Morgunblaðið - 21.08.1992, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1992
27
I
1
I
I
I
I
I
I
4
4
4
Skákþing Islands
Helgi og Margeir
jafnir í efsta sæti
Skák
Karl Þorsteins
Helgi Ólafsson og Margeir
Pétursson eru jafnir í efsta
sæti með tvo og hálfan vinning
að afloknum þremur umferðum
á Skákþingi íslands. Haukur
Angantýsson er í þriðja sæti
með tvo vinninga og á eina skák
til góða. Mikil barátta og hátt
hlutfall vinningsskáka hefur
einkennt mótið sem hefur verið
góð skemmtun fyrir áhorfendur
sem mætt hafa í íþróttahúsið
við Strandgötu.
Úrslit í annarri umferð:
Jón G. Viðarss. - Sævar Biamas. Jón Á. Jónsson - Þröstur Arnason >/2 - 'h
0 ■ 1
Maigeir Pétursson - Ami k. Ámason 1 - 0
Bjöm F. Bjömsson - Helgi Ólafsson 0 - 1
Þröstur Þórhallss,- Hannes H. Stefánss. >/2 - 'h
Haubr Angantýss. - Róbert Harðars. 1 ■ - 0
Úrslit í þriðju umferð:
Þröstur Ámason - Jón G. Viðarsson 0 -1
SævarBjarnason-HaukurAngantýsson 0 -1
Ami Á. Ámason - Jón Á. Jónsson 1 - 0
Helgi Ólafsson - Margeir Pétursson '/2 - 'h
Hannes H. Stefánss. - Bjöm F. Bjömss. 1 ■ 0
Róbert Harðarson - ÞrösturÞórhallsson 1 - 0
Hvítt: Róbert Harðarson
Svart: Þröstur Þórhalls-
son
Skandinavísk vörn
I. e4 - d5 2. exd5 - Rf6 3. d4
- Rxd5 4. Rf3 - g6 5. Be2 -
Bg7 6. 0-0 - 0-0 7. c3 - c5
Þröstur Þórhallsson og Hannes
Hlífar hafa beitt Skandinavískri
vörn, sem byrjar með 1. e4 - j!5,
óspart á undanförnum árum þótt
byijunin njóti ekki ennþá almennr-
ar hylli.
8. dxc5 - 4ta6 9. c6 - bxc6 10.
Da4 - Db6 11. Ra3 - h6?
Undirrót erfiðleika svarts í
áframhaldinu. Hér var rétt að leika
II. - Rc5! Eftir 12. Dh4 - e5 13.
Rc4 - Dc7 14. Bh6 - f6 er staðan
í jafnvægi.
12. Rc4 - Dc7 13. Da5! - Db7
14. Rce5 - g5 15. Hdl!
Hvítur hótar nú að vinna peð
með 16. Rxc6 og ekki gengur 15.
- g4? 16. Bxa6 - Dxa6 17. Dxa6
- Bxa6 18. Rxg4.
15. - Rac7 16. Dc5!
Djörf ákvörðun því mannsfórnin
í áframhaldinu er nú þvinguð.
16. - g4 17. Rxc6 - gxf3 18.
Bxf3 - e6 19. c4
Helgi og Margeir sigruðu ör-
ugglega í skákum sínum í annarri
umferð en innbyrðis viðureign
þeirra í þriðju umferð olli nokkrum
vonbrigðum. Þá sömdu þeir um
jafntefli í tvísýnni stöðu þegar var
farið að saxast á umhugsunartím-
ann. Haukur Angantýsson hefur
unnið báðar skákir sínar í mótinu
en skák hans í fyrstu umferð var
frestað. Heppnisstimpill var á sigri
hans í þriðju umferð því Sævar lék
sig í mát með manni yfir rétt eft-
ir tímamörkin við fertugasta leik.
Hannes Hlífar byijar rólega á ís-
landsmótinu. Hann vann loks sigur
í þriðju umferð eftir jafntefli í
tveimur fyrstu umferðunum. Af
öðrum keppendum kemur frammi-
staða Jóns G. Viðarssonar og Rób-
erts Harðarsonar helst á óvart. Jón
G. Viðarsson hefði hæglega getað
haft fullt, hús vinninga, því hann
missti vinningsstöðu niður í jafn-
tefli gegn Sævari í annarri um-
ferð. Róbert tefldi gagnmerka
skák við Hannes Hlífar í fyrstu
umferð, þar sem Hannesi tókst
að veijast með tveimur léttum
mönnum gegn drottningu and-
stæðingsins. I þriðju umferð lagði
Róbert Þröst Þórhallsson að velli
í glæsilegri sóknarskák sem fylgir
hér að aftan.
