Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 26
tóORGUNBLAÐIÐÞRIÐJUDAGUR 10. JJÓVEMBER 1992.
26___
Minning
ÞórðurÞ. Þor-
bjamarson borgar-
verkfræðingur
Fæddur 5. ágúst 1937
Dáinn 30. október 1992
Drýgstur hluti af starfí Þórðar
Þ. Þorbjamarsonar, borgarverk-
fræðings, var unninn í þágu Reyk-
víkinga og höfuðborgarinnar. Það
var líkast því að heilladís vekti þar
yfir vinnudegi hans, sem oft var
langur og strangur, svo vel lánaðist
flest sem hann kom nálægt. Þetta
var umrótatími ört vaxandi borgar
og borgarverkfræðingurinn var lyk-
ilmaður í öllu, í krafti embættis síns,
en þó miklu fremur vegna alhliða
mannkosta.
Margt hefur orðið höfuðborginni
til framdráttar á síðustu áratugum.
Oftast hefur samhent stjóm verið
um hennar mál, og hún hefur verið
lánsamur vinnuveitandi og heppin
með starfsmenn. Þórður Þ. Þor-
bjamarson var einn hinna ágæt-
ustu. Hann var stálgreindur, fram-
sækinn og fylginn sér, en jafnframt
ljuflingur sem örvaði og gladdi okk-
ur félaga hans með návist sinni.
Borgarbúar munu lengi búa að því,
að þessi viljugi verkstjómandi og
hamhleypa var um leið náttúmunn-
andi og forfallinn ræktunarmaður.
Þess sér víða stað.
Ég er þakklátur fyrir að hafa átt
Þórð Þ. Þorbjamarson að sam-
verkamanni í 17 ár og góðum vini
drjúgan hluta þess tíma. Ásamt
borgarritara var hann minn nánasti
samstarfsmaður á borgarstjóra-
ámm mínum, og betri manni var
ekki völ á. Hann var í senn traust-
ur og ráðhollur, en bjó um leið yfír
ótæmandi bjartsýni og vilja til að
taka áhættur og leggja í verk, sem
fáir sáu á þeirri stundu að væm
framkvæmanleg. Margan slaginn
tókum við saman og marga skuld
á ég honum að gjalda.
En Þórður átti aðra og verald-
legri heilladís en þá sem minnst var
á að framan. „Sigga mín“ stóð hon-
um mjög nærri alla tíð, en þó næst
þegar mest á reyndi. Við Ástríður
hugsum til hennar og sona þeirra
Þórðar á kveðjustund. Enginn veit
betur en þau að hann var vænn
maður.
Davíð Oddsson.
Heimkynnum við sjó lýkur Hann-
es Pétursson með hendingunum:
Mislengi
er líf vort í hafi.
Og nú hefur líf vinar míns og
svila, Þórðar Þ. Þorbjarnarsonar,
borið upp á þá fjöru, sem enginn
fær séð fyrr en hans tími er kom-
inn. Dauðann bar að þegar Þórður
var á leið til þeirra fræðimanna
erlendis, sem ætluðu að gera úr-
slitatilraun til að ráða við mein-
semdina, sem hann gekk með.
Undarleg er sú tilfinning, þegar
sorgin sker og söknuðurinn nagar,
að fínna til þakklætis til forsjónar-
innar sem tók, fyrir það, sem hún
gaf. Fyrir röskum tuttugu árum fór
Þórður rétt eins og nú helsjúkur
af krabbameini til Bandaríkjanna á
vit Bjöms Þorbjamarsonar frænda
síns. Eftir harða sennu færustu
lækna við sjúkdóminn kom Þórður
heim alheill og var þannig gefið
tuttugu ára ríkt líf til viðbótar.
Þessa lífs höfum við vinir hans,
Qölskylda og venslafólk notið með
honum, þeim ljúfa og skemmtilega
ferðafélaga sem hann var í þeirri
sjóferð. Hann gaf okkur líka hlut-
deild í þeirri lífsreynslu, sem hann
hafði öðlast — að meta þau gildi í
lífínu, sem máli skipta, en fást ekki
um hin, sem verða svo lítilvæg þeg-
ar líf og heilsa er annars vegar, -
að lifa lífinu meðan það gefst.
En hér á sannaðist, að það fæst
ekkert fyrir ekkert. Meinsemdin
sem nú réðst ekki við var ekki hin
sama og áður, en sennilegast bein
afleiðing þeirrar hörðu læknismeð-
ferðar, sem á sínum tíma gaf árin
tuttugu. Reikningurinn fyrir þau
var fallinn í gjalddaga.
