Morgunblaðið - 10.11.1992, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 10.11.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 Signrður Bjömsson formaður bæjarráðs Viðskipti Fiskmars og OlafsQarðarbæj- ar verði rannsökuð SIGURÐUR Björnsson forraaður bæjarráðs Ólafsfjarðarbæjar hefur ákveðið að óska eftir því við ríkissaksóknaraembættið að rannsókn fari fram á viðskiptum Fiskmars hf. og Ólafsfjarðarbæjar, en Sigurð- ur veitti Fiskmar hf. forstöðu á sínum tíma. Sigurður sagðist hafa tekið þessa ákvörðun eftir ásakanir Bjama Kr. Grímssonar fráfarandi bæjarstjóra og minnihlutans í bæjarstjórn um misferli við ábyrgðarveitingar til Fiskmárs hf. sem komu fram á fundi bæjarstjórnar á laugardag þar sem Bjarna var vikið frá störfum. Sagði Sigurður að samskonar ásakanir hefðu komið fram áður frá þessum aðilum og hefði hann hann í raun ekki áhuga á að lengja þá Kærði fyrrum sambýlismann fyrir nauðgim Rúmlega tvítug kona á Akur- eyri hefur kært fyrrverandi sambýlismann sinn fyrir hús- brot, líkamsárás og nauðgun aðafaranótt laugardags. Maðurinn hefur við yfir- heyrslu hjá rannsóknarlögregl- unni á Akureyri játað að hafa farið inn í íbúð konunnar og lent þar í átökum við hana, sem hún hlaut áverka af, en hann hefur neitað að hafa nauðgað henni. Málið er í rannsókn, en manninum var sleppt að loknum yfírheyrslum um helgina. umræðu frekar. Rannsókn hefði far- ið fram á málinu á síðasta ári og hefði í bréf frá endurskoðendum bæjararins komið fram að hann hefði ekki með óeðlilegum hætti reynt að hafa fé af Ólafsfjarðarbæ. Hann sagði að bærinn hefði tapað 7 millj- ónum króna vegna ábyrgðarveitinga til Fiskmars eftir að fyrirtækið var gjaldþrota í ársbyijun árið 1990, ekki tugum milljóna eins og fram kæmi í bókun bæjarstjóra. „Úr því sem komið er verður að leita eftir niðurstöðu í þessu máli frá þeim aðila í þjóðfélaginu sem ætlað er að dæma fólk, en ekki frá pólitísk- um upphlaupsmönnum," sagði Sig- urður. Morgunblaðið/Rúnar Þór Fjölmenni á afmælishátíð Tíu ára afmæli verslunarmiðstöðvarinnar Sunnuhlíðar var fagnað í síðustu viku, en hátíðardögunum lauk á Iaugardaginn. Gert er ráð fyrir að á milli þijú og ijögurþúsund manns hafi komið í Sunnuhlíð á meðan á afmælishátíðinni stóð. Um 20 verslanir og ýmis þjónustufyrirtæki eru í Sunnuhlíð auk þess sem ýmis félagasamtök hafa til umráða sali þar. Alfreð Almarsson, einn þeirra sem starfa í Sunnuhlíð, sagði að hugmyndin væri að bæta þjónustuna í verslunarmiðstöðinni og vært nú unnið að því að fá apótek þangað og einnig póstafgreiðslu. Akveðið hefur verið að verslanir verði opnar til kl. 16 á laugardögum í nóvember. Staða bæjarstjóra Ólafsfjarðar auglýst í kjölfar samþykktar bæjarsljórnar Meirililuti bæjarstjórnar hefur sagt bæjarsljóra upp störfum „Með allt á hreinu“ í bílabíói MEÐ ALLT á hreinu, bíómynd Stuðmanna, verður sýnd í bíla- bíói sem veitingahúsið Greifinn stendur fyrir norðan við Togara- bryggjuna í kvöld, þriðjudags- kvöld. Áætlað hafði verið að sýna mynd- ina Grease í bílabíóinu, en United Intemational Pictures, sem á sýn- ingarrétt á myndinni, sendi Greifa- mönnum símbréf í síðustu viku þar sem lagt var bann við því að mynd- in yrði sýnd. Hljóð myndarinnar verður sent út á tíðninni 95,7 þannig að bíófar- ar geta notið tónlistarinnar í stereó í bílum sínum. Áætlað er að um 