Fimmta umferð Skákþings ís-
lands verður tefld í kvöld í íþrótta-
húsinu við Strandgötu og hefst
kl. 17.
19. - Db6?
Nauðsynlegt var að leika 19. -
Ra6. Eftir 20. Dd6 - Dc7 21.
Dxc7 - Rdxc7 22. Re7+ - Kh7
23. Bxa8 - Rxa8 24. Rxc8 -
Hxc8 25. Hd7 hefur hvítur hrók
og tvö peð í skiptum fyrir tvo létta
menn og góða vinningsmöguleika
í endataflinu. Nú er staðan óveij-
andi.
20. Dd6 - Re8 21. Dg3 - Dxc6
22. cxd5 - exd5
Nú tapar svartur liði. 22. - Da4
hefði þó engu bjargað eftir t.d.
23. dxe6 - fxe6 24. Bxh6.
23. Bxd5 - Da4 24. Bxh6 - Bg4
25. b3 - Dd7 26. Bxg7 - Bxdl
27. Bxf8 - Kxf8 28. Bxa8 - Dd4
29. Hcl - Dd2 30. Dc3!
Svartur gafst upp.
7. Bikarmót Norðurlands í hestaíþróttum:
Sjö sveitir mæta til leiks
_______Hestar__________
Valdimar Kristinsson
Sjöunda Bikarmót Norður-
lands í hestaíþróttum verður
haldið á Hlíðarvelli á Akur-
eyri um helgina þar sem 7
keppnissveitir frá 6 héraðs-
samböndum mæta til leiks.
Ungmennasamband Vestur-
Húnavatnssýslu sigraði í
fyrra og hefur því titil að
veija.
Hver sveit fær að senda þijá
keppendur í tölt, fjórgang,
fimmgang og gæðingaskeið en
tvo keppendur í hlýðni og hindr-
unarstökk. Ungmennasamband
Eyjafjarðar sendir tvær sveitir
og er önnur sveitin skipuð félög-
um íþróttadeildar Hrings og
kallast B-syeit en hina sveitina
skipa félagar úr íþróttadeild
Funa og kallast A-sveit. Hvert
samband leggur til einn dómara
og einn ritara. Aðrar sveitir sem
keppa eru Ungmennasamband
Austur-Húnavatnssýslu, Ung-
mennasamband Skagafjarðar,
íþróttabandalag Akureyrar og
Héraðssamband Þingeyjarsýslu.
Keppnin hefst klukkan 9 á laug-
ardag með forkeppni í öllum
greinum. Úrslit fara fram á
sunnudeginum og vérða verð-
laun afhent að þeim loknum
fyrir sveitakeppnina en auk þess
fá þeir einstaklingar sem í úr:
slit komast sérstök verðlaun. í
stigakeppninni eru reiknuð stig
úr forkeppni en auk þess fá
sveitirnar aukastig fyrir hvert
sæti úrslitakeppninar.
Sigríður á Árvakri í góðum félagsskap atvinnumannanna. Á hinum endanum sér í læriföður henn-
ar, Eyjólf ísólfsson, á Dropa, hinir eru Sveinn Jónsson á Hljómi, Egill Þórarinsson á Penna og
Sigurbjöm Bárðarson á Oddi næstur Sigríði.
A vellinum er það
bara ég og hesturinn
- segir Sigríður Benediktsdóttir nýbakaður íslandsmeistari í fjórgangi
Hestar
Valdimar Kristinsson
„Ég stefndi að því að komast
i úrslit fyrir keppnina en eftir
að ég lenti í öðm sæti í fjór-
gangi og þriðja í tölti fór ég að
eygja von um sigur í fjórgangi,"
segir Sigríður Benediktsdóttir,
sem kom svo skemmtilega á
óvart á íslandsmótinu í hesta-
íþróttum er hún tryggði sér ís-
landsmeistaratitilinn í fjórgangi
og varð önnur í tölti eftir að
hafa unnið sig upp um eitt sæti
þar.
„Það má segja að ég hafí lagst
undir feld eftir forkeppnina því
möguleikinn á sigri virtist í sjón-
máli ef ég næði að útfæra sýning-
una á réttan hátt því keppnin var
hörð og þurfti ég að ná góðri ein-
beitingu til þess að þetta gengi
upp,“ segir Sigríður. Árangur
hennar nú er gott dæmi um það
hversu langt er hægt að ná ef vilji
og ákveðni er fyrir hendi og ætti
að vera hvatning öðrum konum,
en segja má að þær hafí átt erfítt
uppdráttar í hestaíþróttinni.