Eftir sitjum við með þessa undar-
legu blöndu sorgar, trega og þakk-
lætis til forsjónarinnar þrátt fyrir
allt. Megi minningin um góðan
dreng gefa okkur öllum, fjölskyldu
hans, vinum og samstarfsmönnum
huggun, gleði, vísdóm og styrk
meðan okkar líf eru enn í hafí.
Jón Sigurðsson,
Grundartanga.
Með Þórði Þorbjamarsyni er
genginn langt um aldur fram ein-
stakur maður. Okkur sem störfum
að verklegum framkvæmdum þótti
gott að leita ráða hjá honum og
heiður að því að eiga hann að vin.
Það var einstakt happ fyrir Reykja-
víkurborg að fá hann til starfa við
mótun verklegra framkvæmda
borgarinnar. Skarð hans hjá
Reykjavíkurborg verður vandfyllt.
Það voru örlög okkar frá fyrstu
kynnum í byijun áttunda áratugar-
ins að sitja sitt hvoru megin við
borðið. Það var happ mitt þegar eg
kom til starfa til aðstoðar föður
mínum og bróður við byggingar-
starfsemi að fá fljótlega móthéija
eins og Þórð. Hann var þá nýtekinn
við byggingardeild borgarverkfræð-
ings og við tókumst strax frá upp-
hafi á um hagsmuni eins og gengur
og höfðum til skiptis betur, en betri
og heiðarlegri skóla held eg hefði
vart getað fengið. Þetta voru ár
mikilla framkvæmda og gaman að
vera til. M.a. störfuðum við saman
að byggingu fyrstu skólanna í
Breiðholti, þ.e. Breiðholtsskóla og
Fellaskóla. Þar var um margt iagð-
ur sá grunnur að samskiptum verk-
taka og verkkaupa, sem síðan hefur
gilt. Öll mál voru leyst af sann-
girni, enda ætlast til að hún væri
gagnkvæm. Með þessum fáu línum
vil eg staðfesta þakklæti mitt fyrir
öll þau ágætu samskipti. Þau voru
ekki aðeins sanngjöm og heiðarleg.
Þau voru oft alveg ákaflega
skemmtileg. Enda þótt starfsmenn
hans hjá borgarverkfræðingsemb-
ættinu hafí verið hinir ágætustu
menn var stjórnunin hans og hygg
að allir sem til þekki geti fullyrt
að flest einkafyrirtæki hefðu mátt
vera fullsæmd af. Þrátt fyrir miklar
annir og mikil veikindi stóðu dyr
hans mér alltaf opnar ef mér þótti
liggja mikið við og slík hygg eg séu
gjaman einkenni góðra stjómenda.
Kynni okkar utan vinnu urðu minni
en eg hefði kosið, en þó áttum við
Freyja þess kost að dvelja með þeim
hjónum nokkrar vomætur upp und-
ir Amarvatnsheiði fyrir nokkmm
ámm. Þá var gaman að vera til og
kom ekki að sök þó stígvélin væm
ef til vill of lág. Það er enginn verri
þó hann vökni. Að leiðarlokum votta
eg fjölskyldu hans einlæga samúð
mína og bið góðum dreng Guðs
blessunar.
Ármann Örn Armannsson.
Á stilltu haustkvöldi þegar síð-
ustu laufin féllu í tijálundinum hans
Þórðar við Þingvallavatn féll hann
sjálfur í valinn — aðeins 55 ára
gamall.
Þórður Þ. Þorbjamarson fæddist
í Reykjavík 5. ágúst 1937, sonur
hjónanna Þórðar Þorbjarnarsonar
lífefnafræðings og síðast forstöðu-
manns Rannsóknarstofnunar físk-
iðnaðarins og konu hans Sigríðar
Þórdísar Claessen. Þórður varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1957, lauk fyrri hluta
prófí í verkfræði við Háskóla ís-
lands 1960 og prófí í byggingaverk-
fræði frá Verkfræðiháskólanum í
Kaupmannahöfn 1963. Hann réðst
til Reykjavíkurborgar 1964, fyrst
hjá gatnamálastjóra og síðar for-
stjóri Vélamiðstöðvar borgarinnar
og forstöðumaður Byggingadeildar
borgarverkfræðings.