100 bflar komist fyrir á svæðinu norðan Togarabryggjunnar þar sem sýningin verður, en forráðamenn Greifans hafa látið sauma sérstakt tjald til að sýna myndir á með þess- um hætti. MEIRIHLUTINN í bæjarstjóm Ólafsfjarðar samþykkti á lokuðum fundi í bæjarsljóm á laugardag að segja Bjarna Kr. Grímssyni upp störfum sem bæjarstjóra í Ólafs- firði og þess var jafnframt óskað að hann vinni ekki uppsagnar- frestinn. Þá var samþykkt að aug- lýsa starf bæjarstjóra strax, en Kristinn Hreinsson bæjarritari mun gegna störfum bæjarstjóra þar til nýr bæjarstjóri hefur verið ráðinn. Sigurður Björasson, for- maður bæjarráðs, hefur ákveðið að hætta ar og mun hann láta af störfum í næsta mánuði. Óskar Þór Sigurbjömsson, forseti bæjarstjómar Ólafsflarðar, sagði að ekki hefðu margar leiðir verið færar til að leysa ágreiningsmál sem verið hefðu uppi um alllangt skeið. Samn- ingaumleitanir um starfslok bæjar- stjórans hefðu ekki borið árangur, en nauðsynlegt hefði verið að höggva á þann hnút sem samskipti bæjar- stjóra og bæjarfulltrúa væru komin í. Fulltrúar minnihlutans í bæjar- stjóm Ólafsfjarðar, vinstrimenn og óháðir, gengu af fundi er tillaga um að segja bæjarstjóra upp störfum var tekin á dagskrá. Óskar sagði að samkvæmt samn- ingum sem teldust í gildi væri upp- sagnarfrestur bæjarstjóra þrír mán- uðir og þá fengi hann einnig biðlaun í aðra þijá mánuði. Þetta felur í sér 1.740 þúsund króna kostnað fyrir bæjarsjóð, eða aukaútgjöld upp á 820 þúsund krónur þar sem óskað er eft- ir að hann vinni ekki uppsagnarfrest- inn. Samkvæmt heimildum blaðsins strönduðu samningar um starfslok bæjarstjóra jafnan á því að hann krafðist greiðslu biðlauna fyrir heilt ár, eða nær fimm milljóna króna, en á það gat meirihlutinn ekki fallist. Ágreiningur kom upp í fyrrasumar milli meirihluta bæjarstjómar Ólafs- fjarðar, sem sjálfstæðismenn skipa, sem leiddi til þess að þrír af fulltrúum flokksins tóku sér leyfí frá störfum. Þeir komu síðan inn í bæjarstjóm aftur í byijun árs, en Óskar sagði að þrátt fyrir góðan ásetning hefðu mál þróast þannig að bæjarstjóri og formaður bæjarráðs hefðu ekki getað unnið saman. „Ég harma það að málin þróuðust á þennan veg, en ég vonast til að flokkurinn standi þetta af sér, það varð að höggva á þennan hnút og við vonum að ástandið muni lagast í kjölfarið," sagði Óskar. Sigurður Björnsson lét bóka á bæjarstjórnarfundinum á laugardag að til að greiða fyrir friði innan Sjálf- stæðisflokksins um starfslok Bjama Grímssonar hafí hann ákveðið að hætta störfum í bæjarstjórn Ólafs- íjarðar og mun hann hætta störfum á desemberfundi bæjarstjómar. Bæjarstjóm Ólafsfjarðar kemur saman til fundar kl. 17. í dag, þriðju- dag, þar sem þetta mál er m.a. á dagskrá. Bókun Bjarna Kr. Grímssonar, fráfarandi bæjarsljóra Samskiptaerfiðleikar haft truflandi áhrif á störf mín BJARNI Kr. Grímsson, fráfarandi bæjarstjóri í Ólafsfirði, lét bóka eftirfarandi þegar tillaga um starfslok bæjarstjóra var til afgreiðslu á lokuðum fundi bæjarstjórnar Ólafsfjarðar á laugardag: „Ég hef verið bæjarstjóri í Ólafs- hann haldið stíft um taumana og HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI STAÐA LÆKNIS Við Heilsugæslustöðina á Akureyri er laus til umsóknar staða heilsugæslulæknis. Umsóknarfrestur er til 15. janúar nk. Staðan veitist frá 1. maí 1993, eða eftir