Morgunblaðið - 10.11.1992, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÖVUMBlíR lOfe
Reuter
Frá mótmælafundinum í Berlín á sunnudag. Myndin er tekin við Brandenburgarhliðið. A innfelldu
myndinni má sjá Richard von Weizsácker forseta útataðan í eggjum.
Þýskaland
Stj ómley singj ar spilla mót-
mælum gegn útlendingahatri
Berlín. Reuter.
FJORTÁN stjórnleysingjar hafa verið handteknir vegna eggja- og
málningarsprengjukasts á þýska leiðtoga á útifundi í Berlín á sunnu-
dag. Fundurinn var haldinn með stuðningi þýsku stjórnarinnar til
að sýna andúð á útlendingahatri. Tóku um 300.000 manns þátt í
fundinum sem þótti takast vel en aðgerðir um 400 vinstrimanna
settu þó blett á samkomuna.
Neyðarlög
í Kólumbíu
FORSETI Kólumbíu, Cesar Gav-
iria, lýsti yfír neyðarástandi í
landinu á sunnudag vegna stöð-
ugra árása skæruliða og hryðju-
verka fíkniefnasala. Hann hét
verðlaunum til handa þeim sem
handsömuðu tvo þekkta skæru-
liðaforingja. Hann sagðist þess
fullviss að með aðgerðum stjórn-
valda væri komið til móts við
óskir almennings sem vildi að
kveðið yrði niður ofbeldi nokk-
urra bijáiaðra ofstæðismanna er
ekki hefðu lesið um endalok
kommúnismans. Öll viðtöl fjöl-
miðla við skæruliða marxista,
sem eru um 8.000, voru bönnuð.
Á laugardag réðust skæruliðar
á olíuvinnslustöð og felldu 26
lögreglumenn.
Sprengingar í
Marseille
MIKLAR sprengingar urðu í
olíuhreinsunarstöð í frönsku
borginni Marseille í gærmorgun
og fórust fjórir auk þess sem
margir slösuðust. Talið er að
orsök slyssins hafi verið gasleki.
Yfír 250 slökkviliðsmenn voru
þijár klukkustundir að slökkva
eldana sem kviknuðu. Komið var
fyrir fljótandi girðingum á sjón-
um til að hindra olíuefni og
slökkviefni í að menga sjávarlón
í grenndinni.
Plúton-skip
fjarri
ströndum
JAPÖNSK stjómvöld hafa sætt
harðri gagnrýni umhverfís-
vemdarsinna vegna siglingar
skipsins Akatsuki Mam með
1.700 kílógrömm af endumnnu
plútoni, baneitmðu úrgangsefni
frá kjamorkuvemm, frá Evrópu
til Japans. Umhverfíssinnar
segja að allt of mikil áhætta sé
tekin með siglingunni, slys gæti
valdið ægilegum umhverfís-
spjöllum í hafínu. Stjómvöid í
Tókýó segja nú að skipið muni
ekki sigla innan 200 sjómílna
lögsögu annarra ríkja en ekki
var upplýst hver leiðin yrði.
Hizbollah
hótar
ísraelum
TALSMAÐUR Hizbollah-hreyf-
ingarinnar, öfgahreyfíngar
múslima í Líbanon, er nýtur
stuðnings írana, segir að barátt-
unni gegn fsrael verði haldið
áfram. ísrelar hefndu á sunnu-
dag fyrir eldflaugaárásir Hiz-
bollah á stöðvar í Israel og land-
ræmu syðst í Líbanon sem ísra-
elar hafa lengi hersetið. Gerðar
vom loftárásir á stöðvar Hiz-
bollah-liða og féllu fjórir. „Bar
áttan stendur nú milli Hizbollah
og ísraels .. . Sigur vinnst
aldrei með friðarráðstefnum,
uppgjöf eða kvörtunum til Sam-
einuðu þjóðanna," sagði tals-
maðurinn.
Vélmenni við
uppskurð
VÉLMENNI aðstoðaði við upp-
skurð á sunnudag í Bandaríkjun-
um, að sögn lækna á
Sutter-sjúkrahúsinu í
Sacramento, höfuðborg
Kaliforníu. Allt gekk vel. Er talið
líklegt að sh'kur atburður hafí
ekki orðið fyrr, að minnsta kosti
ekki í Bandaríkjunum.
Vélmennið Robodoc er rúmlega
tveggja metra langur armur sem
getur framkvæmt hinar
flóknustu hreyfíngar og var
notaður til að bora í mjað-
margrind til að koma fyrir fest-
ingu á gerviliðamótum.
Mótmælafundurinn var haldinn
undir slagorðinu „Mannleg reisn er
friðhelg" og er þar vitnað í fyrstu
grein þýsku stjómarskrárinnar. Ric-
hard von Weizsácker forseti og
Helmut Kohl kanslari voru í fylking-
arbijósti fundarmanna.