Konunum haldið niðri
Sigríður telur að konur séu á
margan hátt betri reiðmenn en
karlar, að þær séu næmari og þolin-
móðari. „Konum hefur verið haldið
niðri í þessari íþrótt. Þegar ég byij-
aði að keppa 1977 var hlegið góð-
látlega að mér og ég spurð hvað
ég héldi að ég gæti. Þetta mótlæti
herti mig og gerði mig ákveðnari
í að standa mig og gera betur,“
segir Sigriður og brosir. Hestur
Sigríðar, Árvakur frá Enni, er 13
vetra og hefur hún keppt á honum
síðan 1988 og verið að fíkra sig
hægfyog bítandi upp metorðastig-
ann. Á Islandsmótinu í Mosfellsbæ
’88 komst hún í B-úrslit í fjórgangi
og sömuleiðis í tölti í Borgamesi
árið eftir. En í fjórgangi á því
móti hafnaði hún í 4. sæti, sem var
besti árangur hennar fram að þeim
tíma. Árið þar á eftir varð hún í
4. sæti í fjórgangi og í B-úrslitum
í tölti.
Árvakur ekki lengur til sölu
Árvakur komst í hendur Sigríðar
á fjórða vetri er hún frumtamdi
hann og segist þá strax hafa fund-
ið að þetta væri flinkur og hreyf-
ingamikill hestur og varð úr að hún
keypti hann rúmu ári seinna. „Mér
gekk ekki vel með hann framan
af, hann var óstöðugur á gangi,
of gangsamur fyrir minn smekk
og vantaði styrk til að valda gang-
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Úrslitin ljós eftir spennandi keppni og þá er hægt að leyfa sér
að brosa.
inum. Var ég oft komin að því að
gefast upp og bauð hann meira að
segja falan en enginn vildi kaupa,“
segir Sigríður. Eftir íslandsmótið
’88 ætlaði Sigríður að selja Árvak-
ur en ekkert varð af sölu í það
skiptið. Segir hún að sér hafí ekki
þótt hann nógu viljugur inni í
hringnum, en Árvakur er ekki leng-
ur til sölu því hann er stöðugt að
bæta sig með vilja og kraft.
„Það eru einkum tveir menn sem
hafa styrkt mig í trúnni á sjálfa
mig í gegnum tíðina. Annar þeirra
er Eyjólfur ísólfsson reiðkennari
sem segja má að sé lærifaðir minn.
Þegar ég er að þjálfa Árvakur
koma oft upp í hugann hollráð
Eyjólfs sem hann hefur gefíð mér.
Þá veitti Zophonías Márusson mér
mikinn móralskan styrk þegar ég
var að byija en hann sagði sem
svo: „Þó það gangi ekki núna þá
gefst þú ekkert upp, þú gerir bara
betur næst,““ segir Sigríður.
Sigurður Þórhallsson eiginmað-
ur Sigríðar hafði ekki mikla trú á
henni til að byija með að hennar
sögn, en hún segir hann hafa stutt
vel við bakið á sér og fylgst með
sér af miklum ákafa. Segir Sigríður
að stundum megi varla á milli sjá
hvort þeirra sé að fara í keppnina,
svo mikill sé hugurinn.
Laus við allt stress
Ekki segist Sigríður vera stress-
uð fyrir keppni utan einu sinni. „Að
vísu er ég dálitið stressuð þegar
ég er að undirbúa mig inni í hest-
húsi fyrir keppnina en um leið og
ég er komin út undir bert toft hverf-
ur það eins og dögg fyrir sólu.
Þegar ég er svo komin inn á völlinn
einangrast ég algerlega frá um-
hverfmu. Á vellinum er það bara
ég og hesturinn. Fyrir nokkrum
árum var ég að -keppa og átti einn
hring eftir að þulurinn tilkynnir að
ég hafi lokið keppni og viðstaddir
brugðust ókvæða við og héldu að
með þessu myndi þulurinn setja
mig út af laginu og eyðileggja sýn-
inguna fyrir mér en ég var sú eina
sem ekki tók eftir þessu og kláraði
það sem eftir var og þá var mér
sagt hvað hefði gerst,“ segir Sigrið-
ur Benediktsdóttir, þessi 55 ára
húsmóðir sem sýndi það með eftir-
minnilegum hætti að það hafa fleiri
möguleika á sterkum mótum en
reynslumiklir atvinnumenn.