Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 28
28
»10
MOR'GUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÖVEMBER 1992
Tyrkneska forræðismálið
Dagbjört látin segja aö hún
vilji vera hjá pabba sínum
- segir Gunnar Guðmundsson, lögfræðingur Sophiu Hansen
HALIM Al, fyrrverandi eiginmaður Sophiu Hansen, boðaði til blaða-
mannafundar vegna forræðis dætra hans og Sophiu í gær. A fundin-
um lét hann Dagbjörtu, sem er eldri, segja að hún vildi ekki vera
með móður sinni af því að hún hefði snúið frá múhameðstrú til
kristni, að sögn Gunnars Guðmundssonar, Iögfræðings Sophiu. Hann
sagði að gerður hefði verið góður rómur að blaðamannafundi Sop-
hiu síðar um daginn.
„Á fundi Sophiu með stelpunum
á laugardag kom í ljós að Halim
var búinn að undirbúa ákveðinn leik-
þátt sem fólst í því að hann lét eldri
stelpuna segja að hún vildi vera hjá
pabba sínum. Hún vildi ekki vera
með mömmu sinni því hún hefði
snúið frá múhameðstrú til kristni. Á
blaðamannfundinum í morgun lét
hann hana endurtaka þetta,“ sagði
Gunnar.
„í framhaldi á því var talin
ástæða til að hafa samband við 14
fjölmiðla og láta þá hafa gögn um
málið. Á fundi með þeim var greint
frá því að þama væri um ákveðinn
lygavef og leikþátt að ræða. Halim
byggi hann til og ætlaði að hagnýta
Aldrei séð aðra eins
angist og örvæntingu
- segir Sophia Hansen eftir fund með
dætrum sínum síðastliðinn laugardag
sínum í vor hefðu þær haldið í von-
ina um að hún kæmi fljótlega og
bjargaði þeim. Nú væm þær greini-
lega búnar að gefa upp þá von.
„ÉG HEF aldrei séð aðra eins
angist og örvæntingu og þvílíkan
ótta eins og skein út úr augum
dætra minni þessa stund,“ sagði
Sophia Hansen m.a. þegar hún
rifjaði upp fund sinn með dætr-
um sínum, Dagbjörtu og Rúnu, í
Istanbul á laugardag. Hún hafði
þá ekki séð dætur sínar í um
hálft ár. Sophia segir að þeim
hafi verið innprentað að hafna
móður sinni á þeirri forsendu að
hún hafi snúist gegn íslam. Soph-
ia segir að stúlkurnar hafi þulið
bænir í hálfum hljóðum meðan á
fundinum hafi staðið og verið
afar fjarlægar. Þær litu illa út,
væru með bauga undir augunum
og afar grannar. Hún mátti ekki
snerta þær á meðan á fundinum
stóð.
Áður en Sophia reyndi að ná
sambandi við dætur sínar í fundar-
herbergi á hóteli í Istanbúl talaði
Hasíp Kaplan, lögfræðingur henn-
ar, við þær og sagði þeim þá meðal
annars að dómarinn í málinu hefði
leyft mömmu þeirra að hitta þær
tvisvar sinnum í mánuði. Pabbi
þeirra hefði ekki farið að þessu og
ef hann héldi sig við það yrði honum
varpaði í fangelsi. Sophia sagði að
stúlkurnar hefðu virst undrandi á
því að þessi dómsúrskurður um
umgengnisrétt hennar væri til.
Aðspurð um hegðun stúlknanna
sagði Sophia að þær hefðu verið
afar angistarfullar og leikið þá rullu
sem greinilega hefði verið lögð fyr-
ir þær. „Sú eldri sagði að þær vildu
ekki tala við mig. Þær vildu vera
múhameðstrúar áfram og vegna
þess að ég hefði tekið múhameðstrú
en breytt aftur í kristna trú og
snúist gegn íslam vildu þær ekkert
með mig hafa,“ sagði Sophia og tók
fram að Dagbjört hefði ekki þorað
að horfa í augu hennar meðan hún
hefði talað.
Rúna, sú yngri, talaði ekki við
Sophiu en horfðist einu sinni í augu
við hana. „Ég talaði við þær þó ég
fengi engin svör. Sagði þeim að ég
hefði komið til að hitta þær, að ég
elskaði þær og myndi halda áfram
að beijast fyrir að fá þær til mín.
Ég talaði líka um að ég hefði alltaf
haldið upp á afmælin þeirra, verið
með kökur og gjafir, og þegar ég
rifjaði upp afmæli Rúnu glaðnaði
yfir henni og hún leit til mín. í
svipinn fannst mér hún líkjast göml-
um myndum af mér sem barni, sem
ég er nýbúinn að finna," sagði
Sophia og vísaði til Rúnu sem hún
sagði að hefði verið auðveldara að
ná til.
