Morgunblaðið - 22.08.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992
n
Forsetinn baráttuglaður í lokaræðu flokksþings repúblikana
George Bush lofar skatta-
lækkunum og efnahagsbata
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti lagði í gær upp í kosningaferð
eftir að hafa fengið byr undir báða vængi á flokksþingi repúblikana
í borginni Houston i Texas og lofað bandarisku þjóðinni skattalækk-
unum og upprisu efnahagslífsins í tilnefningarræðu sinni á fimmtu-
dagskvöld. „Við verðum að vera hernaðarstórveldi, efnahagsstór-
veldi og útflutningsstórveldi,“ sagði Bush.
George Bush ávarpar
flokksþing repúblik-
ana. Forsetinn hefur
hert mjög sóknina og
segir sonur hans að
nú sé ekkert nasl á
morgunverðarborði
Bush, heldur naglar í
skál.
Reuter
Flestir ræðumenn á flokksþingi
repúblikana virtust forðast efna-
hagsmál eins og heitan eldinn. En
Bush átti ekki annars kost en að
taka á efnahagsvandanum í ræð-
unni, sem stjórnmálaskýrendur
höfðu sagt þá mikilvægustu á ferli
hans, þótt ekki væri nema vegna
þess að efnahagsmálin eru helsta
áhyggjuefni meirihluta kjósenda.
Svikin loforð og
iðrun forsetans
Bush kvaðst „iðrast" þess að
hafa svikið loforð sitt um „enga
nýja skatta“, sem hann gaf í tilnefn-
ingarræðu sinni í New Orleans fyr-
ir fjórum árum. Forsetinn notaði
tækifærið til þess að veitast að Bill
Clinton, forsetaframbjóðanda
demókrata. „Það er mikill munur á
frambjóðandanum, sem hækkaði
skatta einu sinni og sá eftir því og
þeim, sem hækkaði þá 128 sinnum
og naut hverrar mínútu,“ sagði
Bush.
Bush reyndi að eigna sér sem
mestan heiður af þeim breytingum,
sem orðið hafa í heiminum í forseta-
tíð hans og sagðist hafa hlýtt hinu
alþjóðlega kalli þegar það kom.
Hann lýsti hruni Sovétríkjanna og
sameiningu Þýskalands og sagði:
„Ef ég hefði staðið frammi fýrir
ykkur fyrir fjórum árum og sagt
þetta vera heiminn, sem við ætluð-
um að reisa, hefðuð þið sagt:
„George Bush, þú hlýtur að hafa
verið að reykja eitthvað og þú hlýt-
ur að hafa andað að þér.“ Clinton
hefur viðurkennt að hafa reykt
hass en tók það fram að hann hefði
ekki andað reyknum að sér.
Bush kvaðst myndu leggja
áherslu á að opna markaði, draga
úr eyðslu ríkisins og skattbyrðinni,
auðvelda litlum fyrirtækjum rekst-
ur og knýja fram umbætur í dóms-,
skóla- og heilsugæslukerfinu og ýta
undir starfsþjálfun.
Þingið skorað á hólm
í orðum forsetans var einnig að
fínna áskorun á þingið ásamt ákalli
til kjósenda um að veita sér brautar-
géngi með því að gefa sér meiri-
hluta repúblikana á þingi í vega-
nesti á næsta kjörtímabili. Bush
sagði að allir væru orðnir þreyttir
á því þegar skuldinni væri skellt á
aðra og hóf síðan magnaða orðræðu
þar sem hann kenndi þingmeiri-
hluta demókrata um allt það, sem
miður hefði farið í forsetatíð sinni.
Hann hefði án árangurs reynt að
draga úr eyðslu í samvinnu við
þingið, en nú myndi hann frysta
útgjöld upp á eigin spýtur. Forset-
inn sagði að hann myndi beita neit-
unarvaldi til að stöðva allar íjárveit-
ingar, sem færu fram úr fjárlaga-
frumvörpum hans, og lagði til að
sett yrði þak á fasta liði íjárlaga.
Þá mæltist hann til þess að skatt-
greiðendum yrði gefmn kostur á
því að ákveða hvort þeir vildu að
tíu prósentum skatta þeirra yrði
varið til að greiða niður erlendar
skuldir þjóðarinnar.
