakl-
inga. Hjördís Gissurardóttir, sem
lengi hefur starfað á þessum vett-
vangi, segir fólk verða að gera upp
við sig hvort það vilji hafa verslunina
í landinu eða færa hana til Glasgow.
Hún kann ekki góða sögu aö segja
af þeim mönnum sem ættu að vera
fyrirmynd í þessum efnum, þing-
mönnum og ráðherrum. „Við fata-
kaupmennimir þekkjum merkin sem
þessir menn ganga í og fötin þeirra
eru ekki keypt hér,“ segir Hjördís.
Hulda Hauksdóttir bendir á að þegar
fólk fari til útlanda í verslunarferðir
og telur sig gera góð kaup þá takið
það ekki með f reikninginn gæði
vörunnar, kaupa til dæmis peysur
úr gerviefnum sem verða snjáðar
eftir fyrsta þvott. Þá gleymist það
að þegar fólk gerir innkaup á hlaup-
um eru oft keyptir óþarfa hlutir sem
ekki koma að neinum notum.
Fjöldi tískuverslana hefur sjaldan
eða aldrei verið meiri og þeir eru
margir kaupmennirnir sem telja víst
að þeim muni fækka töluvert næstu
misserin. Hjördís Gissurardóttir er
hætt í verslunarrekstri, en undanfar-
ið hefur hún rekið þijár búðir niðri
í bæ og í Kringlunni. „Frá áramótum
hef ég varla fengið kaup fyrir vinn-
una sem ég hef lagt í þetta. Ég er
orðin þreytt á þessu og ætla að taka
mér hvíld,“ segir Hjördís og er fegin
að losan á meðan hún „skuldar eng
um neitt.“
Uppsagnir og kauplækkanir
Þegar Hjördís hætti verslunar-
rekstri ságði hún upp sex starfs-
mönnum. Þessir starfsmenn hafa
ekki fengið vinnu annars staðar og
Hjördís segir horfumar ekki alltof
góðar, en hún hefur verið þeim innan
handar í leit að atvinnu.
Það er ekki aðeins að störfum
fækki, heldur hefur kaup starfsfólks
lækkað. Nýir starfsmenn eru ráðnir
á lægra kaup en áður og eldri starfs-
menn samþykkja kauplækkun, enda
getur valið staðið á mili þess að fall-
ast á kauplækkun eða missa atvinn-
una.
Tískuverslunin Tangó í Kringlunni
stóð frammi fyrir minnkandi sölu á
liðnum vetri. Þegar eigendumir þótt-
ust sjá fram á enn frekari samdrátt
var ákveðið að grípa til aðgerða.
Nýtt hlutafélag var stofnað um
reksturinn í mars, Rek hf, og nýir
meðeigendur komu til liðs við fyrir-
tækið. Kaup starfsfólksins var lækk-
að um 10 prósent og stjórnunar-
kostnaður var skorinn niður. Til að
breikka starfsgrundvöllinn var
ákveðið að hefja innflutning á vöru-
flokkum sem em alls óskyldir tísku-
fatnaði. Að sögn Sophusar Björns-
sonar, sem er einn eigenda Reks
hf., hóf fyrirtækið innflutning á
byggingavörum, til dæmis nýrri gerð
flísa á eldhús og baðherbergi og svo-
kölluð hengiloft. Þá stendur til að
vera með heildverslun fyrir verslanir
úti á landi. í því skyni verður fluttur
inn fatnaður af annarri gerð en há-
tískufatnaðurinn sem Tangó leggur
áherlsu á að bjóða sínum viðskipta-
vinum. Sophus segir ekki hafa verið
um annað að ræða en að stokka upp
reksturinn og leita nýrra úrræða til
að bregðast við samdrættinum.
Það er ekki hægt að sjá fyrir hve-
nær salan á tískufatnaði tekur aftur
við sér. Það er hins vegar vitað að
Íslendingar eyða háum fjárhæðum í
fatnað, eins og berlega kom í ljós
þegar Hjálparstofnun kirkjunnar og
Slysavamafélag íslands hleyptu af
stokkunum í janúar fatasöfnun
handa Kúrdum í íran og fylltu 32
gáma (250 tonn) á þrem dögum.
Sennilega var það þó ekki hátísku-
fatnaður sem fór í gámana, enda
má það einu gilda, því þar niður frá
em föt líkamanum til skjóls og tíska
framandi hugtak.
8,4%
\is;uömiiii umli.im xcröhólíru
SKULDABREF
GLITNIS
2-4 ára verðtryggð skuldabréf
með fastri ávöxtun til
gjalddaga.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30.
HÁSKOLI ISLANDS
ENDURMENNTUNARSTOFNUN
Byrjendanámskeið í íslensku fyrir útlendinga
Endurmenntunarstofnun Hóskóla íslands mun í samvinnu
við skor í íslensku fyrir erlenda stúdenta, bjóða upp ó
byrjendanómskeið í íslensku fyrir útlendinga.
Ekki er krafist neinnar kunnáttu í íslensku, en forgang
að náminu hafa þeir sem lokið hafa stúdentsprófi eðo
sambærilegri menntun. Kennt verður á ensku.
í þessu námi verður lögð megináhersla á talað og ritað
mól, en samhliða kennd grunnatriði íslenskrar mólfræði.
Tími: 10. september fil 7. desember,- mónudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga, kl. 17.15-19.30.
Vert: Kr. 35.000,- auk bókakostnaðar.
Kennarar Uaría Garðarsdóttir og Sólveig Einarsdóttir, báð-
ar B.A. í íslensku og hafa báðar kennt íslensku fyrir er-
lenda stúdenta við Háskóla íslands.
Upplýsingar ero veittar á skrifstofu Endurmenntunarstofnun-
ar í símum 694923, 994924 0| 694925.
I Fimm fræknum tilboðum
Nýherja gefst þér einstakt
tækifæri til að eignast
hágæða IBM tölvur á hreint
ótrúlegu verði. Þetta er
tækifæri sem þú mátt ekki
missa af. Komdu í Nýherja,
Skaftahlíð 24, strax i dag
og kynntu þér málið.
CQ>
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 • SÍMI 69 77 00
Alltaf skreji á undan