í samtalinu sagði Sophia að þeg-
ar dætur sínar hefðu lýst aðbúnaði
sér í málinu,“ sagði hann. „í beinu
framhaldi röktum við málið eins og
það hefur þróast og kom þá m.á.
fram að Sophia væri með átta mál
í gangi, gegn Halim, vegna opin-
berrar rannsóknar, aðfararinnar við
dómshúsið og gegn þingmanninum
sem efndi til uppþots síðast."
Gunnar vissi ekki hversu margir
fjölmiðlar hefðu komið á blaða-
mannafund Halims en sagðist þó
vita að hann hefði ekki verið alltof
vel sóttur. Hins vegar sagði hann
að gerður hefði verið góður rómur
að óformlegum blaðamannafundi
Sophiu seinna um daginn.
Lögfræðingar Sophiu vinna að
undirbúningi fyrir réttarhöldin á
fímmtudag. „Þá verður ítrekuð sú
krafa að þessi dómari víki. Ef því
verður hafnað verður kröfunni skot-
ið til hæstaréttar," sagði Gunnar.
Aðspurður kvaðst hann ekki búast
við öðru en að læti yrðu við dóms-
húsið á fimmtudag.
Fram kom að Sophia myndi eiga
fund með lögfræðingi mannrétt-
indaráðherra Tyrklands á laugar-
dag. „Þá verður farið yfir málið í
heild með ýmsum ráðgjöfum sem
munu sækja fundinn," sagði Gunn-
ar.
Halim A1 lét mynda stúlkurnar með ýmsum embættismönnum í Tyrk-
landi í sumar. Á neðstu myndinni sjást þær t.a.m. í fylgd Turguts
Ozals, forseta Tyrklands.
Rekstri kókaínmálsins fram haldið í héraðsdómi
Vitni segist hafa séð lögreglu
beygja í veg fyrir flóttabílinn
Um tugur lögreglumanna fylgdist með ferðum ákærða dagana fyrir handtökuna
VITNALEIÐSLUM í kókaínmálinu var fram haldið fyrir héraðsdómi
í gær og voru yfirheyrðir nokkrir lögreglumenn, svo og sérstakur
trúnaðarmaður tálbeitu lögreglunnar í málinu og vitni sem sá þegar
árekstur varð milli lögreglubils og Subaru-bílsins sem Steinn Ármann
Stefánsson, ákærði í málinu, ók á flótta undan lögreglunni. Vitnið,
sem er starfsmaður Skálatúnsheimilisins, kvaðst hafa fylgst með
árekstrinum út um glugga á starfsmannaíbúð sinni og séð hvar lög-
reglubifreiðinni var fyrst ekið eftir miðjum vegi 2-300 metra á und-
an flóttabílnum sem birtist skyndilega á miklum hraða en síðan sveigt
til hægri og þá í veg fyrir flóttabilinn, sem þá hafi verið að reyna
að komast hægra megin fram úr lögreglubílnum. Við það hafi árekst-
urinn orðið. Vitnið kvaðst hafa gefið sig á tal við lögreglumenn á
slysstaðnum og sagst hafa orðið vitni að atburðinum en hafa fengið
þau svör að þar sem um eftirför hefði verið að ræða væri ekki talin
sérstök þörf á vitnisburðinum. Einn þeirra Iögreglumanna sem yfir-
heyrður var í gær gat tímasett hvernig fíkniefni hefðu fundist í bíl
ákærða á Vesturlandsvegi og gert grein fyrir því hver hefði tekið
þau úr bilnum.
Við yfírheyrslur í málinu er fram
komið að það var um það bil tugur
lögreglumanna sem hafði þann
starfa að fylgja Steini Ármanni eft-
ir hvert fótmál og safna upplýsing-
um um ferðir hans og hveija hann
hitti dagana fyrir handtöku. Að-
gerðir af þessu tagi kalla lögreglu-
Óverðtryggt kaup-
verð tölva endur-
greitt eftir áratug
Apple-umboðið á íslandi býður viðskiptavinum sínum að endur-
greiða þeim að tíu árum iiðnum kaupverð Macintonsh-tölvu að upp-
fylltum ákveðnum skilmálum. Að sögn Gríms Laxdal forstjóra Radíó-
búðarinnar eru skilmálar almenns eðlis en verð tölvunnar óverðtryggt.
Gn'mur sagði að tilboðið væri
unnið í samvinnu við Apple tölvufyr-
irtækið og að samskonar tilboð væri
í boði í Sviss. „Þetta eru um 100
tölvur sem við bjóðum með þessum
kjörum," sagði hann.
í skilmálunum kemur fram, að
endurgreiðslukrafan er ekki fram-
seljanleg, veðsetjanleg né erfanleg.
Skráður upphaflegur kaupandi er sá
eini sem getur innleyst kaupverðið
eftir tíu ár og þá einungis í nóv-
ember það ár. Hámarkskaup eru
miðuð við 250 þús. á ijölskyldu.
