Morgunblaðið - 10.11.1992, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 1992
Gunnar Bjarnason og
Margrét Agústa Bjama-
dóttir — Aldarminning
Gunnar:
Fæddur 10. nóvember 1892
Dáinn 7. júní 1980
Margrét Ágústa:
Fædd 21. ágúst 1894
Dáin 1. desember 1973
Gunnar fæddist að Nýlendu í
Meðallandi í V-Skaftafellssýslu
1892 og hefði því orðið 100 ára í
dag.
Foreldar hans voru Bjami Vig-
fússon söðlasmiður frá Söndum, f.
1. mars 1853, og Málfríður Einars-
dóttirfrá Kirkjubæjarklaustri, f. 11.
apríl 1855 — sjá Síðuprestaætt.
Gunnar ólst upp á Nýlendu til 6
ára aldurs. Þá flytja foreldrar að
Kampholti og Lambastöðum í Flóa
þar sem þau bjuggu til ársins 1912
er þau flytja til Eyrarbakka. Öll
uppvaxtarárin vann Gunnar við sjó-
inn. Gekk á milli verstöðva sunnan-
sem austanlands.
Systkini Gunnars voru: Einarlína
Ragnhildur, Jóhanna Ingibjörg,
Bjami, (Gunnar), . Bjami, Jón og
Málfríður, hálfsystur áttu þau, Ág-
ústu, en Bjami kvæntist aftur 1912.
Öll létust þau við háan aidur.
Gunnar kvæntjst 16. nóvember
1926 Margréti Ágústu frá Litla-
Seli og eignuðust þau 6 böm og
ólu upp systurson Margétar. Þau
em: Ingi Friðbjöm, f. 2. maí 1931,
Kristjana (Stella) Matta, f. 25. októ-
ber 1933, d. 15. júlí 1965, Óskar
Finnur, f. 21. júlí 1929, d. 14. des-
ember 1981, Svanhvít, f. 16. júlí
1935, d. 20. júlí 1982, Magnús, f.
20. október 1924, Katrín, f. 13.
apríl 1927 og Karl Magnús, f. 20.
apríl 1938. (Sjá mynd)
Lengst af ævinnar bjuggu þau
að Framnesvegi 14. Gunnar stund-
aði útgerð og róðra fyrstu hjúskap-
arárin, en á kreppuárunum varð
hann vegna veikinda að hætta sjó-
róðmm og fluttist alfarið í land, og
vann flest öll árin við hin almennu
verkamannastörf hjá Reykjvíkur-
borg, en flestir minnast hans eflaust
frá Reykhúsinu við Grettisgötu.
Gunnar bjó yfir margbrotnu
lundarfari. Hann var vel greindur
og lesinn. Áhuga- og ákafamaður
um flesta hluti. Mikill verkalýðs-
sinni, sem þó hafði sínar sterku
eigin skoðanir. Hann gerði gott og
hjálpaði þeim er hann gat, hann var
leiðbeinandi og óþreytandi við að
miðla frá sinni lífsreynslu. Var
ófeiminn við að viðurkenna mistök
og taldi vitleysur til þess fallnar að
læra af þeim. Var öriagatrúar og
sannfærður um tilvist góðs og ills.
Fór að heiman með skaftfellskan
þráa í veganesti og hélt alltaf velli.
Margrét Ágústa hefði orðið 98
ára í ágúst. Eins og áður sagði
fæddist hún í Reykjavík. Foreldrar:
Magnús Einarsson, f. 10. janúar
1868, frá Miðkoti í Þykkvabæ og
Katrín Magnúsdóttir, f. 18. júní
1870, frá Þúfu í Landeyjum — sjá
Víkingslækjarætt. Systkini Mar-
grétar vora: Markús Guðmundur
Ingólfur, (Margrét), Stefán, Óskar
Gísli, Kristín Sigurrós, Brynhildur,
Svava, Hrefna, Axel Friðþjófur og
Einar Karl. Áxel er einn eftirlif-
andi, f. 10. maí 1909.
Öll uppvaxtarárin vann Margrét
við fiskinn. Bæði í Reykjavík sem
og úti á landi, Vík í Mýrdal, Vest-
mannaeyjum, en við fráfall móður,
1923, tók hún við búi þá 27 ára
og með 11 manns í eigin umsjá.
Hún var.óþreytandi við að miðla
fróðleik til barna og bamabama um
hið góða og illa og um erflðleika í
uppvexti. Þar sem nýjasta tækni
var ekki til staðar þurfti að sækja
vatn í bmnna og þvo þvotta í laug-
unum. Fara fótgangandi úr gamla
Vesturbænum alla leið í Laugardal-
inn. Hún minntist oft á þrengingar
í búi og erfiðleika en alltaf leystist
þetta með Guðs og mannanna hjálp.
Þrátt fyrir þrengingar var alltaf
hægt að taka á móti nætur- og
langdvalargestum, alltaf nóg pláss.