Weizsácker hélt ræðu á Lustgart-
en-torgi og hvatti landsmenn sína
til þess að standa vörð um lýðræðið
og rísa upp gegn starfsemi hægri
öfgamanna sem ofsótt hafa útlend-
inga í Þýskalandi og vanhelgað graf-
reiti gyðinga. Létu vinstrimenn þá
eggjum, gijóti og málningarsprengj-
Dubcek hafði verið í gjörgæslu
eftir að hafa lent í bílslysi 1. sept-
ember. Hann varð fyrir alvarleg-
um meiðslum á hrygg og bringu
þegar bifreið hans þeyttist út af
þjóðveginum milli Prag og Brat-
islava í mikilli rigningu. Læknar
töldu alltaf litlar líkur á að hann
næði sér.
Andlátið bar upp á 75 ára af-
mæli októberbyltingarinnar í
Rússlandi og Míkhaíl Gorbatsjov,
síðasti Ieiðtogi Sovétríkjanna, fór
fögrum orðum um Dubcek, sagði
að hann hefði átt að vera fyrir-
mynd í kommúnistaríkjunum fyrr-
verandi. „Ef við hefðum allir farið
þá leið sem Tékkóslóvakía valdi,
hafnað afskræmingu og öfgum,
værum við betur stödd núna,
heimurinn liti öðruvísi út og mun
auðveldara væri að koma á um-
um rigna yfir hann. Varð forsetinn
að gera hlé á ræðunni þar til óeirða-
lögregla hafði slegið skjaldborg um
hann.
Nokkur egg hæfðu Weizsácker
en tilraunir til að hæfa Kohl báru
ekki árangur.
Vinstrimennirnir sem trufluðu
mótmælafundina sögðu fundahöldin
í Berlín bera vott um hræsni af hálfu
yfírvalda. Á sama tíma og þau stæðu
fyrir fundarhöldunum legðu þau á
ráðin um að þrengja stjórnarskrár-
bundin ákvæði um pólitíska flótta-
menn í þeim tilgangi að stöðva
bótum,“ sagði Gorbatsjov.
Bill Clinton, verðandi forseti
Bandarikjanna, sagði það gleði-
efni að Dubcek skyldi hafa lifað
lýðræðisbyltinguna í landi sínu og
öðrum fyrrverandi kommúnista-
ríkjum Austur-Evrópu. „Bænir
mfnar eru með íjölskyldu hans og
vinum, samborgurum hans og öll-
um þeim sem dáðu hann.“
Dubcec lifði ekki klofning sam-
bandsríkisins Tékkóslóvakíu, sem
skiptist í tvö ríki, Tékkíu og Slóv-
akíu, um næstu áramót. Hann var
algjörlega andvígur því að sam-
bandsríkið yrði lagt niður og
hvatti ítrekað til þess að ríkin
yrðu áfram sameinuð.
Þótt Dubcek nyti virðingar í
útlöndum sætti hann gagnrýni
heima fyrir, einkum af hálfu
hægrisinnaðra stjómmálamanna,
flóttamannastraum til Þýskalands.
Jerzy Kanal, leiðtogi gyðinga í
Berlín, sagði í gær að besta leiðin
sem þýsk stjórnvöld gætu farið til
þess að draga máttinn úr starfsemi
nýnasistahópa væri að bæta efna-
hagsleg kjör íbúa austurhluta lands-
ins. Með því misstu öfgasamtök að-
dráttarafl.
Þýskir og erlendir fjölmiðlar fjöll-
uðu ítarlega um mótmælafundinn í
gær og fullyrtu að hann hefði náð
tilætluðum árangri. Gagnrýndu er-
Iend blöð framferði stjórnleysingj-
anna harðlega.
Kohl gagnrýndi öfgamenn til
hægri og vinstri í gær fyrir tilraunir
til að splundra mótmælafundinum.
„Það vakti fyrir skrílmennunum að
útata ímynd Berlínar og Þýskalands
í augum heimsbyggðarinnar. Það
mun þeim ekki takast,“ sagði kansl-
arinn.
sem sögðu hann ekki hafa veitt
Sovétmönnum nægilega mót-
spyrnu árið 1968. Þeir kenndu
honum um að sovéskar hersveitir
voru í Tékkóslóvakíu í 23 ár eftir
innrásina 1968.
