Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
27
treyst. Hann var óvenju drenglund-
aður maður, en þoldi líka mjög illa
fals og allan ódrengskap. Hann var
skapmaður, gat fyllst réttlátri reiði
og vandlætingu en sjaldnast lengi.
Fúllyndi og geðvonska fundust ekki
í skapgerð hans. Hann hafði frá-
bæra kímnigáfu og var óvenju
næmur á hið broslega í fari manna.
Átti hann til að herma listavel eft-
ir, en allt var það gaman græsku-
laust enda öll ótukt eitur í hans
beinum. Hann var allra manna glað-
astur og bjartsýnastur. Kæmi fyrir
að við félagarnir værum með
barlóm baðst hann undan að þurfa
að hlusta á vol og víl hjá mönnum
sem hefðu undan engu að kvarta.
Hann var framkvæmdasamur og
fljótur til verka svo af bar. Utan
erilsams starfs sem borgarverk-
fræðingur voru helstu áhugamál
hans skógrækt, laxveiðar og sein-
ustu árin fiskeldi. í því öllu var
hann trúr boðum postulans: „Verið
ekki hálfvolgir í áhuganum, verið
brennandi í andanum.“ Einum okk-
ar eru minnisstæð fyrstu sporin sem
Þórður leiddi hann á refilstigum
laxveiðinnar. Fór sú kennsla fram
án allrar tæpitungu og var farið
fremur sparlega með hrósyrðin. Því
meiri var gleði beggja þegar stór
lax beit á og var landað. Þurfti
lærisveinninn umsvifalaust að
sporðrenna veiðiugganum þar á
árbakkanum, fékk að vísu örlitla
viskílögg til að koma honum niður.
Af ofangreindu má ekki skilja
að Þórður væri maður með öllu
gallalaus. Hreinskilni hans gat orð-
ið óþægileg og framkvæmdagleðin
breyst í fljótfærni. En þessir eigin-
leikar áttu ríkan þátt í persónuleika
hans og sköpuðu svo mikla persónu-
töfra að okkur fundust þeir alls
ekki mega missa sín.
Þórður var mikill gæfumaður í
einkalífi. Við minnumst þess eins
og það hefði gerst í gær þegar
hann af sinni yndislegu hreinskilni
tjáði okkur vinum sínum að sér lit-
ist ljómandi vel á hana Siggu Jónat-
ans í 4. bekk A í MR. Sem betur
fer reyndust þessar tilfinningar
gagnkvæmar. Hjónaband þeirra
hefur alla tíð einkennst af gagn-
kvæmri ást og virðingu og að heim-
ili þeirra í Fornastekk 9 og í sælu-
reit þeirra hjóna i Grafningi við
Þingvallavatn var alltaf jafn gott
að koma, enda gerðum við það oft.
Hver styrkur hún var honum í löngu
veikindastríði fá engin orð lýst. Sá
er ekki einn sem hefur slíka konu
sér við hiið.
Við vitum ekki fremur en aðrir
hvað tekur við að lokinni þessari
jarðvist. En í þeirri trú að til sé
persónulegt framhaldslífs, gætum
við vel hugsað okkur þá paradís að
sitja með Þórði vini okkar, hlusta
á himneska tónlist og sjá í hendi
okkar lausnir á þeim lífsgátum sem
við veltum fyrir okkur fyrir tæpum
40 árum. Fram að þeim tíma mun-
um við geyma minningu hans ljós-
lifandi í hugskoti okkar og harma
það að-honum varð ekki lengra lífs
auðið.
Sígræn blöð þér breiði
bjðrk í fegra heirai;
mildur blær í meiði
minning þína geymi.
(S.S.)
Björn Björnsson,
Guðmundur Kr. Guðmundsson,
Ólafur B. Thors,
Tryggvi Ásmundsson.
Þórður Þ. Þorbjarnarson borgar-
verkfræðingur er kvaddur hinstu
kveðju í dag en hann andaðist á
sjúkrahúsi í Bandaríkjunum laugar-
daginn 31. október sl.
Þórður fæddist 5. ágúst 1937 í
Reykjavík. Foreldrar hans voru
hjónin Þórður Þorbjarnarson líf-
efnafræðingur og Sigríður Þórdís
Claessen og var hann einkabarn
þeirra. Þórður lauk prófi í verk-
fræði frá Háskóla íslands 1960 og
í byggingaverkfræði frá DTH í
Kaupmannahöfn 1963. Gegndi
hann síðan ýmsum verkfræðistörf-
um og hóf störf hjá Reykjavíkur-
borg 1964. Hann var forstjóri Véla-
miðstöðvar Reykjavíkurborgar
1966-71, og byggingadeildar borg-
arverkfræðings í Reykjavík
1971-73, er hann tók við stöðu
borgarverkfræðings sem hann
gegndi til dauðadags.
Þórður kvæntist systur minni
Sigríði 18. apríl 1959. Þau Sigríður
og Þórður áttu farsælt hjónaband
og eignuðust þau þrjú mannvænleg
börn, sem nú eru öll uppkomin,
Sigríði Þórdísi, flugfreyju, Jónatan,
fiskeldisfræðing og Þórð, lögfræð-
ing.