Hún gat alltaf miðlað af sínum litlu
veraldartekjum til hinna sem hún
taldi að þyrftu meira á því að halda.
Lundarfar hennar var sveipað
gleði og kátínu, sem aldrei bar
skugga á, hvorki í veikindum né
öðmm þrengingum. Hún hafði
gaman af dansi og naut sín í öllum
mannfagnaði.
Við systkinin viljum með þessum
fátæklegu orðum minnast þeirra og
megi þau hvíla í Guðs friði.'
Ingi, Katrín og Karl.
Alice Dalmar Sæ-
valdsson - Minning
Stórhöfða 17, við GuJltebrú,
sími 67 48 44
Masölublaóá hverjum degi!
Fædd 12. júlí 1919
Dáin 12. október 1992
Látin er í Horsens í Danmörku,
12. október sl., frú Alice Dalmar
Sævaldsson, eiginkona bróður míns
Konráðs Óskars Sævaldssonar, og
fer útförin fram í dag.
Mér er ljúft að minnast þessarar
Iátnu mágkonu minnar nokkmm
orðum. Þessi hægláta fallega kona
bjó manni sínum og bömum heim-
ili sem bar vitni smekkvísi hennar
og dálæti á öllu sem fagurt er og
menningarlegt. Ég býst ekki við að
bróðir minn Konráð sé sú manngerð
sem auðvelt er að gera til hæfls en
það tókst Alice sannarlega enda
dýrkaði Konráð hana og tilbað alla
ævi. Heimili þeirra í Fellsmúla,
Unnarbraut og síðast í Torremolin-
os á Spáni vom táknræn fyrir fág-
aðan semkk hennar og þá alúð sem
hún lagði í allt sem hún tók sér
BAÐIÐ I LAG FYRIR JOL!
1. Gæðaflísar 20x20 á vegg 15m og
31,6x31,6 á gólf 4 fm ásamt IFÖ salerni
m/þunnri setu og handlaug.
Fullt verð = 56.167.
Jólapakki 1 = 47.900 stgr.
2. Gæðaflísar 20x25 15m á vegg og
31,6x31,6 4 fm á gólf ásamt IÖF salerni
m/harðri setu og handlaug.
Fullt verð = 69.152.
Jólapakki 2 = 57.900 stgr.
Ps. Það frá allir jólapakkatilboð við hæfi f Flfsabúðinni
Gæðaflísar á góðu verði
Stórhöfða 17, við Gullinbrú
sími 67 48 44
fyrir hendur. Hún var frábær hús-
móðir og minnumst við hjónin sér-
staklega heimsóknar okkar ásamt
tengdamóður og bömum til þeirra
hjóna á Spáni sumarið 1982. Þá
var tekið á móti okkur af mikilli
gestrisni og rausnarskap.
Alice var fríð sýnum, hafði óvenju
mikið og þykkt kastaníubrúnt hár,
hún var meðalmenneskja á hæð og
samsvaraði sér vel. Alice var ekki
fyrir að trana sér fram, en tilsvör
hennar vom oft hnyttin og hlátur
hennar smitandi þannig að alls stað-
ar þar sem hún var nærri í góðum
félagsskap lífgaði hún upp á um-
hverfið. Þannig vil ég ávallt muna
hana, þessa ágætu konu.
Að leiðarlokum er henni þökkuð
samfylgdin. Fjölskylda mín öll send-
ir Konráði, bömum þeirra og fjöl-
skyldum innilegar samúðarkveðjur.
Hörður Sævaldsson.
Það er komið haust. Allt um-
hverfi okkar, náttúran öll, tekur á
sig nýja mynd. Þessi tími ársins
segir okkur svo mikið um líf og
dauða. Grasið sem nú hefur sölnað
verður þó að liðnum vetri grænt á
nýjan leik.
Því,
Fræ í frosti sefur,
fónnin ei grandar því,
Drottins vald á vori,
vekur það upp á ný.
(Sbj. E.)
Og nú þegar haustið hefur tekið
sér öll völd í hendur, og vetur nálg-
ast, fengum við og fjölskylda mín
þá frétt frá Danmörku að hún Alice
mágkona mín væri ekki lengur
meðal okkar.
Ávallt er því þannig varið, að við
emm aldrei alveg reiðubúin að
mæta dauðanum og kveðja hinstu
kveðju þá sem við höfum tengst, á
ieið okkar um lífsins braut.
Það hefði þó ekki átt að koma
okkur á óvart að hún Alice hefði
kvatt þennan heim, þar sem hún
lenti í alvarlegu umferðarslysi fyrir
rúmum fjóram ámm. Gekk hún
aldrei „heil til skógar" eftir það.