Utfylla verður blað með nafni, heim-
ilisfangi o g upphæð til endurgreiðslu
og um leið og það berst umboðinu
er sent staðfestingarskjal til kaup-
anda, sem ber áð framvísa eftir 10
ár ásamt frumriti af reikningnum.
Verði misbrestur á þessum skilyrð-
um fellur krafan niður.
menn skyggingar og kom fram að
lögreglumennirnir hefðu ýmist tekið
sér stöðu og fylgst með húsum þar
sem Steinn var inni eða beðið í bílum
eftir því að hann færi af stað aftur
og var þá þess gætt að enginn bíl-
anna væri í sjónmáli hans of lengi
í senn til að vekja ekki grunsemdir.
Af þessu virðist leiða að lögreglu-
menn þeir sem yfirheyrðir eru búa
flestir yfír brotakenndum upplýsing-
um um ferðir mannsins þessa daga
en í framburði eins þeirra kom fram
að Bjöm Halldórsson, lögreglufull-
trúi, hefði fyrst um helgina greint
þremur starfsmanna sinna frá því
um hvað málið snerist og að Steinn
sem verið var að fylgjast með væri
grunaður um að hafa mikið magn
af kókaíni- undir höndum. Aðrir sem
að málinu unnu hafí haft litla hug-
mynd um það hvaða brot það væru
sem Steinn væri talinn tengjast.
Einn úr síðasttalda hópnum var
meðal þeirra sem yfirheyrðir voru í
gær en sá kom aðeins að málinu
daginn fyrir handtökuna en kom á
slystaðinn þar sem flóttatilraun
ákærða lauk. Hann minntist þess
að eftir að hafa hlúð að lögreglu-
manninum sem slasaðist við árekst-
urinn og tekið þátt í að veita honum
neyðarhjálp, hafi hann boðið sig
fram til leitar að fíkniefnum í bíl
ákærða, gengið aftur fyrir bílinn
að opnum afturhlera bílsins og séð
að þar aftur í var allt á rúi og stúi
eftir áreksturinn. Hann hafí ekki
Ieitað lengi er hann fann pakka
vafinn innan.í maskínupappír og þar
hafi kókaínið verið komið. Þessi lög-
reglumaður gat nafngreint þann
félaga sinn sem fjarlægt hefði efnið
úr bílnum en í framburði þeirra lög-
reglumanna sem nálægt leitinni
hefur yfirleitt komið fram að þeir
minnist þess að hafa séð kókaínið
í bíl ákærða en ekki hver þeirra fjar-
lægði það úr bílnum.
Þá virðist enginn kannast við að
hafa opnað dyrnar að farangurs-
geymslu bílsins en meðal spurninga
sem fram hafa komið er hvort hugs-
anlegt sé að dymar hafi opnast við
áreksturinn.
I framburði fyrrgreinds lögreglu-
manns kom einnig fram að hann
hefði verið viðstaddur þegar fíkni-
efnaleitarhundur fór yfír flóttabílinn
daginn eftir í leit að fíkniefnum en
þá fundust um það bil 0,6 grömm
af efninu milli sæta bílsins. Hins
vegar fann leitarhundurinn ekki tal-
stöð þá sem notuð hafði verið kvöld-
ið áður til að fylgjast með samskipt-
um ákærða og tálbeitunnar.
Við yfirheyrslu yfír þeim lög-
reglumanni sem annaðist frumrann-
sókn umferðarslyssins eftir eftirför-
ina kom í ljós í spurningum veij-
anda og sækjanda að þeir eru ósam-
mála um hvort ákærði sé sviptur
ökuréttindum eða ekki. Ragnar
Aðalsteinsson hrl., veijandi ákærða,
segir svo vera og kveðst geta fært
sönnur á að umbjóðanda sínum hafi
verið neitað um ökuleyfí á þessu ári
en samkvæmt gögnum lögreglu og
ákæruvalds hefur hann einungis
verið sviptur ökuréttindum á árinu
1988 og þá í tvö mánuði og hafði
því fullgild ökuréttindi þegar hann
ók um dagana fyrir handtöku á bíla-
leigubíl sem lögreglan hafði látið í
té í gengum tálbeitu sína og síðan
á flóttanum á bíl sem lögreglan
hafði látið tálbeitu sinni í té.
Auk lögreglumannanna og fyrr-
greinds vitnis að árekstrinum var
yfirheyrður maður sem tálbeita lög-
reglunnar hafði trúað fyrir aðild
sinni að málinu í því skyni að tryggja
að vitneskja þar um væri á vitorði
fleiri en Björns Halldórssonar lög-
reglufulltrúa og meðal annars kom-
ið að fundi þessa trúnaðarmanns
síns og lögreglufulltrúans. Trúnað-
armaðurinn kvaðst hafa heyrt Björn
Halldórsson lýsa því yfír að hann
gæti engu lofað tálbeitunni sem
endurgjaldi fyrir aðstoð við málið.