Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 38

Morgunblaðið - 10.11.1992, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992 Iðnaður Húsasmiðir semja við Bjöminn SAMSTARFSSAMNINGUR um vörukaup var undirritaður milli Meistarafélags húsasmiða og byggingarvöruverslunarinnar Björninn hf. í gær og nær hann til allrar vöru sem Björninn hefur á boðstól- um. Gunnar Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Meistarafélags húsa- smiða, sagði samninginn stuðla að lægra verði og hann gerði menn því betur í stakk búna að keppa á markaðnum við þær aðstæður sem nú ríktu. Innan Meistarafélags húsasmiða eru um 450 aðildarfélagar og skv. samningnum geta þeir valið um að kaupa vörur af lager Bjamarins eða flytja vöruna beint inn milliliðalaust með sömu kjörum og Björninn nýt- > ur í sínum innkaupum. „Hingað til hafa stærstu félagarnir flutt inn beint, en þessi samingur ryður slóð- ina fýrir þá minni. Við höfum hug á að gera meira af því að reyna að koma á hagstæðum viðskiptum fyrir félaga okkar. Þetta er í raun fyrsti samningurinn sem við gerum en við munum reyna að ná samning- um við fleiri í framtíðinni," sagði Gunnar. Skv. samningnum er gi'eiðslufyr- irkomulag eftir samningi hvers og eins aðildarfyrirtækis Meistarafé- lags húsasmiða við Björninn, en í heild er um verulegan afslátt að ræða að sögn Péturs Pálssonar hjá Birninum. Fyrir nokkru var gerður svipaður samstarfssamningur milli Bjarnar- ins og Félags húsgagna- og innrétt- ingaframleiðenda. Að sögn Péturs er þarna um að ræða aðgerð fyrir- tækisins til að lækka byggingar- kostnað. „Þetta er viðleitni í þá átt að koma þannig kerfi á að ákveðin iðngrein kaupi hráefnið á einu verði og er okkar svar við samdrætti í byggingariðnaði." Sjónarhorn Þjónusta Aukin þjónusta á veit- SAMNINGUR — Frá undirritun samstarfssamnings milli Meistarafélags húsasmiða og byggingarvöruverslunarinnar Björninn hf. Til hægri á myndinni er Pétur Pálsson hjá Biminum, en vinstra megin er Gunnar Dagbjartsson, framkvæmdastjóri Meistarafélags húsasmiða. ingastöðum Burger King Athugasemdir við staðhæf- ingar rafmagnssijóra Skyndibitakeðjan Burger King býður nú upp á nýja og hægari þjónustu en áður á nokkrum veit- ingastöðum sínum. Ákveðið var að gera tilraun með að bjóða upp á meiri þjónustu með því að láta þjóna afgreiða máltíðirn- ar, setja dúka á borðin og skapa kertaljósa-stemmningu. Til að byija með verður boðið upp á þessa nýj- ung á um 15% af 6.300 veitinga- stöðum keðjunnar um heim allan. Tilboðið gildir þó aðeins um kvöidverðartímann og eftir sem áður verður viðskiptavinurinn að fara að afgreiðsluborðinu og panta þar. Hins vegar verður úrvalið á matseðlinum aukið og verður til dæmis boðið upp á góðgæti eins og djúpsteiktar rækjur, mínútusteik og kjúklingarétt. Allt verður þetta afgreitt með kartöflum, salati og öðru tilheyrandi. Ástæða tilraunarinnar er hinn mikli kostnaður sem Burger King keðjan hefur af rekstri sínum um heim allan samanborið við aðrar skyndibitakeðjur, sem margar hveijar hafa boðið lægra verð eða meira úrval en Burger King. Með þessu móti vonast Burger King til að auka tekjur sínar án þess að auka kostnaðinn nema að litlu leyti. eftir Kristján Jónsson í viðskiptablaði Morgunblaðsins fimmtudaginn 29. október er fjallað um frumvarp um að breyta Raf- magnsveitum ríkisins í hiutafélag. í umfjöllun þessari er haft eftir raf- magnsstjóranum í Reykjavík, Aðal- steini Guðjohnsen, að spara megi allt að 400 Mkr og lækka orkuverð um 5-10% ef Rafmagnsveitunum yrði skipt niður í fímm landshluta- veitur. Fullyrðing þessi er úr lausu lofti gripin. Á árinu 1987 var gerð tilraun til að setja upp rekstrarlíkan fyrir raforkudreifinguna í landinu. Reiknilíkanið átti að nota til að fá vísbendingu um hvaða skipulag leiddi til minnsta dreifingarkostnaðar. Þessari vinnu var aldrei lokið og því ekki sýnt fram á, að eitt fyrirkomu- lag á skipulagi raforkudreifingar væri hagkvæmara en önnur. Með aukinni hagræðingu í raf- orkudreifingu