Dubcek var leiðtogi kommún-
istaflokks Tékkóslóvakíu og hafði
beitt sér fyrir „sósíalisma með
mannlegri ásjónu" þegar um hálf
milljón hermanna Varsjárbanda-
lagsins undir stjórn Sovétmanna
réðist inn í landið 23. ágúst 1968
og batt enda á umbótatímabilið,
sem nefnt hefur verið „Vorið í
Prag“. Nokkrum klukkustundum
síðar var hann fluttur í handjárn-
um til Moskvu og sneri aftur nið-
urbrotinn maður. Næstu tvo ára-
tugina bjó hann í Bratislava, höf-
uðborg Slóvakíu, var þar í hálf-
gerðri útlegð í ómerkilegu emb-
ætti í tengslum við skógarhöggs-
iðnaðinn. Hann kom ekki fram
opinberlega fyrr en í lýðræðisbylt-
ingunni árið 1989 þegar hann lýsti
yfír stuðningi við Vaclav Havel,
andófsmanninn sem var síðar
Upphafsmaður „Vorsins í Prag“ látinn
Lítið fjallað um andlát
Dubceks í Tékkóslóvakíu
Prag, Lundúnum. Reuter.
ALEXANDER Dubcek, leiðtogi tékknesku umbótastjórnarinnar
sem hersveitir Varsjárbandalagsins brutu á bak aftur árið 1968,
lést á laugardag, sjötugur að aldri. Erlendir leiðtogar vottuðu
minningu hans virðingu sína en í Tékkóslóvakíu fjölluðu fjölmiðl-
ar og stjórnmálamenn lítið um andlátið.
Breskir fjölmiðlar
um Karl og Díönu
Skílnaður
að borði og
sæng í nánd
London. Reuter.
LÍKUR eru nú sagðar vaxa á því
að Karl prins, ríkisarfi Breta, og
Díana prinsessa komi sér saman
um skilnað að borði og sæng á
næstunni. Blaðið The Daily Mail,
er varð fyrst til að skýra frá
væntanlegum skilnaði hertogans
og hertogaynjunnar af Jórvík í
haust, segir að samningar um
málið séu þegar hafnir.
Sagt er að eina ástæða þess að
Elísabet hafi ekki afsalað sér kon-
ungdómi í hendur syni sínum, Karli,
séu hjónabandsörðugleikar hans.
Skilnaður var óþekktur í bresku
konungsfjölskyldunni frá því á sext-
ándu öld þar til systir Elísabetar,
Margrét, skildi við eiginmann sinn,
Snowdon lávarð, árið 1978.
Bresk dagblöð, einkum slúður-
blöðin, hafa fjallað ítarlega um
hjónabandsvandræði ríkisarfans og
Díönu sem þóttu verða öllum ljós í
opinberri heimsókn þeirra til Suður-
Kóreu fyrir skemmstu. Andrúmsloft-
ið milli hjónanna var ískalt og mátti
vart heita að þau skipust á orðum.
Er Díana kom heim gaf hún út yfir-
lýsingu þar sem hún mótmælti harð-
lega getgátum þess efnis að tengda-
foreldrar hennar hefðu komið illa
fram við hana. En athygli vakti að
hún reyndi ekki að mótmæla því að
hjónabandið væri slæmt.
Um helgina sögðu blöðin að Díana
hefði skýrt Karli frá því að hún
myndi eyða jólunum með bróður sín-
um en ekki í Sandringham-höll eins
og venja er hjá konungsfjölskyld-
unni. í sumar kom út bók um Díönu
þar sem sagt var að hún hefði oft
reynt að svipta sig Iífi vegna óham-
ingju í hjónabandinu. Slúðurblaðið
Sun birti glefsur úr símasamtali er
hlerað var og gaf í skyn að þar
væri Díana að ræða við ástmann
sinn er kallaði hana ýmsum gæluyrð-
um. Blaðið birti í gær nýjan kafla ú
bókinni um Díönu er birtast á í
bandarísku útgáfunni. Þar er fullyrt
að Díana hafi orðið vitni að ástar-
hjali Karls í síma við gamla vinkonu
og á þetta að hafa gerst er hjónin
voru í sumarleyfi við Miðjarðarhafið
fyrr á þessu ári.
Alexander Dubcek.
kjörinn forseti landsins.
Aðeins var lítillega minnst á
andlát Dubceks á vikulegum sjón-
varpsfundi fréttamanna og stjórn-
málamanna á sunnudag. Jan Stra-
sky, forsætisráðherra Tékkóslóv-
akíu, var á meðal þátttakenda og
minntist ekkert á Dubcek. Vaclav
Havel sagði þó að andlátsfregnin
hefði fengið mikið á sig. „Ég leit
á hann sem duglegan, hófsaman
og heiðarlegan stjórnmálamann,"
sagði hann.
Útför Dubceks fer fram í Brat-
islava á laugardag. Ekki var vitað
í gær hvort ríkið myndi heiðra
hann með formlegri athöfn eins
og venja er þegar æðstu embætt-
ismenn eru bornir til grafar.