Þegar ég tók við embætti borgar-
stjóra 1. desember 1972, stóð þann-
ig á að Gústaf E. Pálsson, sem
verið hafði borgarverkfræðingur við
góðan orðstír um all langt skeið var
að láta af störfum. Embætti borgar-
verkfræðings er eitt mikilvægasta,
ábyrgðarmesta og erfíðasta emb-
ætti hjá Reykjavíkurborg. Hin
miklu umsvif ört vaxandi borgar í
verklegum framkvæmdum eru á
ábyrgð borgarverkfræðings og því
ríður á miklu að það sæti sé vel
skipað.
Þegar hins vegar varð ljóst, að
Þórður Þ. Þorbjarnarson gæti hugs-
að sér að taka við embætti þótti
öllum það vel ráðið og 1. janúar
1973 tók Þórður við starfi borgar-
verkfræðings. Hann hefur því stað-
ið í þeim stafni í nær 20 ár. Frá
þeim tíma áttum við Þórður daglegt
samstarf um margra ára skeið. Í
þessu starfí komu allir bestu kostir
Þórðar fram. Hann var frábær verk-
fræðingur, góður og laginn stjórn-
andi með mikla yfírsýn yfír hið fjöl-
þætta og flókna starfssvið sitt, hug-
mjmdaríkur og útsjónarsamur og
brást aldrei hvorki í smáu.né stóru.
Hann hefur átt ríkulegan þátt i
þróun þessarar borgar á síðustu
áratugum.
Okkar nána samstarf þróaðist
upp í vináttu og þegar ég lét af
störfum hjá Reykjavíkurborg héld-
um við hópinn nokkrir samstarfs-
menn hjá borginni og höfum með
konum okkar farið árlega saman í
veiðiferðir, í eina ferð til Egypta-
lands og höfum hist á öðrum stund-
um, þegar tækifæri hafa gefíst.
Sambandið við Þórð var enn nánara
fyrir það að við vorum nágrannar
í sumarbústöðum í Svínahlíðinni við
Þingvallavatn þar sem við höfum
notið þess að rækta skóg og sá
áhugi leiddi okkur saman í stjóm
Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Þórður var fágætur mannkosta-
maður. Hann lét sér ekki nægja
góða kunnáttu í sínu fagi eða
árangur í starfí, heldur voru áhuga-
málin fjölþætt og margvísleg. Hann
var hvort tveggja í senn heimsborg-
ari og náttúrubarn. Hann las t.d.
náttúruna betur en aðrir menn og
það var unun að vera með honum
á þeim vettvangi. Gilti það einu
hvort um var að ræða að skynja
hvar fískur lægi undir steini eða
þekkja alla fugla af vængjatakinu
eða þylja latnesku fræðiheitin á öll-
um tijátegundunum í því Q'ölþætta
tijásafni, sem hann kom sér upp í
sumarbústaðalandinu. Og svo var
hann svo einstaklega mannlegur og
skemmtilegur, lagði aldrei illt til
nokkurs manns og gladdist af ein-
lægni á góðum stundum geislandi
af sinni ríkulegu kímnigáfu. í raun-
inni fínnst mér, þegar ég lít til baka,
að í öllum okkar samskiptum hafí
ég verið þiggjandi og hann veitand-
inn.
Fyrir um einu og hálfu ári greind-
ist Þórður með krabbamein, sem
þó var þeirrar gerðar, að góð von
var talin um bata. Þá hófst það
stríð, sem nú er lokið. Vinir hans
hafa fylgst með veikindastríðinu
milli vonar og ótta, en oftast hefur
þó vonin setið í fyrirrúmi. Það leyndi
sér ekki að af honum dró, en sjálf-
ur gafst hann aldrei upp. Hann lagði
af stað til læknismeðferðar í Banda-
ríkjunum, en komst aldrei á það
sjúkrahús, sem ferðinni var heitið
til. Snögglega var klippt á þráðinn.
Þann 18. apríl 1959 gengu þau
í hjónaband Þórður og Sigríður Jón-
atansdóttir, skólasystir hans úr
menntaskóla. Það leyndi sér ekki
að það hjónaband var reist á farsæl-
um og traustum grunni jgagn-
kvæmrar ástar og virðingar. I veik-
indum Þórðar hefur Sigríður sýnt
aðdáunarvert þrek og stillingu. Þau
eignuðust þijú böm, Sigríði Þór-
dísi, flugfreyju, f. 1959, Jónatan,
fískeldisfræðing, f. 1964 og Þórð,
lögfræðing, f. 1965. Að þeim er nú
kveðinn sár harmur.
