Morgunblaðið - 10.11.1992, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
47
Afmæli
Uimsteinn Stefánsson
prófessor sjötugur
Hvað tíminn líður hratt! Það er
liðlega aldarfjórðungur frá því að
leiðir okkar Unnsteins Stefánssonar
snertust og í dag er hann sjötugur.
Ég kom til sumarvinnu á Hafrann-
sóknastofnun hjá Unnsteini og
gerði mér litla grein fyrir því þá,
að hann væri einn þeirra frum-
kvöðla sem mótað hafa vísindastörf
þessarar smáþjóðar á vegi hennar
til tæknivædds nútíma. Það var
hollt lærlingi að kynnast viðhorfum
Unnsteins sem og tólum hafrann-
sókna og vinnubrögðum á sjó og í
landi. Allar götur síðan hef ég not-
ið velvildar hans, góðra ráða og
uppörvunar. Það er nefnilega svo,
að verkin sýnast einatt léttari eftir
að hafa spjallað um þau við Unn-
stein og ósjaldan hefur hann sagt
sem svo: Blessaður drífðu í því!
Unnsteinn er einmitt maður sem
drífur í hlutunum. Svo höfum við
grúskað sitthvað saman og sullað
í sjó og vötnum, en aldrei hef ég
annað séð en atorku og ósérhlífni.
Það er þó með hikandi huga að
þessi orð eru sett á blað, því þótt
tíminn líði sína leið þá hefur ekki
dregið af kappanum, hann gengur
í verkin hvert af öðru og leggur
jafnframt drög að nýjum. En ég
freistast til að hylla vin minn Unn-
stein sjötugan og bregða mót birt-
unni fáeinu úr verkum hans.
Skipulegar hafrannsóknir eru
aðeins um aldargömul fræði, sem
felast í því að beita grunngreinum
raunvísinda, eðlisfræði, efnafræði
eða stærðfræði við rannsóknir á
höfunum. Það er síst til trafala að
vera vel að sér í tveimur þessara
greina. Frétt hef ég, að snemma
hafi komið fram hæfileikar Unn-
steins til að fást við talnarunur og
sem unglingur þjálfaðist hann enn
frekar sem innanbúðarmaður aust-
ur á fjörðum. Þetta hefur löngum
nýst honum vel. Þá er hann teikn-
ari góður og einkar laginn við
myndræna framsetningu á niður-
stöðum úr rannsóknum. Oft hefur
starfsbróðir, með útjaskað strokleð-
ur og krumpaðan pappír, mátt horfa
öfundaraugum á handbragð Unn-
steins. Hann hélt til efnafræðináms
við Wisconsin-háskóia í Bandaríkj-
unum á stríðsárunum og sem efna-
fræðingur hóf hann rannsóknastörf
hjá Fiskifélagi íslands 1947. Árni
Friðriksson, fiskifræðingur, mun
hafa átt þátt í því að áhugi Unn-
steins beindist að sjórannsóknum
en að þeim tók hann að vinna 1949
hjá fiskideild Atvinnudeildar Há-
skólans, forvera Hafrannsókna-
stofnunar. Þar með hefjast skipu-
legar íslenskar haffræðirannsóknir.
Hann aflaði sér reynslu og þekking-
ar, dvaldi við rannsóknastofnanir
austan hafs og vestan. Verk sín dró
hann saman í doktorsritgerð, North
Icelandic Waters, sem hann varði
við Kaupmannahafnarháskóla
1962. í það verk vitna þeir oft sem
vinna að rannsóknum á norðurhöf-
um og í því felst mikilvægur grunn-
ur til skilnings og mats á breytilegu
ástandi sjávar frá einum tíma til
annars. Haffræðin í þessu riti er
að mestu á grunni eðlisfræðinnar
en hann efldi aðstöðu til efnarann-
sókna og hóf rannsóknir á næring-
arsöltum og öðrum efnum í sjó og
hefur síðan fléttað saman eðlis- og
efnafræði í mörgum viðfangsefnum
haffræða. Þau verða ekki rakin hér
né allur sá fjöldi fræðigreina sem
hann er höfundur að, en þó verður
að geta annars frumkvæðis Unn-
steins, sem er rannsóknir á vötnum
landsins, fyrst Meðalfellsvatns, síð-
ar Mývatns og nú hefur hann und-
anfarin ár lyft hulunni af sérkenn-
um vatna sém hafa samgang við
sjó, eru fersk við yfirborð en sölt
við botn.