samkomulagi. Æski- legt er að umsækjendur hafi sérfræðiviðurkenningu í heimilis- lækningum. Upplýsingar gefur Magnús Ólafsson, yfirlæknir. Umsóknir sendist til framkvæmdastjóra. Stjórn Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. fírði frá lokum júlí 1988 og á þeim tíma starfað með fjölda fólks og í langflestum tilvikum átt mjög ánægjuleg og góð samskipti við þetta fólk. Einn ljóður hefur þó ver- ið á samskiptum mínu við fólk og það við einn af bæjarfulltrúum D- listans, Sigurðar Bjömssonar, þau hafa verið mjög stirð og er ljóst að við getum á engan hátt starfað náið saman. Samskiptaerfiðleikar þessir hafa haft verulega tmflandi áhrif á störf mín sem bæjarstjóra. Orsakir þessara samskiptaerfiðleika má rekja til starfa minna sem embættis- manns og persónulegra hagsmuna bæjarfulltrúans. Má þar fyrst nefna ábyrgðarveit- ingar bæjarsjóðs til Fiskmars hf. og var ljóst þá þegar að aðferðir bæjar- fulltrúans voru einfaldar, ef ekki var fallist í einu og öllu á öll hans er- indi athugasemdalaust yrði meiri- hlutasamstarfi D-listans slitið. Þetta hefur gengið sem rauður þráður í öllum erindum og þó nefndur fulltrúi hafí aldrei greitt atkvæði sjálfur um sín mál eða honum tengd þá hefur stjórnað á bakvið. Næst skal nefna að bæjarfulltrú- inn kom við annan mann á fund bæjarstjóra og tjáði honum þar að meirihlutinn í bæjarstjóm hefði ákveðið að nægjanlegt veð væri fyr- ir ábyrgð bæjarsjóðs á lánum Fiskm- ars hf. og annar veðréttur væri ákveðinn en Sparisjóður Ólafsfjarð- arbæjar fengi fyrsta veðrétt þar sem fyrirtækið skuldaði svo mikið þar og þyrfti veðréttinn. Síðar kom í ljós að þessi orð voru hreint fals, en því miður var ég svo einfaldur að trúa bæjarfulltrúanum sem var reyndar framkvæmdastjóri Fiskmars hf. á þessum tíma og hluthafi. Og öllum bæjarbúum er ljóst hvemig fór, bæjarsjóður og fyrirtæki í hans eign hafa tapað tugum milljóna króna. í Ijósi þessa, auk ýmissa atburða annarra, hef ég sem bæjarstjóri ekki verið tilbúinn til náinnar samvinnu við bæjarfulltrúann, enda er langt síðan ég tjáði bæjarfulltrúanum að ef hann hefði einhverja siðferðisvit- und skyldi hann segja af sér í bæjar- stjóm. Því miður er hægt að rekja fleiri dæmi um „pólitískar ákvarðanir" og hindranir sem reynt hefur verið að setja á störf mín sem bæjarstjóra, auk persónulegra ávirðinga. Ég tel að bæjarstjórinn sé embættismaður bæjarstjórnar og hvernig sem hann er kjörinn eða ráðinn eigi hann að starfa fyrir alla bæjarstjómina og álla bæjarbúa, ekki bara fyrir þá sem „kjósa rétt“. Eftir því hef ég reynt að fara, enda kolómögulegur í sam- starfi, alltaf að hygla röngu fólki. Þessi vinnubrögð get ég ekki liðið og hef reynt mitt ýtrasta til að kom í veg fyrir að svo verði, en því mið- ur ekki alltaf tekist. Nú virðist bæjarfulltrúinn enn einu sinn vera kominn með tangar- hald á bæjarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins hér í bæ og er enn einu sinni ekki hugsað um hag bæjarsjóðs eða álit bæjarins út á við, heldur mjög þrönga hagsmuni og er ekki einu sinni hægt að kalla það flokks- hagsmuni því þeir eru einungis per- sónulegir og bæjarsjóður látinn borga eina ferðina enn. Að lokum óska ég Ólafsfírði og Ólafsfirðingum alls hins besta og bæjarstjórninni sérstaklega því ekki mun af veita."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.