má örugglega spara verulega fjármuni. í þessu sambandi má m.a. benda á að síðastliðin fímm ár hefur starfsmönnum Rafmagn- sveitnanna fækkað um 40 og raun- gildi rekstrarkostnaðar lækkað um 12% þrátt fyrir aukin umsvif, aukna orkusölu og stærra orkuveitusvæði. Nú liggja fyrir áætlanir um enn frek- ari hagræðingu og lækkun rekstrar- kostnaðar án þess að skerða þjón- ustustig fyrirtækisins. Breytt skipulag í raforkuöflun og dreifíngu getur að sjálfsögðu leitt til lægra raforkuverðs ef rétt og skyn- samlega er að því staðið. Þetta verð- ur þó varla nema heildarstefna liggi fyrir þar sem tekið er á öllum þáttum raforkukerfísins og skoðað rækilega hvemig samkeppni verður við komið, t.d. með svipuðum hætti og í Noregi eða á Bretlandi. Breyting á rekstrar- formi orkuveitna hér á landi í hluta- félög er tímabær og eðlileg og hindr- ar ekki á nokkurn hátt skipulags- breytingu síðar. í nálægum löndum eru orkufyrirtæki almennt rekin sem hlutafélög og má sérstaklega geta þess, að t.d. í Noregi og Svíþjóð, hafa hlutafélög yfirtekið rekstur orkufyrirtækja sem áður voru rekin sem sveitarfélags- eða ríkisfyrirtæki. í umræddri grein er rafmagns- stjóranum í Reykjavík tíðrætt um að Rafmagnsveitum ríkisins sé miðstýrt frá Reykjavík. Vegna þessara um- mæla rafmagnsstjórans skal eftirfar- andi tekið fram: Á íslandi annast nú 14 rafveitur dreifíngu rafmagns í smásölu. Af þessum rafveitum þjónar Rafmagns- veita Reykjavíkur um 50% lands- manna, þ.e. Reykjavík og fimm öðr- um sveitarfélögum, Rafmagnsveitur ríkisins um 18% og aðrar rafveitur um 32%. Rafmagnsveitur ríkisins eru þann- ig uppbyggðar að umdæmisskrifstof- ur eru á hveiju rekstrarsvæði sem annast daglegan rekstur. Þessar umdæmisskrifstofur eru í Stykkis- hólmi fyrir Vesturland, á Blönduósi fyrir Norðurland vestra, á Akureyri fyrir Norðurland eystra, á Egilsstöð- um fyrir Austurland og á Hvolsvelli fyrir Suðurland. Aðalskrifstofa er nú í Reykjavík og annast. hún ýmis sam- eiginleg mál svo sem fjárreiður, inn- kaup, samræmt birgðahald og tækni: lega- og fjármálalega þjónustu. í stjóm fyrirtækisins sitja fímm lands- byggðarmenn og hefur sú hefð skap- ast að þeir komi frá rekstrarsvæðum fyrirtækisins. Nú skipa stjórnina Gylfi Magnússon formaður, ólafsvík, Pálmi Jónsson Akri, Austur-Hún- vatnssýslu, Benóný Amórsson, Hömrum, Suður-Þingeyjarsýslu, Sveinn Jónsson, Egilsstöðum og Sveinn Ingvarsson, Reykjum, Ámes- sýslu. Stjórn fyrirtækisins heldur að jafnaði 12 fundi á ári þar sem fjallað er um öll meiriháttar mál sem snerta fyrirtækið. Ennfremur hafa stjórn og starfsmenn haldið reglulega fundi með sveitarstjórnarmönnum, fulltrú- um orkukaupenda og öðmm um málefni raforkudreifíngar. Þá er rafmagnsstjóranum í Reykjavík tíðrætt um „yfirbyggingu" Rafmagnsveitna ríkisins sem muni hverfa ef fyrirtækinu yrði skipt upp í fimm veitur. Ekki er þetta nú aug- ljóst að óvíst nema „yfírbyggingin" í heild mundi aukast við fjölgun fyrir- tækja. Spyija má með sama hætti hvort ekki megi losna við helming „yfírbyggingar“ veitufyrirtækjanna í Reykjavík með sameiningu Hitaveitu og Rafmagnsveitu. Þetta virðist ekki vera stefna borgarinnar, enda hefur nýlega verið aðskilin reikningsgerð og innheimta fyrirtækjanna þótt við- skiptavinir þeirra séu oftast þeir sömu og mælar fyrirtækjanna standi hlið við hlið. Höfundur er rafmagnsveitustjóri RARIK. EKKIS0FA 0F LENGIA ÞVI! *Tilboð á svefnsófum og dýnum dagana 10-21 nóvember. •ess LVSTADÚN-SNÆLAND hf Sk útu v og i 11 12 4 R e y k j a v í k S ím i 8 1 4 6 5 5 / 6 8 5 5 8 8 Eigendur lítilla fyrirtækja Viljið þið spara í ykkar fyrirtæki? Ef svo er, ættuð þið að hringja til okkar og fá nán- ari upplýsingar og sendan bækling um bókhaldspakk- ann Vaskhuga. Með því að nota Vaskhuga getið þið sparað í vélbún- aði, hugbúnaðarkostnaði og bókhaldsvinnu. - En það besta er, að þið getið örugglega séð um bókhaldið sjálfir og það sparar oftast mest. =|íVaskhugi hf. 682 680

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.