Við Sonja kveðjum með sársauka
tryggan og góðan vin. Vjð biðjum
góðan Guð að styrkja Sigríði og
börnin í þeirra miklu sorg.
Birgir ísl. Gunnarsson.
Þórður Þ. Þorbjarnarson, borgar-
verkfræðingur, lést 31. október sl.
aðeins 55 ára að aldri. Féll þar til
foldar einn helsti garpur þess hóps
tæknimanna, sem lagt hafa fyrir
sig undanfarna áratugi að starfa
hjá sveitarfélögum landsins sem
ráðgjafar og framkvæmdastjórar
tæknideildanna.
Sá er hér ritar man fyrst eftir
Þórði fyrir tæpum þijátíu árum, er
við vorum fáein ár samtímis starfs-
menn hjá Reykjavíkurborg. Síðar
varð hann reyndar eftirmaður minn
um tíma í Vélamiðstöð Reykjavíkur-
borgar. Er mér minnisstætt hve
geðþekkur og gæfulegur mér og
öðrum þótti maðurinn og líklegur
til góðs frama, sem og raunin varð.
Síðan þetta var, lágu leiðir okkar
saman við og við en þó fyrst að
verulegu marki, er við fengum það
verkefni ásamt völdum hópi ann-
arra tæknimanna að leita að heppi-
legri tækni til sorpeyðingar á svæð-
inu. Smám saman þróaðist mál
þetta í undirbúningsfélag þess fyrir-
tækis sem alþekkt er nú sem Sorp-
eyðing höfuðborgarsvæðisins bs.,
daglega nefnt Sorpa. Var Þórður
hinn trausti bakhjarl þess sem
stjórnarformaður til dauðadags.
Á þessum vettvangi var Þórður
sjálfkjörinn til forystu, bæði sem
fulltrúi langstærsta sveitarfélagsins
sem aðild átti, en ekki síður vegna
góðrar kunnáttu og yfirsýnar um
tæknileg verkefni og persónueigin-
leika, sem reyndust hér sem oft
ella dijúgir til framgangs erfíðum
málum.
Nú er bráðum liðinn heill áratug-
ur frá því undirbúningur málsins
hófst, en fyrirtækið Sorpa hóf
rekstur sinn á vordögum 1991 og
hefur þegar sannað sig sem þjóð-
þrifaframtak.
Forsendur í byijun voru þær, að
uppfylla ætti allt aðrar og meiri
kröfur um hreinlæti, hollustuhætti
og allt öryggi gegn mengun, en
áður höfðu verið uppi hér á landi.
Auk þess skyldi leitað allra leiða
til hagkvæmrar nýtingar úrgangs
og leysa málið sem best frá upp-
hafí til enda.
Augljóst var, að kostnaður við
sorpeyðingu mundi snarhækka, auk
þess að þótt allir vildu í orði kveðnu
leysa málin, reyndu flestir að ýta
vandanum sem lengst frá eigin
ranni. í allri þeirri baráttu, sem
taka varð á sig til að þoka málinu
fram, var forysta Þórðar minnis-
stæðust. Framanaf voru athugaðar
ýmsar tæknilegar leiðir, valið og
hafnað og veitti ekki af að beita
þar raunsæi og yfírveguðu mati til
að komast að raunhæfri niðurstöðu.
Eftir að ljóst varð í aðalatriðum,
hvaða kosti menn vildu telja, tók
við afar erfíð og tímafrek leit að
heppilegum stöðum fyrir móttöku-
stað og urðun sorps. Niðurstaðan
varð að mínu mati ekki sú heppileg-
asta, en um það þýðjr ekki að fást.
í öllu því þjarki komu margir að
málum og bættu sumir litlu við
stærð sína, nema síður væri. Það
gerði Þórður hins vegar svo um
munaði. Öll sú þolirimæði, köld yfír-
'vegun í hita leiksins og vakandi
útsjónarsemi, ásamt fágætri blöndu
af lipurð og festu, sem Þórður sýndi
við lausn mála, er ekki mörgum
gefín. Býst ég við að þessa alls
verði lengi minnst.
Þórður stendur mér fyrir sjónum
sem óvenju vel gerður maður, sem
mikil eftirsjá er að. Auk þess sem
áður er getið, hafði hann til að
bera hárfína og notalega kímni, sem
oft létti andrúmsloftið í nálægð
hans. Ræktaði hann garð sinn í
mörgum skilningi, en vænst held
ég að honum hafi þótt, fyrir utan
fjölskyldu sína, um skóginn sinn við
Þingvallavatn og aðild sína að skóg-
ræktarmálum, enda munaði um lið-
veislu hans á þeim vettvangi^ innan
og utan borgarmarkanna. Á vett-
vangi Sorpu komu þessi menningar-
legu viðhorf einnig vel í ljós, en þar
beitti hann sér fyrir myndarlegum
frágangi, ekki síst með gróðri, sem
mun um langa tíð minna á foryst-
una í upphafi.