Alice Sigríður Kristjana Dalmar
var fædd 12. júlí árið 1919 norður
á Siglufírði. Hún var því 73 ára
gömul er hún lést á sjúkrahúsi f
Horsens í Danmörku 12. október
síðstliðinn.
Hún var dóttir þeirra hjóna Lou-
ise V. Dalmar fædd Hansen og
Páls Siguijónssonar fyrrverandi rit-
stjóra frá Siglufírði. Hún var ein
fimm systkina.
Alice var alin upp á Siglufirði í
„Þormóðs ramma fagra firði“, í
skjóli hárra og tignarlegra fjalla
fjarðarins. Hún hefur því fengið að
kynnast merkri sögu Siglufjarðar á
þessum tíma, sögu sem um svo
margt er sérstæð og merkileg, þá
ekki síst sjálf atvinnusagan, sem
tengdist silfri hafsins sjálfri síldinni.
Til Reykjavíkur lá leiðin þegar
Aiice var á 21. aldursári, eða um
árið 1940. Starfaði hún aðallega
við skrifstofustörf m.a. við svo-
nefnda viðskiptaskrá sem faðir
hennar Páll ritstýrði.
Allir sem vom upp á sitt besta
á þessum ámm þekktu til og kynnt-
ust skemmtana- og menningarlífinu
sem stundað var í hjarta höfuðborg-
arinnar kynntust þeirri sérstöku
stemmningu sem ríkti á Hótel Borg.
Einmitt þar kynntist Alice eftirlif-
andi eiginmanni sínum Konráði
Óskari Sævaldasyni, syni Karolínar
Sigfríðar Stefánsdóttur og Sævald-
ar Óskars Konráðssonar.
Þau Alice og Konráð hófu sinn
búskap hér í Reykjavík. Þau eignuð-
ust þrjú böm Lindu, Pál sem er
kvæntur Alice Bjarregaard. Þau eru
búsett í Horsens í Danmörku, þar
sem minningarathöfn um Alice fór
fram frá Vor Frelsers kirke, í síðast-
liðnum mánuði.
Yngsta bam þeirra hjóna er Stef-
án sem er í sambúð með Aldísi
Ágústsdóttur. Þau em búsett í
Reykjavík.
Alice var í öllu sínu lífi og starfi
mjög hógvær kona. Hún tók því sem
að höndum bar, sýndi oft mikið
þolgæði á erfiðum stundum lífsins.
Viðmót hennar allt var mjög hlýtt
og elskulegt. Hún var traustur vin-
ur í gleði og sorg. Hún stóð við
hlið mannsins síns Konráðs sem
klettur, en eins og áður sagði
bjuggu þau hjónin lengst af í
Reykjavík, þar sem Konráð rak í
ein þijátíu ár endurskoðunarskrif-
stofu og fasteignasölu.
Árið 1979 fluttu þau búferlum
til Spánar. Hugur Alicar leitaði
ávallt til Danmörku, hvar sonur
hennar Páll og fjölskylda býr. Bjó
hún þar hin síðari ár hvar auga-
steinn ömmunnar Hans-Christian
Konráðsson yljaði henni um hjarta-
rætur.
Lífsferðin er á enda, en við sem
vomm svo lánsöm að fá að kynnast
henni á lífsleiðinni eigum um hana
góðar og hugljúfar minningar sem
hugga nú er leiðir skiljast. Við öll
biðjum góðan Guð að blessa minn-
inguna um hana, og að hann styrki
ykkur, þig Konráð og fjölskyldu
þína alla.
Megi elska Guðs vera ykkur öll-
um „líf og slqól".
Stefán Stefánsson.
Sölvi Jónsson vél-
virki - Minning
En ég segi þér, sorgin og gleð-
in ferðast saman að húsi þínu
og þegar önnur situr við borð
þitt sefur hin í rúmi þínu.
Kahlil Gibran.
6. nóvember sl. fylgdum við vini
okkar, Sölva Jónssyni, til grafar.
Það vora okkur þung spor og
óskiljanleg. Fáum höfum við
kynnst sem var jafn lifandi og
fullur af orku og hjálpsemi og
Sölvi.
Gera við bílinn eða fara með
nokkur aukatjöld í Galtalækjar-
skóg og tjalda þeim svo við hin
gætum komið í rólegheitunum —
ekkert mál.
Já, allar samvemstundimar sem
við höfum átt með Erlu, Sölva og
drengjunum þeirra hafa runnið
stöðugt í gegnum hugann núna
síðustu daga. Við spyijum almætt-
ið af hveiju? Af hveiju Sölvi, sem
alltaf var svo frískur, hvernig gat
han veikst svona allt í einu og
dáið? En það er fátt um svör. Líf-
ið er, alltof oft, eitt andartak.
Elsku Erla, það em þungar
byrðar sem lagðar eru á þínar
ungu herðar. Guð gefí þér, drengj-
unum ykkar og litla ófædda bam-
inu styrk.
Ásdfs og Guðbrandur.