Unnsteini hefur lengi verið ljóst
að mannkyni er nauðsyn að nýta
höfín en jafnframt vernda, og að
fræðsla og þekking væru grundvöll-
ur að hvoru tveggja. Að þessum
málefnum starfaði hann 1970 til
1973 hjá UNESCO í París og fór
síðar á vegum þeirrar stofnunar til
íraks, Líbýu og Nígeríu til að vinna
að skipulagningu hafrannsókna í
þessum löndum. Áður hafði hann
kennt haffræði, hluta áranna 1965
til 1970, við Duke-háskóla í Norður-
Karólínu. Sumir nemanda hans það-
an eru virtir í fræðunum og rekist
þeir á Íslending minnast þeir Unn-
steins sem einstaks kennara og
góðs félaga. En landanum hefur
hlotnast stærstur skerfur frá fræð-
aranum. Fyrst má nefna þá að-
gengilegu bók Hafíð, sem Almenna
bókafélagið gaf út 1961 og er víða
á heimilum landsins. í tvær útgáfur
bókarinnar Náttúra íslands hefur
hann ritað kafla um sjóinn við ís-
land. Frá 1975 hefur hann verið
prófessor í haffræði við Háskóla
Islands og kennt fræðin sem val-
grein nemenda í efnafræði, líf-
fræði, landafræði, jarðfræði og ef
til vill fleiri greinum. Fyrir 1957
var til ein kennslubók í haffræði á
Vesturlöndum. Sú heitir The Oce-
ans og hún lýsti í einu bindi eðlis-
fræði, efnafræði og undirstöðum
að líffræði hafsins. Síðan hefur
þekking manna margfaldast og
kennslubækur nú á tímum eru flest-
ar ritaðar á ensku og fjalla um af-
markaða þætti en greina lítt eða
ekki frá öðrum. Háskólanámsefni
Unnsteins spannar alla meginþætti
haffræða en með sterkum skírskot-
unum til aðstæðna við ísland. Þar
njóta nemendur fjölþættrar þekk-
ingar hans og reynslu. í fyrra kom
þetta efni út í kennslubókinni Al-
menn haffræði I, og síðara bindið
er í smiðju hans. Þessi kennslubók,
sem allir geta lesið í sér til fróð-
leiks, er mikið verk, það lýsir henni
e.t.v. best að hvorki Norðmenn,
Danir né Svíar eiga sambærileg
bækur á sínum málum.
Samstarfsfólk Unnsteins og vinir
þekkja vel hvellan hlátur, glettni
hans og skemmtilegar frásagnir.
Atorkan er mikil og vissulega geta
hlutirnir ekki alltaf gengið með
hægðinni. Þá kemur það sér, að
röddin er sterk og skýr. Heila önn
mun hann hafa kennt efnafræði
þéttsetnum sal Tjamarbæjar án
þess nokkum tíma að nálgast hljóð-
nema sem þar var ætlaður fýrirles-
umm. Þeir heyrðu vel sem aftast
sátu en aðrir óttuðust mest að hann
setti tækið á sig.
Mér er nær að halda að verk
Unnsteins væm færri en raun ber
vitni ætti hann ekki Guðrúnu Ein-
arsdóttur að fömnaut. Heimili
þeirra einkennist af gestrisni og
höfðingsskap. Þangað þykir ungum
drengjum gott að koma. Það er
ánægjulegt að dvelja með þeim
Guðrúnu sumardaga í náttúm
landsins, lesa ber af lyngi eða renna
fyri silung. Setjast síðan að kvöldi
og fullkomna daginn með góðum
málsverði. Til slíkra daga hlakka
ég og mínir. En við ætlum okkur
einnig ýmislegt grúsk. Já, Unn-
steinn, við drífum í þvfl
Jón Ólafsson.
Háskóhnn og OECD-skýrslan
STÚDENTARÁÐ Háskóla ís-
lands og Félag háskólakennara
efnir til opins fundar í hádeginu
þriðjudaginn 10. nóvember um
Háskóla og nýsköpun í Jjósi nýrr-
ar skýrslu frá Efnahags- og
framfarastofnun Evrópu (OECD)
um stefnu íslenskra stjórnvalda
í málefnum vísinda og rann-
sókna.