„Þegar næsta þing kemur saman
mun ég leggja til að enn frekar
verði dregið úr sköttum á öllum
sviðum - með því skilyrði að við
bætum það upp með því að draga
úr neyslu á ákveðnum sviðum ...
til þess að auka ekki fjárlagahall-
ann,“ sagði Bush. „Ég hyggst einn-
ig halda áfram að beijast fyrir því
að persónufrádráttur verði aukinn
og atvinna aukin með því að knýja
fram lækkun fjármagnsskatts."
Bush tókst að haida lengri ræðu
en Clinton gerði á fiokksþingi
demókrata í júlí. Ræða hans tók
57 mínútur í flutningi, en var betur
skrifuð og skipulögð, þótt hún hafi
ef til vill ekki staðið undir þeim
væntingum, sem gerðar voru.
Stjórnmálaskýrendur sögðu flestir
að Bush hefði ekki tekist að koma
til skila framtíðarsýn sinni. Þá þyk-
ir fátt nýtt í tillögum Bush, þótt
hann hafi lofað að lækka skatta,
og virðast þær samsuða úr gömlum
hugmyndum. En Bush flutti ræð-
una af krafti og var sannfærandi
þegar hann ræddi alþjóðamál.
©> BOSCH
Höggborvél „SDS Plus“ með
ryksugu. Þreplaus hraðastilling
afturábak og áfram. 500 W.
Aukahlutir: Vinkildrif, meitil-
Höggborvél „SDS Plus“.
Þreplaus hraðastilling afturábak
og áfram. 500 W.
<2\
Gunnar Ásgeirsson hf.
Borgartún 24
Sími: 626080 Fax: 629980
Umboðsmsnn um land allt
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Þingkosnmgar á Bahama-eyjum
Pindling frá eftir 25 ár við völd
Nassau. Reuter.
SIR Lynden Pindling, sem gegnt
hefur embætti forsætisráðherra
Bahama-eyja í 25 ár, beið óvæntan
ósigur í þingkosningum í landinu
á miðvikudag.
Samkvæmt tölum, sem birtar voru
á fimmtudag, missti flokkur Pindl-
ings, Framfarasinnaði fijálslyndi
flokkurinn (PLP), þingmeirihluta
sinn. Stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn, Fijálsa þjóðarhreyfmgin
(FNM), hafði þá fengið 25 þingsæti
sem nægir til að mynda nýjan meiri-
hluta á þinginu, sem er skipað 49
þingmönum. Flokkur Pindlings var
með 32 þingmenn á móti 17 stjórnar-
andstöðuþingmönnum eftir síðustu
kosningar árið 1987.
Pindling, sem er 62 ára; lýsti sig
sigraðan eftir að kosningatölurnar
voru birtar.
Leiðtogi Fijálsu þjóðarhreyfingar-
innar og verðandi forsætisráðherra
er Hubert Ingraham, sem er 45 ára
og gekk í hreyfinguna fyrir tveimur
árum. Áður hafði hann komist til
metorða innan stjórnarflokksins en
sagði sig úr honum árið 1986. í kosn-
ingabaráttunni sakaði Ingraham
stjórn Pindlings um hroka, óstjórn,
spillingu og „eyðsluæði". Þeir eru
báðir miðjumenn en Ingraham leggur
þó meiri áherslu á fijálst markaðs-
hagkerfi og einkavæðingu.
Fyrir kosningarnar árið 1987 sök-
uðu bandarísk yfirvöld nokkra af
samstarfsmönnum Pindlings um að
hafa þegið mútur af kókaínsmyglur-
um. Pindling var hins vegar ekki
sakaður um samvinnu við smyglar-
ana og bandarískir embættismenn
sögðu nýlega að stjórnvöld á Ba-
hama-eyjum væru til fyrirmyndar
sem bandamenn í eiturlyfjastríðinu.
Innilegt þakklœti sendi ég öllum, er sýndu mér
vinarþel á 70 ára afmœli mínu 11. ágúst.
Guð blessi ykkur öll.
Georg Ormsson.
T
Ég þakka af alhug öllum, sem heiðruðu mig
með blómum, kveðjum og heimsóknum á 100
ára afmœli mínu 5. ágúst sl.
-Sérstaklega vil ég þakka starfsfólki Hrafnistu
í Hafnarfirði, sem einnig gerði sitt til að gera
mér daginn ógleymanlegan.
Lifið heil!
Eiríkur Kristófersson.
I • ' \
„Hittumst
í grillinu! “
Libby’s tómatsósur,
tvenns konar flöshur- tvenns honar bragð!
(O
in