Þórður var einstakur mannkosta-
maður, léttur í lund, víðsýnn og
hrókur alls fagnaðar þegar því var
að skipta. Hann var mikill vinur
vina sinna og átti góðu gengi að
fagna, ekki hvað síst í störfum sín-
um hjá Reykjavíkurborg þar sem
hann var virtur að verðleikum.
Einkalífið var honum hamingjuríkt
og fjölskyldulífíð í öndvegi haft.
Útilíf var Þórði kærkomin afþreying
frá erilsömum störfum og hneigðist
þá hugurinn einkum að gróðurvernd
og ekki hvað síst skógrækt. Áttu
skógræktarsamtök hauk í horni þar
sem Þórður var.
I sumarbústað sínum við Þing-
vallavatn áttu þau Sigríður og Þórð-
ur og fjölskyldan öll marga ánægju-
stund þar sem Þórður lagði sig fram
um að vernda og efla gróðurríkið í
stórbrotnu og tignarlegu umhverfi,
svo að til fyrirmyndar var. Var
framkvæmdamanninum Þórði mik-
ið í mun að gróður jarðar væri ekki
fyrir borð borinn í samskiptum
manns og lands, leita yrði lausna
þannig að tryggja mætti góð lífs-
skilyrði á hveijum tíma í sem mestri
sátt við umhverfið.
Hvort sem var við ábyrgðarmikil
og krefjandi störf sem einn æðsti
embættismaður Reykjavíkurborgar
eða sem vemdari gróðurvinja sýndi
Þórður jafnt alúð, drengskap og
fyrirhyggju sem aflaði honum virð-
ingar og vinsælda samstarfsmanna
hans og langt út fyrir þann hóp.
Heimilisfaðirinn Þórður var einnig
dáður af öllum sem til þekktu. Árin
hans á meðal okkar urðu ekki fléiri
en 55 því hann varð langt um aldur
fram að bíða lægri hlut í harðri og
æðrulausri baráttu við langvinnan
krabbameinssjúkdóm sem varð hon-
um að aldurtila. Þegar sjúkdómur-
inn var fyrir skömmu kominn á al-
varlegt stig og margar tilraunir til
lækninga höfðu reynst gagnslausar,
var þó ein eftir sem stefnt var að
þegar til úrslita dró. Leita skyldi
sérstakrar læknismeðferðar í
Bandaríkjunum í von um bata og
sem fyrr með aðdáunarverðum
stuðningi Sigríðar og barnanna. Sú
von brást hins vegar því er komið
var á áfangastað var þrekið þrotið
og engum vörnum lengur við kom-
ið. Þórður varð bráðkvaddur á leið-
arenda áður en hin fyrirhugaða
læknismeðferð gat hafist.
Við Guðrún og dætur okkar,
tengdasynir og bamaböm þökkum
Þórði samfylgdina. Minningin um
góðan dreng lifir. Megi hún verða
Sigríði og börnum þeirra styrkur í
sorg þeirra og raun.
Halldór Jónatansson.
SJÁ SÍÐU 52
Verðdæmi á Sole II veggskáp.
Kr, á mánuði í 30 mán. m/Munaláni'
Útreikningur miðast við að um jafngreiðslulán sé að ræða með
25% útb., eina afborgun á mánuði og gildandi vexti Sparisjóðanna.
Húsgagnahöllin
Pd mt 4 téObí UiSL.
jtg&á
Einnig Visa og Euro raðgreiðslur
til margra mánaða.
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199
___
VFSA
EUROCARD MUNALÁN
á meðan hún gefst - því nú er tækifæri til
að eignast fallegan og vandaðan veggs
í stofuna á frábærum greiðslukjörum.
Teg: Sole II, svartur/grár eða alveg svartur eða perlugrár kr. 98.720.-
Sigling til og frá Evrópu
með fullu fæði fyrír aðeins 23.070 kr.!
Sigling er skemmtilegur og afar þægilegur ferða-
máti, ekki síst þegar skipin fara vel í sjó og
aðstæður eru góðar um borð.
EIMSKIP og Úrval - Útsýn bjóða ferðalöngum
þennan kost með systurskipunum Laxfossi og
Brúarfossi. Skipin sigla vikulega með vörur, bíla
og farþega frá Reykjavík til hafna í V-Evrópu. Þeir
sem vilja geta siglt aðra leiðina og flogið hina og
nýtt sér þannig kosti beggja ferðamátanna.
ÞÆGINDI UM BORÐ
Aðstaða um borð er mjög þægileg. Þar eru sex
káetur. Ein þeirra er nokkru stærri en hinar og með
sér setustofu. í hverri káetu eru sjónvarp með
myndbandskerfi, útvarp, kæiiskápur, salemi og
sturta. Einnig er gufubað um borð.
VERÐIÐ ER EINSTAKLEGA
HAGSTÆTT
50% afsláttur er veittur á fargjöldum frá 15.
október- 1. apríl.
Þannig kostar t.d. sigling til og frá Englandi með
fullu fæði í 6 daga aðeins 23.070 kr. á mann!
Miðað er við 2 í klefa.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Úrval - Útsýn í
síma 69 93 00.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM PÉR LEIÐ