Gestir fundarins og fmmmæl-
endur em Össur Skarphéðinsson,
þingflokksformaður Alþýðuflokks-
ins, Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, Svein-
björn Bjömsson, háskólarektor, og
Davíð Scheving Thorsteinsson, iðn-
rekandi.
Skýrsla OECD er áfellisdómur
yfír viðhorfí íslenskra stjómvalda
til vísinda og rannsókna og þar er
því haldið fram að nauðsynlegt sé
fýrir íslenskt atvinnulíf að verja
meiru ijármagni á markvissari hátt
til vísinda og rannsókna, þrátt fyrir
þrengingar í efnahagsmálum.
Skýrslan kemur út á sama tíma og
iagt er til í fjárlagafmmvarpi að
Háskóli íslands búi áfram við
þröngan kost.
Á fundinum í Odda koma fram
viðbrögð framsögumanna við
skýrslunni og rætt verður um þátt
Háskólans í nýsköpun atvinnumála.
Að loknum framsöguerindum verða
umræður og fyrirspumir úr sal.
Fundurinn er öllum opinn og stend-
ur frá kl. 12.15-13.00.
(Fréttatilkynning)
WARNER’S
undirfatnaður
Gæði og glæsileiki
Gullbrá-Nóatúni, Sautján-Laugavegi og Kringlunni,
Evíta-Seltjamamesi, Regnhlifabúðin-Laugavegi,
Spes-Háaleitisbraut, Ársól-Grimsbæ,
Libia-Laugavegi.
<J\^jdicL vcíó Uu\ fþ.ðþ. Lj
5Ö
w
5=0
c/i
Sanöra-Hafnarfirði, Bylgjan-Kópavogi,
Miðbær-Vestmannaeyjum, Nana-Lóuhólum,
Júllubúð-Eskifirói, Lff-Mjódd, Hjá Sollu-
Hverageröi, Bnar Guöfinns-Bolungarvík.
Mensý-Selfossi, Smart-Keflavík, Móna
Lfsa-Akranesi, Amaró-Akureyri, Apótek Ólafsvíkur,
Hársnyrtistofa Huldu-Húsavík, Herta-Reyðarfirði.
Ísold-Sauðárkróki, Heba-Siglufirði, Krisma-ísafirði,
Hársnyrtistofa Guðlaugar-Vopnafirði, Hársnyrtistofa
Olgu-Höfn, Viö lækinn-Neskaupstað.
Þúsvalarkstrarþörfdagsins
ástóum Moggans! '
^ii/z®v/i//w v\ // jT/h uiFSfi im\ #/jiiii w f jrsífflss. /
2030
Kópal Tónn 4 Kópal Glltra 10 Kópal Birta 20 Kópal Flos 30
Kópal Geisli 85
Hefur gljáa sem
víða kemur sér vel
enda vinsæl á
stigaganga,
bamaherbergi,
eldhús og þvottahús.
Góð á húsgögn.
Tilvalin þar sem
miklar kröfúr eru
gerðar um
þvottheldni og
styrkleika, t.d. í
bílskúrinn og í
iðnaðarhúsnæði.
Góð á húsgögn.
Sígild mött áferð.
Hentar einkar vel
þar sem minna
mæðir á, eins og í
stofúm, svefn-
herbergjum og á loft.
Silkifín áferð sem
laðar fram smáatriðin
í samspili ljóss og
skugga.
Gefur silkimatta
áferð. Hentar vel á
bamaherbergi,
eldhús, ganga og þar
sem meira mæðir á.
Kópal innanhúss-
málning fsest í
fimm gljástigum.
Kópal innanhússmálning er
einkar auðveld í meðförum,
slitsterk og áferðarfalleg.
Kópal málning fæst í nær
óteljandi litum og alveg
ömgglega í þeim lit sem þú
Rauði 0% miðinn er trygging
fyrir því að í málningunni em
engin lífræn leysiefni.
Betri málning, betra loft,
betri líðan.
Unálninghlf
-það segir sig sjdlft -
*
/////f/JK? #1 1111 / f/IVUI I /I // VmiMll 1\\\ X\ »# li