Tel ég mig mæla fyrir munn allra
okkar dátanna í liði Þórðar í stjóm
og starfsliði Sorpu, er við minn-
umst með trega mikilhæfs foringja
fyrir liði okkar, um leið og við send-
um syrgjandi konu hans og skyldu-
liði hugheilar kveðjur á sorgar-
stundu.
Björn Arnason.
Vel er að fauskar fúnir klofni,
felli þeir ei hinn nýja skóg
en hér féll grein af góðum stofni,
grisjaði dauði meira' en nóg.
Því svo eru not að nema ijóður,
að nýgræðinginn vanti’ ei skjól.
Stijáll er enn vor stóri gróður,
stendur hann engum fyrir sól.
Þetta kvæði Sigurðar Sigurðs-
sonar frá Amarholti er nefnist
„Mannskaði" kemur ósjálfrátt upp
í huga okkar þegar við minnumst
vinar okkar Þórðar Þorbjamarson-
ar. Ótímabært andlát hans var
sannkallaður mannskaði.
Þórður Þ. Þorbjarnarson fæddist
í Reykjavík 5. ágúst 1937, sonur
hjónanna Þórðar Þorbjamarsonar
lífefnafræðings og Sigríðar Þ.
Claessen. Hann lauk stúdentsprófí
frá MR árið 1957, fyrrihlutaprófí í
verkfræði frá Háskóla íslands 1960
og prófí í byggingaverkfræði frá
DTH í Kaupmannahöfn árið 1963.
Hann starfaði sem verkfræðingur
hjá sjóher Bandaríkjanna á Kefla-
víkurflugvelli 1963 og hjá Verk-
fræðistofu Braga Þorsteinssonar og
Eyvindar Valdimarssonar 1963-
1964. Hann hóf störf hjá Reykjavík-
urborg árið 1964, fyrst sem verk-
fræðingur hjá gatnamálastjóra.
Forstjóri Vélamiðstöðvar var hann
árin 1966-1971, forstöðumaður
byggingadeildar borgarverkfræð-
ings 1971-1973 og var skipaður
borgarverkfræðingur árið 1973.
Við munum ekki hafa mörg orð um
glæstan embættisferil hans. Það
munu aðrir gera. Hinn óvenju skjóti
frami hans sýnir glöggt hvers álits
hann naut strax sem ungur maður
og ekki rýrnaði það álit með árun-
um. Hann kunni vel þá list góðra
stjórnenda að starfa sem fremstur
meðal jafningja. Hinn 18. apríl 1959
kvæntist hann Sigríði'Jónatansdótt-
ur. Saman eignuðust þau 3 börn,
Sigríði Þórdísi flugfreyju, fædda
1959, Jónatan fískeldisfræðing,
fæddan 1964, maki Brynja Gunn-
laugsdóttir, og Þórð lögfræðing,
fæddan 1965, maki Gerður Grön-
dal.
Við höfum þekkt Þórð Þorbjarn-
arson í 40-50 ár, en fyrir 40 ámm
tengdumst við allir þeim vináttu-
böndum sem aldrei hafa rofnað og
fremur styrkst ef eitthvað er. Á
menntaskólaárunum hittumst við
reglulega, hlustuðum á góða tónlist
af öllu tagi, kenndum hver öðmm
að meta fegurð í öllu formi og síð-
ast en ekki síst ræddum við dýpstu
rök tilverunnar og leituðum svara
við þeim. Nefndum við félagsskap-
inn „menningu" og þótti ýmsum
gæta nokkurs oflátungsháttar í
nafngiftinni. En hún festist, og enn
í dag nefnum við það að „blása til
menningar“ þegar við ákveðum að
hittast, og er það ávallt sama til-
hlökkunarefnið.
Þórður Þorbjarnarson var hár
maður vexti og samsvaraði sér vel.
Hann var laglegur maður, ennið
hátt og sérstök heiðríkja í svipnum.
Frá honum geislaði einstök hlýja
sem laðaði menn að honum. Hann
var mikill mannþekkjari og við
lærðum fljótt að aðrir vinir Þórðar
voru menn sem við einnig gátum